Morgunblaðið - 13.03.1994, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. MARZ 1994
19
Hönnuðurnir Eva Vilhelmsdóttir, Björg
Ingadóttir og Valgerður Torfadóttir
tóku sig saman um að opna fataverslun.
Þar er eingöngu seldur kvenfatnaður
sem þær hanna og sauma sjálfar.
Hér segja þær frá samstarfi sínu, skoð-
un sinni á fatnaði og möguleikum á út-
flutningi til Noregs.
Morgunblaðið/Stefán Karlsson
Hér eru föt úr bómull og flísefni, sem Björg Ingadótt-
ir sýndi í Noregi. Næsta vetur ætlar hún að leggja
áherslu flísefnin í fötum sínum.
um eins og til dæmis áður en við
fórum til Noregs," segja þær.
íslensk hönnun talin skapandi
Hönnunarsýningin í Noregi var
haldin í tengslum við fataráð-
stefnu í Osló. „Þemað á sýning-
unni var Norðurlönd. Það var
greinilegt að tímaritið hafði vel
efni á því að leika sér, því farið
var með okkur eins og höfðingja.
Okkur þótti einkar áhugavert að
sjá hvað aðrir hönnuðir eru að
gera og þeim þótti við vera skap-
andi,“ segir Eva.
Undir þetta taka Björg og Val-
gerður og bæta við að almennt sé
litið á íslenska hönnun sem skap-
andi. „Við erum ekki áföst við
annað land og það kemur í ljós í
fatastílnum. Ahrifin eru að ein-
hveiju leyti frá Norðurlöndum, en
einnig frá Bretlandi auk annarra
landa, enda er metnaður okkar að
vera með okkar sérstaka stíl,“
segir Eva.
Þær benda einnig á að erlendum
hönnuðum fínnist eftirsókarnar-
vert að koma til íslands og fá inn-
blástur. Telja þær að óbein land-
kynning sé m.a. að skila sér og
þar eigi Björk Guðmundsdóttir
ekki síst hlut að máli. Einnig nefna
þær kvikmyndir og aðra listræna
átburði, sem vekja athygli á land-
inu.
Vilja allir eins ullarvörur?
Þær álíta útlendinga sem koma
til landsins álitlegan markhóp.
„Við urðum varar við það í byijun
að fáir útlendingar litu hingað inn
en strax í ágúst voru þeir meira
áberandi. Þeim hafði verið bent á
verslunina og sagt að hún væri
með öðruvísi íslenskar ullarvörur
en þær sem eru til sölu í hefð-
bundnum ferðamannaverslunum.
sem blönduð hefur verið móhair,
skinn, bómull, siffon, svo eitthvað
sé nefnt. Auk þess nota þær stein-
bítsroð sem fataskraut og Eva býr
til hálsskraut úr ýmsu efni sem
hún finnur í fjörunni.
„Ef við eigum að lifa af því að
vera hönnuðir hér á landi verðum
við að vera sniðugar að finna hrá-
efni,“ segir Björg og hinar jánka.
Valgerður tekur einnig fram að
erfitt sé að finna góð efni og hún
sé eins og grár köttur í öllum heild-
verslunum. „Við verðum að vera
með fjölbreytt efnisval og getum
ekki einangrað okkur við eitthvað
eitt, því viðskiptavinir okkar eru
sjálfstæðar konur frá táningsaldri
til rúmlega sextugs. Við fylgjum
stefnum og straumum eins og
þeir berast en höfum ekki hug-
mynd um hvar við endum,“ segja
þær.
„Við byggjum fötin upp þannig
að kaupi viðskiptavinur alfatnað
getur hann nánast í öllum tilfellum
komið seinna og keypt aðra flík
sem passar við,“ segir Björg. „Mér
finnst mikilvægt að fólk geti byggt
upp fataskápinn sinn með tíman-
um.“
Miðlungsvörur hafa lækkað
Þessar umræður leiða okkur að
verðinu á fatnaði þeirra. Þær eru
sammála um að vörur þeirra séu
rétt fyrir ofan meðallag. „Auðvitað
á að vera verðmunur. Það er eðli-
legt að greiða hærra verð fyrir
vörur þar sem aðeins eru búnar
til tvær flíkur í tveimur litum eða
þar sem nokkur hundruð eins flík-
ur eru framleiddar. Værum við
með sambærilega verslun erlendis
gætum við sett upp töluvert hærra
verð,“ segir Valgerður.
„Mér finnst að fólk eigi að hafa
val um hvort það vill kaupa ódýr
eða dýr föt. Hér á landi hefur
verið alltof lítill verðmunur á fatn-
aði en sem betur fer er það að
breytast. Það er mjög gott að Viafa
fengið inn ódýrar verslanir eins
og Vera Moda, því það hefur orð-
ið til þess að miðlungsvörurnar
hafa lækkað í verði í öðrum versl-
unum,“ segir Björg um leið og hún
hengir upp síðustu flíkina, en
gegnum allt viðtalið hafa þær ver-
ið að hengja upp fötin sem þær
tóku með sér á sýninguna til Nor-
egs, auk þess sem þær hafa verið
að snurfusa hitt og þetta í verslun-
inni. Það er greinilegt að hér er
lögð natni við allar framleiðsluvör-
ur og umgengni við þær.
Þegar ég kvaddi þessar glaðlegu
konur voru þær bjartsýnar á fram-
haldið. „Ég held það sé ekki spurn-
ing hvort þetta gangi heldur hvað
við endumst í þessu lengi,“ sagði
Björg og undir það tóku þær Eva
og Valgerður.
Morgunblaðið/Þorkell
Appelsínugulur kjóll úr móhairull og jakki úr sama
efni, sem Eva Vilhelmsdóttir sýndi í Noregi. Kjólinn
er skreyttur með steinbítsroði og skinni. Hatturinn er
úr mokkaskinni.
Það er einhvern veginn alltaf boð-
ið upp á það sama fyrir útlendinga
og búið að ákveða að það sé þetta
sem þeir vilja. Hins vegar eru allt-
af einhveijir innan um sem vilja
eitthvað annað og það er af hinu
góða að hafa fjölbreytni," sagði
Björg.
Þegar ég spyr hvað sé erfiðast
í rekstrinum kemur ekkert svar.
Eftir dágóða stund segir einhver
þeirra: „Auðvitað háir það okkur
hversu íslendingar eru fámenn
þjóð og ef við leitum að erfiðleikum
þá eru þeir í hveiju horni. Við vit-
um af þeim en erum ekkert sér-
staklega að horfa til þeirra því við
ætlum að láta þetta ganga upp.“
Listakonurnar nota fjölbreytt
efni í flíkur sínar s.s. íslenska ull
Morgunblaðið/Stefán Karlsson
Svartur kjóll úr bómullarneti, sem Valgerður Torfadótt-
ir sýndi í Noregi. Hatturinn er úr bómullaijersey.
isólossæln
á manninn m.v. 4, 2fulloröna og 2 böm, 2 -11 ára,
á Oceanside Inní 6 nœtur.
Verð frá 75.220 kr. m.v. 2fullorðna á Oceanside Inn í 6 nœtur.
Innifalið erflug, gisting ogflugvallargjöld.
Fort LíiihMíé
LÆGRA VER
Brottfttr 18. - 19. mars
= c OA-IVVS*
Verð frá 44.735 á manninn m.v. 4, 2fullorðna og 2 böm,
2-11 ára, á Oceanside Inn í 6 nœtur.
Verð frá 65.220 kr. m.v. 2fullorðna á Oceanside Inn í 6 nœtur.
Innifalið erflug, gisting og flugtiallargjöld.
Lágmarksdvöl er6 -8 nœtur (eftir brottförum).
Hámarksdvöl er einn mánuður. 1 Fort Lauderdale eru
frábœrir gististaðir, vel búin hótel og íbúðarhótel, við allra
hœfi með öllum nútímaþœgindum á ameríska vísu.
Öll Flugleiðahótel í Forí Lauderdale eru á góðwn stöðum
í bcenum, liggja vel við ströndinni og eru stutt frá
verslunum, veitingastöðum og skemmtistöðum.
BROTTFARARDAGAR
I
Föstudagur 18. mars örfá sæti laus.
Laugardagur 19- mars örfá sæti laus.
Fimmtudagur 24. mars örfá sæti laus.
Föstudagur 25. ntars uppselt.
Laugardagur 26. mars örfá sæti laus.
Föstudagur 1. apríl örfá sæti laus.
Laugardagur 2. aprfl laus sæti.
HEIMKOMUDAGAR
Föstudagur 25.mars örfá sæti laus.
Föstudagur 1. apríl örfá sæti laus.
Laugardagur 2. aprfl örfá sæti laus.
Föstudagur 8. aprfl örfá sæti laus.
Laugardagur 9. aprfl uppselt.
Laugardagur 16. aprfl uppselt.
HAFÐU SAMBAND VIÐ SÖLUSKRIFSTOFUR
OKKAR, UMBODSMENN UM ALLT LAND.
FERÐASKRIFSTOFURNAR EDA f SÍMA
690300 (SVARAD ALLA 7 DAGA VIKUNNAR
FRÁ KL. 8 - 18.)
FLUGLEIDIR
Tratistur íslenskur ferðafélagi
■