Morgunblaðið - 19.01.1994, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 1994
félk f
fréttum
Davy Jones Donna Sununer Frank Zappa
STJÖRNUR
Af gömlum poppurum...
Fyrrverandi hljómsveitarfélagi
Monkeys, Davy Jones, sem
orðinn er 48 ára, var nýlega tekinn
fyrir ölvunarakstur. Honum var
gert að dúsa í steininum yfír nótt
en var látinn laus gegn 5.000 doll-
ara greiðslu. Davy Jones fæddíst í
Bretlandi en hefúr búið á bóndabæ
nokkrum í Pennsylvaniu í Banda-
ríkjunum frá árinu 1987.
Michaei Clarke látinn
Trommuleikari Byrds, Michael
Clarke, lést af völdum lifrarsjúk-
dóms 19. desember sl. 49 ára að
aldri. Clarke bjó í Flórida en spil-
aði með Byrd á árunum 1964-68.
Donna Summer
Diskódrottningin Donna Summer
sem var upp á sitt besta upp úr
1970 hefur nýverið gert langtúna-
samning við Mercury Records. Von-
ast hún til að eiga í framtíðinni
aukna samleið með hljómsveitinni
The Judds frekar en The Bee Gees,
því hún segist í hjarta sínu vera
kántrýaðdáandi. Til að hnykkja á
þvf kveðst hún hafa ákveðið að selja
hús sitt í Los Angeles en hefur í
staðinn I huga að flytja til Nash-
ville, hjarta kántrýtónlistarinnar.
Frank Zappa
Vaclav Havel forseti Tékklands
skrifaði eftirmæli um Frank Zappa
í The New Yorker stuttu eftir lát
Zappa. Lýsir Havel Zappa sem ein-
um helsta manninum í neðan-
jarðarhreyfingu Tékka á sjöunda
og áttunda áratugnum. „Mig
dreymdi aldrei um að ég ætti eftir
að hitta hann,“ skrifaði Havel. „En
stuttu eftir byltinguna þegar ég
var orðinn forseti kom Zappa fram
í Prag.“ Varð þeim vel til vina eft-
ir að hafa farið saman á krá. „Hann
var fyrsti frægi rokktónlistarmað-
urinn sem ég hitti,“ hélt Havel
áfram, „og mér til mikillar gleði
var hann venjuleg manneskja sem
hægt var að tala við á eðlilegan
hátt.“
Carolyn Bessette og John F. Kennedy yngri.
SUNDRUNG
Kennedy yngri með
/ • / •
nyja upp
Nú virðist vera endanlega úti um
giftingu þeirra Danyl
Hannah og John F. Kennedy yngri,
en orðrómur þess efnis hefur verið
á kreiki um nokkurt skeið. Lengst
af hafa þau þó reynt að láta sem
ekkert sé og iðulega sést saman á
ferli. Nú er ungsveinninn eftirsótti
á kreiki í fylgd nýrrar vinstúlku,
en Hannah sést sjaldan á vappi.
Tekið hefur verið eftir hversu lík
hin nýja kærasta er leikkonunni
Darryl Hannah, hávaxin með sítt
Ijóst hár og ámóta andlitsfali.
Kærastan nýja heitir Carolyn
Bessette og er upplýsingafulltrúi
hjá tískufyrirtæki Calvins Klein.
Hún er sögð rétt innan við þrítugt.
Brúðkaup Hannah og Kennedy átti
að vera 22. nóvember síðast liðinn,
eða þegar nákvæmlega 30 voru lið-
in frá morðinu á föður Kennedys,
Johns F. Kennedy Bandarílq'afor-
seta, í Dallas. Þegar að deginum
leið komu hins vegar brestir í Ijós
aarminn
og loks var athöfninni aflýst. Um
skeið voru miklar vangaveltur og
þau skötuhjú sáust saman af og
til, en sjaldan með bros á vör. Einn
af föstu punktunum í tilverunni hjá
þeim Hannah og Kennedy var
skokkið í Miðgarði í New York.
Allt í einu, einn góðan veðurdag,
áttaði ljósmyndari nokkur sig á því
að það var alls ekki Hannah sem
var að skokka með Kennedy og
festi parið á fílmu er þau áðu. Var
þá sýnt að Kennedy hafði skokkað
með nýju stúlkunni í að minnsta
kosti tvæ^ vikur ef ekki lengur, en
það hafði ekki verið tekið eftir því
þar eð Hannah og Bessette eru slá-
andi líkar.
Nú snýst umræðan öll um það
hversu mikil alvara sé á ferðum og
hvort ungfrú Bessette nái að sökkva
klónum lengra inn í kvikuna á hin-
um spengilega og eftirsótta pipar-
sveini heldur en fyrirrennarar henn-
ar mörgu.
Arinninn fékk verðlaun fyrir frumlegustu hugmyndina.
Fjöldi barna var á grímubaUinu og mátti þar sjá marga
skemmtilega búninga.
VESTMANNAEYJAR
Grímuball Eyverja
V estmannaeyjum.
Eyveijar, félag ungra sjálfstæðis-
manna í Vestmannaeyjum,
héldu árlegan grímudansleik fyrir
börn á þrettándanum. Fjöldí krakka
mætti á ballið og voru búningar §öl-
breyttir að vanda. Viðurkenningar
voru veittar fyrir sex búninga og nú
var í fyrsta slripti veittur farandbikar
til þess er besta búninginn átti.
Eyveijar hafa um áraraðir staðið
fyrir grímudansleik fyrir böm á þrett-
ándanum og er grímuballið einn af
föstu Iiðunum í þrettándagleði bama
í Eyjum. Að þessu sinni var ballið
haldið í Félagsheimilinu við Heiðar-
veg og mætti fjöldi krakka á ballið
íklæddur ýmiskonar búningum. Dóm-
nefnd valdi síðan úr þá búninga sem
bestir þóttu að hennar áliti og vora
eigendur þeirra verðlaunaðir.
Fyrstu verðlaun hlaut stór og mik-
ill snjókarl, í öðru sæti varð fíðrildi
og í því þriðja sími. Þá hlutu geimfar-
ar og spákoaa einnig verðlaun og
framlegasta hugmyndin var valin
arinn. Hlutu bömin spil í verðlaun
en þrír efstu fengu auk þess áletraða
skildi og eigandi besta búningsins
hlaut farandbikar til varðveislu í eitt
ár. Grímur
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Búningamir í efstu sætunum á grímuballinu og eigendur þeirra.
1 I í, - -JL j