Morgunblaðið - 09.08.1994, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1994 21
hygli hér á, því ég hef lengi undr-
ast hve okkur hér á útskerinu er
tamt að sjást yfir velgengni ein-
stakra á erlendri grund, en hampa
öðrum, og einkum ef viðkomandi
hafa svipaðar skoðanir í listum.
Um langt árabil átti t.d. Guðmund-
ur Erró engan veginn upp á pall-
borðið hjá obbanum af íslenzkum
myndlistarmönnum og þeir tóku
sumir hveijir eindregna afstöðu
gegn myndlist hans, þrátt fyrir
umtalsverða frægð listamannsins í
Frakklandi og víðar. Þá vanrækti
Listasafn Islands, sem önnur söfn,
að festa sér öndvegisverk frá hans
hendi, sem nú eru að fullu glötuð
til erlendra safna. Jafnframt hefur
lánleysi íslenzkra stjórnmálamanna
á síðustu árum varðandi byggingu
yfir málverkagjöf hans, illu heilli
vakið upp andúð í garð hugmyndar-
innar hjá ýmsum fulltrúum yngstu
kynslóðarinnar.
Mér er kunnugt um að Karólína
er í svipaðri aðstöðu núna og hér
gengur íslendirigum auðsjáanlega
illa að læra af reynslunni, því að
um er að ræða þröngsýni af svipuð-
um toga.
Við þetta má bæta, að fyrrnefnd
Elínbjört, sem var stödd í London,
gerði sér ferð til Cambridge og
skoðaði sýninguna. Hitti þar fyrir
listakonuna sjálfa, sem sagðist ekki
í annan tíma hafa fengið jafn góð-
ar viðtökur á Englandi, hvorki hvað
fjölmiðla né sölu snerti, en af 54
myndverkum á sýningunni, sem
skiptust í málverk, grafík, og
vatnslitamyndir, voru einungis 6
óseld!
Skyldi þessi sala og velgengni
ekki vera heilbrigðari og vega
þyngra en allar opinberar flipp og
flugeldasýningar Islendinga á Þjóð-
hátíðarári í Lundúnarborg?
í ljósi þessa þurfa væntanlega
einhveijir að líta sér nær.
Bragi Ásgeirsson
Sumarmisseri
er handan við homið
HÁSKÓLARÁÐ
samþykkti síðastliðinn
fimmtudag tillögu
stúdenta um að stefna
að kennslu yfir sumar-
tímann við Háskóla ís-
lands, til reynslu sum-
arið 1995. Um yrði að
ræða vísi að sumar-
misseri, sem þó yrði
miklu minna í sniðum
en venjulegt kennslu-
misseri að vetri. Ráð-
gert er að Háskólinn
taki á sig fastan kostn-
að við sumarnámskeið
svo sem kostnað við
húsnæði, ræstingu og
umsýslu. Sérstökum
sjóði er hins vegar ætlað að standa
straum af kostnaði við kennslu.
Sumarnámskeið verða að veruleika
takist stúdentum að afla fjár í
þennan sjóð um sumarmisseri.
Leitað hefur verið til ráðuneyta
menntamála og félagsmála auk
Reykjavíkurborgar og hefur mark-
ið verið sett á að tryggja þessari
tilraun 30 milljónir króna. Það velt-
ur nú á þessum aðilum hvort af
sumarmisseri verður.
Nám í stað aðgerðaleysis
Sumarmisseri myndi gera at-
vinnulausum stúdentum kleift að
stunda nám yfir sumartímann í
stað þess að sitja auðum höndum
eða nýta sér kostnaðarsama at-
vinnubótavinnu. Ekki ætti að
standa á áhuga stúdenta sem hafa
Kjartan Örn
Ólafsson
þegar sýnt að þeir
vilja nýta sumarið til
vinnu í tengslum við
námið með mikilli
ásókn í Nýsköpunar-
sjóð námsmanna.
Ekki væri þó um laun-
aða vinnu að ræða á
sumarmisseri heldur
lánshæft nám, fullgilt
til eininga.
Sumarmisseri nýt-
ist ekki eingöngu at-
vinnulausum stúdent-
um. Það opnar leið til
að dreifa vinnuálagi
vegna háskólanáms
yfir allt árið og auð-
veldar námsmönnum
að mæta síauknum kröfum Lána-
sjóðs íslenskra námsmanna um
námsframvindu, auk þess sem það
flýtir fyrir útskrift, styttir náms-
tíma og hraðar þannig ferðinni út
á almennan vinnumarkað.
Oðruvísi námskeið
Námskeið á sumarmisseri verða
styttri en gengur og gerist á haust-
og vormisseri og miðast meira við
sjálfsnám. Þannig líta stúdentar á
sumarmisserið sem fyrsta skrefið
í átt til breyttra kennsluhátta og
Sumarnámskeið við
Háskólann verða að
veruleika, segir Kjart-
•• *
an Orn Olafsson, tak-
ist stúdentum að
afla fjár í sjóð til
þeirrar starfsemi.
sjálfstæðari vinnubragða náms-
manna. Nám á sumarmisseri verð-
ur fullgildur hluti háskólanáms,
gerðar verða sömu kröfur til nem-
enda og kennara eins og á vetr-
arnámskeiðum og námskeiðum
sumarsins þarf að ljúka með sams
konar námsmati, þ.e. haustprófum,
ritgerð eða lokaverkefni.
Sjóður um sumarmisseri
Með samþykkt Háskólaráðs hef-
ur verið búið svo um hnútana að
allt það fé sem rennur í sjóð um
sumarmisseri nýtist til að greiða
kennurum laun en fer ekki í skrif-
stofuhald og stofnkostnað. Pram-
lag til sjóðs um sumarmisseri mun
Vísual Basic námskeið
Tölvu- og verkfræöiþjónustan Tölvuskóli Halldórs Kristjanssonar
94023 5 Grensásvegi 16 • © 68 80 90
því gjömýtast skólafólki og at-
vinnulausum, þeim sem námskeið-
in eru ætluð. Auk þess gæti sumar-
misserið orðið liður í endurmennt-
unarstefnu stjórnvalda.
Þrjátíu milljónir
Sumarmisseri er ekki hugsað
sem allsherjarlausn á atvinnuvand-
anum heldur sem ein leið til að
taka kúfinn af offramboði á vinnu-
afli yfir sumartímann og draga
þannig úr atvinnuleysi. Stúdentar
hafa lagt á sig mikla vinnu til að
koma þessu máli fram. Sumarmiss-
eri er handan við hornið. Það er í
valdi fjárveitingavaldsins hvort
fleiri skref verða stigin, hvórt
kennt verður á sumarmisseri við
Háskóla íslands.
Höfundur er varaformaður
Stúdentaráðs Háskóla Islands.
SERTILBOÐ
ó 15 og 18 gíra
fjallahjólum.
Fóein eintök af
metsölufjaliahjólinu
JAZZ by TREK.
Dæmi:
TREK USA, Model 800 (18 gíra Shimano,
krómólý stell í mörgum stærbum,
26" gjarbir og ótaksbremsur)
ó kr. 22.054 stgr. (óbur kr. 27.935 stgr.).
JAZZ fjallohjc
Mjúkur findcL
Krómólý létt-
mafmstel/ með Beint
*vilangri óbyrgð \
Átafes-
bremsur
TREK USA, Model 820 (21 gírs,
grípskiftir krómólý stell í mörgum
stærbum,26" gjarbir og ótaksbremsur)
ó 27.527.stgr. (óbur 34.868.stgr.)
EINNIG MARGAR FLEIRI GERÐIR FJALLAHJOLA,
GÖTUFJALLAHJÓLA, HEFÐBUNDINNA HJÓLA
OG BARNAHJÓLA FRÁ BANDARÍKJUNUM,
ÞÝSKALANDLFRAKKLANDI, DANMÖRKU
OG HOLLANDI.
Breið gróf-
mynsfruð
Sterkar ólfelt
SUMARTILBOÐIÐ
STENDUR AÐEINS
í 10 DAGA
ORNINNP'
SKEIFUNNI V V
VERSLUN SÍMI889890 VERKSTÆÐISÍMI889891
OPIÐ
LAUGARDAGA
KL. 10-14
RAÐGREIÐSLUR
ALVEG EINSTAKT TÆKIFÆRI TIL AÐ EIGNAST KJORGRIP A TOMBOLUVERÐI
7
\ 3» 1
( mÆ 3 I / ssl