Morgunblaðið - 09.08.1994, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1994 15
Yfirmaður friðargæsluliðsins í Bosníu með nýja tillögu
Vill herlaust svæði
umhverfis Sarajevo
Sar^jevo, Belgrad. Reuter, The Daily Telegraph.
SIR Michael Rose, yfirmaður friðar-
gæsluliðs Sameinuðu þjóðanna í
Bosníu, iagði til í gær að myndað
yrði herlaust svæði umhverfis
Sarajevo til að binda enda á árásir
leyniskyttna á borgina.
Rose reyndi í gær að koma á fundi
við yfirmann hersveita Bosníu-Serba,
Ratko Mladic hershöfðingja, til að
ræða tillöguna. Rose leggur til að
allir hermenn verði fluttir á brott af
svæðinu og að þeir geti tekið vopn
sín með sér. Áður höfðu Sameinuðu
þjóðimar bannað öll þungavopn innan
við 20 km frá Sarajevo.
„Rose hershöfðingi telur að þetta
myndi auka öryggi Sarajevo-borgar
til muna,“ sagði Claire Grimes, tals-
maður Sameinuðu þjóðanna.
Mladic hafði ekki svarað tillög-
unni í gær. Serbneskar leyniskyttur
hafa haft sig mjög í frammi að und-
anförnu í grennd við Sarajevo. Heim-
ildarmenn í Sarajevo sögðu í gær
að skyttur Sameinuðu þjóðanna
hefðu drepið eina eða tvær serbnesk-
ar leyniskyttur um helgina. Serb-
nesku skytturnar hefðu hætt að
skjóta á borgina eftir það.
Mikil spenna hefur verið í
Sarajevo frá því Atlantshafsbanda-
lagið gerði loftárás á Serba á föstu-
dag til að refsa þeim fyrir að taka
þungavopn af friðargæsluliðum
Sameinuðu þjóðanna í Sarajevo.
Bosníu-Serbar hafa einangrast
vegna þeirrar ákvörðunar Slobodans
Milosevics, forseta Serbíu, að slíta
sambandi við þá til að knýja þá til
að undirrita friðaráætlun sem fimm
ríki hafa beitt sér fyrir. Hundruð
vörubíla hafa þurft að snúa við til
Serbíu frá landamærunum að Bosníu
frá því þeim var lokað í vikunni sem
leið. Radovan Karadzic, leiðtogi Bos-
níu-Serba, hefur fyrirskipað þegn-
skylduvinnu til að bæta upp við-
skiptabannið.
DQUpHIN
*‘r».
Varahluta -og
viðgerðaþjónusta.
Stólarnir eru settir saman
hjá Pennanum og einnig
bólstraðir hérlendis eftir
óskum kaupenda t.d.
með íslensku áklæði,
já - takk!
SKRIFSTOFUHÚSGÖGN
Hallarmúla 2, 108 Reykjavík
■ff 813509, 813211. Fax 689315
ERLENT
Hundruð þúsunda
styðja Fidel Kastró
ALLT að sex hundruð þúsund
Kúbverjar söfnuðust saman á
Byltingartorginu í Havana, höf-
uðborg Kúbu, á sunnudag til að
sýna stjórn Fidels Kastró stuðning
sinn og votta aðstandendum lög-
reglumanns, sem lét lífið er ferju
var rænt á föstudag, samúð sína.
Mannfjöldinn veifaði fánum,
söng byltingarsöngva og þjóð-
söng Kúbu. Ulises Rosales, varn-
armálaráðherra landsins, hélt
ræðu, þar sem hann sakaði
Bandarikjamenn um að ýta undir
óróleika í landinu og reyna að
efna þar til „blóðbaðs".
Boðað hafði verið til fundarins
til að heiðra minningu nílján ára
gamals lögreglumanns, Lamoths
Caballeros, sem féll á fimmtudag
er ferju var rænt við Kúbu og
reynt að sigla henni til Bandaríkj-
anna.
Tilgangur fundarins var hins
vegar einnig að reyna að sýna
styrk stjórnarinnar eftir hörð
átök lögreglu og mótmælenda í
borginni á föstudag þar sem 35
særðust, þar á meðal tíu lögreglu-
menn.
Sarajevo-búar skýla sér á bak við bryndreka franskra friðar-
gæsluliða vegna árásar serbneskra leyniskyttna.
Meiri Gæði
Lægra Verð
Nú er ódýrara en áður að auka afköst og vellíðan starfsfólksins.
23.900kr
á3JJríSJí58,’
29.900kr
áð1ir-t2S47‘'
174.700
leður.
26.900
áðUr35Æ?8‘'
82.538kr
áðjjrfSÆfS ‘"
jSÖStórlækkað verð vegna hagstæðra magnkaupa og betri
samninga. jfflFullkomnari stólar á betra verði en nokkru
sinni. jÖTil afgreiðslu samdægurs. t»sjö daga reynslutími.
114.914kr
leður 141.539“
39.873kr
áðutS&4SÍ“
N-Kórea
ennán
forseta
Seoul. Reuter.
MÁNUÐI eftir andlát Kims II-
sungs, „leiðtogans mikla“ í
Norður-Kóreu, hefur eftirmað-
ur hans ekki enn verið settur
formlega í embætti forseta og
flokksleiðtoga.
Leiðtogar landsins komu
saman við hátíðlega athöfn fyr-
ir framan risastóra styttu af
Kim Il-sung í Pyongyang í gær
og lofuðu að „hafa félaga Kim
Jong-il [son leiðtogans fyrrver-
andi] í hávegum í forystu
flokks, ríkis og hers“. Þeir til-
nefndu hann þó ekki í embætti
forseta og leiðtoga flokksins,
sem faðir hans gegndi.
„Þessi yfirlýsing staðfestir
að Kim Jong-il er enn í æðstu
forystusveitinni en hvað sem
veldur þessu er það óvenjulegt
fyrir hvaða land sem er að hafa
ekki forseta," sagði Cha Yo-
ung-koo, hjá rannsóknarstofn-
un á sviði varnarmála í Seoul.
„Svo virðist sem Norður-Kóreu-
menn eigi enn eftir að leysa
einhverjar innanríkisdeilur.“
Að sögn embættismanns í
sameiningarráðuneyti Suður-
Kóreu hafa komið fram vís-
bendingar um að nokkrir menn
innan hersins stigi hratt upp
valdastigann.