Morgunblaðið - 09.08.1994, Side 12

Morgunblaðið - 09.08.1994, Side 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1994 MORGUNBLAÐIÐ Bílamarkadurinn Smiðjuvegi 46E v/Reykjanesbraut Kopavogi, sími 571son MMC Galant GTi 16v Dynamic 4 x 4 '91, hvítur, 5 g., ek. 55 þ. km., álfelgur, ABS, hleðslujöfnun, 4 hjólastýri o.fl. V. 1750 þús. MMC Lancer GLXi hlaðbakur '91, rauð- ur, sjálfsk., ek. 71 þ. km., rafm. í öllu o.fl. V. 990 þús. M. Benz 200 '86, grásans, sjálfsk., ek. 162 þ. km., (uppt. vél), sóllúga, rafm. f öllu, hiti í sætum o.fl. V. 1500 þús. Toyota Corolla XL '91, 5 dyra, hvítur, 5 g., ek. 83 þ. km. V. 750 þús. MMC Colt GL '90, 5 g., ek. 80 þ. km. V. 650 þús. Einnig MMC Colt GLX '89, ek. 94 þ. km., rafm. í rúðum o.fl. V. 590 þús. Toyota Corolla GL '91, 5 dyra, 5 g., ek 60 þ. km., rafm. í rúðum, dráttarkúla o.fl. V. 790 þús. Sk. ód. Honda Civic GL '88, sjálfsk., 3 dyra, ek. 66 þ. km. V. 590 þús. Toyota Corolla DX '87, 5 dyra, rauður, 4 g., ek. 97 þ. Gott eintak. V. 370 þús. Wagoneer LTD 4.0 L '87, sjálfsk., ek. 100 þ. km., sóllúga, rafm. í öllu o.fl. V. 1.580 þús. MMC Lancer GLX hlaðbakur '90, 5 g., ek. 105 þ. km. Gott ástand. V. 770 þús. Mazda 323 GLX Sedan ’SS, 5 g., ek. 88 þ. km., sóllúga o.fl. V. 580 þús. Chevrolet Blazer S-10 4.3I '88, sjálfsk., ek. 105 þ. Toppeintak. V. 1480 þús. MMC Pajero diesel, langur, '86, 5 g., vél+gírkassi o.fl. upptekið. V. 900 þús., sk. á ód. MMC Lancer GLXi hlaðbakur '92, grá- sans, sjálfsk., ek. aöeins 13 þ. km., rafm. í öllu o.fl. V. 1180 þús. Citroen BX 14 '87, 5 dyra, ek. 118 þ. km., nýskoðaður. Tilboðsverð kr. 260 þús. Toyota Hilux Ex-Cap SR5 '91, bensín, vsk-bíll, 5 g., ek. 120 þ. km. V. 1250 þús., sk. á ód. Nissan Patrol turbo, diesel, (langur), '86, upphækkaður, 4:37 hlutföll o.fl. Óvenju gott eintak. V. 1650 þús. MMC Colt GLX 1500 '89, 5 g., ek. 94 þ. km., rafm. í rúðum o.fl. Tilþoðsverð kr. 590 þús. Cherokee Laredo 4.0L '88, 4 dyra, sjálfsk., ek. 115 þ. km., m/spili o.fl. Top- peintak. V. 1550 þús. Suzuki Fox 413 árg. '87, 5 g., ek. 84 þ. km., nýskoðaður. Tilboðsverð kr. 430 þús. Daihatsu Rocky 2.0 bensín '85, 5 g., ek. 141 þ. km. Tilboðsverð kr. 540 þús. M. Benz 190E '93, sjálfsk., ek. aðeins 23 þ. km., álflegur, sóllúga o.fl. V. 2.9 millj. Toyota Corolla STD '89, 3ja dyra, ek. 76 þ. km. V. 540 þús. Honda Civic LSi '92, 3ja dyra, sjálfsk., ek. 17 þ. km., rafm. í rúðum o.fl. V. 1180 þús. - kjarni málsins! VIÐSKiPTI Mikill munur á ávöxtun gjaldeyrisreikninga eftir myntum á fyrri árshelmingi Raunávöxtun reikninga með jenum 15% RAUNÁVÖXTUN gjaldeyrisreikn- inga var allt að 15% á ársgrund- velli fyrstu sex mánuði þessa árs. Mest var ávöxtunin á reikningum í japönskum jenum, 14,6 til 14,9%. Þetta kemur fram í nýjasta tölu- blaði Vísbendingar, vikuriti um við- skipti og efnahagsmál. Þá var raun- ávöxtun gjaldeyrisreikninga sem hljóða á bandaríkjadollar neikvæð um 9,2-9,5% á ársgrundvelli. Það sem mestu ræður um raun- vaxtaþróun gjaldeyrisreikninga er gengi viðkomandi gjaldeyris gagn- vart krónunni. Þannig lækkaði gengi dollars með 9,9% árshraða fyrstu sex mánuðina, og gengi jens hækk- aði um 15,1%. Þá þróuðust reikning- ar í evrópskum myntum hagstætt í kjölfar gengishækkunar þeirra, um- fram allt finnsks og þýsks marks, sænsku krónunnar og svissneska frankans. Athygli vekur hve þróun reikninga í breskum pundum var óhagstæð, en pundreikningar voru auk dollars einu reikningarnir sem báru neikvæða ávöxtun á ársgrund- velli fyrstu sex mánuði ársins. Verðbréfamarkaður Framhald á verð- hækkun hlutabréfa NOKKUR hækkun hefur orðið á gengi hlutabréfa á Verðbréfaþingi að undanförnu. Var þingvísitala hlutabréfa 895,61 stig í lok júlí sem er 3,31% hækkun frá fyrra mánuði og 7,93% hækkun frá áramótum, að því er fram kernur í fréttabréfi Verðbréfaþings. Ávöxtun skulda- bréfa hækkaði í júlí og var áætluð meðalávöxtun húsbréfa í mánuðin- um 5,24% og 3-5 ára spariskírteina 4,98%, en samsvárandi tölur voru 5,02% og 4,79% í júní. Heildarviðskipti í júlí á Verðbréfa- þingi námu alls um 9,5 milljörðum króna, en þar af urðu viðskipti með hlutabréf rúmlega 38 milljónir. Vega þar þyngst viðskipti með hlutabréf í Granda hf., en seld voru bréf í félaginu fyrir 21 milljón í mánuðin- um. Viðskipti með hlutabréf fyrstu sjö mánuði ársins námu alls um 415 milljónum. Til samanburðar má nefna að heildarviðskipti í fyrra námu alls um 1 milljarði en þar af voru viðskiptin í desember 400 millj- Framhald varð á verðhækkunum hlutabréfa í fyrstu viku ágústmán- aðar að því er fram kemur í yfirliti frá Landsbréfum. Þar kemur fram að hlutabréfaviðskipti gegnum við- skiptakerfi þingsins urðu nokkuð minni í vikunni en undanfarnar vikur og námu alls 11,6 milljónum. Stærstu viðskiptin urðu með hluta- bréf í Skeljungi en mestur fjöldi við- skipta með hlutabréf í íslandsbanka. Hins vegar hækkaði verð í 8 fé- lögum milli vikna en í 3 félögum stóð verðið í stað. Mestar hækkanir urðu í Olís þar sem verð hækkaði um 15% milli vikna. Þá hækkuðu bréf í Sjóvá-Almennum um 8% og bréf í Islandsbanka um 5%. Um ástæður þessara hækkana segir m.a. í yfirliti Landsbréfa: „Aukna eftirspurn eftir hlutabréfum og hækkandi verð undanfarið má væntanlega rekja til væntinga fjár- festa um að verð hlutabréfa geti hækkað frekar í kjölfar milliupp- gjöra, sem vænst er að sýni bætta afkomu margra félaga á þessu ári.“ Þingvísitala hlutabréfa 1993-94 1. jan. 1990 = 1000 (Helmild: Verðbréfaþing Islands) 1000 920,88 1993 Fyrsta gildi hvere mánaðar 1 (—I 1 ( ( (-T+-4--I—I— 1994 I I i ) ) h Raunávöxtun óbundinna gjaldeyrisreikninga og gengisbundinna krónureikninga fyrri hluta árs 1994 (% á ári) Bandaríkja- dollarar L í B S Bresk pund L í B S WWM 1.2—j EdSa r i -0,6 -0,4 -0,4 -0,5 Norskar krónur L I B S Franskir frankar L I B S Danskar krónur R4 8 5 9’1 8 4 L I B S Hollensk gyllini 8,3 8’8 87 L I B S Þýsk mörk Sænskar krónur Svissn. frankar Evrópumynt 9,0 9’1 9’3 8,9 |[ B S L I Finnsk mörk 11,8 L I B S SDR: Sérstök dráttarréttindi !,« » « M ÍLjID L í B S Japönsk jen Raunávöxtun að teknu tilliti til gengisþróunar og verðlagsbreytinga skv. lánskjaravísitölu. Heimild: Vísbending, 30. tbl. 12. árg. 8.ág.'94 Fjármál Formleg kvörtun vegna sölu Sólar HANDSAL hf. hefur sent Iðnlána- sjóði formlega kvörtun vegna vinnu- bragða við sölu Sólar/Smjörlíkis, þar sem ekki hafi verið tekið tillit til skjólstæðinga Handsals við söluna. Bragi Hannesson, forstjóri Iðnlána- sjóðs, telur gagnrýnina ekki á rökum reista. Edda Helgason framkvæmdastjóri Handsals vildi ekki tjá sig í fjölmiðl- um um innihald bréfsins og tók fram að gagnrýnin beindist einungis gegn vinnubrögðum við söiuna. „í þessu felst ekki dómur yfir nýjum eigend- um Sólar, síður en svo,“ sagði Edda. „Við fögnum því að fyrirtækið er komið í hendur nýrra og líklega traustra eigenda." Einróma álit allra að taka tilboðinu Bragi Hannesson forstjóri Iðn- lánasjóðs sagði að hann teldi undar- legt að gagnrýni Handsals beinist gegn Iðnlánasjóði einum. „Ég hlýt að spyija hvers vegna Iðnþróunar- sjóður hljóti ekki sömu gagnrýni," sagði Bragi. „Auk þess komu að málinu fjölmargir menn frá þeim fjór- um aðilum sem voru í forsvari fyrir sölunni, íslandsbanka, Glitni, Iðnlána- sjóði og Iðnþróunarsjóði. Allir þessir menn voru á einu máli um að taka tilboðinu. Ástæður þess liggja á borð- inu. í fyrsta lagi var fyrirtækið þann- ig selt í einum pakka, og í öðru lagi til flárhagslega sterkra aðila. Þama höfðum við fast land undir fótum, og töldum ekki forsvaranlegt að kasta frá okkur góðu tækifæri til að losna út úr þessu erfiða máli.“ Bragi sagði að það hafi aldrei komið fram hver umbjóðandi Hand- sals hafi verið. „Ég vil benda á að Sól var búið að vera til sölu í heilt ár og því höfðu þessir aðilar ekki kannað málið fyrr? Þetta á ekki að- eins við um Handsal," sagði Bragi. „Einnig hefur komið fram að fram- kvæmdastjóri Handsals átti símtal við stjórnarformann Iðnlánasjóðs. Hann benti henni á að hafa samband við mig og fleiri. Mér er hins vegar ekki kunnugt um að Handsal hafi reynt að ná sambandi við mig í tengslum við þetta mál.“ 740 fiini T AMM NN SMAGROFUR Þær fullkomnustu á markaðnum í dag, hlaðnar nýjungum! Eigum eftirtaldar gerðir á lager til afgreiðslu STRAX á hagstæðu verði: B 19, þyngd 2,1 tonn, langur og breíður undirvagn. B 08, þyngd 850 kg með stillanlegum undirvagni. AMMANN YANMAR gröfurnar hafa nú þegar sannað ágæti sitt við fjölbreyttar aðstæður hér á landi. Ráðgjöf^- Sala - Þjónusta Skútuvogi 12A, 104 Reykjavík Sími 812530

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.