Morgunblaðið - 09.08.1994, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1994 45
UNGLINGAR
Ætlar þú að
flylja til
Reykjavíkur
þegar þú
verður stór?
Spurt í Borgarnesi
Dagmar 16 ára
Ég bara veit það ekki. Mig
langar það, en ætli maður
verði ekki bara hér.
Helena Sif 14 ára
Nei, ég ætla að búa hér.
Sigurvin 16 ára Dagmar
Nei, ég ætla að búa héma
í heimabyggð, hjá Helenu.
Helena 14 ára
Já, örugglega. Það er
skemmtilegra þar en hér.
Helena Sif
Sigurvin
I
I
I
I
I
Hættu
að
bögga
mig
Maður sem böggar
„Böggur“
:
Marsibil
Maður 1
sem
er búínn
að vera
of lengi
Einar
Strákur sem lætur
asm
og
ems
sundi
Drífa
<D
3 Q>
:o
'3
co c
Skemmtilegast að grúska
Nafn: Halldór Torfason.
Heima: Borgarnesi.
Aldur: 15 ára.
( Skóli: Grunnskóli Borgamess.
^ Helstu áhugamál: íþróttir, bílar
, og stelpur.
* Uppáhalds hyómsveit: Metallica
Uppáhalds kvikmynd: Engin
sérstök. Mér finnast spennumynd-
ir skemmtilegastar. Byssumyndir.
Uppáhalds sjónvarpsefnið: Ég
horfi svo lítið á sjónvarp, bara
bíómyndir. Jú og Simpson fjöl-
skylduna.
( Besta bókin: Ég held ég hafi aldr-
| ei klárað bók. Ég nenni því ekki.
á Að lesa er mesta tímasóun sem
* ég veit um. Ég les bara námsbæk-
Hvað viltu ráðleggja
þeim sem umgangast
unglinga? Ég kann
það ekki. Flestir full-
orðnir eru allt í lagi.
Sumir telja sig þó hafa
forgang bara fyrir að
vera fullorðnir, eins og
t.d. í búðum.
Hvað viltu segja að
lokum? Vertu þú sjálf-
ur.
Hver myndir þú vilja vera ef
þú værir ekki þú? Eg veit það
ekki. Allavega ekki mamma.
Hvemig er að vera unglingur
í dag? Það er allt í lagi. Mér líður
ágætlega. Maður er ekki jafn inni-
lokaður og unglingar voru áður.
Hverju myndir þú vilja breyta
í þjóðfélaginu? Engu.
Hvað er það skemmtilegasta
sem þú gerir? Að gera við ýmsa
hluti eins og bíla og
yórhjól og grúska í ein-
hverju.
Hvað er það leiðin-
legasta sem þú gerir?
Að gera ekki neitt.
Hvað ætlar þú að
verða þegar þú verð-
ur stór? Ætli ég verði
ekki bifvélavirki. Það
er það eina sem ég hef
áhuga á að læra.
I DAí
ur.
KONRÁÐ Jóhann Bryiyarsson
ísland eftir 1.000 ár
HVERNIG verður ísland eftir 1.000 ár? Við erum víst
blessunarlega laus við að vita það. En við getum þó látið
okkur detta ýmislegt í hug ...
Við erum stödd á íslandi, árið er 2994. íslendingar
hafa ekki breyst mikið en samt svolítið. Landið er orðið
að fjölsóttum ferðamannastað sem býður ferðamönnunum
upp á svokallaðar Landgræðsluferðir. í þessum ferðum eru
þægindaþreyttir ferðamenn látnir vinna að
uppgræðslu á melum landsins. Tíu árum
síðar er þeim boðið í fjögurra daga ferð,
ókeypis, til þess að skoða árangur erfiðis
síns. Þessar „pakkaferðir" eru mjög vinsæl-
ar hjá fólki sem er þreytt á því að sitja
heima og fá allt upp í hendurnar.
Farartæki á íslandi hafa breyst mikið
síðustu 1.000 ár. Fljótlega uppúr 2000 voru
bensínbílar teknir úr notkun og rafmagnsMI-
ar komu í staðinn. Núna 2994 eru bílar
alveg horfnir af sjónarsviðinu. í staðinn eru
komin svifbelti sem menn hafa um sig miðja
og gera þeim kleift að svífa á þægilegum hraða á milli
staða.
Stjórnmálamenn eins og þeir þekktust fyrir 1.000 árum
eru úr sögunni. í staðin er forseti og 20 þingmenn kosnir
árlega. Þeirra hlutverk er að breyta og bæta gildandi lög-
um_ og sníða þau eftir aðstæðum í landinu hvetju sinni.
Árið 2484, eða fyrir 500 árum, var tekin upp sameigin-
leg mynt fyrir allt sólkerfíð. Myntin er kölluð Sóldalur.
Ekki þarf að fjölyrða um þægindi þessarar breytingar.
Núna, árið 2984, höldum við íslendingar upp á 1.050
ára afmæli Lýðveldisins íslands á Þingvöllum. Þar sem
bílar hafa verið lagðir niður er ekki hætta á umferðaröng-
þveiti í líkingu við það sem varð forðum daga þegar lýð-
veldið ísland varð 50 ára. Þannig að úrelding bfla hefur
haft marga kosti í för með sér.
Ætli ísland verði svona eftir 1.000 ár?
Nei, ætli það, en kannski ...
Hver veit???
Konráð Jóhann Brynjarsson, Borgarnesi.
Komin eru svif-
belti sem menn
hafa um sig
miðja og gera
þeim kleift að
svífa á þægileg-
um hraða á milli
staða
Sjábu hlutina í víbara samhengi!