Morgunblaðið - 19.05.1994, Blaðsíða 38
38; FIMMTUDAGL'R 19, MAÍ 1994_______________________
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
t
SIGBJÖRN ÞÓRÐARSON
frá Einarsstöðum,
Stöðvarfirði,
Háaleitisbraut 107,
lést að morgni 18. maí.
Aðstandendur.
t
Ástkær eiginmaður minn,
LÁRUS M. K. GUÐMUNDSSON,
Mávahlfð 6,
Reykjavfk,
andaðist 17. maí.
Jónína Nieljohníusdóttir.
t
Maðurinn minn,
GRÍMUR JÓN GESTSSON
frá Grfmsstöðum, Kjós,
Vesturbergi 78,
andaðist 17. maí.
Útförin fer fram frá Reynivallakirkju
laugardaginn 21. maí kl. 14.00.
Kristfn Steinadóttir.
t
Elskuleg sambýliskona mín, móðir okkar, amma og langamma,
INGIBJÖRG ODDSDÓTTIR,
lést þann 8. maí sl. á heimili sínu Barónsstíg 33. Útförin hefur
farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Þorsteinn Hermannsson,
Kristín Eirfksdóttir,
Helgi Eirfksson, Guðleif Kristjánsdóttir,
Sigurður Eirfksson,
Elfn Eirfksdóttir,
ömmubörn og langömmubörn.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og systir,
MARGRÉT GUÐFINNSDÓTTIR,
Vitastfg 13,
Bolungarvfk,
lést á heimill sínu 10. maí.
Jarðarförinferframfrá Hólskirkju, laugardaginn 21. maíkl. 14.00.
Rúnar Þórðarson, börn og systkini.
t
Stjúpmóðir okkar,
SIGRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR,
Dalbraut 27,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Áskirkju, föstu-
daginn 20. maí, kl. 13.30.
Ingibjörg Ólafsdóttir,
Bára Ólafsdóttir.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
sonur, bróðir og tengdasonur,
BJÖRN MATTHlASSON,
Grasarima 24,
Reykjavfk,
veröur jarðsunginn frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 20. maí kl. 16.00.
Ragnheiður Gísladóttir,
börn, foreldrar, systur og tengdaforeldrar.
ALFREÐ D. JÓNSSON
+ Alfreð D. Jóns-
son ljósmynd-
ari fæddist að
Fellseli í Suður-
Þingeyjarsýslu 25.
júlí 1906. Hann lést
á heimili sínu 11.
maí 1994. Foreldr-
ar hans voru hjón-
in Herdís Krislj-
ánsdóttir, f. 11.
apríl 1886 í Fosss-
eli í S-Þingeyj-
arsýslu, og Jón
Jónsson, f. 14.
febrúar 1883 í
Hjallanesi í Land-
sveit í Rangárvallasýslu. Alfreð
var elstur fimm barna þeirra
hjóna. Einn sonur lést í barn-
æsku, en upp komust, auk Al-
freðs: Bára, f. 1908 sem nú
dvelst á Dvalarheimilinu Lundi
á Hellu, Krisfján, kaupmaður í
Reykjavík, f. 1911, d. 1979, og
Jón, verkstjóri í Reykjavík, f.
1914, d. 1993. Þau Herdís og
Jón slitu samvistum. Herdís
giftist síðar Bjargmundi
Sveinssyni, f. 30. ágúst 1883,
rafvirkja frá Efriey í Meðal-
landi. Þau eignuðust þijú börn,
tvíburana Karítas og Hafstein,
f. 1924, og Krisfjönu, f. 1925.
Alfreðlærði ljósmyndun og rak
eigin ljósmyndastofu til 1952,
en starfaði síðan sem verkstjóri
í sælgætisgerð. Alfreð kvæntist
4. febrúar 1939 eftirlifandi eig-
inkonu sinni, Elínu Guðjóns-
dóttur, f. 19. des. 1914, kjóla-
meistara frá Reykjavík, og
eignuðust þau fjög-
ur börn. Þau eru:
Hörður læknir, f.
1943, Hilmar, f.
1946, en hann lést
1950, Herdís hjúkr-
unarfræðingur, f.
1954, og Hilmar Al-
freð, löggiltur end-
urskoðandi, f. 1959.
Hörður er kvæntur
Jónu Margréti
Krisfjánsdóttur
hjúkrunarfræðingi
og eiga þau þijú
börn, Frey, Alfreð
og Kristínu Sigriði.
Herdís er gift Jóhanni G. Ás-
grímssyni viðskiptafræðingi og
eiga þau tvo syni. Tryggva Þór
og Tómas Þór. Útför Alfreðs
fer fram frá Fossvogskirkju í
dag.
TENGDAFAÐIR minn lifði langa
ævi og naut þeirra forréttinda að
búa við gott líkamlegt og andlegt
atgervi til hinstu stundar. Yfir 25
ára kynni mín af honum skilja eftir
margar kærar minningar. Hann var
um margt sérstakur maður og
minnisstæður þeim sem honum
kynntust.
Alfreð var fæddur Þingeyingur
og stoltur af uppruna sínum, en
móðurætt hans er öll þingeysk.
Hann fluttist þriggja ára gamall til
Reykjavíkur. Þó að þessi landshluti
væri honum afar hjartfólginn fór
hann þangað aðeins einu sinni á
fullorðinsárum. Á þeim árum þegar
Alfreð var að alast upp var lífsbar-
áttan hörð, engar tryggingar,
bamabætur eða styrkir handa fá-
tæku fólki eða einstæðum mæðrum.
Alfreð var aðeins níu ára gamall
sendur austur í sveitir og þurfti að
alast upp við misjafnt atlæti, uns
hann kom aftur til móður sinnar
sautján ára gamall.
Sem ungur maður stundaði hann
ýmis störf til sjós og lands, en lærði
síðan ljósmyndun hjá Óskari Gísla-
syni og opnaði eigin ljósmyndastofu
í kringum 1930 á Laugavegi 23 sem
hann rak í um tuttugu ár. Síðar
vann hann sem verkstjóri í Lakkrís-
gerðinni Krumma, sem þá var að
hluta í eigu bróður hans Kristjáns
sem kenndur var við Kiddabúð.
Alfreð var greindur maður og
fróður. Skólagangan varð ekki löng,
en hann var vel lesinn og hafsjór
fróðleiks um menn og málefni.
Minni hans var einstakt og hélst
það að mestu óskert fram í andlát-
ið. Hann var mikill listunnandi, sótti
tónleika og hlustaði löngum á sí-
gilda tónlist. Hann eignaðist tals-
vert safn bóka og dijúgan fjölda
málverka sem hann naut að hafa í
kringum sig.
Hann lifði tímana tvenna og tal-
aði oft um þær miklu og öru breyt-
ingar sem orðið hafa á íslandi á
lífsskeiði hans. Hann lifði lengstan
aldur sinn i Reykjavík og naut þess
að ganga um götur hennar og fylgj-
ast með hvernig þessi lágreisti
kaupstaður breyttist í fagra borg.
Alfreð var orðheppinn maður og
hafði ríka kímnigáfu, en tilfinninga-
næmur og auðsærður ef honum
fannst gert á hlut sinn.
Áhugamál Alfreðs voru mörg,
hann fór mikið í gönguferðir og
einn af föstum þáttum í lífi hans
hin síðari ár og jafnframt sá
ánægjulegasti voru morgunferðir
hans í Sundlaugar Reykjavíkur.
Kynni hans af öðrum laugargestum
voru honum til mikillar ánægju og
eignaðist hann þar marga góða
kunningja sem sýndu honum mikla
ræktarsemi, sem hann var afar
þakklátur fyrir.
Ég vil þakka tengdaföður mínum
fyrir góðar stundir. Hann var
óþreytandi að rekja fyrir mér ættir
fólks og minnast löngu liðinna daga.
Sérstaklega voru ánægjulegar
heimsóknir þeirra hjónanna til okk-
ar árin sem við bjuggum í Svíþjóð
og ómetanlegt fyrir bömin okicar
að fá að kynnast og tengjast afa
sínum og ömmu þá.
Haust. Og garðflatir
grænar við sjóinn fram.
En reyniviðarhríslur
rauðar, í gulu ljósi.
Samtímis deyja
ekki sumarsins grös og lauf.
Allt deyr
að eigin hætti.
Allt deyr
en óviss er dauðans tími.
Dauðinn er regla
sem reglur ná ekki til.
(Hannes Pétursson.)
Blessuð sé minning Alfreðs D.
Jónssonar.
Jóna Margrét
Kristjánsdóttir.
Erfldrykkjur
Glæsileg kalfi-
hlaðlK)rð fallegir
síilir og mjög
gcið þjómistíL
Upplýsingar
í síma 2 23 22
FLUGLEIDIR
HÓTEL LOFTLEIÐIR
t
Maðurinn minn,
HARRÝ S. UCKERMAN,
Brekkustíg 29b,
Njar&vfk,
verður jarðsettur frá Innri-Njarðvíkurkirkju föstudaginn 20. maí
kl. 15.00.
Sveinbjörg E. Rasmusdóttir.
t
Minningarathöfn um elskulegan son okkar og bróður,
SIGURÐ HELGA SVEINSSON,
Foldahrauni 40D,
Vestmannaeyjum,
sem lést af slysförum þann 14. apríl sl„ verður haldin í Landa-
kirkju, Vestmannaeyjum laugardaginn 21. maí kl. 14.00.
Fyrir hönd vandamanna,
Sveinn Einarsson,
Þorleif Lúthersdóttir,
Elín Dórothea Sveinsdóttir,
Svandfs Ósk Sveinsdóttir.
t
Móðir okkar og tengdamóðir,
GYÐRÍÐUR ÞÁLSDÓTTIR,
Seglbúðum,
andaðist á Hrafnistu 15. maí.
Minningarathöfn verður í Dómkirkjunni föstudaginn 20. maí
kl. 15.00.
Útför hennar verður gerð frá Prestbakkakirkju á S(ðu laugardag-
inn 21. maí kl. 14.00.
Margrét Helgadóttir, Erlendur Einarsson,
Ásdfs Helgadóttir, Rodger Hodgson,
Jón Helgason, Guðrún Þorkelsdóttir.
t
Útför elskulegrar móður okkar og tengdamóður,
KRISTÍNAR A. JÓNSDÓ1TUR
frá Bfldudal,
fer fram frá Bíldudalskirkju, laugardaginn 21. maí kl. 14.00.
Börn og tengdabörn hinnar látnu.