Morgunblaðið - 16.08.1994, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1994 21
LISTIR
sjálf, er hennar eigið, í veröld sem
er blanda draums og veruleika. Þar
bregður fyrir englum og svo létt er
yfir sumu fólki að það svífur í lausu
lofti. Stundum eru hlutföll önnur en
í raunveruleikanum, hús geta verið
lítil og fólk risavaxið.
Enginn sannur listamaður sér
hlutina eins og þeir eru, sagði Oscar
Wilde. Það er einmitt sú veröld sem
Karólína skapar og sýnir í myndum
sínum, sem heiliar og gerir áhorfand-
ann uppnuminn. Joseph Williams
orðar það þannig í grein sinni um
Karólínu í Modern Painters, að ver-
öld hennar sé „lækningameðal fyrir
þjakaða hugi - uppbyggjandi hvíld-
arstaður" (a balm to hurt minds, a
salubrious resting-place).
Opnunargestir á þessari sýningu
Karólínu ræddu mikið um myndir
hennar og áttu margir þeirra fljót-
lega sínar uppáhaldsmyndir; Hæfi-
leikaríka kokkinn (sem spilar á fiðlu
fyrir par, sem situr við veisluborð,
einhvers staðar utandyra í góðu
veðri), Parið dansar í garðinum sín-
um eða Sprungið á reiðhjóli póstsins,
Engillinn spjallar í eldhúsinu eða
Mennirnir bera regnbogann.
Karólína nefnir Ásgrím Jónsson
og Jóhannes Kjarval sem þá málara
íslenska sem mest áhrif hafí haft á
sig. Ásgrímur og Tómas Guðmunds-
son Reykjavíkurskáld ræddu stund-
um saman um drauma og segir Tóm-
as, í samtalsbókinni Svo kvað Tóm-
as, þá hafa haft af þeim mjög svip-
aða reynslu. í sumum draumum birt-
ust landslög svo yfírnáttúrulega fög-
ur eða svo stór og framandleg í snið-
um, að þeim yrði ekki lýst með nein-
um tiltækum orðum. Slíkir draumar,
sagði Tómas, bæta miklu við tiiver-
una.
Þannig er list Karólínu Lárusdótt-
ur. Verk hennar eru meira en falleg-
ar myndir að horfa á - þau eru við-
bót við tilveruna.
Magnús Ingvar Torfason.
(Sýningunni í Cambridge lauk
undir lok júlímánaðar. Hún verður
sett upp víðar í sýningarsölum CCA
Galleries, á þessu ári og því næsta.)
Sónötur og
slavneskir
dansar
SIGRÚN Eðvaldsdóttir fiðluleikari
og Selma Guðmundsdóttir píanóleik-
ari leika í Listasafni Sigutjóns Ólafs-
sonar í kvöld. Tónleikarnir hefjast
klukkan 20.30 og standa í um það
bil klukkustund. Á efnisskrá eru eft-
irtalin verk: sónata fyrir fíðlu og
píanó eftir Leos Janaceks, þrír slav-
neskir dansar eftir Dvorak og Keisl-
er, og sónata fyrir fiðlu og píanó
eftir Maurice Ravel.
------------
Heimur sál-
arinnar
HALLA Sigurgeirsdóttir heldur sýn-
ingu í sal Píramídans, Dugguvogi
2. Sýningin ber yfirskriftina Innra
landslag og túlka myndirnar sýn inn
í heim sálarinnar, segir í fréttatil-
kynningu.
Sýningin stendur til 5. september
og er opin klukkan 14-18 virka daga
og 14-17 um helgar.
Aðgangseyrir er kr. 250.
Þrír vandaðir farsímar
fyrir nýja GSM farsímakerfið
Ericsson Pocket GH 337
Léttur og handhægur GSM farsími,
hentugur í vasa og veski.
Ericsson Pocket vegur aðeins um
197 gr og sendistyrkurinn er 2 wött.
Minni fyrir númer og nöfn.
Hleðsluspennir fyrir rafhlöðu. A
Motorola 7200
Lítill og léttur
GSM farslmi áfl
frá Motorola
á góðu verði.
Sendistyrkurinn
er 2 wött. Símanum fylgir
innbyggt, óbrjótanlegt loftnet
sem draga má út. Flipi er á símanum
sem lokartakkaborðinu. 100 númera
skammvalsminni er í slmanum. Aukarafhlaða
og fullkomið borðhleðslutæki fylgir.
Hagenuk MT 2000
Hagenuk slminn er ódýr og sterkur
GSM farsími með innbyggðum sím-
svara fyrir nöfn og talnaboð. Stminn
er einfaldur í notkun. Síminn hefur
99 númera skammvalsminni, bæði
fyrir númer og nöfn. Hleðsluspennir
fyrir rafhlöðu.
M Fjöldi fylgihluta er fáanlegur.
Traust viðgerðar- og varahlutaþjónusta
PÓSTUR OG SÍMI
Söludeild Ármúla 27, sími 91-63 66 80
Söludeild Kringlunni, sími 91-63 66 90
Söludeild Kirkjustræti, 91-63 66 70
og á póst- og símstöðvum um land allt.
VISA og Eurocard
raðgreiðslur.
EBICSSÓN
Blab allra landsmanna!
- kjarni málsins!