Morgunblaðið - 19.05.1994, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 19.05.1994, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGNASALA Sudurlandsbraut 10 Ábyrgð - Reynsla - Öryggi Hilmar Valdimarsson. SÍMAR 687828 og 687808 2ja herb. LAUGARNESVEGUR Góð 2ja herb. 68 fm íb. á 2. hæð. Góð- ar svalir. Útsýni yfir Sundin. 3ja herb. ENGIHJALLI Vorum að fá í sölu fallega 3ja herb. 80 fm fb. á t. hæð í lyftuh. Nýtt parket. Flísal. bað. Skipti á 2ja herb. íb. mögul. RAUÐARÁRSTÍGUR Ný 3ja herb. 94 fm endaíb. á 3. hæð í nýl. lyftuh. Bílskýli. Þvhús og geymsla í íb. Gólf parketlögð. Stórar suöur- og vestursv. Innang. úr stigahúsi í bílskýli. 4ra—6 herb. BÓLSTAÐARHLÍÐ GRETTISGATA Vorum að fá í sölu 4ra herb. 109 fm íb. á 1. hæð. Gott verð. DALSEL Vorum að fá í sölu 4ra herb. 106 fm íb. á 1. hæð ásamt bílskýli. Laus. V. 7,5 m. FLÚÐASEL Mjög falleg 4ra herb. íb. á 1. hæð ásamt aukaherb. á jarðh. Þvhús og búr innaf eldh. Parket. Suðursv. Hús og íb. í mjög góðu ástandi. EIÐISTORG Vorum að fá í aölu glæsil. 4ra herb. 100fm íb’ á 2. hæð. Tvenn- ar svalir. FURUGRUND - 4RA OG EINSTAKLÍB. Falleg 4ra herb. 100 fm Ib. á 1. hæð ásamt einstaklíb. i kj. Verð 8,3 millj. SÓLHEIMAR Glæsii. 4ra herb. 101 fm ib. á 4. hæð (lyftuh. Nýl. gler. Parket. Stórar og góðar svelir. HÁTEIGSVEGUR FaHeg 146 fm hwð i fjögre ib. hóai. Bilsk. 3 svefnherb. á sér- gangi. 3 stofur. Tvennar svalír. Mjög góð eign. Einbýli - radhús ÁSHOLT - MOS. Glæsil. einbhús á einni hæð 140 fm. 50 fm bílsk. 4 svefnherb. Vandað3r innr. Góð lóð með heit- um pottl. Gott verð. VIÐARÁS Nýtt 168 fm einb. á einni hæð ásamt 40 fm bílsk. Vandað og vel hannað hús þó ekki alveg fullb. Lóö frág. Stutt í skóla og ekki yfir umferðargötu að fara. UNUFELL Glæsil. endaraðh. 254 fm. Kj. u. öllu húsinu. 4 svefnherb., garð- skáli, bílskúr. Eign í sérfl. Hilmar Valdimarsson, Slgmundur Böðvarsson hdl., Brynjar Fransson. Sjábu hlutina í víbara samhengi! - kjarni málsins! SVEITASTJORIMARKOSNINGAR Húsavík Sigurjón Benediktsson . Kristján Ásgeirsson Stefán Haraldsson Jón Asberg Salomonsson Oddviti sjálfstæðismanna Vill sameina at- vi n n ufy r i rtæki n Húsavik. Morgunblaðið. SIGURJÓN Benediktsson, efsti mað- ur á lista Sjálfstæðisflokksins á Húsavík, telur að sameina eigi rekst- ur þeirra atvinnufyrirtækja sem bær- inn er aðili að og gera með því einn aðila ábyrgan fyrir rekstrinum. Framtíðarverkefnið sé síðan að sélja hlutabréf bæjarins í fyrirtækjum. Atvinnumálin eru efst á baugi í kosn- ingabaráttunni. Fjórir listar eru boðnir fram á Húsavík: A-listi Alþýðuflokks, B-listi Framsóknarflokks, D-listi Sjálfstæð- isflokks og G-listi Alþýðubandalags, Samtaka um kvennalista og óháðra. Eru þetta sömu listar og við síðustu kosningar, þá fengu framsóknarmenn 4 menn og sjálfstæðismenn 2 og mynduðu meirihluta. Alþýðuflokks- menn fengu 1 mann og G-listi 2. Ágreiningur um stefnuna í atvinnumálum Jón Ásberg Salomonsson, efsti maður á A-listanum, segir að það sé aðalbaráttumál flokksins að ná tveimur monnum inn í bæjarstjómina til að geta staðið betur að málum og fellt meirihlutann. Hann segir að atvinnumálin verði ávallt í fyrirrúmi. „Atvinna er auðvitað undirstaða vel- ferðar og grundvöllur fyrir þróun bæjarfélagsins." Hann nefnir einnig nauðsyn þess að koma upp hjúkrun- ardeild fyrir aldraða við sjúkrahúsið og heimavist við Framhaldsskólann. Stefán Haraldsson, efsti maður Framsóknarflokks, segir að flokk- urinn telji brýnast að útrýma at- vinnuleysinu og vinna gegn þeim áhrifum sem sá ógnvaldur hafi nú þegar á einstaklinga og fjölskyldur. „Það verður best gert með því að skapa atvinnufyrirtækjum sem hag- stæðust skilyrði til starfa. Við teljum að styrkja þurfi eiginfjárstöðu Fisk- iðjusamlagsins, Höfða og íshafs og skipa rekstri þeirra þannig að hluta- bréf í þeim verði markaðshæf. Við það skapast grundvöllur fyrir aukið utanaðkomandi fjármagn,“ segir Stefán. Siguijón Benediktsson, efsti maður á D-listanum, segir að það ha'fi forgang að koma útgerð og fiskvinnslu á réttan kjöl og þar með atvinnumáiunum. Hann telur að sameina eigi rekstur þeirra atvinnu- fyrirtækja sem bærinn sé aðili að og stærsti eigandi og með því gera einn aðila ábyrgan fyrir rekstrinum. Framtíðarverkefni sé svo að selja hlutabréf bæjarins í atvinnufyrir- tækjunum. Kristján Ásgeirsson, efsti maður á G-listanum, segir að taka verði á baráttunni í atvinnumálunum og gegn atvinnuleysinu á félagslegum grundvelli. Hann telur að félagsleg eign í öllum stærri atvinnufyrirtækj- um bæjarins, sé forsenda fyrir traustu atvinnulífi og öruggri af- komu Húsvíkinga. Reynslan sýni að einstaklingsframtakið sé þess ekki umkomið að tryggja öllum vinnu. Hella 14 k gull Verðkr. 3.400 l\l- og E-listi sameina kraftana Hellu. Morgunblaðið. AÐSTANDENDUR N-lista og E- lista sem mynda meirihluta í hrepps- nefnd Rangárvallahrepps (Hellu og nágrenni) með tvo fulltrúa hvor, sameina krafta sína í kosningunum nú og bjóða fram S-lista sjáifstæðis- manna og óháðra áhugamanna um sveitarstjórnarmál. K-listi almennra hreppsbúa hefur einn fuiltrúa og býður áfram fram. „Við viljum stuðla að frekari sam- vinnu og sameiningu sveitarfélaga," segir Viðar H. Steinarsson, efsti maður K-listans, „en við ætlum að byija á því að sameina sveitina okk- ar, Rangárvallahrepp, með vegteng- ingu frá Oddavegi að Bakkabæjar- vegi. Önnur meginmál eru atvinnu- málin. Þar viljum við móta stefnu sem byggir á grunni þess sem fyrir Stúdentastjaman hálsmen eða prjónn Jön Spunilsson laugaveg 5 - sími 13383. Óli Már Aronsson Viðar H. Steinarsson er, t.d. frekari úrvinnslu á landbún- aðarafurðum, betri nýtingu á hesta- íþróttasvæðinu á Gaddstaðaflötum, flugvelli, torfæruaksturssvæði o.fl. Auk þess má nefna þá miklu mögu- leika sem náttúra og saga sveitarinn- ar býður upp á. Nægir þar að nefna Heklu, Odda, Keldur og Hvanngil," segir Viðar. íþróttahús á dagskrá S-listinn ætlar að beita sér fyrir mörgum góðum málum, að sögn Ola Más Aronssonar, efsta manns list- ans. „Nefna má íþróttavöll og skóla- hús sem eru í byggingu og þarf að ljúka við. Að því loknu þarf að hefj- ast handa við byggingu íþróttahúss. Vinna þarf að vegabótum í hreppnum og auka götulýsingu í Gunnarsholts- hverfinu. Efla þarf starfsemi Dvalar- heimilisins Lundar í öldrunarmálum. Vinna þarf markvisst að úrbótum í fráveitumálum samkvæmt nýrri reglugerð um mengunarvarnir. En að styrkja atvinnulífið og auka fjöl- breytni þess er það sem efst er í mínum huga fyrir næsta kjörtímabil. Jafnframt þarf traustur fjárhagur sveitarfélagsins og góð þjónusta við íbúana að sitja í fyrirrúmi hjá þeim sem veljast til setu í sveitarstjórn," segir Óli Már. Egilsstaðir Lognmolla einkennir baráttuna Egilsstöðum. Morgunblaöið. LOGNMO-LLA lýsir best kosninga- baráttunni á Egilsstöðum fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Lítið er um opinber ágreiningsmál, en eins og annars staðar eru at- vinnumálin ofarlega á baugi. Fjórir listar eru í framboði að þessu sinni. Það eru B listi framsóknarmanna, D listi sjálfstæðismanna, H listi óháðra og G listi Alþýðubandalags. Það eru sömu flokkar og síðast þegar kosið var. Núverandi meiri- hluta mynda Framsókn með 3 menn og óháðir með 1 mann, en 7 manns eru í bæjarstjórn. Atvinnumálin á oddinum Broddi Bjarnason efsti maður á lista Framsóknar telur brýnast að halda áfram því uppbyggingarstarfi sem staðið hefur undanfarin ár. Mikið hefur verið byggt á Egilsstöð- um, bæði íbúðarhúsnæði og at- vinnuhúsnæði, og er fólksfjölgun á kjörtímabilinu 13%. Broddi segir mikið hafa verið byggt og má nefna þar félagsmiðstöð, byijað var á sundlaug sem tekin verður í notkun næsta vor, sorpstöð sem vakið hef- ur athygli víða um land og félags- legum íbúðum íjölgaði um rúm 200%, úr níu í þijátíu. Hann segir fjárhagsstöðu bæjarins mjög góða og á ekki von á öðru en kjósendur meti verk bæjarstjórnar að verðleik- um. I nýútkomnu blaði sjálfstæðis- manna gefur að líta m.a. hugmynd- Einar Rafn Broddi Haraldsson Bjarnason ir til aukinnar atvinnuuppbygging- ar, breytingar á skilvirkni í stjórnun bæjarfélagsins, bætingu skólakerf- isins, jafnt leikskóla, grunnskóla sem menntaskólans, og aukna upp- byggingu á íþróttamannvirkjum. Einar Rafn Haraldsson oddviti sjálf- stæðismanna segir að skipta þurfi um áherslur í stjórnun bæjarins. Aðaláhersla sjálfstæðismanna verð- ur á atvinnumálin og aðbúnað íbú- ana. Einar segir það lýsandi dæmi um áhugaleysi bæjarstjórnar á málefnum Egilsstaða, að ekki hefur ennþá komið neitt fram varðandi stefnu þeirra og áherslur fyrir kom- andi kosningar. Hann segist hafa fundið fyrir góðum meðbyr undan- farið og ekki sé ástæða til annars en bjartsýni. Alþýðubandalagið setur einnig atvinnumálin á oddinn undir slag- orðinu, Sókn til nýrrar aldar. í þeim tillögum er að finna Frugmyndir að þátttöku bæjarins í atvinnumálum með framlagningu hlutafjár er komi úr sérstökum nýsköpunarsjóði. í málefnaskrá H-lista óháðra er að fínna tillögur er lúta að flestum sviðum sveitarstjórna. Þar segir meðal annars að bæjarstjórn eigi að vinna að því að fá opinberar stofnanir fluttar til Egilsstaða og unnið skuli að sameiningu sveitarfé- laga á Héraði. Suðurnesjabær Sjálfstæðisflokkur nálægt meirihluta Keflavík. Morgunblaðið. ATVINNUMÁL eru sett á oddinn hjá flokkunum ijórum, Sjálfstæðis- flokki, Alþýðuflokki, Framsóknar- flokki og Alþýðubandatagi, sem bjóða fram í bæjarstjórnarkosning- unum í Suðurnesjabæ, nýju samein- uðu sveitarfélagi í Keflavík, Njarð- vík og Höfnum. Á kjörskrá verða tæplega 7.000 manns, 5.240 í Keflavík, um 1.600 í Njarðvík, um 70 í Höfnum og verður kosið um 11 bæjarfulltrúa. Nýja sveitarfélag- ið verður fimmta stærsta sveitarfé- lag landsins með rúmlega 10.000 íbúa og spannar yfir ríflega 149 ferkílómetra lands. í Keflavík hefur Sjálfstæðis- flokkur myndað meirhluta ásamt Framsóknarflokki. í síðustu kosn- ingum fékk Sjálfstæðisflokkur fjóra bæjarfulltrúa, Framsókn einn og Alþýðuflokkur þtjá af níu. í Njarð- vík eru sjálfstæðismenn einnig í meirihlutasamstarfi, þar fékk flokk- urinn þrjá fulltrúa af sjö og myndar meirihluta ásamt fulltrúa óháðra. Þar fékk Alþýðuflokkur tvo fulltrúa og Framsókn einn. Skoðanakannanir hafa gefið vís- bendingu um að sjálfstæðismenn séu mjög nálægt því að fá hreinan meirihluta í nýja sveitarfélaginu og spá kannanir þeim ýmist fimm eða sex bæjarfulltrúum. Alþýðuflokkur fengi þijá, Framsóknarflokkur tvo og Alþýðubandalag ýmist einn eða engan. Fyrstir upp úr öldudalnum „Það er vitaskuld draumurinn að fá hreinan meirihluta," sagði Ellert Eiríksson bæjarstjóri í Keflavík og oddviti Sjálfstæðisflokksins. „Við tókum við erfiðu búi og höfum tek- ið til hendinni við erfiðar aðstæður. Það hefur verið niðursveifla í at- vinnulífínu á landinu, við urðum fyrstir til að fara í þá niðursveiflu Anna Margrét Guðmundsd. Ellert Elríksson en við verðum líka fyrstir upp úr henni.“ Ellert sagði að atvinnumálin yrðu sett á oddinn undir kjörorðinu: Atvinna til frambúðar. Stefnt yrði að koma upp markaðs- og atvinnu- skrifstofu undir stjórn markaðs- og atvinnumálanefndar til að markaðs- setja sveitarfélagið. Sjálfstæðis- flokkurinn hefði auk þess sett fram stefnuskrá með 68 punktum í 11 málaflokkum þar sem tekið væri á flestum málum. „Forsendur blómlegs atvinnulífs í nýju sameinuðu sveitarfélagi er gott og öflugt atvinnulíf og því vilj- um við koma á fót þjónustumiðstöð atvinnulífs sem veita muni atvinnu- lífinu og fólki í atvinnuleit þjón- ustu,“ sagði Anna Margrét Guð- mundsdóttir oddviti Alþýðuflokks- ins. Anna Margrét sagði að auk þess vildi flokkurinn stofna sjóð til uppbyggingar atvinnulífsins sem hefði það markmið að halda utan um, veita ábyrgðir og styrki og til að sjá um hlutafjár- og kvótakaup. Anna Margrét sagði að skoðana- kannanir sem gerðar hefðu verið væru varla marktækar þar sem næstum hélmingur hefði ekki tekið afstöðu. Anna Margrét sagði að Alþýðuflokkurinn leggði mikla áherslu á að komast í meirihluta- samstarf til að hafa áhrif og móta nýtt sveitarfélag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.