Morgunblaðið - 09.08.1994, Qupperneq 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
íþróttahús Electrolux fyrir HM ’95
Borgarráð tekur
afstöðu í dag
Héðinn
alþjóðleg-
ur meistari
HÉÐINN Steingrímsson náði
þriðja og síðasta áfanga sínum
að alþjóðlegum meistaratitli á
alþjóðlegu skákmóti í Gausdal
í Noregi, sem lauk í gær. Helgi
Áss Grétarsson náði einnig
síðasta áfanga sínum en óvíst
er hvort hann verður útnefnd-
ur alþjóðlegur meistari þar
sem hann hefur ekki hlotið
áfanga á lokuðu móti.
Englendingurinn Sadler
varð efstur, með 7 vinninga
úr 9 umferðum. Næstir í 2.-4.
sæti komu Englendingurinn
Davis, ísraelinn Psachis og
Rússinn Beshukov með 6'A
vinning. Héðinn og Þröstur
Þórhallsson fengu 6 vinninga
ásamt 6 öðrum skákmönnum
í 5.-13. sæti. Helgi Áss varð
í 14.-21. sæti með 5 vinninga.
TILBOÐ í byggingu íþróttahúss fyrir
heimsmeistarakeppnina í handknatt-
leik 1995 var væntanlegt í morgun
og tekur borgarráð afstöðu til þess
í dag. Alfreð Þorsteinsson borgarfull-
trúi segir að sér kæmi ekki á óvart
þótt lokapunktur yrði þá settur á
málið gagnvart Electrolux. Hann
segir að báðir aðilar, borgaryfírvöld
og Electrolux, séu mjög meðvitaðir
um hversu naumur tími sé til stefnu.
Líkan af húsinu var kynnt í skipu-
lagsnefnd í gær án athugasemda.
Að sögfn Alfreðs mun tilboðið fela
í sér kaupleigu á húsinu. Reykjavík-
urborg greiðir vissa upphæð árlega
og eignast húsið á ákveðnum ára-
fjölda. „Kosturinn við þetta er sá að
borgin þarf ekki að greiða neinn
stofnkostnað en þyrfti annars að
greiða hann auk þess sem hún þyrfti
að taka verulegan þátt í rekstri húss-
ins,“ segir Alfreð. Hann segist bjart-
sýnn á að tilboðið verði hagstætt og
borgarráð geti gengið að því.
Líkan af húsinu var kynnt í skipu-
lagsnefnd í gær og þar komu engar
athugasemdir fram. Alfreð segir að
reiknað sé með að húsið rísi austan
við Laugardalshöll með tengibygg-
ingu. Það verði um 11.000 fermetrar
og hægt að skipta um gólf í því.
Andlát
HARALDUR
ÁGÚSTSSON
HARALDUR Ág-
ústsson fyrrverandi
skipstjóri lést í um-
ferðarslysi aðfara-
nótt síðastliðins
sunnudags. Hann
varð fyrir bíl á Aust-
urvegi á Selfossi og
er talið að hann hafí
látist samstundis.
Haraldur var 64
ára gamall. Hann
fæddist að Hvalsá í
Steingrímsfirði og
ólst þar upp og
stundaði sjó-
mennsku. Hann
fluttist ásamt eftir-
lifandi eiginkonu
sinni, Guðbjörgu Gunnarsdóttur, til
Reykjavíkur árið 1953 og bjó þar
síðan. Haraldur var skipstjóri á
ýmsum bátum, t.d. Heiðrúnu frá
Bolungarvík og Guðmundi Þórðar-
syni RE. Þá gerði hann út Reykja-
borg RE frá Reykjavík. Árin 1975-
1988 var Haraldur annar tveggja
skipstjóra á Sigurði RE 4.
Haraldur
Ágústsson
Haraldur Ágústsson var
einn af mestu aflamönnum
þjóðarinnar á sinni tíð og
brautryðjandi í að nota
hringnót á stóru skipi og
kasta henni með kraft-
blökk. Áður en hann þró-
aði þessa aðferð notuðust
menn við snurpunót og tvo
nótabáta. Þá var hann
einnig brautryðjandi í að
nota „Astik“-tæki til að
kasta á síld, sem ekki óð.
Haraldur var varaborg-
arfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins í Reylq'avík
1970-1974 og sat í hafn-
arstjórn Reykjavíkur og í
útgerðarráði BÚR á sama
tíma. Haraldur sat í stjóm Skip-
stjóra- og stýrimannafélagsins Öld-
unnar um árabil. Árið 1979 var hann
sæmdur riddarakrossi hinnar ís-
lensku fálkaorðu fýrir störf að sjávar-
útvegsmálum.
Haraldur lætur eftir sig aldraða
foreldra, eiginkonu og fjögur upp-
komin börn.
Þrír bátar
Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson
stranda
ísafirði. Morgunblaðið.
SUNNAN hvell gerði við ísafjarð-
ardjúp á sunnudag. Vitað er að
þrjá báta rak upp, tvo í Jökúl-
fjörðum og einn í Skötufirði. All-
ir bátarnir lágu mannlausir i
legufærum. Við Skarðseyri
(Þórðareyri) í Skötufirði rak 6
metra skemmtibát úr plasti í eigu
Halldórs Guðmundssonar bifvéla-
virkja á land. Á þessum stað hef-
ur alltaf verið talið mjög gott
bátalægi. í rokhvassri suðvestan-
átt dró báturinn legufærin og
brotnaði í spón í fjörunni. Innan-
vert við Sléttu yst í norðanverð-
um Jökulfjörðum hefur frá alda
öðli verið talið öruggt lægi. Þar
gerði 7-8 vindstiga sunnan hvass-
viðri með mikilli öldu sem lagði
norður yfir Jökulfirðina. Þar
slitnaði Lóa IS 8 úr legufærum á
sunnudag og rak upp í mjög
grýtta fjöruna. Þrátt fyrir til-
raunir manna í landi til að bjarga
bátnum varð ekki við neitt ráðið.
Skarphéðinn Gíslason skipstjóri á
Isafirði sem á bátinn í félagi með
Gunnari Arnórssyni skipstjóra
sagði að áður og fyrr hefði alltaf
verið talið að þar sem báturinn
lá væri lífhöfn í öllum áttum
nema austan. Um nóttina rak svo
Loga, 8 metra Sómabát, frá leg-
unni i Lónafirði innanvert við
Kvíar. Bátinn rak inn allan Lóna-
fjörð og strandaði hann að lokum
undir fjallinu Einbúa. Ekki er
talið er að báturinn sé ónýtur.
Eftir því sem best er vitað voru
allir bátarnir tryggðir. Á mynd-
inni er Lóa ÍS 8 í fjörunni. Stór
hluti stjórnborðssíðu bátsins er
úr honum, göt á bakborðshlið og
stýrið brotið af.
Vaxandi eftirspurn ástæða hækkunar
VERÐ á inni- og útitimbri frá Norð-
urlöndunum hefur að sögn Stefáns
Árna Einarssonar, rekstrarstjóra
timbursölu Húsasmiðjunnar, hækk-
að um 20% hér á landi í saman-
burði við allt að 60 til 70% verð-
hækkun í framleiðslulöndunum
undangengið ár. Stefán Ámi sagði
að rekja mætti hækkunina til vax-
andi eftirspurnar. Söluaðilar hér á
landi hefðu hingað til tekið á sig
hluta hækkunarinnar og timbrið
hefði undanfarið verið á lægra verði
frá seljendum hér en á Norðurlönd-
unum. Nefndi Stefán Árni í þessu
sambandi að fyrir skömmu hefði
danskt fyrirtæki lýst yfir áhuga á
að kaupa timbur af fyrirtækinu til
sölu á Grænlandi.
Hækkar áfram
Hvað framhaldið varðaði sagði
Stefán Ámi líklegt að timbrið, sem
að hluta til er keypt frá Finnlandi
og Noregi, héldi áfram að hækka.
Verð myndi því væntanlega halda
áfram að hækka eitthvað hér.
Aðspurður um afleiðingar hækk-
unarinnar hér á landi sagði Stefán
Ámi að því væri erfitt að svara.
Samdráttur hefðiverið í byggingar-
iðnaði og erfiðleikum bundið að
greina ástæður minnkandi sölu.
Hins vegar sagði hann ljóst að bein
viðskipti íslenskra verktaka með
timbur frá minni söluaðilum í um-
ræddum löndum hefðu minnkað
vegna hækkunarinnar.
Útgerðarfélagið Ósvör á Bolungarvík landar rækju á ísafirði
ÚTGERÐARFÉLAGIÐ Ósvör hf. á
Bolungarvík hefur í sumar landað
á fjórða hundrað tonnum af rækju
hjá rækjuverksmiðjunni Riti á
Isafirði á meðan rækjuverksmiðjan
á Bolungarvík, Þuríður, hefur verið
svo til verkefnalaus.
Björgvin Bjamason, fram-
kvæmdastjóri Osvarar, segir að
mikil barátta sé um rækjuna fyrir
vestan og sá aðili sem bauð best
að þessu sinni hafi einfaldlega
hreppt hnossið. Hann segir að Þur-
íður hafi fengið tækifæri til að bjóða
í rækjuviðskiptin eins og fleiri verk-
smiðjur en tilboð Rits hafi verið
hagstæðast. Atvinnuástandið á Bol-
ungarvík er að mati Björgvins
ágætt auk þess sem í raun sé um
eitt atvinnusvæði að ræða þar sem
stutt sé til ísafjarðar.
Valdimar L. Gíslason, fram-
kvæmdastjóri Þuríðar, segir það
hafa komið sér í opna skjöldu að
Ósvör hafi ákveðið að skipta við
„Undarleg
atvinnustefna“
Rit. Hann segir að stjóm Þuríðar
hafi verið nokkuð viss um að ná
samningum við Óseyri eftir að for-
maður verkalýðsfélags Bolungar-
víkur hafí síðastliðið vor fullyrt að
framkvæmdastjóri útgerðarfélags-
ins hafí heitið sér því að rækjan
yrði unnin á Bolungarvík jafnvel
þótt tilboð Þuríðar yrði 2-3 krónum
lægra en það hæsta. Þetta segir
Valdimar að fram hafi komið á
fundí stjórnarinnar með fonnanni
verkalýðsfélagsins og formanni
bæjarráðs.
Þá var svarið nei!
Valdimar staðfestir að Þuríði
hafi gefist færi á að bjóða í rækj-
una í vor. „Við kynntum okkur hjá
nokkmm aðilum hvað þeir væm að
bjóða í rækju,“ segir Valdimar og
kveður fyrirtæki sitt hafa boðið
rúmar 90 krónur fyrir kflóið. Því
tilboði hafi verið hafnað. Valdimar
þykir undarlegt að ekki hafí fengist
upp gefið hjá Ósvör upp á hvað til-
boð Rits hljóðaði. Þegar Þuríði var
tilkynnt um að tilboð Rits hefði
verið hagstæðara segir Valdimar
sitt fyrirtæki hafa verið tilbúið til
að jafna það. Eftir því hafi verið
óskað. „Þá var svarið nei! Þeir sögð-
ust vera búnir að semja,“ segir
hann. Valdimar segir forráðamönn-
um Þuríðar hafa verið mjög brugð-
ið því þarna hafi um 20 bæjarbúar
orðið af þriggja mánaða atvinnu.
Hann fullyrðir að þetta hafi verið
hálfgert rothögg fyrir rækjuvinnsl-
una á Bolungarvík því hún hafi
fastlega gert ráð fyrir að ná samn-
ingum við Ósvör og því ekki borið
sig sérstaklega eftir viðskiptum við
aðra.
Valdimar telur það undarlega
atvinnustefnu að gefa heimaaðila
ekki tækifæri til að jafna tilboð sem
þetta. Hann bendir á að sú regla
sé við lýði hjá Togaraútgerð ísa-
fjarðar, sem sé með rækjuskip, að
bannað sé að selja aðilum utan
bæjarins rækju.
Selfoss
Stefnt að
prestkosn-
ingum 10.
september
STEFNT er að prestkosning-
um á Selfossi sunnudaginn
10. september, að ósk á
níunda hundrað sóknarbarna.
Síðla á fimmtudagskvöld
voru Tómasi Guðmundssyni,
prófasti í Árnesprófasts-
dæmi, afhentar undirskriftir
855 manns er óska eftir al-
mennum prestkosningum.
Tómas sagði í samtali við
Morgunblaðið fyrir helgi að á
móti hefðu honum borist ósk-
ir um 15 útstrikanir af listan-
um. Eftir stæðu 840 undir-
skriftir og útlit væri fyrir að
allt að 10 til viðbótar yrðu
strikaðar út af ýmsum sök-
um. Engu að síður hefði
væntanlega náðst tilskilin
ijöldi undirskrifta, þ.e. fjórð-
ungs sóknarbarna, eða um
það bil 760 manns. Prófastur
lét þess getið að forsvars-
menn undirskriftalistans
væru mikið kirkjuáhugafólk
og sæktu kirkju hvern helgan
dag.
Umsækjendur messa
Sex sóttu um embætti
sóknarprests á Selfossi. Einn
þeirra, séra Jón Ragnarsson
í Reykjavík, hefur nú dregið
umsókn sína til baka. Ráð-
gert er að umsækjenöur um
stöðuna kynni sig í kvöld-
messum í Selfosskirkju í ág-
úst. Á sunnudögum messar
séra Kristinn Agúst Frið-
finnsson, sóknarprestur í
Hraungerði og settur sóknar-
prestur á Selfossi. Að undir-
búningi kosninganna standa
yfirkjörstjórn á vegum próf-
astsdæmisins og kjörstjórn
skipuð af sóknarnefnd. Stefnt
er að því að kosið verði
sunnudaginn 10. september
næstkomandi.
r
:
Verðið hagstæð-
arahérálandi
i
i
í
Hækkun á timbri frá Norðurlöndum
i
!