Morgunblaðið - 09.08.1994, Side 48
MORGUNBLABIÐ, KRINGLAN 1 103 REYKJAVÍK
SlMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1994
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Útgerð Hágangs II ekki kærð fyrir ólöglegar veiðar en verður að greiða sekt
Jens Evensen hvetur til við-
ræðna við Islendinga strax
Tromsö. Morgunblaðið.
JENS Evensen, fyrrverandi viðskipta- og hafréttarráðherra Norðmanna
og fremsti sérfræðingur þeirra á sviði hafréttar, hvetur til þess að
norsk stjórnvöld leiti þegar í stað eftir viðræðum við íslendinga um
lausn Svalbarðadeilunnar. Togarinn Hágangur II, sem færður var til
hafnar í Tromsö á sunnudag vegna meintrar skotárásar eins skipveija
á norska strandgæzlumenn, fékk að láta úr höfn að nýju síðdegis í gær
og ekki verður höfðað mál á hendur útgerð togarans vegna ólöglegra
fiskveiða. Stýrimaður skipsins hefur hins vegar verið ákærður fyrir að
1 ógna opinberum starfsmönnum og skipstjórinn og útgerðin sektuð um
tvær milljónir íslenzkra króna fyrir að neita skipunum um að stöðva
skipið og hleypa strandgæzlumönnum um borð. Dómari í Tromsö úr-
skurðaði í gærkvöldi að ekki væri ástæða til að halda stýrimanninum
í gæzluvarðhaldi. Lögregla áfrýjaði hins vegar úrskurðinum og komst
stýrimaður ekki úr landi með skipsfélögum sínum. Kristján Ragnars-
son, formaður Landssambands útvegsmanna, segir þessa niðurstöðu
mála munu ýta undir sókn íslendinga á Svalbarðasvæðið og í Smuguna.
Jens Evensen er
fremsti hafréttarsér-
fræðingur Norðmanna
og hefur nýlega hætt
störfum sem dómari
við Alþjóðadómstólinn
í Haag. Hann var yfir-
smiður stefnu Norð-
manna varðandi fisk-
veiðar í Barentshafi og
átti frumkvæði að
samningunum um
„gráa svæðið" svokall-
aða við Rússa, auk
þess að eiga mikinn
þátt í niðurstöðu haf-
réttarráðstefnu Sam-
einuðu þjóðanna. Hann
segir í samtali við
fréttaritara Morgun-
blaðsins í Noregi að íslendingar og
Norðmenn eigi nú að sjá sig um
hönd og setjast að samningaborði.
Stríð leysir engan vanda
„Eg legg til að deilan verði leyst
með pólitískum samtölum og samn-
ingaviðræðum," segir Evensen. „Ég
vitna til stofnsáttmála Sameinuðu
þjóðanna, þar sem segir skýrt og
greinilega að óheimilt sé að beita
valdi eða hóta valdbeitingu. Stríð
leysir engan vanda."
Evensen leggur til að önnur hvor
ríkisstjórnin, sú norska eða sú ís-
Jens Evensen fyrr-
um hafréttarráð-
herra Norðmanna.
lenzka, taki frumkvæð-
ið að viðræðum, eða
jafnvel að farið verði
með deiluna fyrir Al-
þjóðadómstólinn í
Haag.
Erfitt að vinna mál
um ólöglegar veiðar
Ríkissaksóknarinn í
Troms og Finnmörku,
Tormod Bakke, segir í
samtali við fréttastof-
una NTB að erfitt geti
reynzt að benda á sekt
útgerðar Hágangs II
og þar með að vinna
dómsmál gegn henni
sem höfðað væri vegna
ólöglegra veiða. „Það
þarf að yfirfara allt lagakerfið [um
veiðar á verndarsvæðinu við Sval-
barða] í þjóðréttarlegu samhengi,
og mér skilst að slík vinna standi
nú yfir í sjávarútvegs- og utanríkis-
ráðuneytunum," segir Bakke. Hann
segir það hins vegar liggja ljóst
fyrir að skipstjórinn á Hágangi og
útgerð hans hafi skirrzt við að
hleypa eftirlitsmanni um borð í
skipið og að hlýða fyrirskipunum
strandgæzlunnar um að sigla til
lands.
Morgun-
verður arn-
arungans
Þessi stálpaði arnarungi var
nýbúinn að gæða sér á ný-
veiddum laxi, sem foreldrar
hans höfðu fært honum, er ljós-
myndarann bar að og lét hann
ekki trufla sig frá málsverðin-
um nema augnablik. Vegna
friðunarákvæða má eigi geta
þess, hvar myndin er tekin, til
að koma í veg fyrir átroðning
fólks við hreiður arnarhjón-
Morgunblaðið/Birgir
Hágangsmálið/4 anna.
Smíði lóðsbáts fyrir Vestmannaeyjar
Þorgeir og Ellert
með lægstu tilboð
SKIPASMIÐASTOÐ Þorgeirs og
Ellerts á Akranesi var með lægstu
tilboð í smíði nýs lóðsbáts fyrir Vest-
mannaeyjar, en fyrirtækið var með
tvö tilboð miðuð við mismunandi
vélarstærðir. Að sögn Þorgeirs Jós-
efssonar framkvæmdastjóra skipa-
smíðastöðvarinnar hljóðar lægra til-
boðið upp á 98 milljónir króna en
hið hærra upp á 115 milljónir. Skipa-
lyftan í Vestmannaeyjum var síðan
Mínnkandi líkur eru á
Dýr keppnisbíll
EKKI hefur komið dýrari bíll
. til landsins en sá að ofan. Eig-
andinn Peter Vassala ætlar að
keppa á honum í rallíi hér á
landi í byrjun september. Bílinn
kostar í Bretlandi 150.000 sterl-
ingspund, um 15 milljónir ísl.
króna. Hann kostaði hins vegar
um 27 milljónir á götuna yrði
hann tollafgreiddur hér.
■ 27 milljón/C8
að kosið verði í haust
JÓN Baldvin Hannibalsson, for-
maður Alþýðuflokksins, greindi
Davíð Oddssyni forsætisráðherra í
gær frá niðurstöðu meirihluta þing-
flokks, framkvæmdastjórnar og
formanna kjördæmisráða Alþýðu-
flokksins á laugardag að ekki væri
tilefni til að ganga til alþingiskosn-
inga í haust. Davíð átti einnig við-
ræður við forystumenn stjórnarand-
stöðunnar um hugsanlegar haust-
kosningar í gær.
Andstaða Alþýðuflokks
Davíð sagði að viðræðunum lokn-
um að verulega hefði dregið úr lík-
unum á að þing verði rofið og boð-
að til kosninga í haust, einkum
Lokaákvörð-
un fyrir
fimmtudag
vegna andstöðu Alþýðuflokksins en
forsætisráðherra ætlar að taka end-
anlega ákvörðun fyrir næstkomandi
fimmtudag. Davíð sagðist sjálfur
hafa séð fleiri kosti en galla við
haustkosningar. Á fundum hans
með forystumönnum stjórnarand-
stöðuflokkanna í gær hefði komið
fram að stjórnarandstaðan væri
ekki sammála þeim annmörkum
sem hann hefði bent á að fylgt
gætu kosningabaráttu í febrúar og
mars en vildi af öðrum ástæðum
að ríkisstjórnin færi frá og gengið
yrði til kosninga
Sjálfstæðisflokkur yrði að axla
ábyrgðina
Jón Baldvin sagði í gær að ef
vilji alþýðuflokksmanna yrði snið-
genginn og frekar farið að óskum
stjórnarandstöðunnar væru það
ákveðin skilaboð og Sjálfstæðis-
flokkurinn yrði þá einn að axla
ábyrgð af því og skýra fyrir kjós-
endum hvers vegna hann kysi að
láta stjórnarsamstarfinu lokið.
Líkur á haustkosningum/6 og 8
með tilboð sem hljóðar upp á 118
milljónir króna.
Þorgeir sagði að tilboð Þorgeirs
og Ellerts væri í 20 metra langt skip
og væri lægra tilboðið miðað við 885
hestafla vélarstærð en hærra tilboðið
1.000 hestöfl. Tilboð Skipalyftunnar
er hins vegar í 22 metra langt skip.
„Ef við fáum verkið erum við með
mjög sterkan grunn til að byggja á
næstu 10 mánuðina. Við erum nú í
breytingum á einu skipi og að smíða
fiskvinnslubúnað. Við erum að klára
tvær línur sem eru að fara til Noregs
og okkur skilst á samstarfsaðila okk-
ar, Marel hf., að það sé meira á leið-
inni,“ sagði Þorgeir.
Þarf lagabreytingu fyrir
loðnuskip
I burðarliðnum er samningur Þor-
geirs og Ellerts hf. um smíði á 1.300
lesta nótaskipi fyrir Fiskimjöl og
lýsi hf. í Grindavík. Fyrir liggur vilja-
yfirlýsing um smíðina, sem háð er
ákveðnum skilyrðum. Þar er fyrst
og fremst um að ræða að lögum um
úreldingu verði breytt og að fjár-
mögnun verksins takist á meðan á
smíðinni stendur. Þorgeir sagði að
þetta mál væri nú til athugunar hjá
þremur ráðuneytum. „I dag eru lög
og reglugerðir þannig að það þarf
að úrelda rúmmetra á móti rúm-
metra, en svona lög eru auðvitað
óþörf þegar ákveðnar ótímabundnar
reglur gilda um kvótakerfi. Ef út-
gerðarmaður á einhvern kvóta, er
það ekki ríkisvaldsins að ákveða
hvort hann telji hagkvæmt að ná í
hann á stóru eða litlu skipi.“