Morgunblaðið - 09.08.1994, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 09.08.1994, Blaðsíða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1994 MINNING MORGUNBLAÐIÐ + Þórður Run- ólfsson fæddist i Saltvík á Kjalar- nesi 15. september 1899. Hann lést á Hrafnistu í Reykja- vík 31. júlí 1994. Foreldrar hans voru Runólfur Þórðarson bóndi þar og kona hans Kristín Jónsdóttir. Hann var næstelst- ur af sjö börnum þeirra hjóna. Þórð- ur kvæntist 3. júlí 1906 Sigríði Gísla- dóttur, f. 27. júlí. 1904, d. 7. október 1991. Sigríð- ur var dóttir hjónanna Gísla Geirmundssonar útvegsbónda í Vestmannaeyjum og konu hans Jakobínu Hafiiðadótt.ur. Þórður og Sigríður áttu tvö börn, Run- ólf efnaverkfræðing, verk- smiðjustjóra í Áburðarverk- smiðjunni, en kona hans er Hild- ur Halldórsdóttir, og Jakobínu, deildarstjóra hjá Rauða krossi íslands. Barnabörn, barna- barnabörn og barnabama- barnabörn Þórðar eru 27. Þórð- ur lauk sveinsprófi í járnsmíði 1920, vélsljóraprófi frá Vélskóla Islands 1921. Hann stundaði síð- an véltækninám við Mittweida Technikum í Saxlandi og lauk þaðan véltæknifræðiprófi 1925. Þórður var verksmiðjustjóri í fiskimjölsverksmiðju Gísla J. Johnsen í Vestmannaeyjum 1925-1926, kenndi við mót- ornámskeið Fiskifélags íslands ÞEGAR Runólfur frændi minn hringdi í mig á sunnudagsmorgni 31. júlí sl. og skýrði mér frá andláti Þórðar föður síns og föðurbróður míns þá um nótt- ina mætti ætla að sú fregn hafi ekki átt að koma mér á óvart. Þórður var orðinn háaldraður maður, rúmur mán- uður í 95 ára afmælið sem er hærri aldur en flestir ná nú til dags. Og þó, hann var alltaf svo hress í bragði, teinréttur og hnarreistur, hugurinn skýr og fijór til hins síðasta og ekk- ert sem benti til þess að endalokin væru í nánd. Ég minnist þess sem ungur dreng- ur í Keflavík að heimili Þórðar og fjölskyldu hans í Reykjavík var jafn- an áningastaður minnar fjölskyldu, þegar reka þurfti einhver erindi í höfuðstaðnum, innfrá eða inni í Reykjavík eins og það kallast þar suður frá. Og elsta minning mín frá höfuðstaðnum er frá því er ég, lík- lega sex eða sjö ára að aldri, var sendur í fyrsta sinn til tannlæknis og dvaldist þá nokkra daga á heim- ili hans við Bárugötu 9. Ekki man ég sérstaklega eftir því að ég kynnt- ist Þórði mikið í það skiptið, kannski hefur hann ekki verið í bænum - á þeim árum var hann mikið á ferða- lögum um landið vítt og breitt í starfi sínu sem vélaeftirlitsmaður ríkisins. En ég man vel eftir því, þegar hann kom til Keflavíkur í embættis- erindum til að taka út fiskimjölsverk- smiðju sem faðir minn rak á þessum tíma. Þótti mér mikið kom til færni frænda míns og þekkingar á öllum þeim hjólum og öxlum, færiböndum og sniglum, þurrkurum og blásurum og öllum þeim tækjum öðrum sem ég þekkti hvorki haus né sporð á. Er mér ekki grunlaust um að á þeim árum hafí tekið að mótast sú ákvörð- un mín um starfsvettvang sem ég síðan tók. Við Þórður áttum síðan eftir að kynnast miklu betur, þegar ég í byij- un hemáms Breta 1940 hélt enn inn eftir til að þreyta inntökupróf_ í Menntaskólann í Reykjavík. Ég stóðst prófið og var í menntaskólan- um næstu sex árin. Af þeim var heimili Þórðar mitt heimili í fjögur ár, þangað til mínir foreldrar fluttust til borgarinnar. Hlýnar mér alltaf um hjartarætur þegar ég minnist þess- ara fjögurra ára á fallegu og hlýlegu heimili þeirra Þórðar og Sigríðar við Hávallagötu 27. Fann ég aldrei ann- að en að ég væri einn af fjölskyld- unni og stæði jafnfætis bömum þeirra, Runólfí og Jakobínu. á árunum 1925- 1929 og í Vélskóla íslands 1931-1934 og 1949-1975, samdi reglugerðir um verksmiðju- og vélaeftirlit fyrir rík- isstjórn íslands 1928- 1929, var eft- irlitsmaður við Verksmiðju- og vélaeftirlit ríkisins 1929- 1940, verk- smiðjuskoðun- arstjóri 1940-1952 og öryggismála- stjóri 1952-1970. Hann teiknaði og hafði eftirlit með byggingu Síld- arverksmiðju ríkisins á Siglu- firði 1934-1935, teiknaði og sá um byggingu á síldarversmiðju Ing ólfs hf. á Ingólfsfirði 1942- 1943 og var í byggingarnefnd og teiknaði Síldarverksmiðjur ríkisins á Siglufirði og Skaga- strönd 1945-1946. Hann var fulltrúi íslands í samstarfsnefnd Norðurlanda um öryggisbúnað við vinnu (NAPS) 1947-1962. Þórður var sæmdur riddara- krossi Dannebrogsorðunnar 1959 og riddarakrossi íslensku Fálkaorðunnar 1969. Þórður var virkur félagi í Oddfellow- reglunni til dauðadags og hafði verið sæmdur 60 ára fornliða- merki reglunnar fyrir nokkrum árum. Útför Þórðar fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 9. ágúst kl. 14.30, en jarðsett verð- ur í Fossvogskirkjugarði. Á þessum árum var Þórður stór- virkur við teikniborðið inni á Bolabás eða Boló eins og vinnuherbergi hans var kallað. Urðu þar til margar síld- arverksmiðjur sem síðar voru reistar, t.d. á Ingólfsfírði, Skagaströnd og Siglufirði. Hann tók einnig þátt í hugmyndasamkeppni sem efnt var til af hálfu hins opinbera og hlaut viðurkenningar fyrir. Voru þar á meðal hugmyndir að 10 þúsund mála síldarverksmiðju og íslenskum fram- tíðartogara. Þórður var framúrskarandi lista- maður við teikniborðið og var ég löngum stundum inni hjá honum og fylgdist með honum við vinnu. Og það hef ég fyrir satt, að í hugmynda- samkeppni þar sem nafnleynd ríkti, eins og þeim sem fyrr greinir frá, hafí dómarar ekki þurft að velkjast í vafa um höfundinn þegar Þórður var annars vegar. Með starfí sínu við Verksmiðju- og vélaeftirlitið og síðar sem örygg- ismálastjóri vann Þórður löngum við kennslustörf, Iengt við Vélskóla ís- lands þar sem hann kenndi allt til 75 ára aldurs. Þegar ég kom heim frá námi kenndi ég í nokkur ár við Vélskólann og kynntist þar þessari hlið á störfum hans. Sá ég þá og heyrði að hann var framúrskarandi kennari, þótti strangur en var vel metinn og dáður af sínum nemend- um. Því að Þórður var ekki aðeins kennari sinna nemenda heldur líka góður félagi og vinur og það kunnu þeir að meta. Þórðir var létt um að tjá sig í ræðu og riti, og eftir hann liggja margar greinar í blöðum og tímarit- um um örygismál, sem hann skrifar í nafni embættis síns sem öryggis- málastjóri. Þá liggja eftir hann nokkrar bækur, einkum kennslu- bækur, því að ekki var um auðugan garð að gresja á þeim sviðum sem hann kenndi. Má þar nefna kennslu- bækur í Mótorfræði (1928) og í Vatnsvélafræði (1952) auk Bókar- innar um bílinn (1952), sem hann þýddi og endursamdi að hluta. En sú bók eftir hann sem er í mestum metum hjá mér er handskrifuð út- gáfa af Kennslubók í burðarþols- fræði, kennsluefni sem hann tók saman fyrir nemendur sína í Vélskó- lanum og var gefíð út 1975, um það leyti sem hann hætti kennslu við skólann. Kemur þar vel fram hve vel honum fórst úr' hendi framsetning efnisins, mjög læsilega skrifað rit með hans failegu rithönd ásamt skýr- ingarmyndum sem hann teiknaði svo snilldarlega, þá kominn á átt.ræðis- aldur. Listfengi Þórðar takmarkaðist ekki við teikniborðið því að hann hafði alltaf mikla unun af því að mála, bæði olíulitum og vatnslitum. Einkum fékkst hann við að mála landslagsmyndir og munu skipta hundruðum þær myndir eftir hann sem prýða veggi ættingja og vina. Málverkið var sú tómstundaiðja sem hann undi glaður við á sínu ævi- kvöldi og þykist ég þess fullvisss að lífsánægja hans og góð heilsa fram til hins síðasta hafí ekki síst verið því að þakka. Ég vil ljúka þessum fátæklegu orðum mínum um Þórð færnda minn með þökkum til hans fyrir allt sem hann var mér alla tíð og ekki síst á mínum mótunarárum. Börnum hans og tengdadóttur, Runólfí, Jakobínu og Hildi, og fjölskyldum þeirra sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Þorbjörn Karlsson. Það er sárt að missa sína nán- ustu, en það má segja að afi hafí verið okkur systkinunum sem faðir. Heimili afa og ömmu var okkar ann- að heimili á uppvaxtarárunum og um tíma þegar við systumar vorum í menntaskóla bjuggum við hjá þeim. Afí var tæplega 95 ára gamall þegar hann andaðist, en þrátt fyrir háan aldur var hann ótrúlega ern og lífsglaður. Minningarnar eru margar. Afí var einstaklega fróður og vel menntaður maður. Hann sýndi alltaf öllu þvi sem við tókum okkur fyrir hendur mikinn áhuga og hafði mikinn metnað fyrir okkar hönd. Hann mat menntun mikils og var hvatning hans og stuðningur í þeim efnum ómetanlegur. Afí hafði einnig góða kímnigáfu og frásagnargáfa hans var einstök. Hann hafði frá svo mörgu að segja og færri hefðu getað sagt betur frá en hann. Það var því gaman að bjóða honum í mat því félagsskap hans kunnum við öll svo vel að meta. Við og fjölskyldur okkar eigum eftir að sakna afa sárt en getum þó huggað okkur við hve hann var lán- samur að eldast svo vel sem raun bar vitni og við að geta verið svona lengi með honum. Afí, hafðu bestu þakkir fýrir allt og allt. Sigríður og Unnur. Kveðja frá Vélskóla íslands Skólabjallan glymur, dyr kennslu- stofunnar opnast og inn gengur kennarinn, spengilegur, virðulegur, snyrtilega klæddur og farinn að grána í vöngum. Nemendur spretta úr sætum og standa teinréttir þar til kennarinn gefur merki um að þeir megi setjast. Þetta var fyrsta hugsunin sem skaut upp í huga minn þegar ég frétti lát Þórðar Runólfssonar fyrrum kennara míns og síðar samkennara í Vélskóla íslands. Lýst var upphafi kennslustundar í vatnsvélafræði þar sem fram kemur hin óttablandna virðing sem við bár- um fyrir kennara okkar og hinum sterka aga sem hann beitti í kennsl- unni. Þórður gerði kröfu til þess að við skildum megininnihald námsefn- isins og að öll verkefni væru vel upp sett og unnin. Sem dæmi má nefna að ef láðst hafði að tvístrika undir útkomu með reglustiku var gerð at- hugasemd við það með rauðu. Það var sannfæring Þórðar að öguð vinnubrögð, vandvirkni og þekking væru grundvallarforsendur þess að við gætum orðið nýtir og góðir vélstjórar og kennsla hans end- urspeglaði þetta viðhorf. Þórður Runólfsson lauk járn- smíðanámi hjá Guðmundi Jónssyni í Reykjavík árið 1919 og prófí frá Vélskóla íslands (sem þá hét Vélstjó- raskóli íslands) 1921. Véltækni- fræðiprófí lauk Þórður frá tækniskó- lanum í Mittweida í Þýskalandi 1925. Kjörin menntun, mikilvæg starfs- reynsla og góðir kennarahæfileikar gerðu Þórð að hæfum og eftirminni- legum kennara þrátt fyrir að kennsl- an hafi löngum verið aukastarf sem hann stundaði með annarri og krefj- andi vinnu. Árið 1926 hófst kennsluferill Þórð- ar við mótornámskeið sem haldin voru á veg^um Fiskifélags íslands og var Þórður fenginn til að taka saman bók í vélfræði sem heitir „Kennslu- bók í mótorfræði". Fyrir utan „Leið- arvísi um hirðingu og meðferð á mótorum“ sem Ólafur Sveinsson vél- stjóri skrifaði er þetta fyrsta vél- fræðibókin sem gefín hefur verið út á íslenskri tungu. Það er Ijóst að það var ekki auðvelt verk á þessum tíma að semja kennslubók um þetta efni þar sem orð vantaði bæði yfír hluti og hugtök. Þórður hafði gott vald á íslensku máli og hann var einkar laginn við að fínna góð orð sem festu síðar rætur í námsefni og starfí vél- stjóra. í formála bókarinnar segir Þórður orðrétt: „Óviðráðanlegustu örðugleikarnir, sem jeg varð fyrir við samningu kversins, stöfuðu af málinu. Jeg hef notað þau nýyrði, sem jeg hefi getað náð í, en mikið vantar á að orðaforði sá sem til er sje fullkominn og víða vantar tilfinnaniega í hann. Oft varð að grípa til þess að búa til ný orð, sem ekki er laust við að vera tölu- verðum örðugleikum bundið.“ I þessum texta koma fram vissar efasemdir um hvemig til muni tak- ast en reynslan er besti dómarinn og í dag þakkar skólinn Þórði fyrir hans góða framlag varðandi nýyrði. Árin 1932 til 1934 var Þórður við stundakennslu í Vélskólanum og síð- an á ámnum 1949 til 1975. Þórður kenndi ýmsar vélfræði- greinar og fagteikningu. Einnig byggði hann upp kennslu í vatnsvéla- fræði, tók saman mjög vandaða bók í því fagi og kenndi vatnsvélafræði um ára bil. Þótt Þórður væri strangur kennari sem gerði kröfur til nemenda sinna og sjálfs sín var hann einnig góður félagi á gleðistundum. Auk þess að vera nemandi hjá Þórði unnum við saman að kennslu- málum í Vélskóla íslands um árabil og var mjög gagnlegt að fá ábending- ar og leiðsögn frá manni sem svo víðtæka reynslu. Þórður Runólfsson var einn af þeim mætu mönnum sem mótuðu vélstjóramenntunina í landinu af framsýni og raunsæi og á hann þakk- ir fyrir vel unnin störf. Björgvin Þór Jóhannsson skólameistari Vélskóla íslands. Þegar aldur leyfði, hóf Þórður járn- smíðanám, er lauk með sveinsprófí. Að loknu járnsmíðanámi hóf hann nám í Vélstjóraskóla íslands, sem skólinn hét þá, en skólinn var þá fárra ára gamall, og lauk þaðan vél- stjóraprófí. Ekki lét Þórður hér staðar numið á sinni menntabraut, heldur leitaði út fyrir landsteinana til frekara náms og lauk tæknifræðiprófí í Þýskalandi. Þegar Þórður kom heim að námi loknu, hóf hann strax tæknistörf, nóg voru verkefnin, þjóðin var nýlega laus undan erlendri áþján og var að vakna til dáða á ný. Lágkúruskapur og fásinna voru ríkjandi hér á landi um þetta leyti, sem von var, og var það einna erfíð- ast viðureignar fyrir hinn unga mann við tæknistörfín. Þórður lagði gjörva hönd á margt um sína daga. Hann kenndi mótor- fræði við námskeið Fiskifélags ís- lands um skeið og samdi kennslubók í því sambandi, sem lengi var notuð og eldri vélstjórar muna. Snemma byrjaði Þórður á véla- og verksmiðjueftirliti á vegum ríkisins og stofnaði Verksmiðjueftirlit ríkisins er seinna var breytt í Öryggiseftirlit ríkisins og veitti hann því forstöðu, það heitir nú Vinnueftirlit ríkisins. Þórður hefur haft mikil afskipti af síldar- og fískiðnaði landsmanna og teiknað margar verksmiðjur. Hann átti sæti í byggingamefnd Sfldarverk- smiðja ríkisins þegar nýsköpun þeirra hófst á sínum tíma og byggðar voru hinar stóra og glæsilegu verksmiðjur norðan lands. Þegar hefja átti endurnýjun togara- flotans eftir síðari heimsstyrjöld, tók Þórður þátt í þeim undirbúningi; og teiknáði díseltogara í samkeppni er haldin var í því sambandi og hlaut verðlaun fyrir. ÞÓRÐUR RUNÓLFSSON Þórður er því í hópi þeirra manna, sem byggt hafa upp það tækniþjóð- félag sem við lifum nú í og njótum afraksturs af. Þórður var lengi stundakennari við Vélskóla íslands og ætla ég að það starf hafí verið honum mjög hugfólg- ið, Þórður var að allra dómi góður kennari í orðsins bestu merkingu, var mikilsvirtur af öllum sínum nemend- um og samkennuram. I kennslustarfí Þórðar komu skýrlega fram hans mannkostir og þekking á vélum og vélbúnaði. Þórður var kröfuharður kennari og lagði mikið upp úr allri snyrtimennsku. Hann sagði: „Góður vélstjóri er snyrtimenni." Þórður var snyrtimaður sjálfur svo af bar, var listamaður í eðli sínu og málaði í frí- stundum. Þórður var prófdómari við Vélskól- ann eftir að hann hætti kennslu. Þórður var mikill smekkmaður á ís- lenskt mál og skrifaði auk Mótor- fræðinnar, kennslubók í vatnsvéla- fræði og burðarþolsfræði til kennslu við Vélskólann. Auk þess skrifaði hann og þýddi bækur og greinar um tækniefni á íslensku og fórst honum það mjög vel úr hendi en eins og kunnugt er er það ekki alltaf auðvelt að skrifa tæknimál á íslensku. Þórður átti því drjúgan þátt í myndun hins íslenska tæknimáls. Ég minnist Þórðar sem góðs félaga og þakka liðnar samverustundir, sem varpa yl og ljóma á liðna æfí hans og kveð hann með þakklátum huga og sendi aðstandendum hans hlýjar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Þórðar Run- ólfssonar. Andrés Guðjónsson. Þegar vinur minn og fyrrverandi yfírmaður, Þórður Runólfsson, er lát- inn, verður ekki komist hjá þeirri hugsun, hvort maður hafí vissulega fært sér í nyt alla þá aðstoð og fræðslu, sem hann vildi veita okkur, sem með honum störfuðum. Ég er ekki fær um að lýsa öllu því, sem hann vildi vel gjöra öllum þeim, sem vora í hans umsjá, en mér reyndist hann sá bakhjarl, sem dugði til velgengni í mfnu lífi. Þórður lauk prófí frá Vélskóla ís- lands í Reykjavík 1921 og síðar prófí í vélfræði frá Höhere Technische Lehranstalt Technikum í Mittweida í Þýskalandi 1924. Ég heyrði M.E. Jessen skólastjóra Vélskólans aldrei hrifnari af nokkram nemanda sinna frekar en Þórði og bar virðingu fyrir hæfni hans fyrr og síðar sem kenn- ara. Eftir námið í Þýskalandi tóku við ýmis störf. Þar má nefna verk- smiðjustjóm í fiskimjölsverksmiðju Gísla J. Johnsens í Vestmannaeyjum 1925- 26, stundaði kennslu 1926- 28, samdi fyrir ríkisstjóm reglugerð um verksmiðju og vélaeft- irlit 1928-29, var skoðunarmaður og verksmiðjuskoðunarstjóri ríkisins frá þeim tíma til 1952 að hann með breyttum lögum var skipaður öiygg- ismálastjóri. Því starfi lauk hann 1970 vegna aldurs. Auk þessara starfa hannaði Þórð- ur og hafði umsjón með byggingu síldarverksmiðju m.a. á Siglufírði, Húsavík, Seyðisfírði, Akranesi, Nes- kaupstað, Ingólfsfírði og Höfðakaup- stað sbr. Verkfræðingatal, en hann var í Verkfræðingafélagi íslands vegna hæfni sinnar og lausnar á vandasömum verkfræðistörfum. Hann teiknaði og hannaði vélar og tæki af ýmsu tagi og hlaut m.a. verð- laun fyrir teikningu af tíu þúsund mála síldarverksmiðju og af íslensk- um framtíðartogara. Fyrstu kynni mín af Þórði voru þau að ég, árið 1937, leitaði á náðir hans um fræðslu af skóla þeim í Þýskalandi, sem ég hafði fengið áhuga fyrir og frétt að Þórður hafði sótt og lokið prófí frá. Þórður lét mér í té alla fræðslu, sem hann gat um skólann og lánaði mér öll helstu námshefti, sem hann hafði skrifað í skólanum meðan á hans námi stóð þar. Þetta var mér mikil aðstoð til undirbúnings og uppörvunar. Síðar kom Þórður ásamt konu sinni Sigríði Gísladóttur í heimsókn til síns gamla skóla í Mittweida. Þá kom strax í ljós hans innri glaðværð og vinsemd við allt vaxandi líf og atgervi. Þá voru lögð drög að því, að ég yrði með honum í starfi heima. Það stóðst. Er heim kom haustið 1940 vora mér

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.