Morgunblaðið - 09.08.1994, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1994 11
LANDIÐ
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖDINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OGÁRÁÐHÚSTORGI
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Fuglum
farnast vel
TÍÐARFARIÐ í júlí og það sem
af er ágúst hefur verið hagstætt
öllu fuglalífi og Htur út fyrir að
enginn ungadauði verði af völd-
um vondra veðra á þessu sumri.
Víða má sjá uppkomna unga og
eru þeir flestir að verða fleygir.
Þessi þingeyska önd, sem ungaði
bæði út í apríl og júlí, var bjart-
sýn á afkomuna og sést hér með
seinni hópinn, sem byrjaður er
að vaxa úr grasi.
Snyrtilegir kirkju-
garðar í Arnessýslu
verðlaunaðir
Hellu - Nýlega kom garðyrkju-
nefnd 'Sambands sunnlenskra
kvenna saman til að veita viður-
kenningar fyrir snyrtilega umhirðu
kirkjugarða í Árnessýslu. Á síðasta
ári voru veittar viðurkenningar til
kirkjugarða í Rangárvallasýslu, en
nefndin vinnur eftir tíu ára áætlun
fram til ársins 2002, en á því tíma-
bili munu verða veittar viðurkenn-
ingar til skiptis í Árnes- og Rangár-
vallasýslu fyrir matjurtaræktun,
skrúðgarðarækt í dreifbýli og þétt-
býli, garðyrkjustöðvar og félags-
heimili.
Viðurkenningar þessar eru veitt-
ar úr svokölluðum Rögnusjóði sem
stofnaður var 1981 til minningar
um Rögnu Sigurðardóttur í Kjarri,
en hún var mikil baráttukona á
sviði hvers kyns ræktunar og hvatti
fólk til þess að rækta og snyrta til
í kringum sig og koma sér upp
görðum við hús sin. Hún var einnig
formaður SSK um árabil.
Það voru rangæsku nefndarkon-
urnar sem skoðuðu alla kirkjugarða
sem til greina komu í Árnessýslu
ásamt Kjartani Ólafssyni, garð-
Off nú er hann
tvöfakliir!
yrkjuráðunaut Búnaðarsambands
Suðurlands, en alls voru tilnefndir
níu garðar. Við stutta athöfn í safn-
aðarheimili Oddakirkju á Rangár-
völlum, en Oddakirkjugarður var
einn þeirra sem hlaut verðlaun í
fyrra, voru þrír kirkjugarðar verð-
launaðir. Kotstrandarkirkjugarður,
Stokkseyrarkirkjugarður og Hruna-
kirkjugarður. Núverandi formaður
Sambands sunnlenskra kvenna er
Guðrún Jónsdóttir á Selfossi.
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
FULLTRUAR þeirra kirkjugarða sem viðurkenningar hlutu, f.v. Guðmundur og Snorri Baldurssyn-
ir fyrir Kotstrandarkirkjugarð, Fjóla Ægisdóttir fyrir Stokkseyrarkirkjugarð og Jóhannes Helga-
son fyrir Hrunakirkjugarð.
Veröur hann
milljónir?
Milljónauppskrift Emils:
1. Skundaðu á næsta
sölustað íslenskrar getspár.
2. Veldu réttu milljónatölurnar
eða láttu sjálivalið um getspekina.
3. Snaraðu út20krónum
fyrir hverja röð sem þú velur.
4. Sestu íþægilegasta stólinn
í stofunniá miðvikudagskvöldið
og horfðu á happatölumar
þínarkrauma í Víkingalottó-
pottinum í sjónvarpinu.
5. Hugsaðu um allt það sem
hægt er að gera fyrir 90 milljónir.