Morgunblaðið - 09.08.1994, Síða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Akureyrskar Sylvíur koma í heiminn með stuttu millibili
A réttri leið
SYLVÍA er ekki algengt nafn á
Islandi. Engu síður vildi svo til
að tvö stúlkubörn voru með
stuttu millibili, skömmu eftir
fæðingu á Landspítalanum í
vor, nefnd þessu nafni. Þar að
auki eru foreldrar beggja stúlk-
anna frá Akureyri og fæðingar-
þyngd beggja undir einu kílói
eða fjórum mörkum. Nöfnurnar
voru í nokkrar vikur báðar á
vökudeild Landspítalans. En nú
hefur Sylvía Smáradóttir, sú
eldri, fengið að fara heim.
Arnheiður Tryggvadóttir, móð-
ir Sylvíu, segir að hún hafi ver-
ið tekin með keisaraskurði
þann 29. apríl síðastliðinn eftir
28 vikna meðgöngu. Sylvía hafi
þá verið 930 g að þyngd og 37
sm löng en hafi léttust orðið
750 g. „Hún var sett í öndunar-
vél og til að byija með gekk
allt vel. En tæplega hálfs mán-
aða fékk hún í lungun og það
sem kallað er krónískar lungna-
breytingar uppúr því. Með hjálp
steralyfa hristi hún svo þetta
af sér á stuttum tíma og hefur
með smá hnökrum haldið áfram
að braggast," segir Arnheiður.
Hún segir að eftir að Sylvía
hafi náð 1.000 g hafi hún
þyngst hratt og mælist nú um
15 merkur eða 3.800 g og um
50 sm.
Ásta Garðarsdóttir er móðir
Sylvíu Bjarkar Aðalsteinsdóttur
sem fæddist eðlilega á Landspít-
alanum 10. maí siðastliðinn.
Ekki er vitað hvað bar út af en
Sylvía Björk kom í heiminn eft-
ir 25 vikna meðgöngu. Hún vóg
805 grömm og var 33 sm þegar
hún fæddist.
Ásta segir að Sylvíu Björk fari
hægt fram. Hún sé nú orðin
1.515 g og 40 sm. Sylvíu var,
eins og nöfnu hennar, gefið
nafnið út I loftið en síðari nafn-
inu heitir hún eftir móðursystur
sinni. Á Akureyri á Sylvía Björk
tveggja og hálfs árs hálfsystur.
Bæði Ásta og Amheiður óskuðu
eftir að koma á framfæri kæru
þakklæti til starfsfólks vöku-
deildar Landspitala fyrir frá-
bært starf og einstakan hlýhug.
*
Idag
ARNHEIÐUR með
Sylvíu Smáradótt-
ur rúmlega þriggja
mánaða.
Morgunblaðið/
Björn Gíslason
Eftirfæðingu
SYLVÍA Smáradóttir var 930 g og 37 sm að lengd við fæðingu.
Eftir fæðingu
SYLVÍA Björk var 805 g og 33 sm þegar hún fæddist.
Morgunblaðið/Þorkell
SYLVÍA Björk sem er rúmlega 1.500 g núna er enn á vökudeild
Landspítalans.
*
Idag
Banka-
eftirlitið
kannar at-
hugasemd
ÞÓRÐUR Ólafsson, forstöðumað-
ur bankaeftirlits Seðlabankans,
segir að bankaeftirlitið muni
kanna þau atriði sem fram komu
í leiðara Morgunblaðsins sl. sunnu-
dag. Þar er þess krafist að bankar
og bankaeftirlit upplýsi til hvaða
ráðstafana verði gripið til þess að
koma í veg fyrir endurtekin trún-
aðarbrot kortafyrirtækja.
í leiðaranum er greint frá því
að kortafyrirtækin tvö hafi opin-
berað einkamál fólks, annað með
því að gefa upplýsingar um nafn-
greindan einstakling, hitt með því
að senda fjölmiðlum úttektarlista
með númerum debetkorta.
Bankaleynd
í leiðaranum segir m.a.: „Nái
lög og reglur um bankaleynd ekki
til kortafyrirtækja er ljóst, að þau
eiga ekki að hafa aðgang að upp-
lýsingum, sem þau bersýnilega
hafa aðgang að. Annað hvort verð-
ur að loka fyrir þann aðgang eða
tryggja að bankaleynd nái yfir
kortafyrirtækin.
Það er óafsakanlegt að þessi
fyrirtæki skuli hafa sent frá sér
framangreindar upplýsingar. Þessi
upplýsingagjöf vekur upp spurn-
ingar um starfshætti þessara fyr-
irtækja. Kortafyrirtækin eru bæði
í eigu bankanna. Eigendurnir bera
ábyrgð á starfsemi þeirra og
starfsháttum og hljóta að þessu
gefna tilefni að endurskoða þá
starfshætti. Bankaeftirlit Seðla-
bankans hlýtur að gera þær ráð-
stafanir, sem duga í þessum efn-
um.“
Tekið til athugunar
Þórður Ólafsson vildi ekki tjá
sig um þær athugasemdir sem
fram komu í leiðaranum að öðru
leyti en því að bankaeftirlitið
myndi taka þær til athugunar.
IfH
C'EST FOU LE SUCCÉS QU'ON A
PARÍSARbúðin
Austurstræti 8, sími 14266
Stórir strandbolir
1.500, -
Herranáttföt
2.500, -
Telpnanáttföt
1.200,-
Barnanærfatasett
390,-
Sokkabuxur
300,-
Stjórnarandstöðuleiðtogar áttu fund með forsætisráðherra
Ekki einróma afstaða
til kosninga
DAVIÐ Oddsson forsætisráðherra
kannaði hug forystumanna stjórnar-
andstöðuflokkanna til haustkosn-
inga í gær. Afstaða forystumanna
þessara flokka til haustkosninga er
ekki einróma. Kvennalistinn telur
ekki ástæðu til þingrofs ef stjórnar-
meirihlutinn stendur enn og Jóna
Valgerður Kristjánsdóttir, þing-
flokksformaður listans, sagðist eftir
fundinn telja ólíklegt að til haust-
kosninga kæmi. Halldór Ásgríms-
son, formaður Framsóknarflokksins,
segir framsóknarmenn vilja haust-
kosningar en ríkisstjómin eigi þó
fyrst að leggja fram fjárlagafrum-
varp. Hann telur að dregið hafi úr
líkum á að kosið verði í haust. Ólaf-
ur Ragnar Grímsson, formaður Al-
þýðubandalagsins, segir alþýðu-
bandalagsmenn vilja haustkosningar
og geri ekki að skilyrði að fjárlaga-
frumvarp verði lagt fram áður en
kæmi til kosninga.
Ólafur Ragnar gekk fyrstur á
fund forsætisráðherra kl. 9 í gær-
morgun og greindi þar frá þeirri
afstöðu Alþýðubandalagsins að
skynsamlegast væri að efna til kosn-
inga í haust. Stóð fundur þeirra yfir
í um klukkustund. „Ég útskýrði þá
afstöðu Alþýðubandalagsins að það
blöstu við slík verkefni að nauðsyn-
legt væri að nýtt þing með trausta
landsstjórn gæti tekið á þeim. Það
væri ljóst að ef ekki yrði kosið í
haust og þingið kæmi saman yrði
þar slík upplausn og óróleiki að það
væri ekki skynsamlegt með tilliti til
efnahags- og atvinnumála að leiða
þjóðina í gegnum slíkan óvissuvet-
ur,“ sagði hann.
Ólafur sagðist ekki geta metið
hvort líkur á haustkosningum væru
að minnka. „Mér finnst skrítið ef
kosningahræðsla í því flokksbroti
Alþýðuflokksins sem enn hangir með
Jóni Baldvin á að ráða því hvort
mikill meirihlutavilji þjóðar og þings
nær fram að ganga. Eins finnst mér
það ekki vera nauðsýnleg forsenda
að lagt verði fram fjárlagafrumvarp
eins og formaður Framsóknarflokks-
ins hefur verið að setja sem skilyrði
fyrir þingrofi," sagði Olafur Ragnar.
Framsókn vill sjá
fjárlagafrumvarp fyrir
kosningar
Halldór Ásgrímsson var boðaður
á fund Davíðs kl. hálfellefu og
greindi honum frá því að framsókn-
armenn vildu að kosið yrði í haust
en teldu eðlilegt að ríkisstjórnin legði
fram fjárlagafrumvarp, áður en til
haustkosninga kæmi. Halldór sagð-
ist í samtali við Morgunblaðið telja
að heldur hafi dregið úr líkum á
kosningum í haust vegna andstöðu
Alþýðuflokksins.
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir og
Guðrún Halldórsdóttir alþingismaður
gengu á fund forsætisráðherra kl.
13. Jóna Valgerður sagði að þær
hefðu greint forsætisráðherra frá
þeirri skoðun kvennalistakvenna að
veðurlag í mars og apríl væri ekki
nægilegt tilefni til þingrofs nú. Að-
spurð hvort Kvennalistinn vildi haust-
kosningar sagði Jóna Valgerður að
það væri fyrst og fremst ríkisstjórn-
arflokkanna að ákveða hvort þeir
gætu unnið saman en Kvennalistinn
teldi að ríkisstjómin væri óstarfhæf.
„Við lögðum áherslu á að það væri
þá spurning um hvort meirihlutinn
væri fallinn í þinginu og teljum ekki
ástæðu til þingrofs ef stjórnarmeiri-
hlutinn stendur ennþá," sagði Jóna
Valgerður. Hún sagðist telja ólíklegt
að gengið verði til þingkosninga í
haust vegna andstöðu forystu Al-
þýðuflokksins. „Forsætisráðherra
hefur einn þetta vald og hann vildi
ekkert gefa upp um það núna hvem-
ig hann vill beita því.“