Morgunblaðið - 13.03.1994, Page 15

Morgunblaðið - 13.03.1994, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. MARZ 1994 15 Ktta bbrgast ADALBJÖRG Guðgeirsdóttir slasaðist fyrir sjö árum í bílslysi við Kúagerði á Keflavíkurvegin- um. Hún var ekki í bílbelti held- ur lá sofandi í aftursæti bílsins og vaknaði við neyðaróp vinkonu sinnar í framsæti bílsins, síðan man hún ekki meira fyrr en hún lá með tilfinningalausa fætur utan vegar, hafði kastast út úr glugga bílsins. „Það féll saman í mér annað lungað og brotnuðu sjö rifbein, til þessara meiðsla fann ég þó ekki strax, úti var kalt og þess vegna átti ég auð; veldara með að anda í fyrstu. I sjúkrabílnum fór ég að eiga erf- itt með andardrátt," segir Aðal- björg þegar blaðamaður Morg- unblaðsins á tal við hana á heim- ili hennar að Flyðrugranda í Reykjavík. Þar býr hún í leigu- íbúð sem áður var áfangaíbúð Borgarspítala en er í eigu Ör- yrkjabandalagsins. „Mér voru fyrst borðnar 2 og hálf milljón króna í skaðabætur en sætti mig ekki við það. Fannst það litlar bætur fyrir að geta ekki gengið. Ég var lömuð í fótunum því mænan skaddaðist, þótt ekki færi hún alveg í sundur,“ segir Aðalbjörg. Foreldrar mínir studdu mig með ráðum og dáð og ég fór í mál til þess að freista þess að fá meiri bætur. Þetta voru jú áætlaðar ævitekjur mínar. Lög- maður minn gerði kröfu um 21 milljón króna mér til handa. Fyrir Borgardómi var ákveðið að ég fengi sex milljónir og þannig var málið gert upp. Þetta var ekki nógu stór upphæð til þess að ég gæti keypt mér íbúð, þá hefði ég ekki átt neitt, eftir í lífeyri, en þessi upphæð er hugsuð til þess. Ég gat þó fest kaup á sumarbústað í landi næstu jarðar við foreldra mína, þau búa í Fljótshlíðinni, en bjuggu áður á Hellu og þar ólst ég upp. Eftir að ég slasaðist gat ég ekki verið þar. Ekki var hugsað fyrir neinni þjón- ustu við fólk í hjólastólum þar í bæ svo ég flutti suður. Þetta var auðvitað sársaukafull röskun á högum mínum. Á Hellu átti ég alla mína vini og þar var ég nálægt fjölskylda minni, en svona varð þetta að vera. Núna finnst mér að bæturnar sem mér voru dæmdar séu smánar- bætur. Ég heyri um fólk í kringum mig sem hefur slasast miklu minna en fær samt mun hærri bætur, þetta er mikið óréttlæti. Ég hef heyrt um atriði sem ég tel að kannski væri hægt að festa hendur á. Ég, eins og aðrar stelpur, fékk víst dæmdar bætur á grundvelli 70 prósenta af kaupi iðnaðarmanna, en strákar fá bætur á grundvelli 100 prósenta af sömu launum. Þarna held ég að jafnréttislög hafi verið brotin og vildi gjarnan láta fyrir dómi reyna á hvort svo sé ekki. Altént er þetta blóðugt órétt- Iæti.“ Aðalbjörg Guðgeirsdóttir Núna finnst mér aó bœturnar sem mér voru dæmdar séu smúnarbætur. Ég heyri um fólk i kringum mig sem hef ur slasast miklu minna en fær samt mun hærri bætur, þetta er mikió óréttlæti. Ég spyr hvernig lífið hafi gengið fyrir sig hjá Aðalbjörgu eftir slys- ið.„Fyrst var ég í nærri ár í endur- hæfingu á Grensárdeild Borgar- spítala. Eftir það fór ég í starfs- þjálfun fatlaðra. Síðan lá leiðin í Menntaskólann í Hamrahlíð. Hann er skársti valkosturinn fyrir okkur sem erum í hjólastólum. En um þetta leyti var samdráttarskeið og ég gat bara verið í tveimur fögum af því að hin voru kennd í stofum þar sem aðgengi hjólastóla var ill- mögulegt. Þá hætti ég námi og fór að vinna í Búnaðarbankanum í Kópavogi hálfan daginn. Þar líkar mér ágætlega, nema hvað þetta er löng leið að keyra á hveijum degi, einkum í slæmri færð. Ég hef því sótt um að verða færð milli banka ef eitthvað losnar nær heimili mínu. Það er mikill munur að véra í vinnu og eiga þess þannig kost að hitta fólk að staðaldri. Eg reyni oftast að komast austur um helgar til að hitta fólkið mitt. Þetta bjargast svona hjá mér þótt oft sé þetta svolítið erfitt. Ég hef haldið sambandi við flesta vini mína, þá sem héldu tryggð við mig eftir slysið. Mér gengur bæri- lega að sætta mig við hlutskipti mitt, ég verð að gera það, annað gengur ekki. Ég á hins vegar bágt með að sætta mig við afstöðu dóm- aranna. Þeir ákvörðuðu mér þessa bætur sem tekjur þar til ég yrði 67 ára. Hvernig gátu þeir það án þess að gera nokkra tilraun til þess að setja sig inn í hvernig aðstæður mínar yrðu. Mér finnst að dómarar ættu að kynna sér málin með eigin augum og eyrum, ræða við þá sem hlut eiga að máli og reyna þannig að setja sig í þeirra spor. Þannig myndu þeir vera betur til þess falln- ir að úrskurða bætur til fatlaðra unglinga. Við erum ekki bara til sem rituð orð á málsskjölum. Fyrír sumarbústaði, heimili og vinnustaði Sænsku olíufylltu rafmagnsofnarnir tryggja jafnan og góðan hita, og gefa hefðbundnum vatnsofnum ekkert eftir. Fást í stærðunum 350 - 2000W, 20, 30 og 50sm háir, einfaldir eða tvöfaldir, með venjulegri eða rafeindastýrðri hitastillingu. ELFA lvi MSMS Einar Mmt Farestveit & Co hf Borgartúni 28 tf 622901 og 622900 skiptinemadvOl í ástralíu og s- ameríku Ef þú ert á aldrinum 16-18 ára, átt þú möguleika á að gerast skipti- nemi á vegum AFS. Þú dvelur 11 mánuði í viðkomandi landi, eykur þekkingu þína á umheiminum, lærir nýtt og spennandi tungumál og kynnist skóla- og fjölskyldulífi í viðkomandi landi. (janúar og febrúar 1995 fara íslenskir skiptinemar til Ástralíu, Costa Rica, Argentínu og Paraguay. Athygli er vakin á því að enn eru nokkur sæti laus með brottför í júlí, ágúst 1994. ATHUGIÐ: AFS á íslandi hefur útvegað sérstaka styrki til handa þeim sem fara til Lettlands, Tyrklands og Thailands nú í sumar. Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri. Upplýsingar og umsóknareyðublöð fást á skrifstofu AFS, Laugavegi 59, 3. hæð, milli kl. 10 og 16 virka daga. Sfmi 91-25450. »FS Á ÍSL4NDI Alþjóöleg fræösla og samskipti LANDSSAMTÖK HEILSUGÆSLUSTÖÐVA Ráóstef na um stöðu og horfur í heimahiúkrun 22. april 1994 Landssamtök heilsugæslustöðva standa fyrir ráð- stefnu um stöðu og horfur í heimahjúkrun föstudaginn 22. apríl nk. í Borgartúni 6, Reykjavík. Ráðstefnan er öllum opin meðan húsrúm leyfir. Starfs- fólk í heilbrigðisþjónustu og annað áhugafólk um heilbrigðismál er sérstaklega hvatt til að sækja ráð- stefnuna. Þátttökugjald verður kr. 4.000,-, innifalinn matur og kaffi. Ráðstefnustjóri verður Asta Möller, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Ráðstefnan hefst með setningu formanns samtakanna og ávarpi heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra. Fjallað verður um framkvæmd heimahjúkrunar, helstu breytingar á undanförnum misserum og horfur á næstunni á höfuóborgarsvæðinu, í öðru þéttbýli og strjálbýli. Gerð verður grein fyrir framkvæmd heimilis- hjálpar á vegum sveitarfélaganna og tengslum við heimahjúkrun, samvinnu heilsugæslunnar og sjúkra- húsanna og kostnaði við framkvæmd heimahjúkrunar með samanburði við legukostnað. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið og land- læknisembættið 'munu fjalla um stefnumótun í mála- flokknum til framtíðar. Fyrirspurnir verða milli ein- stakra þátta og umræður í lokin. Þátttaka óskast tilkynnt í síma 91-22400 fyrir 15. apríl nk.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.