Morgunblaðið - 19.01.1994, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JANUAR 1994
21
Davidoff
látinn
RÚSSNESKI vindlakóngurinn
Zino Davidoff lést á föstudag,
88 ára að aldri. Fidel Kastró
Kúbuleiðtogi veitti vindlafyrir-
tæki Davidoffs í Genf sérstakt
leyfi á sjötta áratugnum til að
selja Havanavindla, sem kennd-
ir voru við vindlakónginn sjálf-
an. Davidoff hætti þó að kaupa
kúbverska vindla árið 1990 og
sakaði Kúbveija um að selja
sér óvandaða vöru. Kúbveijar
hófu þá sölu Davidoffs-vindla
án samþykkis hans en deilan
var leyst í desember 1991.
Indíánar
ákalla Clinton
INDÍÁNARNIR sem gerðu
uppreisn gegn stjórn Mexíkó
eftir áramótin hafa beðið Bill
Clinton, forseta Bandaríkjanna,
um að veita stjórninni ekki að-
stoð við fjöldamorð á mexíkósk-
um indíánum. Þeir segja að
stjórnarherinn hafí notað her-
þotur, þyrlur og hergögn sem
Bandaríkjamenn hefðu séð
honum fyrir í baráttunni gegn
eiturlyfjasmygli til að kveða
niður uppreisnina.
Útlendinga-
skattur í
Moskvu
YFIRVÖLD í Moskvu hyggjast
innheimta skatt af erlendum
ferðamönnum, einn Banda-
ríkjadal fyrir hvern dag sem
þeir gista í borginni. Aðeins
ferðamenn frá fyrrverandi lýð-
veldum Sovétríkjanna verða
undanþegnir skattinum. Litið
verður á alla útlendinga sem
gista að minnsta kosti í eina
nótt í Moskvu sem ferðamenn
séu viðskipti ekki megintil-
gangur dvalarinnar.
Heili Leníns
harla venju-
legur
RÚSSNESKIR vísindamenn
léttu í gær hulunni af leynileg-
um rannsóknum á heila bylt-
ingarleiðtogans Leníns, sem
staðið hafa yfir í um sjö ára-
tugi. Markmið rannsóknanna
var að reyna að finna út hvað
lægi að baki hinum miklu gáf-
um Leníns. Oleg Adrianov, for-
maður Heilastofnunar Moskvu,
sagði hins vegar að niðurstaða
rannsóknanna hefði verið að
heili Leníns hefði á allan hátt
reynst ósköp venjulegur. Til
dæmis væri hann um þriðjungi
léttari en heili rithöfundarins
ívans Túrgjenevs, sem uppi var
á síðustu öld.
Undrabarn
höfðar mál
gegn ríkinu
NÍU ára stúlka með greindar-
vísitöluna 161 hefur fengið
heimild til að höfða mál gegn
breska ríkinu fyrir að neita að
greiða skólagjöld hennar. Móðir
stúlkunnar lét hana hætta í
tveimur ríkisskólum og segir
að stúlkan hafi átt við námserf-
iðleika og tilfínningaleg vanda-
mál að stríða vegna þess að
skólarnir hafi ekki séð henni
fyrir þeirri kennslu sem hæfði
greind hennar. Stúlkan er nú í
einkaskóla, þar sem krafist er
skólagjalda, í bekk með nem-
endum sem eru ári eldri en
hún. John Patten menntamála-
ráðherra hafði úrskurðað að
ríkinu bæri ekki að greiða
skólagjöld stúlkunnar.
Þingkosningar boðaðar á Italíu
Gyðmgar knýja
fram tvo kiördaga
Róm. Reuter^ The Daily Telegraph.
BOÐAÐ hefur verið til þingkosninga á Ítalíu 27. mars en vegna
mótmæla gyðinga, sem mega ekki kjósa þann dag af trúarástæðum,
hyggst sljórn landsins framlengja kjörfundinn til klukkan níu eða
tíu kvöldið eftir. Stjórnin hafði legið undir ámæli fyrir að taka ekki
tillit til ítalskra gyðinga og báð
þykkja framlenginguna.
Oscar Luigi Scalfaro, forseti
landsins, ákvað að ijúfa þingið á
sunnudag og fól Carlo Azeglio
Ciampi að gegna embætti forsætis-
ráðherra fram yfir kosningarnar,
en áður hafði hann lagt fram af-
sagnarbeiðni sína. Samkvæmt
stjórnarskránni varð stjómin að
boða til kosninga á sunnudegi og
ekki síðar en 70 dögum eftir þing-
rofið. Ciampi taldi of snemmt að
efna til kosninga 20. mars og 3.
apríl kom ekki heldur til greina þar
sem það er páskadagur. Þá voru
flokkarnir sem börðust fyrir kosn-
ingaumbótunum algjörlega andvíg-
ir því að kosningunum yrði frestað
til 10. apríl.
Stjórnin ákvað því að boða til
kosninganna 27. mars og það olli
miklu uppnámi þar sem páskahátíð
gyðinga lýkur þann dag. Gyðingar
mega ekki ferðast, skrifa eða vinna
á fyrsta og síðasta degi hátíðarinn-
ar, sem er haldinn til minningar
um brottför gyðinga frá Egypta-
deildir þingsins verða að sam-
landi. 30.000 gyðingar eru með
kosningarétt á Italíu og geta ekki
nýtt sér hann ef kjörfundurinn verð-
ur ekki framlengdur.
ítalskir rabbínar vom ánægðir
með áform stjórnarinnar um tvo
kjördaga og leiðtogar helstu flokk-
anna sögðust hlynntir þessari lausn.
Fimmtungur þingmanna gamla
þingsins hafa sætt rannsókn vegna
spillingarmála eða tengsla við maf-
íuna. Gömlu valdaflokkarnir hafa
séð til þess að þeir þingmenn sem
eiga ekki möguleika á endurkjöri
vegna spillingarmálanna verða ekki
á flæðiskeri staddir þótt þeir missi
vinnuna. Ríkið þarf að greiða þeim
jafnvirði 1,8 milljarða króna í bið-
laun, sem miðast við starfsaldur
þeirra. Þannig fær til að mynda
Bettino Craxi, fyrrverandi forsætis-
ráðherra sem er viðriðinn ýmis spill-
ingarmál, jafnvirði 13 milljóna
króna í biðlaun, auk þess sem hann
á rétt á 350.000 krónum í eftirlaun
á mánuði.
Reuter
Gjaldeyrisdeild á hjólum
MOSKVUBÚAR standa í röð til að kaupa dollara í „gjaldeyrisdeild“
á hjólum í Moskvu. í gær féll gengi rúblunnar vegna umróts í kjöl-
far afsagnar Jegors Gajdars, fyrsta aðstoðarforsætisráðherra.
Svein Andra
i 5. sæti
Kosningaskrifstofa
Sveins Andra Sveinssonar,
borgarfulltrúa, Suðurgötu 7, er opin
á milli kl. 9.00 og 24.00.
Sjálfstæðismenn velkomnir.
Studningsmenn.
Ódýrasti japanski bíllinn á markaðnum er
SUZUKI SWIFT
á verði frá kr
. 798.000,-
Suzuki Swift býður upp á lægri rekstrarkostnað því hann er sparneytnasti bíllinn
á markaðnum. Bensíneyðslan er frá 4,0 1 á 100 km. Hann er einnig léttur, sem
þýðir lægri þungaskatt. Síðast en ekki síst er endursöluverðið sérstaklega hátt.
Við bjóðum hagstæð lánakjör. Dæmi: Suzuki Swift GA, verð kr. 798.000. Útborgun (eða gamli bíllinn)
kr. 250.000, meðalafborgun af láni kr. 18.375 í 36 mánuði.
Handhafar bifreiðastyrks
Tryggingastofnunar ríkisins!
IZiÓ sjáum um pappírsvinnuna fyrir ykkur og gerum úthlutunina
aÖ peningum S'l'RyiX.
$ SUZUKI
SUZUKI BÍLAR HF
SKEIFUNNI 17 SlMI 68 51 00
SUZUKI SWIFT - ódýr, sparneytinn og
aldrei betri