Morgunblaðið - 19.05.1994, Blaðsíða 36
36 FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
MIIMNINGAR
GUNNAR
STEFÁNSSON
+ Gunnar Stef-
ánsson bifreiða-
smíðameistari og
fyrrverandi verk-
stjóri fæddist 26.
október 1899. Hann
lést 7. apríl 1994.
Hann kvæntist 17.
mars 1928 Láru
Jónsdóttur, en hún
lést 1992. Börn
þeirra eru Gunnar
Halldór, f. 1929,
Anna Gerður, f.
1931, og Margrét
Salome, f. 1944.
Bálför Gunnars
hefur farið fram í kyrrþey að
ósk hans.
GUNNAR var fæddur í Vorhúsum
í vesturbæ Reykjavíkur. Foreldar
hans voru Stefán Daníelsson skip-
stjóri frá Oddastöðum í Hrútafirði
og Anna Jakobína Gunnarsdóttir
frá Hafnarfírði, húsmóðir. Gunnar
var aðeins sjö ára er hann missti
föður sinn, en hann drukknaði er
Kútter Georg fórst í ofsaveðri á
Faxaflóa vorið 1907.
Þá stóð móðir hans upp með fjög-
ur böm og var Gunnar elstur þeirra
o£ fer hann þá í sveit að Breið-
holti, sem stóð þar sem Alaska
gróðrarstöðin er núna, tii hjónanna
Guðna Símonarsonar og Sólveigar
Sigurðardóttur og var hjá þeim
næstu tvö árin fram að skólagöngu
og síðan á sumrin fram að feian-
ingu.
Móðir hans hélt heimili fyrir sig
og börnin að Laugavegi 60, og vann
m.a. við að strauja þvott fyrir fólk
til að hafa ofan í þau og á, því
marga munna var að seðja.
Nábúi þeirra við Laugaveginn,
Jóhannes_ Sigurðsson sem var setj-
ari hjá ísafold útvegaði Gunnari
vinnu þar sem sendill árið 1912 en
þá var Ólafur Bjömsson þar við
ritstjórn. Það var svo 2. nóvember
1913 sem fyrsta tölublað Morgun-
blaðsins kom út og voru blöðin bein-
línis rifín úr höndum hans eins og
hann sagði sjálfur frá síðar.
Gunnar hafði 15 kr.
á mánuði fyrir sendla-
starfíð en síðar tók
hann einnig að sér
kyndarastarf í húsinu
þegar kyndarinn for-
fallaðist, og þurfti þá
að vakna snemma tii
að kynda upp, fyrir
þetta fékk hann aðrar
15 kr. og ekki veitti
áf því að hann vildi
leggja sitt af mörkum
til heimilisins.
Árið 1916 fór Gunn-
ar að læra mublusmíði
hjá Gamla kompaníinu
og Iauk þaðan prófí 1920, en meist-
arabréf í mublusmíði leysti hann
út árið 1926. Gunnar vann hjá
Gamla kompaníinu til ársins 1924
er hann hóf sjálfstæðan rekstur að
Laugavegi 60 fram til 1928, en þá
söðlar hann um og fer að vinna hjá
Vagnasmiðju Kristjáns Jónssonar
að Frakkastíg 12, við vagnasmíði
og fleira sem framleitt var þar.
Hann er þar til ársins 1932 er hann
breytir um aftur og fer í mublu-
smíði til Hjálmars Þorsteinssonar
að Klapparstíg 28, og er hann þar
til 1934, er hann ræður sig til Eg-
ils Vilhjálmssonar hf., en þar er
komið að ævistarfínu því hann verð-
ur þar verkstjóri yfirbygginga og
síðar réttingaverkstæðis allt þar til
hann lætur af störfum árið 1978
eftir langt og farsælt starf hjá fyrir-
tækinu. Gunnar var vinsæll í starfí,
vel liðinn og hjálpsamur og vildi
öllum gott gera, smiður var hann
frábær og vandvirkur svo af bar
eins og sést á hinum fjölmörgu hlut-
um sem hann smíðaði fyrir heimili
sitt, stólum, skápum, innréttingum
og fleiru.
Gunnar steig mikið gæfuspor er
hann og Lára Jónsdóttir gengu i
hjónaband, þau voru fallegt par og
ást og virðing hvort fyrir öðru fylgdi
þeim fram á síðasta dag.
Lára hafði verið Iengi við rúmið
heima þegar hún andaðist og ann-
aðist Gunnar hana af stakri um-
hyggju, en síðustu tvö ár hennar
dvaldi hún í Hátúni og kom Gunnar
t
Ástkær móðir okkar og tengdamóðir, amma og langamma,
SÓLVEIG EYSTEINSDÓTTIR
frá Skammbeinsstöðum,
dvalarheimilinu Lundi,
Hellu,
verður jarðsungin frá Marteinstungukirkju, Holtum, laugardaginn
21. maí kl. 14.00.
Ottó Eyfjörð Ólason, Fjóla Guðlaugsdóttir,
Elías Eyberg Ólason, Sigrún Pálsdóttir,
Auður Karlsdóttir, Sveinn Andrésson,
Pétur Viðar Karlsson, Brynhildur Tómasdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
til hennar á hveijum degi þar til
yfir lauk.
Heimili þeirra stóð að Reykjahlíð
14, fallegt heimili er bar húsráðend-
um fagurt vitni.
Gunnar vann að stofnun Félags
bifreiðasmiða árið 1938 og sat í
stjórn þess fyrstu árin sem vararit-
ari og einnig í nefndum, m.a. í fána-
nefnd sem sá um hönnun og kaup
á fána félagsins.
Gunnar var sæmdur gullmerki
Félags bifreiðasmiða á 40 ára af-
mæli þess 1978 ásamt öðrum stofn-
endum þess sem þá voru á lífi, en
10 voru þeir af 22 sem komið höfðu
saman 18. mars 1938 í Café Höll
við Austurstræti til stofnunar fé-
lagsins.
Eg kynntist Gunnari er ég kom
til starfa hjá Agli Vilhjálmssyni hf.
í ágúst 1955. Verkstæðið var þá
tvískipt, Gunnar stjórnaði_ Rauð-
arárstígsmegin en Tryggvi Árnason
portmegin, en sameiginleg aðstaða
var fyrir alla starfsmenn. Félagslíf
var mikið og gott hjá fyrirtækinu,
styrktar- og almenningssjóður var
til staðar sem sá um hina menning-
arlegu hlið mála, svo sem leikhús-
ferðir, tafl og spilakvöld og fl.
Öflugt starfsmannafélag stóð
fyrir ferðalögum og dansleikjum og
ýmsum öðrum uppákomum, mikið
var sungið er menn komu saman
og var Gunnar söngmaður góður
og gaman var að heyra þá taka
lagið saman, Gunnar, Jónda í gler-
inu, Sigga Hjall. og Braga í sumar-
húsinu. Þetta voru hressir karlar
er höfðu gaman að gleðjast í góðra
vina hópi.
Félag bifreiðasmiða tók upp þann
hátt fyrir mörgum árum að bjóða
eldri félögum til eins dags ferðar
seinni part sumars um nágranna-
sveitir og er alveg sérstaklega gam-
an að ferðast með þessum eldri
mönnum, þeir eru svo hressir og
kátir og hafa svo gaman af því að
hittast og ræða saman. Margir
þeirra hafa ekkert samband hver
við annan þess á milli eins og geng-
ur og þama em gömlu dagamir
rifjaðir upp og þess notið sem fyrir
augun ber.
Gunnar fór með okkur sl. sumar
austur um sveitir og var þá elstur
í hópnum, en hress í anda eins og
hann ávallt var. Um kvöldið er við
tveir vinir hans keyrðum hann heim
var rætt um að að ári skyldum við
sækja hann í næstu ferð, en sú
ferð verður nú farin án Gunnars,
því hann er nú farinn í ferðina löngu
á vit ástvina sinna.
Gömlu félagarnir frá E.V. hf.
minnast Gunnars með hlýju í hjarta
og senda eftirlifandi ástvinum hug-
heilar samúðarkveðjur.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þokk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Ásvaldur Andrésson.
SPURT OG SVARAÐ
LESENDAÞJÓNUSTA MORGUNBLAÐSINS
Árni Sigfússon borgarstjóri svarar
spurningum lesenda
Árni Sigfússon
borgarstóri í
Reykjavík og efsti
maður á framboðs-
lista sjálfstæðis-
fólks í borgar-
stjórnarkosningum,
sem fram fara 28.
maí næstkomandi,
svarar spumingum
í Morgunblaðinu
um borgarmál í til-
efni kosninganna.
Lesendur Morgun-
blaðsins geta hringt
til ritstjórnar blaðs-
insísíma 691100 á
milli kl. 11 og 12 árdegis, frá
mánudegi til föstudags, og lagt
Heimavinnandi
mæður
Þorbjörg Pálsdóttir, Sjafnar-
götu 14, Reykjavík, spyr:
1. Hvað hefur Árni Sigfússon
hugsað sér að gera fyrir einn
af gleymdu hópum þjóðfélags-
ins, þ.e. heimavinnandi mæður?
2. Af hverju hafa heimavinn-
andi mæður verið útundan svo
lengi?
3. Er það stefna Árna og
flokks hans að útrýma heima-
vinnandi mæðrum?
4. Hvernig væri að borga
heimavinnandi konum sem sam-
svarar atvinnuleysisbótum?
Væri það ekki lausn margra
vanda?
Svar:
Varðandi 1. lið fyrirspurnar-
innar vísa ég til svars míns við
fýrirspurn sama efnis frá öðrum
fyrirspyijanda, sem einnig býr
á Sjafnargötu 14.
Liðir 2 og 3 í þessari fyrir-
spurn eru þannig settir fram að
varla er ætlast til svars en um
4. liðinn er það að segja, að ég
get ekki fallist á að húsmæður
sem vinna á heimili sínu séu
lagðar að jöfnu við þá sem at-
vinnulausir eru. Ég ítreka hins
vegar að það er hluti af þeirri
fjölskyldustefnu sem ég vil beita
mér fyrir að konum sem vilja
annast böm sín heima verði
auðveldað að gera það og minni
á það nýmæli sem sjálfstæðis-
menn í borgarstjóm Reykjavík-
spumingar fyrir
borgarsljóra sem
blaðið kemur á
framfæri við hann.
Svörin birtast síðan
í þættinum Spurt og
svarað um borgar-
mál. Einnig má
senda spumingar i
bréfi til blaðsins.
Utan á bréf skal
rita: Spurt og svar-
að um borgarmál,
ritstjóm Morgun-
blaðsins, pósthólf
3040,103 Reykja-
vík. Nauðsynlegt er
að nafn og heimilisfang spyrj-
anda komi fram.
ur hafa innleitt að greiða sömu
fjárhæð með börnum heima og
borgin greiðir með bömum í
hálfsdagsvist á leikskóla.
Utivistarsvæði
Agnar Kárason, Baugatanga
3, 101 Reykjavík, spyr:
Hvað líður öllum útivistar-
svæðum í þessu hverfí og öllum
öðrum framkvæmdum?Það hef-
ur ekkert verið gert hér í sex
ár. Borgin á þarna auða lóð sem
markast a f Skildinganesi,
Bauganesi og Baugatanga, sem
átti að gera að útivistarsvæði,
en ekkert bólar á framkvæmd-
um.
Svar:
Utivistarsvæði (fyrir utan
leiksvæði) í þessu hverfi er
svæðið milli byggðarinnar og
sjávar. Þar var á síðasta ári
lagður stígur meðfram allri
byggðinni og er svæðið nú tengt
Ægisíðusvæðinu með malbikuð-
um stíg. Á þessu ári verður
svæðið tengt Nauthólsvíkur-
svæðinu með stígagerð út fyrir
flugbrautarenda og bráða-
birgðastíg meðfram Skeljungs-
svæðinu. Útivistarsvæðið sjálft
er enn að mestu í „náttúrulegu"
ástandi. Hugmyndir frá íbúum
um frágang þess verða vel þegn-
ar. Um lóðina við Baugatanga
er það að segja að ekki hefur
verið tekin ákvörðun um að gera
hana að útivistarsvæði og er hún
enn merkt sem byggingarlóð.
pr'W'VW'T
► Reyflcjavík
«0
Kjartan Ólafsson
viðskiptafræðingur
Katrín Gunnarsdóttir
varaborgarfulltrúi og húsmóðir
Gunnar Guðmundsson
rafverktaki
Ásta Möller
hjúkrunarfræðingur
iSStSUSSSSSSSiiii^
Sigurður St. Arnalds
verkfræðingur
iwiI’nir^T
TTTTTTTTTTT*
X-D áfram með Ama