Morgunblaðið - 19.05.1994, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 19.05.1994, Qupperneq 8
8 FIMMTUDAGUR V9. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Kristinn Nýir leikskólar FIMM nýir leikskólar voru teknir formlega í notkun í gær. Flutti Árni Sigfússon borgarstjóri ávarp og gerði grein fyrir uppbygg- ingu leikskóla í borginni í tíð núverandi borgarstjórnar. Arni spjallar hér við börnin í Lindarborg ásamt eiginkonu sinni, Bryn- dísi Guðmundsdóttur. Rými fyrir 480 börn 15 nýjum leikskólum FIMM nýir leikskólar voru teknir formlega í notkun í Reykjavík í gær. Ámi Sigfússon borgarstjóri flutti ávarp í Lindarborg við Lindargötu og sagði að á nýju leikskólunum yrði rými fyrir 480 börn til viðbótar, sem þýddi pláss fyrir alls 5.100 böm í Reykjavík. Fjármagns óskað á fjárlögum fyrir Líf- vakann NEFND sem ætlað er að gera tillögur um öryggisatriði á sund- stöðum mun leita eftir því að á fjárlögum verði veitt fé til að fullvinna hugmynd Guðmundar H. Guðmundssonar rafeinda- virkjameistara um búnað til að fylgjast með sundlaugargestum, en í Morgunblaðinu í gær var greint frá þessum búnaði sem hann kallar Lífvaka. Að sögn Reynis Karlssonar formanns nefndarinnar er mikill áhugi inn- an nefndarinnar fyrir þessum búnaði. „Við höfum ekki fjármagn nema við fjárlagagerð hveiju sinni og ekkert fjármagn laust á miðju ári. Þetta er virkilega góð hugmynd og það er mikill áhugi fyrir þessu, en í okkar litla þjóðfélagi tekur tíma að brúa þetta. Það eru engir peningar til í sjóðum án þess að búið sé í rauninni að ráðstafa þeim fyrir- fram. Við fáum ekki verulegan stuðning við verkefni sem kosta fé og þá er spurning hver á að borga þetta. Nú er komið að fjárlagagerð og við munum gera grein fyrir þessari hugmynd og óska stuðnings," sagði Reynir. Stuðningur Esther Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Slysavarna- félags íslands, sagði að Guð- mundur H. Guðmundsson hefði formjega óskað eftir umsögn SVFÍ um búnaðinn, og sagði hún málið nú í skoðun. „Okkur sýnist í fljótu bragði að þetta geti verið alveg frá- bært tæki. Við getum hins vegar ekki lagt pening í þetta, en við getum þó veitt móralskan stuðn- ing,“ sagði hún. Sagði Árni að um 1.380 börnum hefði verið séð fyrir plássi með þess- ari uppbyggingu og hafi fjárfram- lög borgarinnar til reksturs og stofnkostnaðar hækkað úr rúmum 4% heildartekna borgarinnar árið 1978 upp í 12% fyrir þetta ár. Er kostnaður við rekstur Dagvistar barna áætlaður 1.738 milljónir fyrir þetta ár og greiðir borgarsjóður 1.224 milljónir króna þar af. Nýju leikskólamir eru Engjaborg við Reyrengi, Rauðaborg við Viðar- ás, sem teknir eru til starfa, Funa- borg við Funafold, Sólborg við Vest- .urhlíð og Lindarborg sem fyrr var getið. Undirbúningsstarf er hafíð í þeim síðasttöldu og er gert ráð fyrir sérhæfðri starfsemi fyrir fötiuð böm í Sólborg, sem fjölgar slíkum leik- skólum úr tveimur í þijá í borginni. Opinn leikskóli Við hönnun leikskólanna Rauða- borgar og Funaborgar var gengið út frá nýjum hugmyndum um opinn leikskóla. Þar er lögð áhersla á að vekja forvitni barnanna og áhuga, þau hvött til sjálfstæðra vinnu- bragða, að spyija spurninga, leita upplýsinga, vinna úr þeim og draga eigin ályktanir. Einnig er húsnæðið opnara og hver krókur og kimi nýttur. < Einnig nefndi borgarstjóri skort á leikskólalóðum í höfuðborginni sem leitt hefur til þess að borgin hefur fest kaup á gömlum húseign- um sem breytt hefur verið í leik- skóla. Til dæmis gekk gömul smjör- líkis- og blikkverksmiðja í endurnýj- un lífdaga við opnun Lindarborgar. Kjarabarátta meinatækna Við gefumst ekkiupp Edda Sóley Óskarsdóttir Eftir nær sex vikna verkfall og 42 sátta- fundi í 220 tíma, sigldu kjaraviðræður samninganefnda meina- tækna og atvinnurekenda í strand seint á sunnudags- kvöld. Hvorugur deiluaðila vill gefa eftir og deilan því í hörðum hnút eins og kom- ið er. Afleiðingin er áfram- haldandi verkfall og erfið- leikar á sjúkrahúsum. En baráttuþrek meina- tækna hefur líka vakið at- hygli. Félagsmenn standa þétt saman á bakvið verk- fallstjóm og samninga- nefnd sína. Edda Sóley Óskarsdóttir, sem kjörin var formaður félagsins í október í fyrra, lætur heldur engan bilbug á sér finna og kvíð- ir ekki næstu 5 árum í formanns- starfinu. „Mér lýst ekkert illa á framhaldið. Ég held að svona deila sé eitt það erfiðasta sem verkalýðsfélag gengur í gegn- um. Annars býst ég að við kom- uni heilsteypt út úr þessu og jafnvel heilii sem félag en áður. Margir hafa aðeins verið að vinna á einum vinnustað allan sinn starfsferil. En í verkfallinu höfum við verið að fara á milli og kynnast. Við höfum meira að segja farið saman í göngut- úra og sund, jafnvel kíkt á krá.“ - En svo við snúum okkur að sjálfri deilunni. Hvernig met- ur þú stöðuna nú? „Ég lít svo á að markmiðið nú sé að bijóta okkur á bak aft- ur. Að við gefum eftir. En við teljum okkur hafa gefið svo mik- ið eftir að við getum ekki gefið meira. Maður verður að geta gengið frá samningaborði með ánægju yfir að hafa náð ein- hveiju af því fram sem farið var fram á upphaflega. Ef ekki ríkir þokkaleg sátt um árangurinn blossar strax upp óánægja. Til- boð viðsemjenda okkar er ekki fullkomlega ásættanlegt. Ástæðan er fyrst og fremst sú að ég get ekki fallist á að það taki mína félagsmenn yfir 20 ár að ná starfsheiti sem felur í sér að unnið sé sjálfstætt að rann- sóknum. Þetta er hlutur sem hver einasti meinatæknir gerir.“ „Ég verð líka svolítið ósátt út í samninganefnd ríkisins þegar þeir gefa út meðaltalslaun. 94.000 kr. meðalaun gefa skakka mynd af raunverulegum launakjörum. Þessum launum nærðu ekki fyrr en eftir langan starfsaldur. Við leggjum áherslu á að fá fólk inn í stéttina fremur en að gera algjörlega útaf við hana. Fólk er ekkert ginnkeypt fyrir að fá 68.000 kr. byijunar- laun eftir langt og strangt nám. Ekki batna launin heldur mikið við lengri starfsaldur því há- markslaun almenns meinatækn- is eru 84.195 kr. og þýðir það að 1. maí 1994 eru heildarlaun frá áramótum 420.975 kr. Ætli Friðrik Sophusson treysti sér til að lifa af þessum mánaðarlaun- um?“ segir Edda Sóley og bætir við að hæstu hugsanlegu mánað- arlaun meinatækna á landinu séu 113.151 kr. „Aðeins er einn meinatæknir í þessum launa- flokki og hefur hann 32 ára starfsreynslu." - Hvaða leið sérð þú út úr deilunni? ► Edda Sóley Óskarsdóttir, formaður Meinatæknafélags íslands, er fædd 28. júlí 1956 í Reykjavík. Hún ólst upp í Blesugrófinni og brautskráð- ist frá Menntaskólanum við Tjörnina árið 1976. Fjórum árum síðar lauk hún prófi frá meinatæknabraut Tækniskóla íslands. Eiginmaður Eddu Sól- eyjar er Stefán Hjálmarsson og eiga þau 3 börn. Hún var kjörin formaður Meinatæknafélags Islands í október árið 1993. Félags- menn eru 230 og starfar meiri- hluti þeirra á höfuðborgar- svæðinu. „Við höfum reynt að leggja fram ýmsar hugmyndir, t.d. um kjarabætur á samningstímanum, en þeir hafa ekki getað fallist á þær. Því bíðum við átekta og sjálf kem ég ekki auga á leið, sem ég er fullkomlega sátt við, á þessu stigi,“ segir hún og út- skýrir af hveiju hugmynd ríkis- sáttasemjara um úrskurð gerð- ardóms var hafnað. „Með því að leggja málið í gerðardóm teljum við að samningsrétturinn hafi verið af okkur tekinn og ríkis- valdið losni á þann hátt við að taka af- stöðu og þar með ábyrgð á launakjörum félagsmanna.“ - Hvaða straum- um finnið þið fyrir, frá aImenn- ingi og félagsmönnum? „Til að byija með er ástæða til að geta þess að yfir 30 félög, innan BSRB, ASÍ og BHMR, hafa sent okkur stuðningsyfir- lýsingar. Ég fæ líka nánast á hveijum degi upphringingar frá fólki sem lýsir yfir stuðningi við okkur. Stundum kynnir það sig, stundum ekki. Sem dæmi hringdi í mig bóndi norður í landi í gær, nýbúi hringdi í mig í morgun og ég sé hérna að hjúkr- unarfræðingar á Landspítalan- um hafa verið að senda okkur stuðningskveðjur. Enginn hefur hins vegar hafí, samband við mig til að lýsa yfir andúð eða reiði gagnvart baráttu okkar. Reynd- ar lenti ég einu sinni á einum, hérna á skrifstofu félagsins, sem var eitthvað ekki sáttur. En ég held að í raun hafi hann ekki alveg vitað um hvað málið sner- ist. Félagsmenn játa fúslega að þeir séu famir að nálgast gjald- þrot fjárhagslega. En þeir eru langt því frá andlega gjaldþrota. Hjá meinatæknum eru orð dags- ins: „Við gefumst ekki upp.“ 42 fundir haldnir án árangurs

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.