Morgunblaðið - 13.03.1994, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 13.03.1994, Blaðsíða 23
23 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 13. MARZ 1994 laga, Bjarna Tómassonar. En hann varð bráðkvaddur að kvöldi dags hinn 4. mars sl. Margs er að minn- ast og margt að þakka eftir nær hálfrar aldar trausta vináttu og sam- skipti. En óhjákvæmilega myndast tómarúm í tilveruna, þegar fornvinir okkar hverfa á braut í hinzta sinn. Bjarni Tómasson var fæddur hinn 10. janúar 1918 í Reykjavík og ólst þar upp. Foreidrar hans voru hjónin Tómas Jónsson trésmiður og verk- stjóri er stofnaði Efnalaug Reykja- víkur, sem hann rak um árabil, og Bjarnína Bjarnadóttir. Faðir hans lézt á besta aldri vorið 1936 en móðir hans 29. mars 1970. Bjarni fór ungur í Verzlunarskóla íslands og lauk þaðan brottfararprófi 18 ára gamall vorið 1936 með hárri ein- kunn. Faðir hans andaðist þá um vorið og tók Bjarni, sem var elstur fjögurra systkina, við rekstri efna- laugarinnar að honum látnum. Hann var síðan forstjóri hennar í þrjátíu ár til vors 1966. Þá réðst hann í þjónustu Iðnaðarbanka íslands hf. og starfaði þar og síðar I íslands- banka hf. unz hann hætti störfum vegna aldurs á haustdögum 1990. Hann var lengst af deidlarstjóri í ýmsum deildum bankans að undan- skildum þremur árum, sem hann var útibússtjóri í Hafnarfirði. Mér er kunnugt um, að Bjarni naut mikils og verðskuldaðs trausts yfirmanna sinna. Engum sem hafði af honum einhver kyni gat blandast hugur um, að það rúm, þar sem hann átti sæti, var vel skipað. Eng- inn þurfti að draga í efa, að spor drengskaparmanns og mannkosta hlutu að sjást hvarvetna, þar sem hann hefði haslað sér völl í þjóðfélag- inu. Vera má, að það sé þjóðinni meira tjón en metið verði, þegar miklir hæfileikar og farsælar gáfur koma ekki að þeim notum sem efni standa til, vegna eðlislægrar hóg- værðar og hlédrægni einstakling- anna sjálfra. Bjarni Tómasson var mikill gæfu- maður í einkalífi. Hann kvæntist mætri konu og góðri á 25 ára af- mæli sínu hinn 10. janúar 1943, ídu Ingibjörgu Tómasdóttur og áttu þau 50 ára hjúskaparafmæli, fyrir rösk- lega einu ári. Þau áttu fagurt og vistlegt heimili, þar sem gestrisni og einlæg alúð mætti ávallt þeim, sem að garði bar. Hún er mikill kvenkostur og góður. Það er mál þeirra sem til þekkja, að með þeim hafi verið jafnræði mikið. Þau áttu saman eina dóttur, Birnu Guðrúnu, og kjördóttur, Hildi Halldóru. Þær bera æskuheimili sínu fagurt vitni og hafa reynst þjóð sinni traustir og dugandi þegnar. Bjarni Tómasson hafði mikil af- skipti af félagsmálum. En honum var ógeðfellt að láta nokkuð á sér bera í þeim efnum og forðaðist jafn- an að ota sjálfum sér fram á þeim vettvangi en hann aflaði sér trausts og virðingar félaga sinna með hóg- værð og prúðmennsku. Þeir hafa efalaust komist að raun um, að hveiju máli, sem honum var falið, var vel borgið í höndum hans. Hér skal fátt eitt talið, sem mér er kunn- ugt um. Hann var formaður Félags efnalaugaeigenda um árabil. Þá átti hann lengi sæti í stjórn Félags frí- merkjasafnara og var formaður þess um skeið. Hann var um árabil for- maður Félags starfsmanna Iðnaðar- bankans og fulltrúi þess félags á þingum Sambands íslenskra banka- manna. Þá starfaði hann um skeið í Rotary-hreyfingunni. Einnig starf- aði hann mikið og lengi í félagsskap Oddfellowa. Mér er kunnugt um að þar voru honum falin fjölmörg og margþætt trúnaðarstörf í áratugi. Hann gekk þeim félagsskap á hönd snemma árs 1950 og var að lokum falið starf ritara í yfirstjórn Odd- fellow-reglunnar. Bjarni Tómasson var gætinn mað- ur og orðvar en jafnframt léttur í lund og oft með gamanyrði á vör, stilltur vel og einstakt prúðmenni. Hann var athugull og glöggur að greina aðalatriði frá aukaatriðum í hveiju máli. Ég ætla, að stærðfræði og raunvísindi hafi legið vel fyrir honum í skóla. í skóla lífsins reynd- ist hann raunsær en um leið mann- legur (humanisti) í bestu merkingu þess orðs. Ég minnist nálega fimmtíu ára traustrar og einlægrar vináttu Bjarna Tómassonar nú, þegar leiðir skiljast. Við áttum saman óteljandi ánægjustundir við dagleg störf og margs konar störf að félagsmálum að ógleymdum ferðalögum bæði hér heima og erlendis. Bjarni var skemmtilegur ferðafélagi, víðlesinn og fróður og fljótur að kynnast fram- andi þjóðum og einstaklingum. í kunnu erfiljóði eftir Einar Bene- diktsson skáld segir svo: Af eilífðarljósi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en auga sér mót öllum oss faðminn breiðir. í þessum ljóðlínum felst máske svar við ýmsum áleitnum spurning- um um lífið og dauðann. En áreið- anlega geta þær veitt hrelldum sál- um huggun og styrk á myrkum ör- lagastundum og mildað þær undir, er sárast svíða. Svo undarlegt sem það kann að virðast nemur dauðinn vini okkar ekki aðeins á braut heldur færir þá jafnframt nær okkur en lífð sjálft getur að jafnaði gert. Kær látinn vinur verður okkur, sem eftir stönd- um, enn kærari, bundinn okkur enn sterkari böndum með auðlegð og góðra og ljúfra minninga. Sönn vin- átta á sér morgun en ekkert kvöld og ekkert sólarlag. Auðlegð hennar þrýtur aldrei hversu oft sem hennar er notið. Bjarni Tómasson er farinn þá braut, er bíður okkar allra. En minn- ingar lifa um ljúfmenni, er í engu mátti vamm sitt vita. „Hann fór á undan, dauðans gata er greið. Við göngum eftir — komum sömu leið.“ Ingibjörg Inga- dóttir - Minning Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) í dag er til moldar borin kær vinkona mín, Ingibjörg Ingadóttir. Mjög fannst mér sárt þegar mér var tilkynnt að hún Ingibjörg mín væri farin, þessi fallega, unga og góða manneskja. Okkur fannst allt- af svo gaman að setjast inn á kaffi- hús, fá okkur eitthvað gott og spjalla. Þar gátum við setið í tvo tíma eða lengur. Það var alltaf gaman að vera í kringum Ingi- björgu, hún var svo góð og skemmtileg að manni leið svo vel og gleymdi bæði stund og stað. Ég sé fyrir mér þessi fallegu dökk- brúnu, glitrandi augu og dökkbrúnt axlasítt hár hennar. Mér finnst hún sitja hérna hjá mér núna og við séum að spjalla og ég að spyija hana álits á því sem ég er að skrifa. Þetta virðist allt svo sjálfsagt en maður veit aldrei fyrr en hrifsuð hefur verið af manni kær vinkona, sem manni fyndist að ætti að fá að lifa miklu miklu lengur. En ég veit að svona góð manneskja eins og hún lendir í góðum höndum hjá Guði sínum. Ég veit að hann mun gæta hennar eftir bestu getu þarna uppi hjá sér, sem ég held að sé dásamlegur staður, en alltaf vill maður halda í fólkið sitt og vonar að það fari ekki þangað strax, sem skiljanlegt er. Hún Ingibjörg okkar mun lifa, hér niðri líka, hún mun lifa í huga og hjarta okkar allra. Ég bið góðan Guð að styrkja hann Gulla í þessari miklu sorg. En í þessum orðum vil ég kveðja góða vinkonu og þakka henni allar þær góðu stundir er við áttum saman og bið Guð að varð- veita minningu hennar. Við hjónin vottum eiginkonu hans, dætrum, tengdasonum og öðrum ástvinum dýpstu samúð okkar. Það má vera þeim huggun stór á skilnað- ar- og saknaðarstund að eiga ljúfar minningar um elskulegan dreng- skaparmann, er í engu mátti vamm sitt vita. Við minnumst áratuga vináttu Bjarna Tómassonar og óskum hon- um blessunar allra góðra vætta og fararheilla inn í land eilífðarinnar. Jón Sigtryggsson. Kveðja frá Oddfellowreglunni Með örfáum orðum skal hér minnst Bjarna Tómassonar, sem varð bráðkvaddur 4. þessa mánaðar. Bjarni gekk ungur að árum í Oddfellowregluna, árið 1950, og hafði því starfað í félagsskap okkar í 44 ár er hann lést. Hann reyndist ávallt hinn ágæt- asti liðsmaður í röðum okkar og voru öil störf hans innan reglunnar einkar farsæl og árangursrík, enda voru honum falin margvísleg verk- efni og trúnaðarstörf innan félags- skapar okkar, er hann sinnti með sóma. Bjarni var góður félagi og prúð- menni hið mesta, stefnufastur og kom ávallt óhikað sjónarmiðum sín- um á framfæri á þann veg, að vel skildist. Að leiðarlokum eru þökkuð góð kynni og ánægjulegar samveru- stundir á liðnum árum um leið og ég flyt eftirlifandi eiginkonu hans, ídu Tómasdóttur, og aðstandendum öllum dýpstu samúð. Friður veri með sálu hans. Frið- helg sé minning hans. Geir Zoéga. Það var gott fýrir ungan mann, nýkominn úr skóla, að hefja störf í Iðnaðarbankanum vorið 1970. Sam- starfsmenn tóku hlýlega á móti mér og ég eignaðist nýja vini. í þeim hópi var Bjarni Tómasson. Við áttum eftir að vinna náið saman um tveggja áratuga skeið. Bjarni Tómasson hóf störf í Iðn- aðarbankanum í ársbyijun 1966 og starfaði þar síðan í hartnær ald- arfjórðung. Gegndi hann margvís- legum trúnaðarstörfum. Ollum störf- um sínum sinnti hann af stakri vand- virkni, trúmennsku og ósérhlífni. Samstarfsfólki sínu sýndi hann ávallt vináttu og hlýhug og við- skiptavinum virðingu og hjálpsemi. Öllum þótti vænt um Bjarna Tómas- son. Við fráfall hans lifir minningin um góðan dreng. Að leiðarlokum kveður fyrrum samstarfsfólk í Iðnaðarbanka og nú íslandsbanka Bjarna Tómasson með hlýhug og virðingu og þakkar af heilum hug samstarfið og vináttuna. Við sendum eiginkonu Bjarna, ídu og fjölskyldu hjartanlegar samúðar- kveðjur og biðjum algóðan Guð að gefa þeim styrk. Valur Valsson. Kveikt er Ijós við ljós, burt er sortans svið. Angar rós við rós, opnast himins hlið. Niður stjömum stráð, engill fram hjá fer. Drottins nægð og náð boðin alþjóð er. (Stefán frá Hvítadal.) Bróðir minn, t SÍMONS. BECH andaðist á Elliheimilinu Grund fimmtudaginn 10. mars. Svala S. Bech. t Ástkær eiginkona mín, móðir, tengda- móðir, amma og langamma, BERGÞÓRA JÓRUNN GUÐNADÓTTIR, Álfhólsvegi 82, Kópavogi, andaðist á heimili sinu 10. mars. Sigurður Guðmundsson, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, JÓHANNA ELÍASDÓTTIR Grenimel 30, Reykjavík, andaðist á Landakotsspítala föstudaginn 11. mars sl. Andrea Elísabet Kristjánsdóttir, Margrét Kristjánsdóttir, Jón Friðgeir Einarsson, Bragi Kristjánsson, Bjarnfríður Árnadóttir, Sjöfn Kristjánsdóttir, og barnabörn. t Fyrrverandi sambýlismaður, faðir og afi, HARALDURSTEFÁNSSON, Austurbergi 36, lést á heimili sínu fimmtudaginn 10. mars. Sjöfn Helgadóttir, Ragna Jóna Haraldsdóttir, Halla Sjöfn Jónsdóttir. t Eiginkona mín, móðir okkar og tengdamóðir, INGIBJÖRG ÓLAFSDÓTTIR, Skaftahlíð 13, Reykjavík, verður jarðsungin frá Háteigskirkju þriðjudaginn 15. mars kl. 13.30. Blóm eru vinsamlegast afbeðin, en þeim sem vildu minn- ast hennar er bent á líknarstofnanir. Ágúst Loftsson, börn og tengdabörn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KARLAUÐUNSSON útgerðarmaður, Austurgötu 7, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðar- kirkju þriðjudaginn 15. mars kl. 15.00. Vigdís Jónsdóttir, Jón Vignir Karlsson, Hjördís E. Ingvarsdóttir, Auðunn Karlsson, Þorbjörg Simonardóttir, Níels Karlsson, Jóhanna Pétursdóttir, Sigurður Karlsson, Jóhanna S. Ingadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Útför bróður okkar, RICHARDS PÁLSSONAR, Gyðufelli 14, ferfram frá Fossvogskirkju mánudaginn 14. mars kl. 13.30. ísleifur A. Pálsson, Oddgeir Pálsson, Anna Regína Pálsdóttir, Bergljót Pálsdóttir. Sylvía Þórarinsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.