Morgunblaðið - 09.08.1994, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1994 9
FRÉTTIR
ÁGÚST Pétursson með fallega kvöldveiði úr „Bakkanum“ í
Haffjarðará fyrir nokkru.
Góðar
tölur
MENN eru að fá prýðisafla víða
þessa daganna, ekki síst í „Reykja-
víkuráunum" þremur sem við get-
um kallað svo, Elliðaánum, Úlfarsá
og Leii-vogsá. Sú síðastnefnda er
með bestu útkomuna þótt talan sé
hærri í Elliðaánum. Miðum við þá
við meðalveiði á hveija stöng. En
lítum á tölurnar.
Lakara í EUiðaánum
Veiðin í Elliðaánum er nokkuð
lakari heldur en á sama tíma í fyrra
og samkvæmt teljara hefur einnig
gengið talsvert minna af laxi held-
ur en í fyrra. Engu að síður verður
veiðjn að teljast góð á heildina lit-
ið. Á sunnudagskvöld voru komnir
710 laxar á land miðað við 882 á
sama tíma í fyrra. Um teljarann
höfðu farið 1.830 laxar á móti
2.413 löxum á sama tíma í fyrra.
Það eru ávallt sveiflur- í göngum
og þrátt fyrir þennan mun er nóg
af laxi í ánum og veiði verið góð.
Nokkuð hefur þó dregið úr uppgrip-
um að undanförnu, algengt er nú
að dagveiðin sé 12-15 laxar, en
var á besta tímanum 20-30 laxar
á dag.
Leirvogsá mjög góð
„Þetta gengur mjög vel, stang-
irnar tvær hafa veitt 270 laxa það
sem af er,“ sagði Skúli Skarphéð-
insson veiðivörður við Leirvogsá í
gærdag. Veiði hófst í ánni 25. júní
og er þetta einhver besta útkoma
í íslenskri laxveiðiá á þessari ver-
tíð. Skúli þakkaði því helst, að flest-
ir veiðimanna í ánni væru kunnug-
ir staðháttum og svo hefðu miklar
fannir í Esjunni haldið vatnsborði
árinnar boðlegu fram eftir öllu
sumri. „Þá hefur skilað sér vel úr
gönguseiðasleppingu frá síðasta
ári. Við slepptum 7.000 seiðum og
var helmingur þeirra merktur. Nú
þegar hafa um 40 merktir laxar
veiðst og má því reikna með að
um 80 laxar í aflanum sé úr slepp-
ingunni og er augljóst að það mun-
ar um minna,“ bætti Skúli við.
Skúli sagði laxinn að vanda yfir-
leitt smáan, stærsti í sumar var
12.5 pund. „Það er talsvert af
boltafiski, en þeir eru allir inni í
Gljúfrum. Þar er vegna aðstæða
ógerningur að ná til þeirra. Þeir
gengu snemma og fóru alveg inn
úr. Við erum að vona að þeir sakki
niður ána þegar styttist í hrygning-
una og þá veiðist einhveijir þeirra,"
sagði Skúli.
Korpa þokkaleg
Þokkaleg útkoma hefur verið í
Úlfarsá, eða Korpu. í gærmorgun
voru komnir 180 laxar á land og
hefur veiði verið nokkuð góð að
undanförnu, oft þetta 3-8 laxar á
dag, mest 31. júlí, er 10 laxar komu
á land. Úlfarsá hefur verið afar
vatnslítil að undanförnu. Laxinn
er allur smár í ánni, mikið af 3 til
4.5 punda laxi.
Svartá á góðu róli
Prýðilega gengur í Svartá þrátt
fyrir að lítið sjáist enn af smálaxi.
í gær voru komnir 135 laxar úr
ánni miðað við 170 á sama tíma í
fyrra. Að sögn Jörundar Markúson-
ar leigutaka hafa hollin verið að
rejita upp fisk, þetta 7 til 19 fiska
hvert. Veitt er með þremur stöng-
um, en hollin ýmist í tvo daga eða
þijá. „Þetta er minna en í fyrra
og spurning með framhaldið. Aftur
á móti bætir það mörgum upp
færri laxa, að meðalþyngdin er
mjög góð. Þegar ég athugaði það
síðast fyrir um tveimur vikum, var
meðalvigtin um 11-12 pund og
flestir laxarnir sem hafa verið að
veiðast eru á bilinu 10 til 15 pund.
Tæplega 700 laxar hafa gengið um
teljarann í Ennisflúðum í Blöndu
og alltaf fer eitthvað flúðirnar sjálf-
ar. Af þessu hafa 135 veiðst í
Svartá og einhver reytingur í
Blöndu ofan flúða.“ Sagði Jörundur
að göngurnar væru mjög kraftlitlar
þessa dagana, ekki nema 2-4 fisk-
ar á sólarhring.
Menn fá ’ann í Núpá
Um það bil 160 laxar hafa veiðst
í Núpá á Snæfellsnesi, en í hana
gengur heimastofn auk þess sem
leigutakar sleppa í hana laxi af
Lárósstofni. Hefur verið sleppt 270
löxum í sumar. Eitthvað telja menn
heimastofninn hafa verið að sýna
sig að undanförnu, þannig veiddust
5 laxar morgun einn fyrir stuttu
sem voru nýrunnir, en hafði þó
ekki verið sleppt í rúma viku.
Jakob er diplómat
í VIKUNNI sem leið birtist frétt í
einu dagblaðanna um að tilnefning
Jakobs Frímanns Magnússonar,
menningarfulltrúa, í starf forstöðu-
manns sendiráðsins í London sé
hugsanlegt brot á Vínarsamningn-
um um stjórnmálasamband frá 18.
apríl 1961, segir í frétt frá utan-
ríkisráðuneytinu.
Þá segir í frétt utanríkisráðu-
neytisins: „í frétt dagblaðsins segir
að sá sem skipaður er í stöðu for-
stöðumanns sendiráðs verði að til-
heyra diplómatísku starfsliði sendi-
ráðsins og að Jakob Frímann Magn-
ússon uppfylli ekki þau skilyrði.
í maí 1991 var Jakob Frímann
Magnússon ráðinn í starf íslensks
menningarfulltrúa ^ (Cultural Att-
aché) við sendiráð íslands í London.
Fékk hann í hendur diplómatavega-
bréf útgefið af utanríkisráðuneyt-
inu. Jafnframt er hann skráður sem
diplómat við sendiráðið í London
eins og fram kemur á bls. 30 í dipló-
matalista breskra stjórnvalda. Jak-
ob Frímann Magnússon er því dipló-
mat og uppfyllir skilyrði um að
vera forstöðumaður sendiráðs."
vEVO-STIK
ELDVARNARKÍTTI
Þenst út viö hita og
hindrar útbreyöslu
reyks og elds.
ÁRVlK
ÁRMÚU 1 • REYKJAVÍK • SÍMI 687222 • MYNDRITI 687295
Skoðanakannanir DV og Gallup
Framboð Jóhönnu
fengi 5 - 6,6%
HUGSANLEGT framboð Jóhönnu
:Sigurðardóttur til Alþingis nýtur
S5% stuðnings svarenda í skoðana-
könnun, sem ÍM Gallup hefur gert
fyrir Ríkissjónvarpið. I könnun,
sem DV hefur gert, kemur fram
að framboð Jóhönnu gæti notið
6,6% stuðnings ef nú væri gengið
til kosninga.
í könnun Gallup fær Alþýðu-
flokkur 8,7% stuðning, Framsókn-
arflokkur 20,7%, Sjálfstæðisfiokk-
ur 38%, Alþýðubandalag 13,7% og
Kvennalisti 12%, auk þess sem
hugsanlegt sérframboð Jóhönnu
fær 5% fylgi þeirra, sem afstöðu
tóku.
30,7% ef spurt er sérstaklega
um framboð Jóhönnu
f könnun DV var fyrst spurt:
„Hvaða lista myndir þú kjósa ef
þingkosningar færu fram núna?“
Sögðust þá 11,3% þeirra sem af-
stöðu tóku myndu kjósa Alþýðu-
flokk, 20,8% Framsóknarflokk,
39,6% Sjálfstæðisflokk, 12,7% Al-
þýðubandalag, 9% Kvennalistann
og 6,6% framboð Jóhönnu Sigurð-
ardóttur.
DV spurði síðan annarrar
spurningar, þar sem framboð Jó-
hönnu var tekið eitt út úr, en ekki
minnzt á aðra flokka: „En ef Jó-
hanna Sigurðardóttir byði fram
sérstakan lista?“ Með þessum
hætti fær blaðið þá útkomu að
Jóhanna fengi 30,7% atkvæða,
hálfu prósentustigi meira en Sjálf-
stæðisflokkurinn, sem fengi þá
30,2%.
í svörum við báðum spurningum
var um þriðjungur svarenda
óákveðinn.
ÚTSALAN
HEFST í DAG
verslunin
Guðrún
Rauðarárstíg
Nýtt útbob spariskírteina
ríkissjóbs fer fram
mibvikudaginn 10. ágúst
Á morgun kl. 14:00 fer fram nýtt
útboð á spariskírteinum ríkissjóðs. Um
er að ræða hefðbundin, verðtryggð
spariskírteini í eftirfarandi flokkum:
llokkur I
l.fl.D 1994 l.fl.D 1994 5 ár 10. feb. 1999 10 ár 10. apr. 2004
Þessir flokkar eru skráðir á Verðbréfa-
þingi íslands og er Seðlabanki íslands
viðskiptavaki þeirra.
Spariskírteinin verða seld með tilboðs-
fyrirkomulagi. Aðilum að Verðbréfa-
þingi íslands er einum heimilt að gera
tilboð í spariskírteinin samkvæmt
tiltekinni ávöxtunarkröfu. Lágmarks-
tilboð er kr. 5.000.000 að nafnverði.
Aðrir sem óska eftir að gera tilboð í
spariskírteinin eru hvattir til að hafa
samband við framangreinda aðila,
sem munu annast tilboðsgerð fyrir
þá og veita nánari upplýsingar.
Öll tilboð í spariskírteinin þurfa að
hafa borist Lánasýslu ríkisins fyrir
kl. 14:00 miðvikudaginn
10. ágúst. Tilboðsgögn og allar
nánari upplýsingar eru veittar hjá
Lánasýslu ríkisins, Hverfisgötu 6,
í síma 62 40 70.
LÁNASÝSLA RÍKISINS
Hverfisgötu 6, 2. hæð, 150 Reykjavík, sími 91- 62 40 70.