Morgunblaðið - 25.03.1994, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 25.03.1994, Qupperneq 27
26 MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 25. MARZ 1994 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MARZ 1994 27 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Flaraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar: 691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1400 kr. með vsk. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið. Kostnaður atvinnuveganna Landssamband íslenzkra útvegs- manna kynnti í fyrradag nið- urstöður úttektar, sem gerð var fyr- ir samtökin á olíukostnaði útgerðar- innar. Niðurstaðan varð sú, að út- gerðin gæti sparað um 650 milljón- ir króna á ári með því að koma upp nýju olíudreifingarkerfi. Á blaða- mannafundi, sem LÍÚ efndi til af þessu tilefni, sagði Kristján Ragn- areson, formaður samtakanna, að LÍÚ hefði í sjálfu sér ekki áhuga á að byggja upp fjórða dreifingarkerf- ið hér en útgerðin teldi núverandi kerfi mjög ósanngjamt. Olíufélög- unum væri skylt lögum skv. að selja hveijum viðskiptavini á sama verði, hvort sem um mikil eða lítil við- skipti væri að ræða. Að auki væri lögbundin flutningsjöfnun á olíu. Á blaðamannafundinum sagði Kristján Ragnarsson m.a.: „Við er- um að sýna fram á, að núverandi dreifingarkerfi þriggja olíufélaga er ekkert samkeppniskerfi heldur lok- að kerfí, þar sem ekki er eingöngu við olíufélögin að sakast heldur lög- gjafann, sem fyrirbyggir alla sam- keppni. Við höfum bjargfasta trú á því, að ef þetta kerfi verður afnum- ið, þá muni okkur bjóðast aðrir kost- ir hjá olíufélögunum. Þá eigum við kost á því, sem stórkaupendur, að fá olíuna á lægra verði.“ í samtali við Morgunblaðið í gær vegna úttektar LÍÚ sagði Kristinn Bjömsson, forstjóri Skeljungs hf. m.a.: „Mín skoðun hefur verið sú, að á meðan flutningsjöfnunarkerfið er við lýði, þá er ekki eðlileg sam- keppni á milli olíufélaganna, en hvort hún hafi svo stórkostleg áhrif eins og Kristján Ragnarsson hefur látið í ljósi, að hún komi til með að lækka olíulítrann um 5 krónur veit ég ekki, hvort er rétt.“ Hvort sem hægt er að draga úr olíukostnaði sjávarútvegs um 650 milljónir króna á ári eða eitthvað lægri upphæð er auðvitað alveg ljóst, að það er gífurlegt hagsmuna- mál sjávarútvegsins að hér verði breyting á. Fyrsta skrefið í þá átt er að fella niður flutningsjöfnun á olíu. Nú fjalla þingflokkar stjórnar- flokkanna um frumvarp viðskipta- ráðherra um þetta efni og þess er að vænta að það strandi ekki á andstöðu landsbyggðarþingmanna. Það er auyðvitað stórfellt hags- munamál útgerðarinnar og þar með landsbyggðarinnar að olíukostnað- urinn lækki verulega. Fleiri þættir í grunnkostnaði at- vinnuveganna hafa verið til umræðu að undanfomu en olíukostnaður út- gerðarinnar. í samtali við Morgun- blaðið í gær vísaði Guðmundur Smári Guðmundsson, framkvæmda- stjóri Sæfangs í Grandarfírði, m.a. til hinnar svonefndu Drewry-skýrslu um flutningskostnað til og frá land- inu og sagði m.a.: „Mitt litla fyrir- tæki, sem var með 350 milljón króna veltu á síðasta ári, þurfti að borga yfir 20 milljónir í flutninga. Það hlýtur að vera hægt að lækka þenn- an lið, því á meðan við höfum verið að skera niður alla kostnaðarliði, þá hefur þetta setið eftir. Gjaldþrot Hafskips var geysilega dýrt, en þá hækkuðu reikningamir mínir um 25% sama dag og Hafskip fór á hausinn en ég flutti mikið með Hafskip. Ég tel fáránlegt, að öll þessi tæknibylting, sem síðan hefur átt sér stað í flutningum, hefur ekki skilað okkur neinum lækkunum." Drewry-skýrslan svonefnda var unnin á vegum Félags ísl. stórkaup- manna og hins svonefnda Flutn- ingakauparáðs. Fyrirtækið, sem vann skýrsluna, er þekkt ráðjgjafar- fyrirtæki í skipaflutningum. I stuttu máli er komizt að þeirri niðurstöðu í skýrslunni að flutningagjöld til og frá Islandi séu verulega hærri en á Norður-Atlantshafi að öðra leyti og á sambærilegum skipaflutningaleið- um innan Evrópu. Ennfremur, að upp- og útskipunargjöld hafí hækk- að hér á sáma tíma og þau hafí staðið í stað annars staðar. Og loks kemst Drewry-fyrirtækið að þeirri niðurstöðu, að skipaflutningar hér séu lokaður markaður, þar sem lít- illi samkeppni sé fyrir að fara. Talsmenn skipafélaganna hafa mótmælt þessum niðurstöðum Drewry harðlega og telja, að flutn- ingagjöld hafí lækkað, að upp- og útskipunargjöld hafí lækkað og hafnarstjórinn í Reykjavík hefur mótmælt þeirri skoðun ráðgjafar- fyrirtækisins, að erlend skipafélög geti ekki athafnað sig hér. Hver svo sem niðurstaðan er um nákvæmni í skýrslugerð Drewry fer tæpast á milli mála, að sá kostnað- arliður atvinnuveganna, sem snýr að flutningum og uppskipun og út- skipun, er hár miðað við það_, sem tíðkast víða annars staðar. I ljósi þess, að kostnaður af þessu tagi skiptir miklu máli og á dijúgan þátt í að skapa þann verðgrunn, sem þjóðin býr við, og með hliðsjón af tilvitnuðum ummælum fram- kvæmdastjóra Sæfangs í Grundar- firði, er full ástæða til að frekari umræður fari fram um þetta mál og að skipafélögin geri ítarlegri grein fyrir sínum sjónarmiðum í þessu máli en þau hafa gert fram til þessa. Olíukostnaður útgerðar og flutn- ingskostnaður atvinnuveganna era grandvallarþættir í kostnaði ís- lenzkra atvinnuvega. Það skiptir auðvitað miklu máli fyrir afkomu atvinnuveganna að hægt sé að ná þessum kostnaðarliðum eins langt niður og mögulegt er. Það verður fyrst og fremst gert með virkri sam- keppni en að auki þurfa stjórnvöld að koma við sögu, þar sem tilefni er til. Þessi grunnkostnaður skiptir ekki bara máli fyrir atvinnulífið heldur einstaklinga og heimili í smáu og stóru. Við búum á eyju langt norður í hafi. Við verðum að flytja mikið af okkar nauðsynjum til landsins og útflutningsvörur okk- ar frá landinu. Fiskiskipafloti okkar er knúinn olíu. Þessir kostnaðar- þættir í rekstri atvinnuveganna koma við sögu í daglegum rekstrar- kostnaði heimilanna alveg með sama hætti og hjá atvinnufyrirtækj- unum. Þess vegna ber að fagna þeirri hreyfingu sem nú er komin á umræður um þessa tvo stóra kostn- aðarliði í rekstri atvinnufyrirtækja og heimila. JON SIGURÐSSON SEÐLABANKASTJORI UM ÞJOÐARBUSKAPINN A ARSFUNDI SEÐLABANKA ISLANDS I GÆR Meiri stöðugleiki en nokkru sinni fyrr í sögu lýðveldisins Ríkisverðbréfaeign Seðlabankans hefur vaxið um 6-7 milljarða frá því í októberlok BETRA jafnvægi og meiri stöðugleiki ríkti í þjóðarbúskapnum á síð- asta árí en nokkru sinni fyrr í 50 ára sögu íslenska lýðveldisins og það gerðist þrátt fyrír andstreymi í efnahagsmálum vegna skerðingar aflaheimilda hér heima fyrir og efnahagslægðar í mikilvægum mark- aðslöndum. Þetta kom fram í ræðu Jóns Sigurðssonar seðlabanka- stjóra og formanns bankastjórnar Seðlabanka Islands á ársfundi bank- ans í gær. Síðan sagði hann: „Vonir eru við það bundnar að með þess- um árangrí verði kleift að ijúfa þá kyrrstöðu sem einkennt hefur verðmætasköpun í þjóðarbúskapnum undanfarin ár. En einmitt í efna- hagslægðinni hafa verið gerðar þær endurbætur á umgjörð alls við- skiptalífs í landinu sem ættu að greiða fyrir framförum. Sett hafa verið ný lög um innflutning, gjaldeyrisviðskipti og gengismál, um verð- bréfaviðskipti og starfsemi lánastofnana. Þá hafa ný samkeppnislög einnig verið sett. Öll þessi nýja löggjöf byggist á viðskiptafrelsi og opnum mörkuðum. Með henni er lagður grundvöllur að frjálsari við- skiptum innanlands og milli Islands og annarra landa og þar með virk- ari markaðsverðmyndun og betri nýtingu framleiðsluaflanna.“ Yfirlitsræða JÓN Sigurðsson formaður bankastjórnar Seðlabankans flytur ræðu sína. Blaðað í skýrslu SIGHVATUR Björgvinsson viðskiptaráðherra blaðar í ársskýrslu Seðlabankans. Honum á hægri hönd er Ágúst Einarsson formaður bankaráðs og á vinstrí hönd Birgir ísleifur Gunnarsson seðlabankastjóri. Viðskíptaráðherra í ræðu á ársfundi Seðlabankans Veiðileyfagjald komi í veg fyrir raungengissveiflur SIGHVATUR Björgvinsson viðskiptaráðherra sagði á ársfundi Seðla- banka Islands í gær, að ein leið og kannski sú einasta til að koma í veg fyrir þær miklu raungengissveiflur sem eigi upptök sín í sjávarút- vegi sé að taka upp veiðileyfagjald þegar hagur sjávarútvegsins batni á ný, en uppgangur í sjávarútvegi hafi ávallt þrengt að öðrum atvinnu- greinum og þeim gengið illa að glíma við hækkandi raungengi á upp- gangstímum. Fram kom að sjávarafli, útflutn- ingur og landsframleiðsla jókst á síð- asta ári og viðskipti við útlönd urðu í fysta skipti hagkvæm frá árinu 1986. Hins vegar rýmuðu viðskipta- kjör vegna lægra útflutningsverðs svo þjóðartekjur lækkuðu um tæp- lega 1% þrátt fyrir um 1% vöxt lands- framleiðslu. Atvinnuleysi hafí farið vaxvandi á árinu og sé nú alvarleg- asta áhyggjuefni í efnahagsmálum og verðbólga sem hafí aukist tíma- bundið í kjölfar gengisfellingarinnar á síðasta ári sé nú með því minnsta sem þekkist. Við ýmis vandamál sé hins vegar að glíma í þjóðarbúskapn- um. .Grundvöllur vöruútflutnings hafí lítið breikkað og íjármunamyndun og þjóðhagslegur spamaður í hlut- falli af landsframleiðslu sé í sögulegu lágmarki og dragi það úr möguleik- um til hagvaxtar. Vaxandi skuld- setning þjóðarbúsins á undanförnum árum setji því hins vegar takmörk hvað hægt sé að auka hagvöxt með aðgerðum sem örvi eftirspum. „Þrá- látur halli á ríkissjóði hefur verið undirrót viðskiptahalla og skulda- söfnunar og haldið uppi hærra vaxta- stigi en samrýmst getur viðunandi hagvexti. Halli á ríkisbúskapnum er undirrót skuldasöfnunar á liðnum áram. Það er því afar mikilvægt að þeim hluta hallans sem ekki tengist efnahagslægðinni verði eytt á nokkr- um næstu árum með skipulegum hætti. Slík stefna í íjármálum, sem mörkuð yrði til nokkurra ára, er for- senda hvors tveggja, að raunvextir lækki hér á landi og Islendingar við- haldi því trausti sem þeir hafa áunn- ið sér á erlendum lánamörkuðum, en það er afar mikilvægt, svo háðir sem þeir eru aðgangi að erlendu lánsfé." Verðbólga gæti blossað upp Jón sagði að árangur í verðlags- málum kunni að vera að nokkru leyti háður efnahagslægðinni og verð- bólga geti blossað upp þegar betur ári ef ekki sé gætt varfæmi í pen- inga- og ríkisfjármálum. Hins vegaf sé mikilvægt að hafa í huga að hjöðn- un verðbólgunnar hafí bæði verið staðfest í verði vöru og þjónustu, sem sé hinn hefðbundni mælikvarði, og í þróun eignaverðs á árinu 1993. Hann sagði að reynslan hefði sýnt að gengislækkunin í lok júní hefði verið vel ráðin og raungengi krón- unnar á síðari hluta ársins hefði ver- ið með því allra lægsta sem verið hefði síðustu þrjá áratugi. Þessar gengisaðstæður þurfí að haldast til að greiða fyrir eflingu útflutnings og nýjungum í atvinnulífínu. Nauð- synlegt sé að fullt traust sé á gengi íslensku krónunnar þegar síðustu hindranirnar á fjármagnsflutningum milli íslands og annarra landa séu að hverfa. Slíkt traust skapist aðeins með styrkri stjóm peninga- og ríkis- fjármála og því sé aðhald í fjármála- stjórn enn mikilvægara þegar fullt frelsi sé í gjaldeyrismálum. Jón fjallaði síðan um vaxtaþróun- ina og aðgerðir Seðlabankans í þeim efnum og sagðist vera þess fullviss að raunvaxtalækkunin á síðasta ári hefði ekki verið möguleg ef hér hefði ekki verið starfandi skipulegur pen- inga- og verðbréfamarkaður. Seðla- bankinn hafí sýnt að hafa megi ráð- andi áhrif á vexti með viðskiptaleg- um aðgerðum ef rétt sé á haldið. Hann rakti þær aðgerðir sem bank- inn hefði gripið til í kjölfar yfírlýsing- ar ríkisstjómarinnar um að ný spari- skírteini yrðu ekki seld með hærri raunvöxtum en 5% og sagði að skipta mætti þeim í þijá megináfanga. í fyrsta lagi kaup á spariskírteinum ríkissjóðs á eftirmarkaði til að lækka vextina í 5% en þeir hefðu verið 7,5% í árbyijun 1993. Þetta hefði tekist en spariskírteinaeign bankans hefði aukist um 1,7 milljarða frá lokum október. í öðra lagi hefði bankinn hafíð viðskipti með húsbréf í janúar- byijun í ár til að lækka ávöxtunar- kröfu þeirra úr 5,5% í um 5,2% og næmi nú húsbréfaeignin um 1,6 milljarði króna. í þriðja lagi hefði verið talin nauðsyn á að ávöxtun rík- isvíxla á eftirmarkaði lækkaði og hefði hún lækkað í 4,4% í kjölfar aðgerða bankans og sú lækkun hefði síðan verið staðfest í útboði. Eign bankans í ríkisvíxlum hefði aukist úr 1,9 milljörðum í októberlok í 4,4 milljarða nú. „í heild hafa kröfur Seðlabankans á ríkissjóð í formi markaðsbréfa af ýmsu tagi og að meðtöldum húsbréfum og breyting- um á viðskiptareikningum vaxið frá því í lok október 1993 um sex til sjö milljarða króna eftir því hvort lækk- un verðbréfaeignar vegna endur- hverfra viðskipta er talin með eða ekki. Þessi þróun veldur nokkrum áhyggjum, og hún minnir sannarlega á nauðsyn þess að dregið verði úr lánsfjárþörf ríkisins með fjárlögum fyrir árið 1995 og árin þar á eftir til þess að festa vaxtalækkunina í sessi og treysta forsendur fyrir frek- ari breytingum." Vextir lækka tæplega meira Jón sagði að samanburður við vexti erlendis leiddi í ljós að vextir hér á peningamarkaði væru með því lægsta sem gerðist í Evrópu. Vextir bankalána væra hins vegar í hærra lagi í samanburði við evrópska vexti. Síðar sagði hann: „Samanburður við önnur lönd er mikilvægur því að hann sýnir okkur m.a. að vextir hér á landi muni tæplega lækka almennt meira en orðið er nema samfara frek- ari vaxtalækkun í umheiminum, einkum í Evrópu, því að engar for- sendur eru til þess að vextir geti almennt verið lægri hér á landi en annars staðar. Raunvaxtastigið hér á landi, sem og víða í Evrópu, er þó enn allhátt. Hins vegar virðist nær útilokað að þrýsta langtíma- raunvöxtum neðar nú með peninga- aðgerðum eingöngu, eins og mikil kaup Seðlabankans á verðbréfum að undanfömu sýna. Lykillinn að því að ná raunvöxtum niður á stig sem samrýmanlegt er eðlilegu langtíma- jafnvægi er þess vegna sá að ríkis- sjóður dragi úr lánsfjáreftirspurn sinni á komandi árum, eins og ég hef þegar vikið að.“ Jón nefndi einnig að til þess að tryggja eðlilega vaxtamyndun væri nauðsynlegt að breyta vaxtalögum meðal annars þannig að dráttarvexti megi ákveða sem álag á samnings- bundna vexti en ekki sem tiltekinn vaxtafót sem Seðlabankinn setji. Hann rakti undirbúning Seðlabank- ans að opinberu skuldabréfaútboði íslenska ríkisins í Bandaríkjunum að íjárhæð 200 milljónir dala og sagði að niðurstaða þess sýndi að íslenska ríkið eigi um þessar mundir kost á að taka lán erlendis til langs tíma með innan við 3% raunvöxtum, en því aðeins sé það raunhæfur kostur að lánsfjárþörf íslenska ríkisins sé í hóf stillt. Efnahagshorfur Um efnahagshorfumar sagði hann að tvennt þyrfti öðm fremur til varan- legs hagvaxtar hér á landi hvað sem liði íslenskri hagstjóm og auðlindum. Annars vegar þyrfti aðgang að mörk- uðum og hins vegar hagvöxt í mark- aðslöndum. „Fyrra skilyrðið er nú betur uppfyllt en fyrr því að samning- urinn um Evrópska efnahagssvæðið og nýr GATT-samningur ætti að t^yggja íslenskum útflytjendum greiðari aðgang að helstu mörkuðum og betri viðskiptakjör en áður. Árið 1993 er merkisár í sögu alþjóðlegrar efnahagssamvinnu vegna þessara tveggja samninga auk samningsins um Norður-ameríska fríverslunar- svæðið, NAFTA, sem er mikilvægur fyrir milliríkjaviðskipti í þeim heims- hluta og þar með fyrir hagvöxt í heiminum. Þessir nýju viðskiptasamn- ingar ná ekki einungis til viðskipta með vörur, heldur einnig með þjón- ustu og til hreyfingar ftármagns og vinnuafls. í þeim felst framhald þeirr- ar þróunar sem hófst á sjötta ára- tugnum og hefur haft í fór með sér öran vöxt fijálsra milliríkjaviðskipta og vaxandi samkeppni sem hefur borið uppi hagvöxt og batnandi lífs- kjör. Það er sérstaklega mikilvægt fýrir fámenn ríki eins og ísland að þjóðréttarsamningar séu í gildi á sviði efnahagsmála og viðskipta, því að þau ná aðeins að njóta sín í krafti laga og réttar, en ekki valds. Nú þegar aðildarríki EES önnur en ísland eru á leið inn í Evrópusam- bandið er mikilvægt að íslendingar kanni af yfirvegun og án tafar alla kosti sem þeir eiga í þessari nýju stöðu. Markmiðið hlýtur jafnan að vera að tryggja íslenskum þegnum sem best tækifæri til framfara og sjálfstæðrar tilveru bæði efnahags- lega og stjómarfarslega. Við breytt- ar samgöngur og samskipti verða kjör fólks ekki tryggð nema með milliríkjasamstarfi. Síðara 'ytra skilyrðið til framfara á íslandi, hagvöxtur í markaðslönd- um, er ekki jafnaugljóslega uppfyllt um þessar mundir og hið fyrra. Þó bendir margt til þess að botni í þeirri efnahagslægð, er ríkt hefur í heimin- um, hafí víðast verið náð á árinu 1993 annars staðar en í sumum lönd- um Austur-Evrópu. Horfur virðast á rúmlega 2% hagvexti í OECD-ríkjum á árinu 1994 og 2,5% 1995. Heim- sviðskiptin eru talin munu vaxa tvö- falt hraðar. Viðskiptakjör hrávöra- framleiðenda — annarra en olíuríkja — ættu að batna, einkum á árinu 1994. Það er einnig jákvætt við efna- hagsspár alþjóðastofnana um þessar mundir að búist er við því að verð- bólga fari áfram hjaðnandi í flestum ríkjum. Eftir öllu þessu að dæma ætti efnahagslegt ytra umhverfi ís- lendinga að verða fremur hagstætt næstu árin. Því meira reynir á að hyggilega sé búið heima fyrir. Á líðandi ári gætir að sjálfsögðu áhrifa aflatakmarkana í þorskveið- um, en ýmis önnur skilyrði hér heima eru hagstæð. Raungengi er lágt, vextir mun lægri en áður, og skattar af fyrirtækjum eru einnig lægri. Allt ætti þetta að hvetja til aukinnar framleiðslu og útflutnings. Þá gefa aðrir fískstofnar en botnlægir allgóð- ar vonir um afla. Nýliðun mikil- vægra fískstofna virðist með besta móti, og má þvi vænta aukins afla eftir nokkur ár. Auðvitað ríkir óvissa um afla af íjarmiðum og landanir erlendra veiðiskipa, en þaðan ættu þó að vera líkur á viðbót, svo sem varð á árinu 1993. Þegar horft er til lengri tíma er þó mikilvægast að hvetja til ný- sköpunar, einkum í útflutningsgrein- um. í því efni er ekki síst mikilvægt að halda opnum mörkuðum fyrir vöru og þjónustu og ftármagn. Að því má leiða sterk rök að lokaður fjármagnsmarkaður komi síður að sök meðan hagvöxtur byggist um- fram allt á tiltölulega augljósum og auðteknum kostum við nýtingu nátt- úruauðlinda. Þegar kemur að nýting- armörkum auðlinda og hagvöxtur verður að byggjast á hátækni og markaðssókn í alþjóðlegri sam- keppni, fara aðstæður á fjármagns- markaði og viðskiptafrelsi hins vegar að skipta meira máli. Islendingar standa einmitt við slík mörk um þess- ar mundir. Takist að leysa skipulags- vanda í sjávarútvegi og landbúnaði með fullri aðlögun að markaðsbú- skap í þessum greinum, ættu hag- vaxtarlíkur að batna. Það er mikilvægt að umbótum á fjármagnsmarkaði verði haldið áfram. Opinn fjármagnsmarkaður er sérstakiega mikilvægur fyrir vaxtar- skilyrði smárra og miðlungsstórra fyrirtækja sem helst gefa von um nýsköpun og hagvöxt á næstu árum. Takist þetta vel ættu íslendingar að geta náð hagvexti á síðari helmingi þessa áratugar a.m.k. til jafns við aðrar OECD-þjóðir, þar sem víðast hvar er spáð 2,5-3% árlegum vexti til aldamóta." Að lokum þakkaði Jón samstarf og samskipti þann tíma sem hann hefði gegnt starfí í Seðlabankanum og á öðram vettvangi, en hann hverf- ur innan skamms til starfa fyrir Norræna fjárfestingarbankann. Ágúst sagði að rekstur Seðlabank- ans hefði verið með hefðbundnum hætti á síðasta ári. Rekstrarkostnað- ur hefði numið 596 milljónum króna og lækkað um 4,5% að raungildi frá fyrra ári, en rekstrarkostnaðurinn hefði einnig lækkað á milli áranna 1992 og 1991. Þetta væri mjög ánægjulegt í ljósi þess að bankinn hefði fengið aukinn verkefni. Hagn- aður á síðasta ári hefði numið 1,5 milljörðum króna og hefðu þá verið Sighvatur gerði að umtalsefni í ræðu sinni að ýmsu leyti góðan árangur í efnahagsmálum á síðasta ári og sagði að það hefði tekist að stöðva skuldasöfhun í útlöndum á árinu. Vonaðist hann til að héðan í frá tækist okkur að grynnka verulega á erlendum skuldum þjóðarinnar. Slæm skuldastaða bindi hendur stjómvalda og komi í veg fyrir að hægt sé að mæta tímabundnum efna- hagserfíðleikum með erlendum lán- tökum. Fyrir þessu fínni þjóðin nú. „Það er að vísu ávallt álitamál hve- nær erlendar skuldir eru famar að vaxa þjóð yfír höfuðið en reynsla frænda okkar í Færeyjum undirstrik- ar rækilega að full ástæða er til að fara með gát í þeim efnum. Því verð- um við að leggja áherslu á aðhalds- semi og ráðdeild þegar efnahagslífíð réttir úr kútnum á ný, neita okkur um stundargleði en greiða fyrst niður erlendar skuldir. Efnahagslegt sjálf- stæði þjóðarinnar kann að velta á því að okkur takist þetta í stað þess að sleppa algerlega fram af okkur beisl- inu eins og á síðasta þensluskeiði á áranum 1984-1987,“ sagði hann. greiddir 1,2 milljarðar í opinber gjöld. Hagnaðurinn stafaði fyrst og fremst af gengisendurmati, sem næmi um 2 milljörðum, en genginu var breytt í júnílok. Gjaldeyrisforðinn var um áramót 31’ milljarður sem svaraði til tæpra fímm mánaða al- menns vörainnflutnings. Eigið fé hefði verið í árslok 13,4 milljarðar og hefði eiginfjárhlutfallið vaxið úr 22,6% í 23,9%. Ágúst sagði í ræðu sinni að svig- „í þessu sambandi er vert að rifja upp hið erfíða nábýli iðnaðar og ýmissa þjónustugreina við sjávarút- veginn. Uppgangur í sjávarútvegi hefur ávallt þrengt að öðram grein- um og þeim hefur gengið illa að glíma við hækkandi raungengi á uppgangstímum. Ef við viljum skjóta fjölbreyttari stoðum undir efnahags- starfsemi hér í landi með því að byggja upp öflugan innlendan iðnað og öflugar innlendar þjónustugrein- ar, t.d. ferðamannaþjónustu, sem eiga að geta keppt við erlend fyrir- tæki hvort heldur á markaði hér í landi eða erlendis verðum við að búa þessum greinum eðlileg starfsskil- yrði. í því felst m.a. að koma í veg fyrir þær miklu raungengissveiflur sem eiga upptök sín í sjávarútvegi. Ein leið til þess, kannski einasta leið- in til þess, er að taka upp veiðileyfa- gjald þegar hagur sjávarútvegs batn- ar á ný,“ sagði Sighvatur ennfremur. Vaxtalækkun mikilvægur árangur Hann sagði að einn merkasti við- burðurinn í efnahagslífinu á síðasta rúm ríkja til sjálfstæðra aðgerða á svið peninga- og gengismála hefði minnkað verulega undanfarin ár. Fjölþjóðlegar ákvarðanir marki stefnuna á þeim vettvangi og einstök ríki verði að laga sig að því hvort sem þeim líki betur eða verr. „Aukið fijálsræði í heimsviðskiptum og aukning alþjóðaviðskipta eru þættir sem munu móta hagstjórn í ná- grannalöndunum og þá einnig hér- lendis. Við eigum aldrei að óttast vinda fijálsræðis í viðskiptum. Það gilda engin sérstök lögmál í efna- hagsmálum á íslandi. Oft er sagt að Island hafi slíka sérstöðu að ekki sé hægt að nýta reynslu annarra þjóða til fulls. íslensk vandamál þurfi íslenskar lausnir. Þetta er oftast byggt á misskilningi og getur verið hættulegt fyrir þjóð sem á allt sitt ári væri sú vaxtalækkun sem varð síðla árs. Mikilvægt væri að sá árangur festist í sessi. Vextir á ríkis- víxlum hafí haldið áfram að lækka og því sé tímabært að athuga hvort ekki sé svigrúm til þess að banka- vextir geti lækkað enn frekar. „Það er hins vegar ljóst að erfíð afkoma lánastofnana um þessar mundir, sem einkum stafar af umtalsverðum framlögum í afskriftareikning útlána til að mæta hugsanlegum útlánatöp- um, setur almennri vaxtalækkun ákveðin mörk. Þegar haft er í huga að enn frekari lækkun vaxta er at- vinnulífi landsmanna nauðsyn hljóta augu manna að beinast að banka- og sjóðkerfinu og kostnaðinum við þá miðlun fjármagns sem þar fer fram. Era lánastofnanir of margar? Er yfírbyggingin í einstökum stofn- unum of mikil? Er þörf nýrrar hugs- unar og róttækra aðgerða? Ég efast ekki um að þessum spumingum svara flestir játandi í hljóði en tína síðan til ýmis rök um hið gagnstæða þurfí þeir að svara upphátt. í máli sem þessu, máli sem er brýnt hags- munamál atvinnufyrirtækja og heim- ila í landinu verða sérhagmunir, — hvort heldur einstaklinga eða hags- munahópa, að víkja fyrir almanna- heill,“ sagði hann einnig. Sighvatur þakkaði að lokum Jóni Sigurðssyni seðlabankastjóra sam- starfið á liðnum árum og ámaði honum heilla í nýju starfi. undir fijálsum heimsviðskiptum og góðri nýtingu auðlinda," sagði Ág- úst. 17 milljarðar í vaxtagreiðslur Hann sagði að brýnasta verkefnið væri að lækka erlendar skuldir, þótt þær hafí ekki aukist á síðasta ári að raungildi. Þær hafí samt hækkað um 28 milljarða króna og vaxta- greiðslur til útlendinga hafi numið 17 milljörðum króna í fyrra. Ágúst færði Bimi Tryggvasyni, aðstoðarbankastjóra, sem lætur af störfum hjá bankanum á næstunni fyrir aldurs sakir, bestu þakkir fyrir störf hans, en hann hefur verið starfsmaður bankans frá upphafí og Jóni Sigurðssyni, bankastjóra, sem* hverfur til starfa fyrir Norræna fjár- festingarbankann. Ágúst Einarsson formaður bankaráðs Seðlabankans á ársfundinum Yið eignm aldrei að óttast vinda fijálsræðis í viðskiptum Á SÍÐUSTU þremur árum hafa verið lagðir 27 miftjarðar króna á afskriftarreikning banka og fjárfestingarsjóða og á sama tíma hafa 17 miHjarðar króna verið endanlega afskrifaðir. Þetta kom fram í ræðu Agústs Einarssonar, formanns bankaráðs Seðlabankans, á ársfundi bankans í gær. Fram kom að afkoma bankakerfisins hefði verið betri á síðasta ári en árið 1992. Arðsemi eigin fjár hefði ver- ið um 2,6% og því færi víðs fjarri að það væri viðunandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.