Morgunblaðið - 25.03.1994, Page 48
48
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MARZ 1994
Farsi
Hvernig gengur með sjálfvirka aðstoðarmanninn, sem þú útveg-
aðir í staðinn fyrir silakeppinn hann Knút?
HÖGNI HREKKVÍSI
„ PAÞl HRERKVÍs 1... KALUASXJf^
\ KV'IÞPÓ/U/•'"
BREF TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691329
Hvaða skrípaleikur?
Frá Sævarí Tryggvasyni:
EKKI alls fyrir löngu birtist bréf-
kom frá Ingibjörgu Sólrúnu í Bréfi
til blaðsins þar sem hún hellir úr
skálum reiði sinnar yfir skrifum
Víkverja í Morgunblaðinu. Mér
þóttu skrif þessi alveg með eindæm-
um hrokafull. Þó gekk nú alveg
fram af manni eftir prófkjör sjálf-
stæðismanna í Reykjavík, þegar
hún kallaði prófkjörið „skrípaleik"
og þar með að við kjósendur Sjálf-
stæðisflokksins værum ekki hæfir
til að velja okkur fólk til forustu í
borgarstjórn. Ég veit ekki betur en
að þeir sem ekki stóðu sig hafi fall-
ið og aðrir komið í þeirrá stað.
Þannig er lýðræðið. Við veljum
sjálf.
Það er ekki lýðræði þegar nokkr-
ir aðilar koma saman í kaffispjall
og úthluta ákveðnum sætum fyrir
vissa klíku, það kallast einræði.
Það er til háborinnar skammar
að kjósendum skuli vera boðið upp
á slíkt framboð þar sem Ingibjörg
Sólrún ætlar bara að fara aftur í
þingstörf ef hún nær ekki kosningu
í borgarstjóraembættið. Þetta er
móðgun við kjósendur.
I Reykjavík hafa orðið gífurlegar
breytingar síðustu árin með lagfær-
ingum á hinum ýmsu svæðum þar
Gagnasafn
Morgxmblaðsins
Allt efni sem birtist í Morgun-
blaðinu og Lesbók verður fram-
vegis varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskil-
ur sér rétt til að ráðstafa efninu
þaðan, hvort sem er með endur-
birtingu eða á annan hátt. Þeir
sem afhenda blaðinu efni til
birtingar teljast samþykkja
þetta, ef ekki fylgir fyrirvari
hér að lútandi.
sem fjölskyldum borgarbúa gefst
kostur á því að nýta sér til afþrey-
ingar og tómstundastarfa.
Það er af mörgu að taka, t.d.
Fjölskyldugarðinn í Laugardal,
Húsdýragarðinn, lagfæringar við
Tjörnina og höfnina, stórkostlegt
útivistarsvæði við Nesjavallavirkjun
og svona mætti lengi telja þar sem
framsýni og bjartsýni hafa verið
höfð að leiðarljósi. Hveijir voru á
móti kaupunum á Nesjavöllum?
Við þurfum sterka og framsýna
borgarstjórn en ekki glundroða
vinstri flokkanna er ætla að bjóða
Frá Sigurbjörgu Björgvinsdóttur:
Nú er svo komið að hógværar
konur eins og ég geta ekki lengur
orða bundist. Hvað geta fjölmiðlar
gengið langt í að mismuna kynjun-
um í fréttaflutningi án þess að gefa
skýringu?
Tilefni þessara skrifa er frétta-
flutningur Stöðvar 2 af umsækjend-
um um stöðu seðlabankastjóra
fímmtudaginn 17. mars sl. Þar var
fréttamaðurinn að greina frá hveij-
ir áttu þær umsóknir sem viðskipta-
ráðherra hafði falið bankaráði
Seðlabankans að gefa umsögn um.
Allir karlkyns umsækjendur voru
nafngreindir og birtar myndir af
þeim. Síðan leyfir fréttamaðurinn
sér að segja: „... auk þess eru tvær
konur ...“, nafngreinir þær, en ekki
var haft fyrir því að lofa þeim sem
sátu og horfðu á fréttirnar þetta
kvöld að beija þær augum. Hvers
vegna ekki? Spyr sá sem ekki veit.
En er þetta eðlilegur fréttaflutn-
ingur? Er öllum umsækjendum gert
hér jafnt undir höfði? Er verið að
fram borgarstjóraefni sem ætlar að
flýja af hólmi ef hún tapar.
Kjósendur í Reykjavík ættu ekki
að láta blekkjast af þessu nýja
framboði sem er fyrirboði hafta og
punktakerfis. Kjósum frekar borg-
arstjóm sem er framsýn og dug-
andi, látum ekki fámenna klíku í
kringum Ingibjörgu Sólrúnu rugla
okkur í ríminu, því þar er „skrípa-
leikurinn".
SÆVAR TRYGGVASON,
Litlagerði 2,
Reykjavík.
mismuna kynjunum? Áttu ekki allir
umsækjendur rétt á að fá sömu
umfjöllun í þessum fréttatíma? Ef
svo er ekki, hvers vegna?
Nú hef ég enga sérstaka ástæðu
til að ímynda mér að fréttastjóri
Stöðvar 2 sé með vitund og vilja
að mismuna kynjunum. Eða hvers
vegna ætti hann að vera að því?
Hann hlýtur að vita rétt eins og
ég að slík vinnubrögð eru óviðeig-
andi og þjóna engum tilgangi.
En hver er þá ástæðan? Er þetta
ef til vill ómeðvitað? Og er það ef
til vill líka ómeðvitað, að karlmenn
sjáist oftar á skjánum í fréttum en
kvenmenn?
Ég vona svo sannarlega að svo
sé og að meðvitund fréttastjóra fjöl-
miðlanna fari að vakna til vitundar
um, að konur eru ekkert „auk þess“
í þessu þjóðfélagi.
SIGURBJÖRG BJÖRGVINS-
DÓTTIR,
formaður Freyju, félags framsókn-
arkvenna í Kópavogi.
... auk þess eru
tvær konur...
Víkverji skrifar
Heimsmyndin breytist með
hveijum deginum og lönd
sem áður voru fjarlæg og framandi
verða nær okkur en áður. Er
þrengst hefur um hér heima hafa
menn svipast um utan landsteinana
og sjá víða sóknarfæri.
Fyrirtæki eins og Aðalverktakar
eru í landvinningum meðal annars
í Eystrasaltslöndum og hefði slíkt
talist til stórtíðinda fyrir nokkrum
árum þegar verkefni fyrirtækisins
voru einskorðuð við Keflavíkurflug-
völl. Fleira má nefna sem einhvern
tímann hefði þótt ótrúlegt, til dæm-
is að verkfræðifyrirtæki hafa verið
að svipast um á Gaza-svæðinu og
í Kína. Utgerðarmenn reyna að
gera samninga um veiðar á fjarlæg-
um miðum og aðrir leita að „smug-
um“ víða um heim og skrá skip sín
í löndum sem íslendingar hafa varla
heyrt nefnd áður eins og t.d. í Mið-
Ameríkuríkinu Belize. Lífeyris- og
verðbréfafyrirtæki leita>leiða til að
ávaxta fé sitt og umbjóðenda sinna
á sem bestan hátt og meðal mögu-
leika er að fjárfesta í Asíu. Ekki
má gleyma því að skammstafanirn-
ar ESB, EB, EES, GATT eru orðn-
ar hversdagslegar fyrir notendur
fjölmiðla þó svo að þýðing þeirra
virðist vefjast fyrir æði mörgum.
xxx
En það er á fleiri vegu sem
tengslin aukast og ekki ein-
göngu út á við heldur hafa menn
einnig reynt að fá þekkingu og
styrk erlendra fyrirtækja inn í land-
ið. Sem dæmi má nefna að í byijun
næsta mánaðar verður sú breyting
á hótelum Flugleiða; Esju og Loft-
leiðum, að þau verða merkt
Scandic-hótelkeðjunni, starfsfólkið
klæðist einkennisbúningum Scandic
og þjónusta verður þaðan í frá í
samræmi við staðla Scandic, sem
selur þjónustu sína í meira en 100
hótelum í Norður-Evrópu. Flugleið-
ir vonast til að nýting á Hótel Loft-
leiðum og Hótel Esju batni um 10%
vegna þessa samstarfssamnings.
xxx
Fjölvarpið, sem Stöð 2 nefnir
svo, hefur farið fyrir ofan
garð og neðan hjá flestum sjón-
varpsáhorfendum þó svo að einhver
hundruð manna hafi gerst áskrif-
endur. Húsráðandi einn í fjölbýlis-
húsi í borginni var ákveðinn í því
að kaupa sér ekki þessa þjónustu,
honum fannst hann einfaldlega ekki
þurfa á henni að halda, hann hefði
ekki efni á henni og hefði annað
við tímann að gera en horfa á þessa
rás til viðbótar við það sem fyrir er
á markaðnum. Auk þess var hann
ekki alls kostar sáttur við kynningu
og framsetningu á þessum mögu-
leika. Hvort sem honum líkaði betur
eða verr við fjölvarpið var það hon-
um greinilega ætlað því einn daginn
er hann var að fikta í stillingum á
sjónvarpstækinu kom fréttasending
erlendrar stöðvar á skjáinn. Hann
var kominn með fjölvarp. Maðurinn
heldur helst að þessi þjónusta hafi
lekið inn á tækið hans frá ná-
granna, sem gerðist áskrifandi.
Maðurinn veit ekki alveg hvað hann
á að gera við þennan óboðna gest
sem kominn er inn á heimilið. Hann
vill gjarnan losna við hann en þorir
vart að segja frá þessu af ótta við
að verða rukkaður.
xxx
Skrifari getur ekki annað en vor-
kennt starfsfólki í söluturnum
og sjoppum þar sem spilakassar
eru. Víkveiji hefur tekið eftir því
að víða er reynt, eins og á að gera,
að banna börnum að spila í peninga-
kössum, sem yfirleitt er að finna á
slíkum stöðum. Þegar mikið er að
gera getur starfsfólkið þó engan
veginn staðið í þessum lögreglu-
störfum og krakkarnir eru óhrædd-
ir við að skjótast í kassana og
freista gæfunnar. Það hefur lítið
að segja þó vinningar séu yfirleitt
ekki greiddir til barnanna ef þau
eru ekki orðin 16 ára. Krakkar fínna
sér alltaf leið til að koma vinnings-
miðunum í pening og reyndar hafa
þeir sem eru undir aldri alltaf haft
leiðir til að nálgast það sem þeim
er bannað. Það er spuming hvort
ekki á að fjarlægja kassa úr sjopp-
um sem til dæmis eru staðsettar
nálægt skólum og öðrum stöðum
sem krakkar sækja mikið á.