Morgunblaðið - 09.08.1994, Side 31

Morgunblaðið - 09.08.1994, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1994 31 MIIMNING EBBA KRISTÍN EDWARDSDÓTTIR allar dyr opnar. Um störf mín með Þórði er það að segja að allt, sem hann gat vel gert til að auka velfarn- að okkar, sem með honum störfuðu gerði hann af fúsum vilja, sem stuðl- aði að góðum starfsanda við stofnun- ina, sem hann stjórnaði. Fyrstu árin, sem Þórður starfaði við eftirlitið voru oft erfið vegna erf- iðra samgangna um landið. Þá varð hann oft að láta sér nægja hinn frum- stæðasta ferðamáta, sem var erfiður og tímafrekur. Allt þetta eins og önnur brautryðjendastörf var ólíkt erfiðara en síðar varð, þegar búið var að „hasla völlinn", bæði hvað varðar samgöngur( starfsmenn og tækjabúnað. Það var gott að gleðjast með Þórði og Sigríði. Við starfsmenn hans nut- um þess oft með mökum okkar í rík- um mæli er þau hjónin buðu okkur heim til þeirra fallega heimilis. Það er okkur eftirminnilegar gleðistundir, þar sepi allir nutu vinsemdar og gest- risni þeirra hjóna. Á þessum stundum var Þórður hrókur alls fagnaðar og tók því með gleði og þökkum, sem aðrir vildu leggja til aukinnar skemmtunar. Þórður var mjög smekkvís maður í öllu sínu fasi og framkvæmd, snyrtimenni út í æsar og mjög listrænn. Þær eru margar fallegar myndirnar, sem ýmsir eiga málaðar eftir Þórð. Þórður var heið- ursfélagi í Oddfellowreglunni, en þar hefur hann verið félagi síðan 1931. Við félagar hans þar þökkum honum góða aðstoð og mikið starf í langan tíma. Nú kveðjum við hann öll með söknuði. Aðstandendum Þórðar vottum við innilega samúð. Friðgeir Grímsson. Látinn er í hárri elli Þórður Run- ólfsson fyrrv. öryggismálastjóri, en hann var einn helsti brautryðjandi slysavarna á vinnustöðum og vinnu- verndar á íslandi. Sem ungur maður gerði hann sér fljótt grein fyrir því að með hugviti og útsjónarsemi mætti margt bæta hvað snerti öryggi og aðbúnað á vinnustöðum. Þegar á námsárum hans í Þýskalandi vaknaði áhugi hans á þessum málum, en þar kynnt- ist hann öryggiseftirliti á vinnustöð- um, sem hér á íslandi var þá óþekkt. Eftir heimkomu frá námi í vélfræði, 1924, starfaði hann í Vestmannaeyj- um við fiskimjölsverksmiðju þar, en 1926 flutti hann til Reykjavíkur og nokkru seinna var hann fenginn ásamt fleirum til að undirbúa frum- varp að lögum um eftirlit með verk- smiðjum og vélum. Það var lagt fram á Alþingi sem setti lög um þetta efni sem öðluðust gildi 1. júlí 1928. Einnig sá hann um samningu reglu- gerðar um eftirlit með verksmiðjum og vélum skv. lögunum. í framhaldi af gildistöku hennar 16. febrúar 1929 hófst vinna að reglulegu ör- yggiseftirliti á vinnustöðum hér á landi. Á Bretlandi hófst slíkt eftirlit hins vegar um 1833 og í Danmörku 1874. Margt hefur breyst síðan þetta gerðist. Gífurleg iðn- og tækniþróun hefur átt sér stað í heiminum og ekki hvað síst á íslandi þar sem breytingarnar urðu jafnvel hraðari en víðast annars staðar. Þórður var skipaður fyrsti skoðunarmaður rík- isins á þessu sviði 1929 og helgaði starfskrafta sína þvi markmiði að vernda hinn vinnandi mann gegn slysum og heilsuvá vegna vinnunnar og aðstæðna á vinnustað. Hann beitti sér fyrir því að lögin frá 1928 væru endurskoðuð eftir stríðið og árið 1952 gengu í gildi lög um öryggis- ráðstafanir á vinnustöðum sem komu í stað gömlu laganna frá 1928. Þórður starfaði að vinnuvernd alla sína starfsævi og má segja að starfs- tíminn hafi skipst í tvo kafla. Árin 1928-1951 með lögunum frá 1928 og árin 1952-1969 ineð lögunum frá 1952. í lok árs 1969 lét Þórður af störfum fyrir aldurs sakir og hafði þá starfað óslitið á þessum málum í 42 ár. Fyrstu árin var hann eini starfsmaðurinn en seinna jókst starf- ið og fleiri komu til starfa með hon- um. Þórður var mikill embættismað- ur, mjög vinnusamur, ritfær vel, nákvæmur og rökfastur. Álits Þórðar var oft leitað í erfiðum málum m.a. af Hæstarétti. Þórður tók þátt í Norðurlandasamstarfi fyrir hönd stofnunar sinnar og naut mikils álits hjá starfsbræðrum sínum þar. Þórður var listhneigður, — teikn- aði og málaði. M.a. teiknaði hann hurðarbúnaðinn (húninn og læsing- una) á kirkjunni að Bessastöðum. Allmörg málverk eru til eftir hann. Eftir að Þórður missti sína ágætu konu Sigríði Gísladóttur, en henni kynntist hann í Vestmannaeyjum, bjó hann einn að Tómasarhaga 11 þar til fyrir tæpu ári að hann fór á Hrafnistu þar sem hann lést 31. júlí sl. Sigurður bjó fjölskyldu sinni fal- legt heimili bæði meðan þau bjuggu á Hávallagötu 27 og eins eftir að þau fluttu á Tómasarhagann. Á báð- um þessum stöðum tóku þau á móti gestum með rausn og hlýju sem ávallt fylgdi þeim og heimili þeirra. Við þökkum af alhug hans braut- ryðjandastarf sem oft á tíðum var erfitt og stundum vanþakkað. Bless- uð veri minning hans. Jórunn Ásta Guðmundsdóttir, Eyjólfur Sæmundsson. Aðrir munu lýsa hér æviferli Þórð- ar Runólfssonar, fyrrverandi örygg- ismálastjóra. Dagsbrún stendur í mikilli þakkarskuld við þennan látna heiðursmann. Ég kynntist þessum manni ekki fyrr en upp úr 1950 þeg- ar ég kom í stjóm Dagsbrúnar. Það sem vakti strax atygli mína, var skörp hugsun og sjálfstæði, seinna áttum við eftir að starfa mikið sam- an. Þá var búið að breyta nafni á embætti hans í Öryggismálastjóri, áður hét það Véla- og verksmiðjueft- irlit ríkisins. 1928 var hann fenginn til að semja lög um þessa fyrirhug- uðu stofnun og verksvið hennar, var svo skipaður forstjóri 1929. Strax mættu honum gífurlegir erfiðleikar í starfi, skilningur atvinnurekenda og því miður verkafólks var mjög takmarkaður og í sumum tilvikum beinlínis neikvæður. Fyrst var hann einn, sem starfsmaður stofnunarinn- ar, síðan bættust þetta einn og tveir við. Ég lenti í stjórn svokallaðs Öryggi- seftirlits 1955. Það var ákaflega dýrmætur skóli. Þórður úrskýrði fyr- ir mér með skýrum og einföldum rökum gildi öryggis á vinnustað og hvað mikið væri af slysum sem bæði fylgdi örkuml og dauði sem auðveld- lega hefði mátt afstýra, en fyrst og fremst var verkefni hans að afstýra slysum og koma mönnum beggja megin frá í skilning um gildi þess að hlýða lögum og reglum. Þetta er einn besti skóli sem ég hef fengið, maðurinn var gæddur fágætum hæfileikum, hann samdi lög eða upp- kast að lögum um flóknustu atriði sem voru svo skýr og greinargóð að ég þekki engan sem hefði það eftir leikið. Ef slys hafði átt sér stað og Þórður gaf umsögn un orsakir þess, dró hann saman svo skýr og afger- andi aðalatriði að umsögn hans stóðst nær undantekningarlaust fyrir Hæstarétti. Hugsunin var svo skýr. Það þýddi ekkert fyrir nokkurn aðila að hafa áhrif á niðurstöður eða um- sögn Þórðar nema það væru upplýs- ingar sem breyttu atburðarás. Gegn- um árin var umsögn Þórðar sem ör- yggismálastjóra lögð til grundvallar í skaðabótakröfum, það var ekki oft að tryggingarfélög legðu til atlögu við umsögn Þórðar. Ég dreg ekki dul á það að hann bar hlýjan hug til Dagsbrúnar. Faðir hans hafði verið einn af stofnendum félagsins og verið einn af fímm sem höfðu verið fengnir til að semja lög þess, hann var þriðji maður sem skrifaði undir stofnskrá Dagsbrúnar. Þórður lét af embætti fyrir aldurs sakir um áramótin 1969-70. Ég varð var við það að stéttarbræður hans á Norðurlöndum báru til hans ákaflega mikið traust og oftar en einu sinni var óskað eftir honum í alþjóðlegar nefndir, en ríkið taldi fé betur varið en til slíks og Þórður sat heima í starfi sínu. Um 1960 var hér haldin norræn ráðstefna öryggismálastjóra. Þórður fékk þá miklu heiðursmenn Eðvarð Sigurðsson og Benedikt Gröndal til að vera forseta fyrir þessari ráð- stefnu. Ég kom nokkrum sinnum á ráðstefnu þessa og fann þar þaö traust sem Þórður hafði og hvað þeir spurðu hann oft álits í flóknum málum. Eins fannst þeim mikið til koma hvað samstarf Eðvarðs og Benedikts við Þórð var gott. Ráð- stefna þessi var Islandi til sóma og álitsauka. Við Eðvarð Sigurðsson leituðuin oft til Þórðar og nutum margvfslegr- ar aðstoðar hans og Dagsbrún skuld- ar honum mikið þakklæti fyrir. Hann var einn af velunnurum félagsins, þó hallaði hann aldrei réttu máli til að gera okkur til geðs. Ævistarf þessa manns fór ekki hátt en hann var brautryðjandi í ör- yggismálum á vinnustöðum á þeim tíma er tæknin flæddi yfir og í öllum flóknustu tæknimálum virtist hann vera jafnvel heima. Hann verður lagður til moldar í dag. Frá Dagsbrún fylgir honum hlýr hugur og þakklæti og aðstandendum hans öllum, óskum við blessunar, það var fengur fyrir verkafólk og íslenskt atvinnulíf að eiga þennan mann að. Guðmundur J. Guðmundsson. ■4- Ebba Kristín * Edwardsdóttir, talmeinafræðing- ur, fæddist í Reykjavík 18. maí 1941. Hún lést á gjörgæsludeild Landspítalans 2. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Guð- rún Halldórsdóttir, d. 12. júní 1949 og Edward Jónsson, stýrimaður, d. 29. nóvember 1981. Ebba tók almennt kennarapróf frá Kennaraskóla Islands 1963, tónmenntakennarapróf frá Kennaraháskóla Danmerkur 1964, stúdentspróf frá Kenn- araháskólanum í Árósum og lauk prófi þaðan 1971. Hún fékk MS gráðu í talmeinafræði frá Illinois-háskóla 1978. Hún starfaði sem almennur kennari við Landakotsskóla í 3 ár, við Hagaskóla í 1 ár, sem talmeina- og heyrnarfræðingur við Borg- arspítala 1972 til 1976 og við Grensásdeild frá 1978 til 1983. Frá 1984 hefur hún verið tal- meinafræðingur við Heyrnar- og talmeinastöð Islands. EBBA var alinn upp hjá afabróður mínum Edward Jónssyni frá Mörk við Bræðraborgarstíg. Eftir að ég komst að þessu fyrir um það bil 20 árum kallaði ég hana frænku. Hlutskipti okkar í lífinu var með svipuðum hætti þ.e. að sjá um meðferð heyrnar- og talskertra og ErOdnkkjur Glæsileg kíiffi- hlaðborð fallegir Sidir og nijög gíkl þjónusta. Upplýsingar ísíma22322 FLUGLEIDIR léTGL LtFTLEIIIK Krossar I PT-áleiai I viSarlitoq máloöir. Mismunanai mynslur, vönauo vinna. Slmi 91-35929 oq 35735 spila á orgel í kirkjum. Það var einmitt þannig, sem við kynnt- umst fyrst, þ.e. í gegn- um hljómlistina. Við spiluðum saman í skólahljómsveit Kennaraskólans, hún á píanó og_ég á harmón- ikku. Ég heimsótti hana stundum á Fram- nesveginn á þessum árum og spiluðum við þá hvor fyrir aðra á nikkuna hennar, en hún átti forkunn- arfagra harmónikku, sem henni þótti undur vænt um. Ebba var afskaplega glaðvær á skólaárunum í Kennaraskólanum gamla, með geislandi augu og sóp: aði að henni hvar sem hún fór. í mörg ár átti hún við erfiðan sjúk- dóm að glíma og gekk nánast aldr- ei heil til skógar þann tíma sem hún vann á Heyrnar- og talmeina- stöð íslands, en alltaf var stutt í glaðværðina og hláturinn þó svo að dimmir skuggar sjúkdóma fylgdu henni. Ég talaði síðast við hana fyrir tveimur vikum og var hún þá flutt af Framnesveginum og í Sörlaskjól og lét hún þess get- ið að nú liði sér vel. Hún hafði þá verið frá vinnu í nærri ár vegiia veikinda. En ósýnileg minning mín man átján ára gamla stúlku glað- væra og glettna á svip. Hafðu þökk fyrir öll góðu árin, sem við áttum saman og ég vona að þú sért loksins búin að hitta pabba þinn aftur, sem þú þráðir svo heitt. Birgir Ás. Friöjinns Suöuriandsbraut 10 108 Reykjavík. Sfmi 31099 Opið 5II kvöld tíl kl. 22,- einnig um helgar. Skreytingar við öll tilefni. FjÁRFESTING í TÖLVUNÁMI VEITIR VINNUMARKAÐINUM! 82 klst. starfsmenntunarnámskeið með áherslu á undirbúning fyrir störf á nútíma skrifstofum. Verð aðeins 58.600.- kr. stgr. Afb.verð kr. 61.700.- eða 3.943 •" kr. á mánuði! Skuldabréf í 19 mánuði, allt innifalið. ÞÉR FORSKOT Á KENNSLUGREINAR: ; ‘ - Almenn tölvufræði . stM Mar^ÍNcask;öi • - MS-DOS og Windows .T.£*jÐÁ - Ritvinnsla - Töflureiknir og áætlanagerð - Glærugerð og auglýsingar - Tölvufjarskipti - Umbrotstækni Innritun fyrir haustönn er hafin. Hringdu og fáðu sendan bækling eða kíktu til okkar í kaffi. I Tölvuskóli Reykiavíkur p.v.v.v.vj ■ BORGARTÚNI 28. 105 REVKJAUÍK. simi 616699. fax 616696

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.