Morgunblaðið - 13.03.1994, Side 2

Morgunblaðið - 13.03.1994, Side 2
2 FRETTIR/INNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. MARZ 1994 EFNI Fjör í ástarlífinu á Flateyri spornar við fólksfækkun á Vestfjörðum 12 konur eiga von á sér á þessu ári Flateyri. FÓLKSFÆKKUN á Vestfjörðum hefur verið stöðug seinustu ár og áratugi og hefur reynst erfitt að sporna við þeirri þróun. Flateyringar hafa þó upp á síðkastið snúið vörn i sókn til að halda í horfinu og jafnvel snúa við blaðinu. Aðferðin sem notuð er hefur verið kunn frá upphafi vega og hefur greinilega borið góðan árangur. er nú varla annað rætt en með- ganga, fæðing, morgunógleði, Eins og málið horfir við Flateyr- ingum í dag má segja að kall nátt- úrunnar hafi tekið í taumana hvað fólksfækkunina varðar og eru nú u.þ.b. 20% kvenna á bameignar- aldri í þessu 400 manna plássi með. barni. Til samanburðar má geta þess að fæðingar árið 1993 voru fjórar og sjö árið 1992. Ekki hefur verið gerð faraldurs- fræðileg úttekt á máli þessu, en til að vera með á nótunum í sauma- klúbbunum er eflaust betra að vera kona ekki einsömul, því þar ásamt öðru sem þessu tengist. Á Flateyri eru ekki aðstæður til þess að taka á móti börnum og þurfa konur því að leita annaðhvort á ísafjörð eða til Reykjavíkur þegar að fæðingu kemur. Ymislegt er þó gert til þess að létta konum með- gönguna og býður heilsugæslu- læknirinn á Flateyri upp á slökun- artíma fyrir þær og einnig sækja konurnar samviskusamlega sund- leikfimitíma í Sundhöll Flateyrar. Morgunblaðið/Steinþór Óléttar og afslappaðar ÓLÉTTAR að koma úr slökun, f.v.: Vigdís Erlingsdóttir, Svanhild- ur Hlöðversdóttir, Lilja Halldórsdóttir og Hildur Halldórsdóttir. Enn má eiga von á því að bams- fæðingar á Flateyri á þessu herr- ans ári verði fleiri en staðfestar fréttir segja í dag og aðeins hefur fengist staðfest að ein þessara 12 kvenna sem nú em óléttar gangi með tvíbura. ÞEGAR ríkið bauð SR-mjöl til sölu á síðasta ári var fyrirséð að hagnaður yrði með mesta móti af rekstri fyrirtækisins og hluthöfum yrði greiddur arður. Milliuppgjör, sem gengið var út frá þegar fyrir- tækið var boðið út, benti til þess og endanlegt uppgjör staðfesti það. Að sögn stjórnarformanns SR-mjöls og þeirra sem komu að sölu þess er um eðlilega viðskiptahætti að ræða þegar nýjum hluthöf- um er greiddur út arður á aðalfundi. Sigurður B. Stefánsson, fram- kvæmdastjóri Verðbréfamarkaðar íslandsbanka hf., segir að um eðli- lega viðskiptahætti hafi verið að ræða þegar aðalfundur SR-mjöls ákvað að greiða hluthöfum út 10% arð af nafnverði hlutabréfa sem er 650 milljónir. Arðgreiðslumar nema því 65 milljónum. Sigurður segir að öllum hafi verið ljóst þegar kaup- samningur var gerður að þessi hagn- aður hafi myndast og arður myndi Olíufélögin þrjú Skýra ekki frá álagn- ingunni FORSVARSMENN oh'ufélag- anna þriggja, Esso, Olís, og Skeljungs hyggjast ekki gefa upp kostnaðarverð og álagn- ingu á olíu eins og seld er í Hagkaupum og Bónus. Forstjóri Esso, Geir Magnús- son, og Kristinn Bjömsson, for- stjóri Skeljungs, vildu hvorugir veita þessar upplýsingar í sam- tali við Morgunblaðið. Ekki tókst heldur að fá þessar upplýsingar frá Olíuverslun Íslands. verða greiddur til nýrra eigenda og ætti það ekki að koma á óvart. „Það er vert að hafa í huga að þetta er besta ár í sögu félagsins. Ekkert er óeðlilegt við arðgreiðslumar né held- ur koma þær á óvart,“ sagði Sigurð- ur. Aðspurður um hvort þama gæti verið um að ræða skuldsetta yfirtöku (leveraged buyout), þ.e. þegar fýrir- tæki kaupa sig sjálf, sagði Sigurður að sér fyndist óviðeigandi að nefna það í þessu samhengi. Um slíkt væri talað þegar kaupandi tæki nær allt eða verulegan hluta af kaupverði fyrirtækis að láni. „Það er ástæða til að leggja á það áherslu hvað þessi kaup eru gerð með skipulegum hætti. Ég get upplýst það, af því að mitt fyrirtæki sá um söluna á SR-mjöli, að þau tvö markmið sem höfð voru að leiðarljósi við söluna, að seljandi fengi hagstætt verð og öruggar greiðslur og kaupandi gæti tryggt rekstur fyrirtækisins áfram, þau náð- ust,“ sagði Sigurður. Hluthafar ekki í fjárþörf Benedikt Sveinsson, stjómarfor- maður SR-mjöls, segir að um hafi verið að ræða eðlilega arðgreiðslu í SVEITARSTJÓRNIR Rauðasandshrepps, Patreksfjarðarhrepps, Bíldudalshrepps og Barðastrandarhrepps hafa samþykkt að samein- ast, en tveir síðast nefndu hrepparnir samþykktu sameiningu í fyrra- kvöld. í dag verður fundað í sveitarstjórn Tálknafjarðarhrepps vegna þeirrar niðurstöðu sem fyrir liggur. I samtali við Morgunblaðið sagði Brynjólfur Gíslason, sveitarstjóri, líklegt að efnt yrði til nýrra kosn- inga hið fyrsta um sameiningu. Hann taldi þó ósennilegt að samein- ing yrði samþykkt. Verði hins vegar úr að Tálknafjarðarhreppur gangi í eina sæng með hreppunum fjórum sem umlylqa hann, munu tæplega 1.900 manns búa í sveitarfélaginu, en annars 1.500 íbúar. Ef meirihluti íbúa samþykkir ákvörðun sveitarstjóma, verður form- leg sameining 11. júní nk. Leitað til Atvinnuleysistryggingasjóðs Kópavogur óskar 60 stöðugilda framlags BÆJARRÁÐ Kópavogs hefur samþykkt nýja atvinnuátaksáætlun fram á næstkomandi sumar og mun Kópavogsbær samkvæmt henni sækja um framlag úr Atvinnuleysistryggingasjóði sem samsvarar 60 stöðugild- Allt að 50 starfsmenn hafa haft vinnu við sérstök atvinnuátaksverk- efni hjá Kópavogsbæ í vetur. Verk- efnastaðan var nýlega endurskoðuð og samþykkti bæjarráð í gær nýja atvinnuátaksáætlun. Stærsta verk- efnið er stígagerð og girðingavinna og hefur bæjarráð heimilað að ráðist verði í framkvæmdir strax og veður leyfír. Til þeirra starfa, i samtals 20 stöðugildi, verður ráðið atvinnulaust Dagsbrúnarfólk. I frétt frá Kópavogsbæ segir að bærinn muni sækja um framlag úr Atvinnuleysistryggingasjóði sam- kvæmt nýju atvinnuátaksáætluninni sem samsvarar 60 stöðugildum. „Það er mikill sóknarhugur í mönnum og hagræðið sem samein- ingu fylgir vegna ódýrari stjóm- sýslu og lækkunar skulda, auk ann- ars, gerir þessa sameingu afar heppilega,“ segir Guðmundur S. Guðjónsson, oddviti í Bíldudals- hreppi, og segir þann möguleika jafnframt í umræðunni að gera svæðið að bæjarfélagi. Sameiningamefnd sveitarfélag- anna fjögurra undirritaði á miðviku- daginn samþykkt um sameiningu. Umdæmanefnd hafði lagt til að umrædd sveitarfélög, auk Tálkna- Qarðar, sameinuðust og var tillagan samþykkt nema í Tálknafirði. Ólaf- ur Amfjörð sveitarstjóri segir, að um leið og kosninganiðurstöður lágu fyrir hafí sameiningamefndin tekið til starfa. Nefndin setti fram ákveðin skilyrði gagnvart ríkinu Ákvörðun aðalfundar SR-mjöls um 10% arðgreiðslur til hluthafa Vitað að arður yrði greidd- ur þegar kaupin voru gerð hlutafélagi. Þeir hluthafar SR-mjöls sem eigi yfir 40% hlutafjár séu lífeyr- issjóðir og fjárfestar og þeir séu ekki í neinni fjárþörf. Hins vegar vilji menn gjaman sjá arð í þeim félögum sem gangi vel, það sé eðli hluta- félaga. Það séu þó ekki öll hlutafélög sem hafí efni á því. Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegs- ráðherra, segir um venjulega við- skiptahætti að ræða, nýir eigendur hlutabréfa fái greiddan arð af þeim á næsta aðalfundi. Hann segir að milliuppgjör hafi verið lagt til grund- vallar þegar fyrirtækið var boðið út og að endanlegt uppgjör sé í sam- ræmi við þær niðurstöður og það sem ráð var fyrir gert um reksturinn. Ekkert nýtt sé að koma fram í dags- ljósið nú. Sameining samþykkt syðst á Vestfjörðum varðandi fjármál sveitarfélaganna, atvinnumál og samgöngumál. Ólík skuldastaða Patrekshreppur, Bíldudalshrepp- ur og Barðastrandarhreppur hafa allir varið háum fjárhæðum til að treysta atvinnulíf undanfarin ár og á það sinn þátt í að skuldastaða sveitarfélaganna fimm hefur verið ólík. Félagsmálaráðherra staðfesti með bréfi 7. mars síðastliðinn, að hann myndi beita sér fyrir aðgerð- um til að jafna skuldastöðu sveitar- félaga á sunnanverðum Vestfjörð- um vegna sameiningarinnar. í bréf- inu kemur fram, að veita skuli sér- stöku framlagi í þessu skyni í Jöfn- unarsjóð sveitarfélaga næstu fjög- ur árin, sem fjármagnað verði af ríkissjóði. Þá segir að þetta framlag sé háð því skilyrði, að framlag komi einnig af fjármagni því sem Jöfnun- arsjóðurinn greiðir til Lánasjóðs sveitarfélaga. Framkvæmd skuldajöfnunarinn- ar verður líklega sú, að helmingur skulda sem eru umfram 50% af skatttekjum sveitarfélaganna verð- ur felldur niður. Þá verður auknu fé varið til snjómoksturs til að greiða fyrir samgöngum milli byggðanna og tekið tillit tii samein- ingarinnar við endurskoðun vega- áætlunar á næsta ári. ►l-40 "^4 Háyf irdómur og nýl- iðadeild ►Allsherjamefnd Alþingis vill nýskipan Hæstaréttar þar sem reynslumestu dómaramir dæmi í stóra málunum en nýliðar afgreiði smámálin./lO Eiginkonan úr valda- sessi vegna meintra fjárglæfra? ►Whitewater-málið og vandi Clintons forseta./12 Það má reyna ►Rætt við ungmenni sem áttu óuppgerð mál þegar nýju skaða- bótalögin gengu í gildi þann 1. júlí síðastliðinn./14 ísiensk hönnun ►Rætt við hönnuðina Björgu Ingadóttur, Evu Vilhelmsdóttur og Valgerði Torfadóttur./18 B ► 1-20 ►20 síðna blaðauki um undirbún- ing fyrir fermingar fylgir Morgun- blaðinu í dag. 'W L'í*1* kiminfjar in ►1-32 Vonin björt ►Ballett Auðar Bjamadóttur, eitt af fjóram dansverkum sem ís- lenski dansflokkurinn sýnir um þessar mundir í Þjóðleikhúsinu, hefur vakið athygli og fengið mjög góða dóma./l í nafni föðurins - sönn saga' ►Gerry Conlon ræðir um kvik- myndina sem byggð er á ævisögu hans./4 Andskotans skrípó! ►Rudi Knapp fararstjóri með meiru í Austurríki./ 12 Carrington lávarður ►Fjórði hluti greinaflokks þar sem Jakob F. Ásgeirsson ræðir við breska stjórnmálamenn./14 Lifandi safn ►Bak við tjöldin fer fram mikil og þögul vinna að sögn Bera Nor- dals forstöðumanns Listasafns Is- lands./16 D BILAR ►1-4 Ermasundsgöngin opna í maí ►Ferðin um göngin tekur aðeins um hálfa klukkustund. /3 Reynsluakstur ►Stuttur Suzuki Vitara með stærri vél. /4 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/6/bak Dægurtónlist 19b Kvikmyndahús 16 Fólk í fréttum 20b Leiðari 20 Myndasögur 25b Helgispjall 20 Brids 25b Reykjavíkurbréf 20 Stjömuspá 25b Minningar 22 Skák 25b Útvarp/sjónvarp 36 BÍ6/dans 26b Gárur 39 Samsafnið 28b Mannlífsstr. 8b Bréf til blaðsins 30b Kvikmyndir 18b Velvakandi 30b INNLENDAR FRETTIR: 2-6-BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1-4

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.