Morgunblaðið - 19.05.1994, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 19.05.1994, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Verk íslenskrar listakonu fjarlægð af sýningu hennar á Spáni Þóttu of eró- tísk fyrir sýn- ingarsalinn MYNDLISTARSÝNING sem íslenskur mynd- listarnemi á Spáni, Sigurbjörg Jóhannesdóttir, tekur nú þátt í hefur fengið talsverða umfjöllun í spánskum fjölmiðlum, þar sem 11 mynda henn- ar voru fjarlægðar fyrir opnun sýningarinnar vegna kynferðislegs innihalds þeirra. Myndirnar voru þó settar upp að nýju degi síðar, eftir nokk- urt málþóf. Sigurbjörg Jóhannesdóttir, sem kall- ar sig Sibbu, er á Iokaönn í MHÍ en situr í ár sem gestanemandi í málun við fagurlistadeild Háskólans í Salamanca á Spáni og skipulagði ásamt fjórum spænskum bekkjarsystrum sínum, myndlistarsýningu í sýningarsal er nefnist „Sala Lazarillo“ og er í eigu „E1 Servicio Territorial de Cultura de la Junta de Castilla y León“, sem mun útleggjast Sameiginleg menningarmiðstöð Kastallíu og León. Sameiginlegtþema sýningar- innar, sem lýkur á morgun, 20. maí, er maður- inn og dró Sigurbjörg upp ýmis tilbrigði við ástarleiki fólks í verkum sínum með ívafi kimni. „Gætu valdið hneyksli“ Að morgni þess dags sem sýningin átti að opna, 9. maí sl., settu þær upp alls 39 málverk og skúlptúra, og brugðu sér síðan frá. Formlegur opnunartími var klukkan 19. og segir Sigur- björg að um 40 gestir hafi verið mættir þegar þær stöllur sneru til baka. Kom þá í Ijós að búið var að fjarlægja 11 málverk eftir hana af veggjum salarins og læsa inn í hliðarsal. Kveðst Sigurbjörg hafa verið afar slegin yfir þessari ráðstöfun. „Ég gat ekki skilið hvað í verkum mínum réttlætti að þau væru fjarlægð fyrirvara- laust. Þetta var svo fáránlegt að við vissum ekki hvort við ættum að hlæja eða gráta. Við leituðum til starfsmanns salarins, sem gaf þá skýringu að forstjóri „E1 Servicio Territorial de Cultura de la Junta de Castilla y León“, hefði fyrirskiþað að málverkin yrðu fjarlægð, þar sem erótískt innihald þeirra gæti skaðað ímynd salarins og valdið hneyksli," segir Sigur- björg. Skólasystur hennar mótmæltu þessari ákvörðun forstjórans með því að taka verk sín niður, snúa þeim til veggjar og neita að halda sýningunni áfram án þáttöku Sigurbjargar. Iðrast ritskoðunar Næsta dag ræddu þær við forsljórann sem vildi ekki gefa aðrar skýringar á ákvörðun sinni en að hann gæti ekki sætt sig við viðfangsefni myndanna. „Hann tjáði okkur að þessar myndir MÁLVERK Sigurbjargar Jóhannesdóttur, Sibbu, voru fjarlægð af samsýningu hennar og fjögurra annarra ungra listakvenna, sök- um þess að innihald þeirra þótti of erótískt. yrðu ekki sýndar í salnum og að þeirri ákvörð- un yrði ekki haggað," segir Sigurbjörg. „Við gengum þá á fund aðalforstjóra samtakanna og skýrðum honum frá vandræðum okkar. Hann kvaðst ekkert kannast við málið, sem vakti furðu okkar í ljósi þess embættis sem hann gegnir, og lofaði okkur engu. Fundurinn hefur þó borið árangur því síðdegis sama dag var búið að hengja upp öll verkin, þar með talin málverkin mín, og er mér sagt að um pólítíska ákvörðun hafi verið að ræða.“ Dagblaðið „E1 Adelanto" í Salamanca fjallaði um málið næsta dag á forsíðu undir fyrirsögninni; „La Junta ritskoðar nemendasýningu og iðrast þess síð- an,“ ásamtþví að veija heilli síðu inni í blaðinu í myndir og umfjöllun um sýninguna og ákvörð- un forsljórans. Aðrir fjölmiðlar fylgdu í kjölfar- ið, og næstu daga var fjallað ítarlega um þessa tilraun til ritskoðunar í dagblöðunuin „E1 Tri- buna“ og „E1 País“, ásamtþví sem útvarpsstöð- in „Radio de Espana" og ein sjónvarpsstöðvanna birtu fréttir og umfjöllun um atvik þetta. Sólartákn og jafndægur Töfrar úr hrjúfu fiaueli MYNPLIST Stöðlakot MÁLVERK Hlif Ásgrímsdóttir Til 29. maí. Sýningarskrá og aðgang- ur ókeypis. ÞAÐ er eðlilegt að birtan fangi hug manna á okkar breiddargráð- ura, þar sem hún er munaður laligra sumardaga og það sem helst er saknað á dimmum vetrar- nóttum. Jafnvægi birtunnar hefur orðið listamönnum mikilvægt til- efni til verka á ýmsum tímum, og þeir hafa nálgast þetta viðfangs- efni út frá ýmsum forsendum. Hlíf Ásgrímsdóttir vinnur hér einkum út frá þeim grunni, sem finna má í táknmynd sólarinnar: Kross á hring er eitt elsta tákn sólarinnar sem þekkt er í listasög- unni og hefur fylgt okkur allt til þessa dags, jafnframt því sem trú- arbrögð hafa tekið táknið upp á sína arma pg gætt það frekari merkingu. í lítilli sýningarskrá tengir listakonan þetta saman: „I fornum trúarbrögðum mætist tvennt eðli alheimsins í miðjum krossi, þ.e. hið lárétta og hið lóð- rétta. Eðli vatnsins er að flæða til hliðanna og slétta yfirborð þegar eðli eldsins leitar upp. Yggdrasill, heimstréð, er askviður en undir honum er Urðarbrunnur. Sagt er að örlaganornirnar takj hvern dag vatn úr brunninum og ausi yfir askinn. Krossinn merkir samein- ingu kynjanna, karleðlið og kven- eðlið, sem fijóvgar heiminn." Hin stöðuga leitun jafnvægis milli þess- ara andstæðu þátta á sér fullgilda samsvör- un í gangi sólarinnar, þar sem jafndægur að vori og hausti eru miðpunktarnir, en sólhvörf veturs og sumars mynda ystu mörk. Um þessa leit snúast myndir Hlífar hér; þetta eru almennt litlar vatns- litamyndir, dregnar fáum dráttum, og oftast hugsaðar í pörum eða flokkum, þannig að til verði heil hringrás eða jafnvæg myndist. Þannig falla fyrstu fimm myndirn- ar saman, frá einum sumarsól- hvörfum, um hring ársins að hinum næstu. Aðrir flokkar mynda einnig jafnvægi, eða bera saman ákveðna tímapunkta milli ára. Myndirnar eru dregnar mildum dráttum og vegna smæðarinnar er það fyrst þegar áhorfandinn tekur eftir flokkuninni sem þær vekja athygli. Á neðri hæð Stöðlakots er það gangur sólarinnar og ígildi birt- unnar sem ráða ríkjum, en í mynd- unum uppi hefur listakonan lagt meiri áherslu á önnur tákngildi krossins, hið lárétta og hið lóð- rétta. Fletirnir eru settir upp á annan veg og þessum athugunum þannig komið til skila með einföldum hætti. Hlíf Ásgrímsdóttir lauk námi frá Mynd- lista- og handíða- skóla íslands 1991 og hefur tekið þátt í ýmsum samsýningum síðustu ár. Hún er um þessar mundir fulltrúi íslenskra listamanna á norrænu samsýningunni Aurora 6, sem er á ferð um hin Norðurlöndin, en þetta mun vera fyrsta einkasýning hennar. Það er stöðug freisting allra listamanna að ofgera hlutina, en í stað stórra átaka í formi og mynd- gerð hefur Hlíf valið að fjalla um hið eilífa í tilverunni með einföldum hætti, rifja upp tákn og minna okkur á hringrás ljóss og lífs. Þetta tekst henni ágætlega með þessari sýningu. Eiríkur Þorláksson BOKMENNTIR Ljóó NÓTTIN HLUSTAR Á MIG eftir Þuríði Guðmundsdóttur. Hörpuútgáfan 1994 - 55 síður. 1.482 krónur leiksoppur milli mýktar og hörku milli veruleika og draums NIÐURLAGIÐ úr ljóði, sem Þur- íður nefnir „Milli mýktar og hörku“ er lýsandi fyrir þau átök sem eiga sér stað í ljóðunum, eða öllu heldur í því lífi sem ljóðin fjalla um, í þess- ari nýjustu ljóðabók hennar. Bókin er þrískipt. Fyrst kemur bálkur sem Þuríður kallar Tjarnljóð, síðan annar sem hún nefnir Blóm þagnarinnar og þriðja þáttinn nefnir hún Nóttin hlustar á mig. í honum er safn ljóða, sem lúta engu einu þema, en segja má að séu hringferð um hug- arheiminn að nætur- þeli; þeim tíma sem skynjunin er viðkvæ- must. Þau eru eins og Ijós sem birtist þegar dagskíman dvínar og ekkert ónáðar; engin hljóð, engar myndir. Tilfinningamar - ástin og hlýjan, sorgin og sársaukinn - verða nógu áþreifanlegar til að hægt sé að binda þær í ljóð. í Tjarnljóðum eru náttúrumyndir, þar sem hið smáa verður stórt, hið ósýnilega sýnilegt. Hver hlutur fær nýja merkingu, þegar hann er tekinn úr sínu venjulega samhengi. Kirkjut- umar verða að Guðsvegum, þegar þeir em losaðir við steinsteypuímynd- ina og lagðir í tjömina. Þeir verða gormlaga og hlykkjóttir í vatni. í dimmum tjamarspegli kasta götuljósin gullmylsnu fyrir fugla næturinnar Vatn verður spegill, götuljós að gullmylsnu; einhveiju óhöndlanlegu, eins og skáldið vilji í þessu fyrsta ljóði bókarinnar leggja áherslu á að ekki sé allt sem sýnist. Og það er ekki svo vitlaust að hafa það í huga þegar lesið er áfram. Við fyrsta lestur, virðast ljóð Þuríð- ar einföld og blátt áfram, jafnvel dálítið angurvær og eins og hún sé stöðugt að yrkja um óraunveruleik- ann. En eftir því sem kafað er dýpra í ljóð hennar, kemur meiri harka í ljós. Raunveruleiki Ijóðanna er æði kaldur, rétt eins og ísilögð tjöm og skáldið veit að það þarf að yrkja sig áfram í gegnum lífið til að fijósa ekki í hel: Eftir ísnum í átt að vökinni ég verð að sjá vatnið lifandi vatnið Manneskjan þarf að hafa fyrir því sjálf að halda sér lífs megin í tilver- unni. Hún verður að bera sig eftir þeirri björg sem heldur í henni lífi. Enginn gerir það fyrir hana. Tjarnljóðin eru í mínum huga yfir- lýsing ljóðmælandans um að hann hafi tekið ákvörðun um að lifa - og leita eftir því sem gefur lífinu gildi, þrátt fyrir það sem hann birtir le- sandanum í því sem eftir er í bókinni. í Blómum þagnarinnar eru það ekki orðin sem eru styrkur skáld- skaparins, heldur þögnin. Þar yrkir Þuríður um veruleika sem ekki sést og ekki heyrist. Hann hefur heldur engar birtingarmyndir. Þar er engin speglun og hlutirnir heita sínum eig- in nöfnum þótt þeir séu aldrei nefnd- ir á nafn. Sársauki og söknuður verða áþreifanlegir í myndum sem birtast til þess eins að leysast upp: Milli fingra þinna opnast blóm sem enginn á enginn sér nema þú Á bak við þennan bálk er missir, sársauki og söknuður, sem engin orð geta tjáð. Það er aðeins hægt að tjá þessar tilfinningar með myndmáli þagnar. Harkaleg lífsreynslan að baki þeim, skellur á lesandanum, nánast eins og svik vegna þess hvað smiður ljóðanna hefur mjúkar hendur. Það sem virtist svo milt, er það sem meiðir mest. Reyndar má segja að strax í þess- um ljóðum verði Ijóst að þau eru einvígi milli mýktar og hörku. Reynslan er hijúf og harkaleg en henni er tekið af ástúð og mildi. Og það alveg án þess að til komi væmni, held- ur kýs ljóðmælandinn að horfa á lífíð sem hann tjáir sem eilífa hringrás dags og nætur, gleði og sorgar, ljóss og myrk- urs, ástar og harma, eins og kemur best fram í ljóði sem Þuríður nefnir „Sumamótt“: Hrjúfur þessi dagur uns sumarnóttin breiddi yfir hann vatnaspegla og þöp stjúpublóma úr bláu og rauðu flayeli Leikur að andstæðum er styrkur Ijóðanna og þar fer Þuríður ótroðnar slóðir og nær mjög sérstæðu and- rúmslofti í heildarmyndina. Um leið og andstæður takast harkalega á, eru þær hluti af hvor annarri. Hún gælir við skynfærin; málar myndir, sem hún gæðir lykt og hljóði, sem hún síðan mylur niður og myndin sáldrast milli fingranna, þar til mað- ur spyr hvort hún hafi kannski bara verið blómið, sem skáldið yrkir um: Milli fingra þinna opnast blóm sem enginn á enginn sér nema þú Og auðvitað er það svo að mynd- in, sem ég sé, er ekki endilega sama myndin og þú sérð. Hvert ljóð Þuríð- ar er gætt þeim töfrum að hver og einn getur aðlagað myndir þeirra sín- um eigin reynsluheimi. Þau eru mjúk og áferðarfalleg á ytra borði, rétt eins og blátt og rautt flauel stjúpu- blómanna, en þar undir liggur hinn óralangi vegur mannlegrar reynslu, allt til botns. Hvert mannsbarn er statt einhvers staðar á þeim vegi og því verða ljóð Þuríðar dýrmæt hveij- um þeim sem fetar sig eftir þeim og reynir að fmna sinn eigin stað. Það er hreinræktuð og góð ljóðlist í þessari bók. Hvert Ijóð er eins og jurt, sem hlúð hefur verið að af umhyggju og visku; engar skemmd- ir, engir hnökrar; enginn óþarfi. Aðeins tær lýrík, sem er eins og skínandi gersemi í þessum glingur- heimi. Það hefur löngum farið lítið fyrir Þuríði og Ijóðum hennar ekki haldið hátt á lofti. Það sætir furðu, því hún er tvímælalaust eitt af okk- ar albestu kvenskáldum. Súsanna Svavarsdóttir Þuríður Guðmundsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.