Morgunblaðið - 19.01.1994, Síða 44
Gæfan fylgi þér
í umferðinni
siováIhMaimennar
MORGUNBLADID, KRINGLAN 1 103 REYKJA VÍK
SÍMI 691100, SÍMBREF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: UAFNARSTRÆTl 85
MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 1994
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK.
Sendi 3 kg af amfeta-
míni með pósti
Dæmdur í
3 V2 árs
iangelsi 1
Þýskalandi
RÚMLEGA fimmtugur maður,
Guðbergur Guðmundsson, var
fyrir nokkru dæmdur í 3V2 árs
fangelsi í landsréttinum í Aach-
en í Þýskalandi fyrir að hafa
smyglað um þremur kílóum af
amfetamíni með pósti hingað
til lands. Maðurinn hefur setið
í gæsluvarðhaldi í Þýskalandi
og beðið úrslita málsins en
—-dóminum hefur verið skotið til
áfrýjunardómstóls í Karlsruhe.
Maðurinn hefur á undanfömum
árum margítrekað gerst sekur um
alls kyns afbrot hérlendis og er-
lendis. í þessu máli var honum
gefið að sök að hafa síaðið í við-
skiptum við nokkra aðila hérlendis
og sent hingað til lands allmargar
sendingar af amfetamíni, sem fal-
ið var í póstumbúðum fyrir böggla-
póstr. Aðeins tókst með vissu að
-.jjDDlvsa um aðild eins aðila hér á
mndi að málum mannsins.
Maðurinn var handtekinn á
heimili sínu í Þýskalandi í mars.
Við leit á heimili hans fann þýska
lögreglan um 100 grömm af am-
fetamíni. Við rannsókn málsins
hér á landi og í Þýskalandi vökn-
uðu grunsemdir um að maðurinn
hafí síðasta árið fyrir handtökuna
sent fjölmargar póstsendingar til
ýmissa aðila hér á landi, með sam-
tals um 3 kílóum af amfetamíni
að söluverðmæti um 10 milljónir
króna hér á landi.
JÓN Viðar Matthíasson aðstoðarslökkviliðsstjóri skoðar staðinn þar sem talið er að eldurinn hafí kviknað. Morgunbiaðið/Júiíus
3.000 varphænur drápust
RÚMLEGA 3.000 varphænur drápust þegar
kviknaði i hænsnahúsi að Grímsstöðum í Kjós
í gærkvöldi. Allt lið slökkviliðsins í Reykjavík
var kallað út auk slökkviliðs af Kjalarnesi
og vatnsflutningabíls frá slökkviliðinu á
Reykjavíkurflugvelli. Fjöldi Kjósverja lagði
og lið við slökkvistarfið.
Hjónin á Grímsstöðum, Hreiðar Grímsson og
Ásta S. Einarsdóttir, höfðu brugðið sér af bæ
og komu heim laust fyrir kl. 18 í gærkvöldi. Þá
urðu þau þess vör að eldur logaði upp úr loft-
ræstitúðu á hænsnahúsinu. Hreiðar opnaði húsið
og var það þá fullt af reyk. Kallað var eftir að-
stoð slökkviliðsins í Reykjavík kl. 18.01 sem
ræsti út slökkviliðið á Kjalarnesi og vatnsfiutn-
ingabíl af flugvellinum. Ottast var að eldur bær-
ist í hlöðu og að erfitt yrði að komast í vatn til
slökkvistarfsins, var því allt tiltækt lið kallað út.
Jón Viðar Matthíasson varaslökkviliðsstjóri
stýrði aðgerðum á Grímsstöðum og sagði hann
að fjórir reykkafarar hafi verið sendir inn í hús-
ið. Stutta stund tók að hefta útbreiðslu eldsins
og slökkva yfirborðseld. Rjúfa þurfti þekju
hænsnahússins t-il að komast að eldi sem leyndist
í millilofti. Rannsókn á eldsupptökum var ekki
lokið þegar blaðið fór í prentun, en líklegast
þótti að kviknað hafi í út frá jafnara í loftræsti-
kerfi.
Hreiðar Grí'msson bóndi taldi húsið ekki mikið
skemmt nema þakið, en óttaðist að varpbúr fyr-
ir 5.000 hænur væru ónýt. Til stóð að bæta við
2.000 ungum i húsið eftir nokkra daga til viðbót-
ar við hænumar 3.000. Egg em aðalafurð búsins
á Grímsstöðum og var bóndinn ekki tryggður
fýrir rekstrarstöðvun, en hús, búnaður og bú-
stofn var tryggt. Hreiðar bóndi reiknaði með að
um hálft ár tæki að koma eggjaframleiðslunni
aftur í gang þannig að tjónið er tilfínnanlegt.
Vegna þess hve mörg tæki slökkviliðsins í
Reykjavík fóru upp í Kjós var Slökkvilið Hafnar-
fjarðar í viðbragðsstöðu ef til stórs útkalls hefði
komið á svæði Slökkviliðs Reykjavíkur.
Fannst í tollpósti
Málið komst upp þegar tollverð-
. jr á Tollpóststofunni í Reykjavík
fundu 113 grömm af amfetamíni
falin í sérhönnuðum póstumbúðum
utan um póstsendingu sem send
var fertugum manni hér á landi.
Fljótlega bárust böndin að þessum
manni í Þýskalandi sem sendanda
og vegna rannsóknarinnar komu
tveir þýskir rannsóknarlögreglu-
menn hingað til lands í fyrravetur
og unnu að málinu ásamt íslensku
fíkniefnalögreglunni. Þrátt fyrir
að grunur beindist að nokkrum
fjölda manna hérlendis sem við-
takendum sendinga mannsins og
dreifendum efnisins hérlendis
tókst ekki að sanna aðild þeirra.
Yfír átta þúsund manns voru atvinnulausir í desembermánuði
5.600 manns að meðaltali
atvinnulausir á árinu 1993
RÚMLEGA átta þúsund manns, nær jafn margir karlar og konur,
voru að meðaltali atvinnulausir í desembermánuði eða um tvö þúsund
fleiri en í nóvember og einnig um tvö þúsund fleiri en í desember í
fyrra. Þetta jafngildir því að atvinnuleysi hafí verið 6,3% af mannafia
á vinnumarkaði. Atvinnuleysi hefur ekki áður verið jafnmikið.
Síðasta dag desembermánaðarins
voru tæplega tíu þúsund skráðir at-
vinnulausir, um þijú þúsund fleiri
en síðasta dag nóvember og eru lík-
Vísindamenn segja hlaupið í Síðujökli helst líkjast sjávaröldu
Jökulbylgjan færíst fram
um 20-25 metra dag hvern
FYRSTU mælingar vísindamanna á vegum Landsvirlqunar og Raun-
vísindastofnunar benda til þess að ísinn ofan á öldutoppinum á Síðu-
jökli færist fram um 12 metra á dag en bylgjan sjálf sem skríður
-*eiður jökulinn hefur hins vegar færst um 200 metra frá 7. til 16
janúar, eða um 20-25 metra á dag. Að sögn Magnúsar Tuma Guð-
mundssonar, jarðeðlisfræðings hjá Raunvísindastofnun líkist það
einna helst sjávaröldu þegar bylgjan færist undir efsta lagi íssins
og hrífur hann með sér. Hann segir að líklega eigi hraðinn eftir
að aukast eitthvað þegar líður á hlaupið og býst við að 4 til 6 vikur
líði þangað til að framhlaupið nái sporðinum.
Vísindamenn hafa unnið að því
undanfarna daga að reka niður stik-
ur á Síðujökli eins langt upp á jökul-
inn eins og þeir komust. Oddur Sig-
urðsson jarðfræðingur hjá Orku-
stofnun segir að hreyfing stikanna
sé síðan mæld á hveijum degi. Einn-
ig hafa verið settar niður stikur við
jökuljaðarinn og beðið er eftir þvi
að hann færist fram.
Þegar jökullinn hljóp siðast árið
1964 voru stikur settar þar sem
hann stöðvaðist og síðan hefur verið
mælt á hverju ári hversu langt hann
hopar, og eru þær sem nú eru fjærst
jaðrinum ailt að 1,5 km í burtu.
ur til þess að atvinnuleysi í janúar
verði enn meira en í desember eða
á bilinu 7-8% af mannafla á vinnu-
markaði, sem rakið er til tveggja
vikna sjómannaverkfalls, auk þess
sem atvinnulíf sé alltaf í mestri lægð
á þessum árstíma.
Atvinnuleysi var mest á Norður-
landi eystra í desember 10,2% og
næstmest á Austurlandi 9,7% og þar
næst á Norðurlandi vestra 8,9%.
Atvinnuleysi í þessum landshlutum
óx einnig mest milli mánaðanna.
Atvinnuleysi var minnst á Vestfjörð-
um 2,2% og á höfuðborgarsvæðinu
5,4%.
1.700 fleiri atvinnulausir
Á öllu árinu 1993 voru 5.601 að
meðaltali atvinnulausir á landinu öllu
eða rúmlega 1.700 fleiri en á árinu
1992 þegar 3.868 voru að meðaltali
atvinnulausir. 1.240 fleiri voru at-
vinnulausir á höfuðborgarsvæðinu á
árinu en 1992, en það jafngildir 64%
aukningu. Aukningin milli ára hlut-
failslega var hins vegar mest á Vest-
fjörðum 167%. Þar var hins vegar
atvinnuleysi minnst á landinu eða
2,2%. Atvinnuleysi minnkaði aðeins
í einum landshluta milli ára, á Suð-
urnesjum. Þar fækkaði atvinnulaus-
um á um 19 frá 1992 eða um 4%.
Gera má ráð fyrir að atvinnuleysis-
bætur í fyrra hafi samtals numið í
kringum 2,7 milljörðum króna.
Sjá einnig frétt og forystu-
grein á miðopnu.
»..
Söfnunarfé
stríðshijáðra
barna stolið
BROTIZT var inn í Nemendaleik-
húsið í Héðinshúsinu við Seljaveg
í fyrrinótt, og eru líkur á að það-
an hafi verið stolið verulegum
fiármunum, m.a. úr söfnunar-
baukum Rauða kross íslands,
sem Nemendaleikhúsið safnaði í
fyrir stríðshrjáð börn m.a. með
því að afþakka blóm á frumsýn-
ingu en hvetja þess í stað fólk
til að gefa í söfnunarbaukana.
Samkvæmt upplýsingum Mar-
grétar Vilhjálmsdóttur hjá Nem-
endaleikhúsinu var einnig stolið
aðgangseyri að frumsýningunni og
2. sýningu, svo og innkomu af sölu
í hléum.