Morgunblaðið - 09.08.1994, Page 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1994
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Tæplega hálfrar aldar formlegu stríðsástandi hefur verið aflétt
Landamærufn ísraels og Jórdaníu. Reuter.
ÍSRAELAR og Jórdanir opnuðu
landamærin milli ríkja sinna í
gær, og bundu þar með formlega
enda á 46 ára stríðsástand. Yitz-
hak Rabin, forsætisráðherra ísra-
els, og Hassan, krónprins af Jórd-
aníu, klipptu á borða á landa-
mæmnum um þremur km norðan
við hafnarbæina Aquaba í Jórd-
aníu og Eilat í ísrael. Að athöfn-
inni lokinni fór Rabin yfir landa-
mærin og til Aquaba og ræddi
þar við Hussein Jórdaníukonung.
Warren Christopher, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, var við-
staddur athöfnina á landamær-
unum.
Sameiginleg yfirlýsing
Israel og Jórdanía gáfu sameig-
inlega út yfirlýsingu um frið milli
landanna í Washington í síðasta
mánuði, þar sem stríðsástandi var
aflétt. Níu fjölskyldur fallinna her-
manna frá hvom ríki hittust á
landamæranum í gær, tókust í
hendur og skiptust á gjöfum.
Gamlir hermenn og háttsettir
embættismenn beggja ríkja gerðu
slíkt hið sama.
„Getum ekki beðið“
„Fólk segir við okkur, atburða-
rásin er of hröð, við getum ekki
fylgst með, farið hægar,“ sagði
Rabin við embættis- og frétta-
menn í gær. „Yðar hátign, kæru
vinir í konungdæmi Hasemíta í
Jórdaníu, við höfum beðið í 46 ár.
Við höfum átt í stríði, liðið kvalir
Landamæri
Jórdaníu og
ísraels opnuð
og þjáningar. Til
að koma í veg
fyrir frekari
missi getum við
ekki beðið svo
mikið sem einn
dag í viðbót."
Að sögn við-
staddra var Rab-
in óvenju glað-
legur, brosti og
veifaði ásamt
krónprinsinum
þegar þeir óku
hjá í bílalest,
sem kom nokkr-
um mínútum síð-
ar til hallar kon-
ungsins í Aqu-
aba.
Vinna
framundan
Við athöfnina
við landamærin
LANDAMÆRI ISRAELS
OG JÓRDANÍU OPNUÐ
Israelar og Jórdanir opnuöu
hlið á landamærum ríkja sinna
eftir 46 ára
formlegt
stríö.
Arava-hliöiö /
reisl á þrem dögum at
verkamönnum beggja ríkjanna,
og veröuropiö teröamönnum frá öörum rikjum.
vitnaði Hassan í
Biblíuna á hebr-
esku. Hann
sagði að ríkin
tvö væru að
breyta „dimm-
um dal í bjarta
von. Látum opn-
un þessa landa-
mærahliðs á
þessum stað
verða undirstöð-
una sem við
byggjum sam-
eiginlega fram-
tíð okkar á,“
sagði krónprins-
inn.
Hann bætti
því við, að vinna
væri enn fram-
undan við óleyst
ágreiningsatriði,
svo sem við að
merkja landa-
mærin, sem stæðu í vegi friðar-
samkomulags.
Christopher er á ferð um Aust-
urlönd nær í þeim tilgangi að ýta
undir friðarviðræður milli ísraela
og Sýrlendinga, sem hafa verið
hvað einarðastir í andstöðu araba-
ríkja við ísraela.
„Múr hefur hrunið“
Við opnunarathöfnina sagði
Christopher að ísraelar og Jórdan-
ir hefðu minnt íbúa þessa heims-
hluta á það hugrekki, samúð og
fórnir sem tvær þjóðir gætu sýnt
í leit sinni að friði. „Múr hefur
hrunið,“ sagði hann.
ísraelum verður nú í fyrsta
skipti kleift að ferðast opinberlega
yfir landamærin til Jórdaníu, svo
fremi sem þeir nota vegabréf frá
öðru landi.
Hússein í landhelgi ísraela
Hússein, konungur Jórdaníu,
bauð Rabin í siglingu á konungs-
snekkjunni eftir fund þeirra í gær,
og sigldu þeir inn í landhelgi Isra-
els á Aqaba-flóa í Rauðahafinu.
ísraelskir varðbátar fylgdu kon-
ungissnekkjunni, þar sem fánar
beggja landa voru við hún. Þetta
er í fyrsta sinn sem konungurinn
siglir opinberlega í landhelgi Isra-
els.
Hann sagði við fréttamenn, áð-
ur en lagt var upp í siglinguna,
að hann vonaðist til þess að leggja
leið sína til ísraels áður en langt
um liði, þótt ekki hefði verið
ákveðið hvenær það yrði.
Túnfiskstríðið
Bretar til
veiða á ný
BRESK fiskiskip héldu í gær á ný
til túnfisksveiða á Biscaya-flóa en
þar hefur geysað túnfiskstríð undan-
farnar vikur. Spánveijar, sem veiða
túnfisk á línu, hafa mótmælt rek-
netaveiðum Breta, Frakka og íra og
reynt að t'rufla veiðar þeirra. Hafa
tvö skip frá breska flotanum verið
send á miðin til að vernda fiskiskipin.
Spænskir sjómenn sögðu í gær
að þeir myndu halda áfram að reyna
að vernda miðin þó svo að það þýddi
að þeir yrðu að skera á net annarra
skipa. Þá hafa þeir sakað Breta og
Frakka um að nota stærri reknet
en leyfilegt er. Spánveijar njóta
stuðnings umhverfissamtakanna
Greenpeace í þessu máli, sem telja
að auk túnfisks komi þúsundir há-
karla og höfrunga í reknetin. Hefur
skip samtakanna, Rainbow Warrior,
verið sent á svæðið.
Elizabeth Stevenson, útgerðar-
maður í Cornwall í suðvesturhluta
Englands, sagði í samtali við BBC
í gær að sjómenn héldu nú á miðin
á ný með sömu löglegu net og þeir
hefðu ávallt notað. William Walde-
grave, landbúnaðarráðherra (sem
fer með sjávarútvegsmál), sagðist
hafa varað spænsk stjómvöld við
því að frekari aðgerðir gegn bresk-
um skipum væru aigjörlega óásætt-
anlegar. „Þeir hafa fullan stuðning
bresku stjórnarinnar til löglegra
veiða. Á meðan þeir nota lögleg net
eiga þeir allan rétt til veiða á svæð-
inu,“ sagði Waldegrave.
Breskir sjómenn hafa hins vegar
kvartað yfir því að breski flotinn
virðist hafa meiri áhyggjur af að
stærð netanna sé ekki meiri en regl-
ur Evrópusambandsins segja til um
heldur en öryggi bresku sjómann-
anna. Um helgina var togarinn
Charisma færður til hafnar á Eng-
landi vegna gruns um að net um
borð væru of stór. Við rannsókn kom
hins vegar í ljós að þau væru innan
skekkjumarka og var togaranum
leyft að fara úr höfn á ný án þess
að kæra væri lögð fram.
Reuter
Hassan, krónprins af Jórdaníu, t.h., og Yitzhak Rabin, forsætisráðherra ísraels, klippa á borða á
landamærum ríkjanna. Á milli þeirra stendur Warren Christopher, utanríkisráðherra Bandaríkjanna.
Ummæli Kohls um stóra sam-
steypustjórn valda titringi
Bonn. Reuter.
KLAUS Kinkel, formaður Fijáls-
lynda demókrataflokksins (FDP) og
utanríkisráðherra Þýskalands, gagn-
rýndi Helmut Kohl kanslara harð-
lega um helgina fyrir að gæla við
þá hugmynd að Kristilegi demó-
krataflokkurinn (CDU) myndaði
samsteypustjöm með Jafnaðar-
mannaflokknum (SPD) eftir kosn-
ingarnar þann 16. október nk. CDU
og FDP hafa myndað stjórn saman
undanfarin þijú kjörtímabil eða í
tólf ár og fyrr á árinu lýstu flokkarn-
ir því yfir að þeir hefðu hug á að
halda samstarfinu áfram á næsta
kjörtímabili. CDU og SPD, tveir
stærstu flokkar Þýskalands, hafa
einungis einu sinni starfað saman í
svokallaðri „stórri samsteypustjórn“
frá stríðslokum.
Kinkel sagði óskiljanlegt að kansl-
arinn hefði rætt þennan möguleika
opinberlega. „Þegar öllu er á botninn
hvolft þá hefur hann lagt spil sín á
borðið og lýst því yfir að hann vilji
áframhaldandi samstarf við FDP og
að hann telji það vera framkvæman-
legt,“ sagði Kinkel í viðtali við þýska
útvarpið á sunnudag.
Kohl er nú í sumarfríi í Austur-
ríki en í viðtali við austurríska sjón-
varpsstöð í síðustu viku sagði hann
að æskilegustu úrslitin væru að nú-
verandi stjórnarsamstarf gæti hald-
ist en að „allir lýðræðisflokkarnir"
ættu í raun að geta starfað saman.
Þó að kanslarinn hafí síðar lýst því
yfir að allar vangaveltur vegna þess-
ara ummælu séu „út í hött“ gætir
mikils titrings innnan FDP.
Jafnaðarmenn hafa hins vegar
tekið kanslarann á orðinu og sagt
að greinilega telji hann orðið tíma-
bært að þeir komist til valda og að
hann telji ólíklegt að stjórn hans
vinni sigur í október. Hins vegar
útiloka þeir samstarf við kristilega
demókrata. „CDU hefur orðið fyrir
miklu fylgistapi og varaskeifa sam-
steypustjórnarinnar, FDP, er ónýt.
Við viljum ekki taka að okkur hlut-
verk hinnar ónýtu varaskeifu,"
sagði Rudolf Scharping, formaður
SPD.
Staða
Kútsjma
styrkist
STAÐA Leoníds Kútsjma, ný-
kjörins forseta Úkraínu, er tal-
in hafa styrkst á þingi landsins
í aukakosningum sem fram
fóru um helgina. Kosið var í
27 þingsæti og flest þeirra féllu
í skaut óháðra frambjóðenda,
framkvæmdastjóra ríkisfyrir-
tækja og sveitarstjórnamanna,
og aðeins þrír eru skráðir í
kommúnistaflokknum.
Bananabanni
aflétt
SÝRLENSKIR kaupmenn geta
nú flutt inn banana í fyrsta
sinn í 20 ár. Ráðuneyti utan-
ríkisviðskipta tilkynnti í gær
að bann við slíkum innflutningi
hefði verið aflétt. Stjórnvöld í
Sýrlandi höfðu aldrei gefið upp
ástæðu bannsins.
Samper sver
forsetaeið
ERNESTO
Samper sór
embættiseið
sem forseti
Kólumbíu á
sunnudag og
boðaði harð-
ari aðgerðir
gegn eitur-
lyfjasmygli
og herferð
gegn morðum í landinu. Ljóst
er að hann á erfitt verk fyrir
höndum því að jafnaði er morð
framið með 20 mínútna milli-
bili í landinu og þijú mannrán
á dag, auk þess sem eiturlyfja-
smyglhringar tröllríða þjóðfé-
laginu.
Gamsky sigr-
ar Anand
BANDARÍSKI skákmeistarinn
Gata Kamsky sigraði Indveij-
ann Vishwanathan Anand í
bráðabana og tryggði sér þar
með rétt til þátttöku í undan-
úrslitum áskorendaeinvígja Al-
þjóðaskáksambandsins (FIDE).
Skákmennirnir voru jafnir, með
fjóra vinninga hvor, að aflokn-
um átta skákum og urðu því
að fara í bráðabana. Fyrir ein-
vígið hafði Anand sigrað Kam-
sky sex sinnum og aðeins tapað
einu sinni.
Yopnin sýnd
SVEIT lögreglumanna í Lund-
únum, sem gegnir því hlut-
verki að vernda stjórnmála-
menn og stjórnarerindreka,
fékk í fyrsta sinn í gær að
ganga með skammbyssur ut-
anklæða. Undanfarin tuttugu
ár hefur sveitin aðeins mátt
bera vopnin innanklæða, þann-
ig að enginn sæi þau.
Kynlíf ráð við
höfuðverk
ENGIN ástæða er til að hafna
kynmökum sökum höfuðverkj-
ar, að sögn breska sérfræð-
ingsins Kaye Wellings, sem
skrifar um þetta grein í tíma-
ritið Which Way to Health.
Hún segir reyndar að kynlíf
geti verið jafn gott ráð við
höfuðverk og aspirín. Hormón-
ar sem framleiddir eru við
kynmök hafi kvalastillandi
áhrif og skapi sælutilfinningu.
Samper