Morgunblaðið - 16.08.1994, Síða 6

Morgunblaðið - 16.08.1994, Síða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR MYNDIN sýnir átta af þeim ellefu byggingum sem Inga Dagfinnsdóttir og Tom Heneghan hönn- uðu fyrir japanska rannsóknarmiðstöð í landbúnaði. Langa húsið neðst til vinstri er fyrir naut- gripi, minna húsið hægra megin við það fyrir kálfa og neðst til hægri er hlaða. Næst fyrir ofan hlöðuna er hesthús, ljósa húsið ofarlega á myndinni er haughús og efst á myndinni, hægra megin við miðju, er mjólkurbú ásamt tveimur vélageymslum. íslenskur arkitekt fær fyrstu verðlaun í Japan ARKITEKTARNIR Tom Heneghan og Inga Dagfinnsdóttir. INGA Dagfinnsdóttir arkitekt hef- ur ásamt Bretanum Tom Heneg- han fengið æðstu verðlaun Jap- anska arkitektafélagsins, svo- nefnd Gakkal Shoh-verðlaun, fyrir byggingar sem þau hönnuðu og voru reistar í Japan. Áður hefur aðeins einn erlendur arkitekt hlot- ið slíkan heiður, en tilnefningar til verðlaunanna að þessu sinni voru tæplega 400. Verðlaunin eru hin æðstu, sem veitt eru í Japan fyrir byggingarlist. Inga nam byggingarlist í Arc- hitectural Association School of Architecture, AA, í London. Þaðan lauk hún námi 1985, starfaði um tíma í London og jafnframt hér á landi. Hún fékk eins árs rann- sóknarstyrk frá japanska ríkinu og nam við Tókíó-háskóla, en í framhaldi af þeirri dvöl setti hún á laggimar vinnustofu í Tókíó, í félagi við Tom Heneghan. Teikni- stofu sína, The Architecture Fact- ory, reka þau einnig í London og Reykjavík. Á stofunni í Japan starfar arkitektinn Ando, en fTeiri starfsmönnum er bætt við eftir því sem þörf krefur. Rannsóknarmiðstöð í landbúnaði Byggingarnar, sem Inga og Tom voru verðlaunuð fyrir, eru 11 hús rannsóknarmiðstöðvar í landbúnaði, en lokið var við að reisa þau á síðasta ári. Hönnunin var hluti af svokölluðu Art-Polis verkefni, sem í fólst hönnun og bygging fjölda opinberra bygginga og stofnana í Kumamoto-fylki á eyjunni Kyushu. Fjöldi virtra jap- anskra arkitekta tók þátt í verk- efninu, sem og erlendir arkitektar sem leitað var sérstaklega til. Alls vora hannaðar og reistar hátt í þrjátíu byggingar. Byggingarnar ellefu í rann- sóknarmiðstöðinni era misstórar og þjóna mismunandi kröfum, en þær standa innan þjóðgarðs í Kumamoto. Þjóðgarðurinn liggur mjög hátt, umlukinn fjöllum og skammt utan hans gnæfír virkt eldfjall, Aso, sem á það til að spúa eldi og eimyiju yfir nágrennið. „Japanir eru mjög framarlega í öllum rannsóknum á sviði land- búnaðar," sagði Inga. „Þessi rann- sóknarstöð er afar tæknivædd og þangað kemur fjöldi fræðimanna á hverju ári hvaðanæva að úr heiminum til að kynna sér ýmsar merkar nýjungar. Þá er einnig rekinn þarna landbúnaðarskóli. Ákveðið var að reisa 11 nýjar byggingar fyrir miðstöðina og þær vora af ýmsum toga, til dæmis rannsóknarstofur, mjólkurbú, gripahús, hlöður og haughús, ásamt véla- og tækjageymslum.“ Samið við þjóðgarðsnefndina Inga sagði að arkitektarnir hefðu haft misfijálsar hendur við hönnunina. „Japanir hafa hingað til byggt sín sveitahús í hefð- bundnum stíl og þjóðgarðsnefndin var því ekki alltaf sátt við þær leiðir sem við vildum fara,“ sagði hún. „Þá náðist samkomulag um að hafa óhefðbundnari byggingar fjær aðalveginum, sem liggur um þjóðgarðinn. Við urðum einnig að taka tillit til þess að töluvert ösku- fall er á svæðinu og askan varð að skolast auðveldlega af húsun- um. Við notuðum við, stál, steypu, gler og plexigler. Þótt húsin séu ólík bera þau samt sterkan keim- líkan svip, sem myndar heild í landslaginu." Inga sagði að veðurfarið hefði einnig haft mikil áhrif á hönnun- ina. „Nautgripahúsin era til dæm- is hönnuð á þann hátt að dýrin geta verið utan dyra, en þó ávallt notið skjóls, jafnt fyrir brennandi sól sem snjókomu. Mikilfenglegur fjallahringurinn setti svip sinn á húsin og taka mænir tveggja hús- anna svip af því. Loks varð svo að hafa í huga, að húsin varð að aðskilja vegna smithættu." Hönnun í framandi landi Inga sagði að mjög spennandi væri að spreyta sig á hönnun bygginga í framandi landi. „Þessi heiður, sem okkur hefur hlotnast, á vonandi eftir að skila frekari verkefnum. Þá hefur verið fjallað lofsamlega um byggingarnar í öll- um helstu byggingarlistartímarit- um heims og prýða þær meðal annars forsíður Architectural Review og Japan Architect. Við þurfum því ekki að kvarta yfir móttökunum, en sá heiður sem okkur hefur nú verið sýndur vegur þyngst." Sterkum lyfjum stolið í innbroti í apótek MIKLU af morfíni og róandi lyfj- um var stolið í innbroti í apótekið á Reyðarfirði aðfaranótt laugar- dags. Innbrotið uppgötvaðist á laugardagsmorgun. Farið hafði verið inn í apótekið og stolið um 2.000 pillum af díazepam, moga- don og fleiri lyfjum, svo og fjölda ampúla sem innihéldu morfín og önnur sterk lyf. Einnig voru tekn- ar sprautur. Lögreglan á Eskifirði segir að fagmannlega hafi verið að verki staðið við innbrotið, ekki síst við val á þeim lyfjum sem þjófarnir höfðu á brott með sér og ekki sé vafi á að þeir hafi vitað að hveiju þeir voru að leita. Einnig var brotist inn í heilsu- gæslustöð og hárgreiðslustofu sem era í sama húsi og apótekið og m.a. stolið nokkra af peningum og dýrum hárskurðarskæram. Þá var sömu nótt brotist inn í Kaupfé- lagið á Reyðarfírði og er talið víst að sömu menn hafi verið þar að verki og í apótekinu. Lögreglan á Eskifirði hefur málið til rannsóknar en ekki er vitað hveijir voru að verki. Ekki var þjófavarnarkerfi í apótekinu eða öðrum þeim fyrirtækjum sem brotist var inn í. KAÞÓLSKA kirkjan í Hafnarfirði. Kveikt í kirkju kaþólskra REYNT var að kveikja í kaþólsku kirkjunni í Hafnarfirði á sunnu- dagsmorgun. Talið er að eldfim- um vökvum hafi verið skvett á gólf og eldur borinn að en hann náði ekki að breiðast út og ber- ast í nærliggjandi tréverk. Ekki er vitað hver var að verki. Nunna kom að kirkjunni ólæstri á sunnudagsmorgun og sá að farið hafði verið inn í miðja kirkjuna á gluggalausan gang sem liggur að stiga. Þar voru sviðnar gólfflísar og sótsvartar; talið er víst að eldfimum vökva hafi verið stökkt þar á og eldur lagður að. Hann hafi hins vegar kafnað af sjálfsdáðum og ekki náð að breiðast útí stigann og viðarklætt loftið. Á gólfinu fund- ust eldfæri. Skemmdir voru ekki miklar að sögn lögreglu en hæglega hefði getað farið verr. Málið er til rann- sóknar hjá RLR en ekki er vitað hveijir vora að verki. Lögreglan þiggur með þökkum ábendingar Morgunblaðið/Golli ÁSGEIR Sörensen, formaður stjórnar kaþólska safnað- arins í Hafnarfirði vð staðinn þar sem eldurinn kom upp. um mannaferðir í grennd við kirkjuna aðfaranótt sunnudags og sunnudagsmorgun. Unnar Þór Böðvars- son settur skólasljóri MENNTAMÁLARÁÐHERRA hef- ur sett til eins árs í stöðu skóla- stjóra Hvolsskóla Unnar Þór Böð- varsson, skólastjóra Reykholtsskóla í Biskupsstungum. í fréttatilkynningu frá ráðuneyt- inu segir: „Svo sem kunnugt er af fréttum setti ráðherra Jónínu Tryggvadóttur í þetta starf fyrir nokkru á grundvelli þess að hún hefði mestu menntunina og Ijöl- þættasta reynslu hinna 12 umsækj- enda. Skólanefnd og fræðslustjóri höfðu hins vegar mælt með Unnari Þór Böðvarssyni. Vegna ályktana og mótmæla skólanefndar og Skólastjórafélags Suðurlands treysti Jónína sér ekki til að taka stöðunni. Miðað við af- stöðu skólanefndar, fræðslustjóra og Skólatjórafélags Suðurlands, hefur ráðherra ákveðið að kanna ekki hug þeirra níu umsækjenda sem eftir eru með meiri menntun en Unnar Þór en áréttar fyrri yfir- lýsingar sínar að hann munu beita sér fyrir því að lög kveði á um fag- leg vinnubrögð við ráðningar skóla- stjóra með markvissari hætti en nú er.“ f (í fl ( r fl fl c fl c I í 4 \i \i c i

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.