Morgunblaðið - 09.08.1994, Síða 1

Morgunblaðið - 09.08.1994, Síða 1
80 SIÐUR B/C 177. tbl. 82. árg. ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1994 Prentsmiðja Morgunblaðsins Hættaað * Yitzhak Rabin forsætisráðherra Israels við opnun landamæra til Jórdaníu auglýsa stjórnina Rómaborg. Reuter. STJÓRN Silvios Berlusconis forsætisráðherra Italíu beið álits- hnekki í gær er ríkissjónvarpið ákvað að hætta sýningum auglýsinga um ágæti stjómarinnar. Berlusconi hugðist reyna að lappa uppá ímynd stjórnarinnar með aug- lýsingum í sjónvarpi. Landslög heim- ila henni að nota ríkisíjölmiðlana til að koma á framfæri upplýsingum sem hafa þjóðfélagslega þýðingu. Stjóm- arandstæðingar sögðu þær blygðun- arlausan áróður og greip umboðsmað- ur íjölmiðla þá í taumana. Ekki bætti úr skák er Umberto Bossi leiðtogi Norðursambandsins, sem á aðild að stjórn Berlusconis, sagði að stjómin ætti fremur að hugsa um að efna kosningaloforð en reyna afla sér vinsælda. tt •¥ a • • Reuter Heilsast vimr HUSSEIN Jórdaníukonungur tekur á móti Yitzhak Rabin for- sætisráðherra ísraels við konungshöllina í Aqaba í gær. Reuter Getumekki beðið degin- um lengur Israelar og Sýrlendingar sagðir eiga langt í land með friðarsamninga Aqaba, Damaskus, Jerúsalem. Reuter. „VINIR okkar í hashemíska konungdæminu Jórdaníu. Eftir þessu getum við ekki beðið deginum lengur,“ sagði Yitzhak Rabin forsæt- isráðherra ísraels í gær við athöfn þar sem þeir Hassan krónprins Jórdaníu opnuðu landamæri ísraels og Jórdaníu eftir 46 ára styrj- aldarástand. Eftir borðaklippingu hélt Rabin fyrstur ísraelskra forsætisráðherra inn í Jórdaníu í opinbera heimsókn. Sýrlenska sjónvarpið sagði í gær hlutlægt frá og sýndi myndir úr opinberri heimsókn Rabins til Jórd- aníu og viðræðum hans við Hussein en felldi enga dóma um hana. Sömuleiðis voru sýndar myndir frá athöfninni er Rabin og Hassan krónprins opnuðu landamærin. Einnig frá skemmtisiglingu sem Hussein bauð Rabin og Warren Cristopher utanríkisráðherra Bandaríkjanna til á Rauðahafi en konungssnekkjan sigldi þá meðal annars inn í ísraelsku lögsöguna í fylgd ísraelskra skipa. Peres þakkar Sýrlendingum Christopher sagði í gær að ísra- elar og Sýrlendingar ættu langt í land með friðarsamninga. Hann sagði að ný skref í þá átt hefðu verið stigin í viðræðum sínum við Assad Sýrlandsforseta og ísraelska ráðamenn um helgina. Ræddi hann við Assad í fimm stundir á sunnu- dag. Eftir það sagði Shimon Peres utanríkisráðherra Isreals að herferð ísraelska hersins gegn Hizbollah- skæruliðum í Líbanon væri lokið. Þakkaði Peres Sýrlendingum fyrir að hafa tekið í taumana gagnvart skæruliðunum. ■ Landamæri Jórdaníu/14 „Blóðpen- ingum“ hafnað New York. The Daily Telegraph. MOAMMAR Gaddafi, leiðtogi Líbýu, hefur boðist til að greiða tvær millj- ónir punda, jafnvirði 210 milljóna króna, til hverrar fjölskyldu í Banda- ríkjunum sem missti ættingja í sprengjutilræðinu yfir Lockerbie í Skotlandi árið 1988. Yfiivöld í Líbýu neita enn að bera ábyrgð á tilræðinu, sem kostaði 270 manns lífið. Gaddafi er hins vegar sagður vilja greiða fjölskyldunum bætur verði það til þess að viðskipta- banninu á Líbýu verði aflétt. Aphrodite Tsairis, formaður fé- lags ættingja fórnarlambanna, sagði að Gaddafi kæmist ekki upp með að bjóða „blóðpeninga". „Hann von- ast til þess að geta keypt fjölskyld- urnar af sér til að falla frá málshöfð- un, sem kemur engan veginn til greina. Menn geta ekki keypt rétt- lætið.“ Sex ár frá blóðbaðinu í Burma NÁMSMENN frá Burma efndu í gær til útifundar fyrir framan sendiráð landsins í Bankok, Thai- landi, og í Dhaka í Bangladcsh í tilefni af því, að sex ár voru í gær liðin frá því að herforingjastjóm- in sigaði hernum á lýðræðissinna í höfuðborginni Kangoon og nokkmm öðrum borgum með þeim afleiðingum að 3.000 vopn- lausir umbótasinnar lágu í valn- um. Báru námsmennirnir m.a. borða með páfuglsmerki, tákn óhlýðni í garð nýlenduvalds og óvinsælla yfirboðara svo og myndir af Aung San Suu Kyi, en hún var leiðtogi uppreisnarmann- anna, og hefur verið í stofufang- elsi frá því uppreisnin var gerð 1988. Hún hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 1991. Alnæmisveiran misskilin? London. The Daily Telegraph. FRAM hafa komið hugmyndir um, að vísinda- menn hafi í grundvallaratriðum misskilið al- næmisveiruna, sem hefur sýkt um 17 milljón- ir manna um allan heim, og hundruðum millj- arða króna, sem varið hefur verið til rann- sókna á sérhæfðum lyfjum undanfarin tíu ár, hafi verið kastað á glæ, því ódýrari lyf, sem þegar eru fáanleg, gætu haldið sjúkdómnum í skefjum. Þar til nú hefur meðferð verið mið- uð að því að ýta undir starfsemi ónæmiskerfis- ins. En prófessor Jean-Marie Andrieu og sam- starfsmenn hans við Parísarháskóla hafa fund- ið vísbendingar um að heldur ætti að miða lyfjagjöf við að hefta starfsemi ónæmiskerfis- ins. Niðurstöður Andrieu verða kynntar á alþjóð- legri ráðstefnu um alnæmi sem nú stendur yfir í Yokohama í Japan. Hið hefðbundna viðhorf er að HlV-veiran einfaldlega ráðist inn í frum- ur ónæmiskerfisins, eyði þeim og geri fórnar- lambið því varnarlaust fyrir öðrum sjúkdómum, sem undir venjulegum kringumstæðum væri hægt að verjast. En undanfarin 10 ár hefur lítill hópur vísinda- manna andmælt þessu viðhorfi, og haldið því fram, að hegðun alnæmisveirunnar sé mun þróaðri, því hún eyðileggi ónæmiskerfið með því að fá frumur til þess að eyða sér sjálfar. Tilraun lofar góðu Þessari kenningu hefur hingað til verið hafn- að umyrðalaust af flestum vísindamönnum. En nú hafa Andrieu og samstarfsmenn hans feng- ið niðurstöður úr tilraunum sem renna stoðum undir kenninguna. 27 sjálfboðaliðum, sem ganga með alnæmisveiruna, var gefið lyf sem heftir starf ónæmiskerfisins. Áður en sjálfboða- liðarnir tóku lyfið fór ónæmiskerfi þeirra, sem fylgst er með í ljósi fjölda svonefndra CD4- fruma, hnignandi. Þegar lyfið var tekið varð fjöldi CD4-frumanna stöðugur, og lyfið virtist því koma í veg fyrir starf veirunnar. Mikilvæg- ast þykir, að enginn sjálfboðaliðanna fékk al- næmi á meðan lyfið var tekið. Þegar hætt var að gefa það, bytjaði CD4-frumum að fækka á ný. Prófessor Andrieu segir niðurstöðurnar styðja kenninguna um sjálfseyðingu ónæmis- kerfisins, en samt sé aðgátar þörf. „[Kenning- in] hefur enn ekki verið sönnuð vísindalega, en þessar niðurstöður gefa góða vísbendingu." Einn af frumkvöðlum kenningarinnar, Angus Dalgleish, prófessor við St. George sjúkrahúsið í London, segir að ef til vill sé ekki nauðsyn- legt að hægja á allri starfsemi ónæmiskerfisins með kröftugum lyfjum eins og því sem notað var við tilraunina. Það kunni að verða nóg að beina spjótum að ákveðnutn þáttum í starfsemi kerfisins, og nú þegar séu til lyf sem nota mætti í þeim tilgangi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.