Morgunblaðið - 09.08.1994, Síða 17

Morgunblaðið - 09.08.1994, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1994 17 LISTIR Til Þorvaldar Þorsteinssonar LISTRÝNIRINN þakkar ábend- ingu með virktum, þó af frekar afleitu tilefni sé, því jafnan er leið- inlegt að sjá ranglega farið með nöfn sín á opinberum vettvangi, en það er þó sýnu neyðarlegra fyrir þann sem skrifar að fremja slík ósköp. Þetta reyna allir sem í blöð skrifa að varast, en það getur kom- ið fyrir að menn leiki af sér og þá ber að leiðrétta það, en mér hafði ekki borist nein ábending og þann- ig illu heilli ekki fengið tækifæri til þess. Svona mistök verða eink- um, þegar maður er í þeirri trú, að útilokað sé að þau geti komið fyrir. Þetta er eins og í umferð- inni, en slysin verða helst þar sem menn ugga ekki að sér. Fyrrum kom það fyrir, að nöfn brengluðust á leiðinni á síður SÝNING á kveðskap Egils Skalla- grímssonar verður opnuð að Kjarv- alsstöðum miðvikudaginn 10. ágúst klukkan 17.00. Egilssaga rekur ævi Egils Skallagrímssonar. Sagan rís hæst í þeim kveðskap sem eignaður er hinni stríðlunduðu hetju. Hann orti dróttkvæði sem eru með glæsi- legustum skáldskap af þeim meiði. Sú braglist var flókin og fólu skáldin merkinguna í torskildum kenningum og orðaflækjum. Vísa var ekki skilin nema ratað væri um völundarhús heiðinnar goðafræði og flókið lík- ingamál ráðið. blaðsins, einkum væru þau óvenju- leg og flókin, en nú á tímum tölvu- tækni er í flestum tilvikum við okkur höfundana eina að sakast. Hér er ég þannig í hlutverki söku- dólgsins og bið Þorvald Þorsteins- son vitaskuld afsökunar, einnig Þórdísi Þorvaldsdóttur. Verður þetta áreiðanlega til að ég gæti mín betur í framtíðinni. Hins vegar vil ég koma því á framfæri, að möguleikinn á slíkum mistökum telst margfalt minni ef menn hafa skilvirka sýningarskrá milli hand- anna til að styðjast við. Spurðist ég strax fyrir um skrá eða ein- hveijar upplýsingar í fyrstu heim- sókn af fjórum, og fékk þau svör að allar upplýsingarnar væru á skilti við innganginn. Ágæt fram- kvæmd en ekki nóg og auk þess hvergi tæmandi. Egill orti til Eiríks konungs blóð- axar í Jórvík, Arinbjarnarkviðu lof- kvæði um góðvin sinn, og Sonatorrek erfikvæði um syni sína. Einnig eru varðveitt brot úr þremur drápum og fjölmargar lausavísur eignaðar Agli. List dróttkvæða er framandi nú- tímamanninum. Hann verður að læra að ferðast um nýjan myndheim, gefa sig á vald hinni einkennilega heill- andi hrynjandi og hrífast. Sýningin er opin daglega til 11. september frá klukkan 10.00-18.00. Kaffistofa Kjarvalsstaða verður opin á sama tíma. í annarri heimsókn bað ég stúlk- una á pósthúsinu að stimpla fyrir mig á ljóðakort sem hún gerði fús- lega, en það tók hana nokkurn tíma og margar tilraunir, að ná fram sæmilega skýrum stimpli og birt- ingarhæfan í blaðið. Að lokum vil ég vísa því á bug, að svo hafi virst af skrifum mínum, að sýningin á stigapallinum tengd- ist sýningu þinni, því ég tók hana sérstaklega til meðferðar í lokin, og greinilega er tekið fram í upp- hafí að höfundar framkvæmdanna eru þrír. Lína til Þorfinns Sigurgeirssonar Hvað Þorfinn Sigurgeirsson áhrærir, biðst ég ekki afsökunar á að hafa skoðanir, enda var ég ráð- in til biaðsins fyrir margt löngu til að láta ljós mitt skína á vettvangi myndlistar. Það virðist þó hafa far- ið framhjá einhverjum, og einkum þeirri kynslóð sem heidur að listin hafi byijað með þeim, en á undan hafi einungis verið tóm. En hvað listaskóla snertir, væri ýmsum hollt að fara úr fyrir mörk skólalóðarinnar og hlýjunnar þar inni, skoða söfn og glugga í skrif um listir, og skyldu menn þá ekki uppgötva að miklar umræður hafa átt sér stað um stöðu listaskóla á undanförnum árum? Það á ekki skylt við neinn pirr- ing, en staðreyndin er sú að sumum myndlistarskólum hefur verið breytt úr leikskólum og „cosy corn- er“ fáránleikans, í alvöru listaskóla þar sem m.a er kennd teikning, lita- fræði og myndbygging og nemend- um er haldið við efnið allann lið- langan daginn! Bragi Ásgeirsson Nýr fram- kvæmdastjóri Islenska dans- flokksins VILBORG Gunnarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmda- stjóri íslenska dansflokksins frá 1. september næstkomandi. Vilborg lauk prófi í viðskipta- fræði af endur- skoðunarsviði viðskipta- og hag- fræðideildar Háskóla íslands í júní 1992. Frá 1. janúar 1993 starfaði hún sem viðskiptafræðingur hjá Skattstjóranum í Reykjavík. Vilborg er gift Lárusi Bjöms- syni, ljósameistara Borgarleik- hússins, og eiga þau tvær dætur. Nýjar bækur ■ Die Kiiche Islands eftir Ma- ritu Bergsson er komin út hjá Mál og menningu. Hér er um að ræða kver með íslenskum upp- skriftum ætlað þýskumælandi ferðamönnum og áhugafólki. Höf- undur telur að sérkenni íslenska eldhússins sé fólgið í í hve hráefn- ið sé iðulega ferskt og gott. í bókinni er því lögð áhersla á fisk- og lambakjötsrétti en einnig eru í henni smáréttir, súpur, græn- metisréttir, brauð og kökur. Sýnt er hvernig á að baka kleinur og skera út laufabrauð. Marita Bergsson er Þjóðveiji, búsett í Diisseldorf ásamt íslenkum eigin- manni sínum. Hún starfar sem kennari en hefur einnig fengist við þýðingu íslenskra bókmennta á þýsku. Die Kuche Islands er 64 blaðsíður að stærð, , mynd- skreytt af Erlingi Páli Ingvarssyni og unnin í Prentsmiðjunni Odda h.f. Hún Kostar 590 kr. PowerPoint námskeið 94028 Tölvu- og verkfræðibjónustan Tölvuskóli Halldórs Krisljanssonar Grensásvegi 16 • © 68 80 90 611720 Kveðskapur Egils Skallagrímssonar Vilborg Gunnarsdóttir URVAL NOTAÐRA BILA HONDA ACCORD EXI 2000, árg. '91, sjálfsk., 4ra dyra, rauöur, ek. 53 þ. km. Verö 1.380 þús. TOYOTA COROLLA 1300, árg. '89, 5 gfra, 4ra dyra, gullsans., ek. 76 þ. km. Verö 590 þús. NISSAN SUNNY 1500, árg. '88, 5 gíra, 4ra dyra, rauöur, ek. 73 þ. km. Verö 490 þús. MMC GALANT 2000, árg. '89, sjálfsk., 4ra dyra, hvítur, ek. 55 þ. km. Verö 890 þús. DAIHATSU CHARADE 1300, árg. '93, 5 gíra, 4ra dyra, grænn, ek. 4 þ. km. Verö 940 þús. DAIHATSU CHARADE 1300, árg. '90,5 gíra, 4ra dyra, blár, ek. 30 þ. km. Verö. 680 þús. OPEL KADETT, árg. '88, 5 gfra, 5 dyra, brúnn, ek. 71 þ. km. Verö 390 þús. LADA SAMARA 1500, árg. '91, 5 gfra, 5 dyra, vfnrauöur, ek 32 þ. km. Verö 420 þús. LADA STATION 1500, árg. '91, 5 gfra, 5 dyra, hvítur, ek. 46 þ. km. Verö 370 þús. FORD ORION, árg. '87, sjálfsk., 4ra dyra, brúnn, ek. 109 þ. km. Verö 350 þús. DAIHATSU CHARADE 1000, árg. '88, S gfra, 5 dyra, rauöur, ek. 91 þ. km. Verö 350 þús. MMC LANCER 1500, árg. '91, 5 gfra, 5 dyra, brúnn, ek. 43 þ. km. Verö 980 þús. BMW 316 1800, árg. '87, 5 gfra, 4ra dyra, hvftur, ek. 73 þús km. Verö 590 þús. HYUNDAI SONATA 2000, árg. '93, sjálfsk., 4ra dyra, vínrauöur, ek. 53 þ. km. Verö 1.250 þús. LADA SPORT 1600, árg. '93, 5 gfra, 3ja dyra, vinrauöur, ek. 15. þ. km. Verö 740 þús. Greiðslukjör til allt að 36 mánaða án útborgunar irS 1 yUII KifeRrli Opið virka daga kl. 9-6, laugardaga kl. 10-14. I»> NOTAÐIR BIIAR 814060/681200 LADA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.