Morgunblaðið - 19.05.1994, Blaðsíða 24
24 FIMftíTUDAGUR 19. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
Jákvæð þróun í
umferðarmálum
NÆR DAGLEGA birta fjölmiðl-
ar fréttir úr umferðinni. Oftast er
fjallað um neikvæðu hliðarnar, sem
eru umferðarslys, þótt jákvæðu
hliðarnar séu margfalt fleiri. Nei-
kvæðu hliðamar eru að árlega
lætur á þriðja tug manna lífið,
hundruð hljóta varanleg mein og
þúsundir slasast í umferðarslysum
á hverju ári. Umferðarslys eru ein
helsta orsök bæklunar og ótíma-
bærs dauða. Um helming alls
slysakostnaðar, eða um fímm millj-
arða á hverju ári, má rekja til
umferðarslysa. Hver hefur þróunin
verið í umferðarmálum hér á landi?
Erum við á réttri leið?
Efniviður
Leitað var I gagnabanka slysa-
deildar að þeim sem áttu lögheim-
ili í Reykjavík og höfðu komið
vegna áverka úr umferðarslysum
á slysadeild Borgarspítalans á ár-
unum 1974-1993. Upplýsingar
um fjölda látinna í umferðarslysum
á íslandi voru fengnar frá Hag-
stofu íslands og Um-
ferðarráði. Upplýs-
ingar um bifreiðaeign
voru fengnar frá Um-
ferðarráði.
Jákvæð þróun í
Reykjavík
Alvarlegum áverk-
um úr umferðarslysum
í Reykjavík hefur
fækkað um 44% á
tímabilinu þrátt fýrir
stóraukna bifreiða-
eign. Ef skoðuð er þró-
un síðustu sjö ára
kemur í ljós að fjölgun
hefur orðið á svokölluðum minni
háttar áverkum sem skýrist af
auknum íjölda hálshnykkja. Slys-
atíðnin er hæst í aldurshópnum
15-24 ára. Það hefur orðið veruleg
fækkun slysa á gangandi vegfar-
endum. Fækkunin nemur 36% hjá
konum og 43% hjá körlum. Slösuð-
um úr bifhjólaslysum hefur einnig
fækkað um 27%. Hins vegar hefur
orðið 58% aukning á
reiðhjólaslysum hjá
drengjum en ekki
marktæk aukning hjá
stúlkum. Langhæsta
slysatíðnin á reiðhjól-
um er í aldurshópnum
5-14 ára.
Þegar á heildina er
litið hefur þróunin í
umferðarmálum verið
mjög jákvæð í Reykja-
vík.
Látnum í
umferðarslysum
fækkar
Það létust 499 í umferðarslysum
á íslandi á árunum 1974-1993.
Þegar tíðni um fjölda látinna í
umferðarslysum er skoðuð kemur
í ljós jákvæð þróun, eða 32% fækk-
un á síðastliðnum 20 árum.
Úrbætur
Þrátt fyrir jákvæða þróun þegar
á heildina er litið er tvennt sem
Brynjólfur
Mogensen
Auglýsing um
FRAMBOÐ VIÐ BÆ J ARSTJÓRN ARKOSN1NG AR
1 HAFNARFIRÐI
oó CM maí 1994
A listi Alþýðuflokks D listi Sjálfstæðisflokks
Ingvar Viktorsson Svöluhrauni 15. Magnús Gunnarsson Heiðvangi 72.
Valgerður Guðmundsdóttir Túnhvammi 11. Jóhann G. Bergþórsson Vesturvangi 5.
Tryggvi Harðarson Hvammabraut 4. Ellert Borgar Þorvaldsson Mávahrauni 6.
Árni Hjörleifsson Sævangi 1. Valgeröur Sigurðardóttir Hverfisgötu 13b.
Ómar Smári Ármannsson Álfabergi 12. Þorgils Óttar Mathiesen Traðarbergi 23.
Þórir Jónsson Hrauntungu 2. Ragnheiður Kristjánsdóttir Fagrahvammi 10.
Eyjólfur Saemundsson Fagrahvammi 7. Árni Sverrisson Hvassabergi 2.
Guðjón Sveinsson Móabarði 18. Magnús Kjartansson Norðurbraut 24.
Þórdís Mósesdóttir Álfaskeiði 80. Gissur Guðmundsson Breiðvangi 32.
Anna Kristín Jóhannesdóttir Suöurvangi 8. Helga Ragnheiður Stefánsdóttir Sævangi 44.
Helga H. Magnúsdóttir Blómvangi 8. Gunnar Á. Beinteinsson Fögruhlið 5.
Kristfn List Malmberg Álfholti 2c. Kristinn Arnar Jóhannesson Fagrahvammi 1.
Magnús Árnason Dvergholti 27. Skarphéðinn Orri Björnsson Hringbraut JM.
Hrafnhildur Jónsdóttir Lyngbergi 19b. Björk Pétursdóttir Stekkjarhvammi 22.
Þorlákur Oddsson Háholti 12. Sigurður Einarsson Sólbergi 2.
Ágústa Finnbogadóttir Suðurbraut 20. Ásdfs G. Konráðs. Suðurgötu 47.
Hafrún Dóra Júlíusdóttir Blómvangi 12. Jón Gestur Viggósson Vesturvangi 1.
Anna María Guömundsdóttir Suðurgötu 64. - Þórunn Sigþórsdóttir' Mávahrauni 18.
Steinunn Guðmundsdóttir Hellisgötu 7. Ólafur Á. Torfason Álfholti 34b.
Guðrún Emilsdóttir Melholti 2. Trausti H. Jónasson Sævangi 24.
Jóna Ósk Guðjónsdóttir Bæjarholti 9. Bergur Ólafsson Smárahvammi 8.
Guðmundur Árni Stefánsson Stekkjarhvammi 62. Hjördís Guðbjörnsdóttir Skúlaskeiði 12.
B listi Framsóknarflokks G listi Alþýðubandalags
Jóhanna Engilbertsdóttir Norðurvangi 42. Magnús Jón Árnason Hraunbrún 8.
Magnús Bjarnason Suöurgötu 54. Lúðvík Geirsson Miövangi 6.
Hilmar Kristensson Blómvangi 4. Guðrún Árnadóttir Holtsgötu 13.
Einar Gunnar Einarsson Klettahrauni 11. Gunnur Baldursdóttir Háholti 3.
Baldvin E. Albertsson Noröurvangi 1. Hörður Þorsteinsson Stuðlabergi 38.
Sigurlaug Albertsdóttir Breiðvangi 11. Ingibjörg Jónsdóttir Eyrarholti 10.
Níels Árni Lund Miðvangi 93. Símon Jón Jóhannsson Öldugötu 19.
Ingvar Kristinsson Álfholti 56d. Lára Sveinsdóttir Merkurgötu 8.
Gunnar Hilmarsson Flatahrauni 16a. Sigurbjörg Sveinsdóttir Lyngbarði 5.
Petrún Jörgensen Hjallabraut 35. Sólveig Brynja Grétarsdóttir Laufvangi 5.
Gestur Breiðfjörð Sigurðsson Suðurvangi 5. Kristján Hjálmarsson Vörðustíg 7.
Guðrún Hjörleifsdóttir Hvammabraut 4. Ingibjörg Björnsdóttir Hringbraut JM.
Gísli Sveinbergsson Traðarbergi 3. Sveinþór Þórarinsson Breiðvangi 14.
Þórarinn Þórhallsson Smyrlahrauni 6. ína lllugadóttir Langeyrarvegi 13.
Eggert Bogason Arnarhrauni 26. Ingrún Ingólfsdóttir Skúlaskeiði 6.
Sveinn Elísson Merkurgötu 10. Páll Árnason Grenibergi 9.
Björg Jóna Sveinsdóttir Álfaskeiði 26. Erling Ólafsson Miðvangi 12.
Sigurður Hallgrímsson Háabarði 7. Bergþór Halldórsson Lækjarhvammi 7.
Sigurjón Sveinsson Miðvangi 55. Sigrún Guðjónsdóttir Austurgötu 17.
Stefán Vigfús Þorsteinsson Arnarhrauni 36. Sigurður T. Sigurðsson Suðurgötu 9.
Eiríkur Pálsson Suðurgötu 51. Þorbjörg Samúelsdóttir Hrauntungu 12.
Jón Pálmason Ölduslóö 34. Hulda Runólfsdóttir Fögrukinn 6.
V listi Samtaka um kvennalista
Bryndís Guðmundsdóttir Ljósabergi 22. Hrund Siguröardóttir Erluhrauni 2.
Ingibjörg Guömundsdóttir Hringbraut 78. Kristín Laufey Reynisdóttir Móabarði 34.
Guðrún Sæmundsdóttir Hverfisgötu 52b. Guðrún Margrét Ölafsdóttir Sélvogsgötu 7.
Guðrún Ólafsdóttir Vallarbarði 16. Andrea Guðmundsdóttir Breiðvangi 22.
Friðbjörg Haraldsdóttir Hraunbrún 15. Ásdís Guðmundsdóttir Kelduhvammi 13.
Dóra Hansen Kirkjuvögi 5. Katrín Þorláksdóttir Hellisgötu 15.
Ása Björk Snorradóttir Austurgötu 41. Anna Jóna Kristjánsdóttir Tunguvegi 2.
Guðrún Guömundsdóttir Suðurvangi 10. Unnur Magnúsdóttir Miðvangi 123.
Hafdís Guðjónsdóttir Urðarstíg 8. Sigurborg Gísladóttir Norðurbraut 11.
Ragna Björg Björnsdóttir Birkihlíð 4a. Ragnhildur Eggertsdóttir Lækjarhvammi 9.
Margrét S. Jónsdóttir Vöröustíg 3. Sigurveig Guðmundsdóttir Hrafnistu v/Skjólvang
Yfirkjörstjórn Hafnarfjarðar,
11. maí 1994. *
Gísli Jónsson, oddviti,
Jón Ólafur Bjarnason, Ingimundur Einarsson.
Þeir sem hafa unnið að
forvömum og uppbygg-
ingu umferðarmála eiga
þakkir skildar fyrir já-
kvæða þróun síðustu 20
árin, segir Brynjólfur
Mogensen, en jákvæð
þróun hefur orðið í þess-
um efnum í Reykjavík.
þarf að lagfæra. í fyrsta lagi þarf
að kanna nánar eðli vélsleðaslysa.
Vélsleðaslys falla oftast nær ekki
undir umferðarslys og eru ekki
skráð sem slík. Slysin eru í eðli
sínu alvarleg og svipar til bifhjóla-
slysa að því leyti að þegar sleðina
flýgur fram af hengju eða keyrir
ofáh í gjótu á miklum hraða kast-
ast ökumaður og farþegi af á mik-
illi ferð, oft með alvarlegum afleið-
ingum. Líkaminn er nánast óvarinn
og ekki byggður fyrir slíka ágjöf.
Fræðslu verður að stórauka fyrir
sleðafólk. Skynsamlegast er að
fræðslan komi úr þeirra eigin sam-
tökum með hvatningu frá yfirvöld-
um. í öðru lagi er nauðsynlegt að
hefja herferð til þess að fækka
reiðhjólaslysum. Hér er ábyrgð
foreldra mikil. Börnin mega ekki
fá hjól of snemma og eins þarf að
sjá til að börnin noti hjálma. Lang-
flestir sem lenda í reiðhjólaslysum
eru á aldrinum 5-14 ára og dreng-
ir eru í miklum meirihluta. Reið-
hjólaslysin geta verið alvarleg og
höfuðmeiðsl eru algeng. Umræðan
um reiðhjólahjálma á fullan rétt á
sér, enda hafa hjálmarnir fækkað
mikið alvarlegum höfuðáverkum.
Nauðsynlegt er að draga úr um-
ferð í íbúðahverfum eins mikið og
hægt er.
Framtíðin
Þegar á heildina er litið hefur
vel til tekist og virðist framtíðin
vera björt. Alþingi hefur nýlega
samþykkt lög um Slysavarnaráð
þar sem kveðið er m.a. á um ná-
kvæma slysaskráningu og mögu-
leika á samkeyrslu skráningar-
gagna. Með þessu móti er fyrr
hægt en ella að fá fram það sem
vel er gert og það sem betur má
fara. Þannig er hægt að beina for-
varnarstarfi fyrr á rétta braut.
Nýsett lög um Slysavarnaráð éiga
eftir að skila miklu í umferðarmál-
um á íslandi.
Niðurlag
Þróunin í umferðarmálum hefur
verið jákvæð. Alvarlegum áverkum
og látnum í umferðinni hefur stór-
lega fækkað þrátt fyrir stóraukna
bifreiðaeign. Þróunin hefur verið
jákvæð á nær öllum sviðum nema
í fjölgun á reiðhjólaslysum meðal
drengja og nú síðast slysaalda
tengd vélsleðaakstri. Með mark-
vissri fræðslu og forvörnum má
gera enn betur. Þeir sem hafa
unnið að forvömum og uppbygg-
ingu umferðarmála eiga þakkir
skildar fyrir jákvæða þróun á síð-
astliðnum 20 árum í umferðarmál-
um íslendinga.
Höfundur eryfirlæknir
bækiunardeildar Borgarspítala —
Landakots.
Hvers eiga sjúk-
lingar að gjalda?
NÚ ÞEGAR verk-
fall meinatækna hefur
staðið í sex vikur,
langar mig til að lýsa
undrun minni á gangi
mála. Viðurkennt var
í upphafí verkfalls að
hinn almenni meina-
tæknir hafði dregist
aftur úr í launum mið-
að við heilbrigðisstétt-
ir með sambærilega
menntun. Hvemig
stendur á því að samn-
inganefnd ríkisins
leysti ekki þetta mál
áður en til verkfalls
kom? Ber ríkisvaldið ekki ábyrgð
á samninganefnd ríkisins? Eða
hver ber ábyrgðina? Ég hef alltaf
staðið í þeirri trú að ríkisvaldið sé
æðsta vald og á því erfitt með að
skilja ef það hefur ekki kynnt sér
málavexti áður en til verkfalls
kom, hvað þá áður en allt þetta
mál var komið í slíkt óefni. Einnig
hef ég velt fyrir mér hverra hags-
muna samninganefnd ríkisins
þjónar.
Verkfallið bitnar mest á þeim
sem síst skyldi, þ.e. sjúklingunum,
sem okkur í heilbrigðisgeiranum
þykir miður. Erfítt er að horfa upp
á bið þjáðra sjúklinga eftir að kom-
ast í aðgerð lengjast.
Svo virðist sem samn-
inganefnd ríkisins og
ríkisvaldinu sé sama
og reyni að koma allri
sök og ábyrgð á
meinatækna sem hafa
lengi reynt að fá leið-
réttingu launa sinna,
en án árangurs. Því
miður hafa þeir því
þurft að grípa til þessa
neyðarúrræðis sem
verkfall er.
Vona ég innilega að
stjórnvöld sjái að sér,
því mér finnst ábyrgð-
Erfítt er að horfa upp á
bið þjáðra sjúklinga,
segir Guðrún Gests-
dóttir, eftir að komast
í aðgerð lengjast.
in vera þeirra. Hefði ekki verið nær
að kynna sér málið í upphafi og
reyna að leysa þessa deilu?
Höfundur er sjúkraþjálfari.
Guðrún
Gestsdóttir
Upplýsingalína Sjálfstæðismanna
012094
Hringdu núna
áffram
Reylcjavílc
0