Morgunblaðið - 16.08.1994, Side 39

Morgunblaðið - 16.08.1994, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1994 39 FRÉTTIR GUNNAR G. Schram, deildar- forseti, var nýverið sæmdur merki Orators félags laga- nema úr gulli. Stefán Eiríks- son, formaður Orators, af- henti honum merkið fyrir hönd félagsins. Gunnar G. Schram heiðraður GUNNAR G. Schram, lagaprófess- or, var fyrir nokkru sæmdur gull- merki Orators, félags laganema. Þetta er í sjöunda sinn sem gull- merkið er veitt frá því að Grágás var gerð að merki félagsins árið 1966. Gunnar G. Schram sat í stjórn Orators árin 1952-1953. Hann hefur æ síðan sýnt félaginu sér- staka velvild og áhuga. Stjórn Orat- ors ákvað á fundi í vetur að þakka Gunnari fyrir áhuga hans og störf í þágu félagsins með því að sæma hann gullmerkinu. Honum var af- hent merkið í hófi sem hann sem deildarforseti lagadeildar hélt nýút- skrifuðum lögfræðingum 25. júní sl. Fram til þessa hafa sex aðilar verið sæmdir gullmerki Orators, frá því að Grágás var tekin upp sem merki þess árið 1966. Sigurður E. Ólason hlaut Grágás úr gulli árið 1979, Ármann Snævarr var sæmd- ur merkinu árið 1982, Matthías Á. Mathiesen og Geir Hallgrímsson árið 1986, Þorvaldur Garðar Krist- jánsson árið 1987 ogÞór Vilhjálms- son árið 1989. Bifreið stolið BIFREIÐ var stolið frá bænum Pétursborg í Glæsibæjarhreppi, norðan Akureyrar, aðfararnótt laugardagsins. Bifreiðin er af gerð- inni Fiat Uno, með skráningarnúm- erið A-10699. Bíllinn er grár, ár- gerð 1984. Hafi einhver séð um- rædda bifreið eftir kl. 4 aðfaranótt laugardags, er sá hinn sami vinsam- lega beðinn að láta lögregluna á Akureyri vita. ----» ♦ ♦--- Eldri borg- arar á Vest- urlandi ULLARSELIÐ og Búvélasafnið á Hvanneyri munu standa fyrir opn- um degi þriðjudaginn 16. ágúst nk. kl. 13. Meðlimir Ullarselsins munu keppa í spuna og prjóni á Búvéla- safninu. Spuna- og pijónakeppni þessi er undanfari landskeppni sem haldin verður að Þingborg í haust. Sjábu hlutina í víbara samhengi! Síðbúin hefnd Kortsnojs SKAK Frá stórmótinu í Dortmund. Itrcf frá I c s c n <1 u m FLESTIR skákáhugamenn minn- ast vafalaust þeirra tíma þegar kalda stríðið setti mark sitt á skák- heiminn. Áróðursmeistarar komm- únistavaldsins í Sovétríkjunum töldu það afar mikilvægt að eiga bestu skákmeistara í heimi. Það var mikið áfall fyrir þá þegar Fisc- her vann heimsmeistaratitilinn hér í Reykjavík 1972 og kom annar hnekkir þegar Kortsnoj flúði vestur árið 1976. Hann háði síðan tvö ein- vígi um heimsmeistaratitilinn við Anatólí Karpov en varð að lúta í lægra haldi í báðum. Það várð mjótt á mununum 1978 en árið 1981 beið Kortsnoj afhroð og síðan hefur hann átt erfitt uppdráttar í skákum sínum við Karpov. Það var ekki fyrr en í sumar að Kortsnoj, sem orðinn er 63ja ára, tókst loks að sigra FIDE heims- meistarann. Það gerðist á stórmóti í Dortmund í Þýskalandi. Karpov átti slæmt mót og tefldi afar illa gegn Kortsnoj. Hann náði þó að skapa sér gagnfæri og upp kom afar tvísýn og skemmtileg staða: Svart: Viktor Kortsnoj Hvítt: Anatólí Karpov Í þessari stöðu lék Karpov síðast 60. f6—f7 og meðhöndlun Kortsnojs á lokunum hefur hvar- vetna verið hrósað upp í hástert: 60. - Bxf4!, 61. f8=D? - Bxe3+, 62. Khl - Bh6, 63. Df2 - Bg7, 64. a6 - Hf3, 65. Del - Bxa6, 66. Be2 - Hf7, 67. Dc5 - c3!, 68. Dcxc3 — Bxe2, 69. Dxe2 - Df6, 70. Dcl - Bh6, 71. Dbl - Df5, 72. Kgl - Hc7! og Karpov gafst upp. 60. — Bxf4! er vissulega glæsi- legur leikur sem gefur hvítum bæði kost á að vekja upp aðra drottningu, eins og Karpov gerði, og einnig að vekja upp riddara sem umsvifalaust setur gaffal á svörtu hjónin. Þar leyndist afar vel falin jafnteflisleið fyrir Karpov: 61. f8=R+! - Kh6, 62. gxf4! En alls ekki 62. Rxe6? — Bxe3+, 63. Khl — Hbl og mátar. 62. - Df7, 63. Db8!! - Kg7 Eftir 63. - Hxe3, 64. Dd6+ - Kg7, 65. Re6+ slepppur svartur ekki úr þráskákum. 64. De5+! - Kxf8, 65. Rf5 og svartur á nú ekki viðunandi svar við þeirri hótun hvíts að þráskáka með 66. Dh8+ - Dg8, 67. Df6+ - Df7, 68. Dh8+ o.s.frv. Bréf frá lesendum Skákþætti Morgunblaðsins ber- ast iðulega athugasemdir frá les- endum sem eru vel þegnar. Oftast nota skákáhugamenn tækifærið er þeir hitta undirritaðan á mótum en einnig er þjónusta Pósts og síma notuð til að koma á framfæri end- urbótum á þeim töflum sem sýnd eru í þáttunum og skýringum. Skákþátturinn er víðar lesinn en ég hélt, því nýlega barst bréf frá Kyrrahafsströnd Bandaríkjanna. Bragi Freymóðsson í Santa Bar- bara í Kaliforníu ritar til að vekja athygli á fórnaskák í kóngsbragði sem óvíða hefur birst og vart ratað áður fyrir augu íslenskra skák- áhugamanna. Hún var tefld á þriðja áratugnum og sigurvegarinn er lítt þekktur skákmeistari, séra Howard E. Ohman í Omaha í Ne- braskaríki. Hann varð meistari Nebraska 25 ár í röð og komst oft í úrslit á opna bandaríska meistara- mótinu. Þegar Aijekín heimsmeist- ari átti leið um Omaha í lest kall- aði hann Ohman niður á stöð til að tefla við sig hraðskákir. Hvítt: Howard Ohman Svart: G. Buck Kóngsbragð 1. e4 - e5, 2. Rc3 - d6, 3. f4 - exf4, 4. Rf3 - Be7, 5. Bc4 - Bh4+, 6. g3 - fxg3, 7. 0-0! - gxh2+, 8. Khl — Bg3?, 9. Bxf7+ - Kxf7, 10. Re5++ - Ke6, 11. Dg4+ — Kxe5, 12. d4+ — Kxd4, 13. Be3+!? - Kxe3, 14. Hadl - Bxg4, 15. Hd3 mát. Lagleg skák þetta sem Bragi segir að minni sig á hand- bragð Morphys og Anderssens. Það má taka undir það en það vekur athygli mína að séra Ohman er ósárt um biskupa sína og lengir skákina að óþörfu bara til þess að geta fórnað þeim báðum. 13. Be3+ sem hann lék leiðir til máts í fimmta leik gegn bestu vörn: 13. — Ke5, 14. Bd4+ - Kxd4, 15. Ddl+ - Kc5, 16. Dd5+ — Kb6, 17. Db5 mát, en það er hægt að máta strax í þriðja leik með 13. Ddln--Kc5, 14. Dd5+ - Kb6, 15. Db5 mát. Vafalaust hefur svo sterkur skákmaður séð jafneinfalt mát í þriðja leik en af einhverjum ástæð- um hefur presturinn endilega viljað fórna báðum biskupunum. Umdeild flétta Najdorfs í sumarbyrjun birtust tafllok sem gamla kempan Miguel Najdorf vann í vor, orðinn 84 ára gamall. Þau hafa valdið nokkrum lesendum heilabrotum. Staðan var svona: Svart: Najdorf Hvítt: Loiterstein Lokin voru lagleg: 61. — f4, 62. gxf4 - Df3, 63. Dfl - Bxf4, 64. Bd2 — Bxh2+, 65. Kxh2 — g3+ og hvítur gafst upp. Fljótlegk var athygli mín vakin á því að Najdorf hefði átt ennþá glæsilegri vinningsleið í fórum sín- um: 61. - Bxg3!, 62. hxg3 - f4!, 63. exf4 - Df3, 64. Dfl - e3 (hót- ar 65. — e2) 65. fxe3 — h2+, 66. Kxh2 — Dxfl og vinnur. Einnig hefur verið bent á að hvftur hafi misst af besta vamar- möguleikanum eftir 61. — f4 sem er 62. Dfl! Þá er alls ekki hlaupið að því að finna vinningsleiðina 62. - Df3, 63. Bd2 (63. gxf4 - Bxf4, 64. Bd2 er svarað með 64. - Bxh2+!, 65. Kxh2 — g3+ og 64. exf4 — Dxc3, 65. Ddl —' Kf5 er vonlaust með öllu.) 63. — Bxg3!, 64. Dxf3 - exf3! (Einfaldara en 64. — Bxh2+ sem vinnur einnig.) 65. hxg3 - Kf5, 66. Ba5 - Ke4, 67. Bb6 - Kxe3, 68. Bxa7 — Ke2 og hvítur verður mát. Niðurstaðan verður því sú að leikur Najdorfs dugir fyllilega til vinnings, en er ekki sá öflugasti í stöðunni. Helgarskákmót í Reykjavík Það verður haldið helgarskák- mót í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur, Faxafeni 12, dagana 12.-14. ágúst næstkomandi. Tefld- ar verða sjö umferðir eftir Monrad- kerfi. Fyrstu þrjár umferðimar verða með 30 mínútna umhugsun- artíma en í þeim þær fjórum síð- ustu verður ein og hálf klukkustund á 30 leiki og síðan hálftími til að Ijúka skákinni. Umferðatafla: 1.-3. umferð föstudag, 12. ágúst kl. 19.-22. 4. umferð laugardag, 13. ágúst kl. 10-14. 5. umferð laugardag, 13. ágúst kl. 17-21. 6. umferð sunnudag, 14. ágúst kl. 10-14. 7. umferð sunnudag, 14. ágúst kl. 17-21. Þrenn peningaverðlaun eru veitt, kr. 20 þús. 12 þús. og 8 þús. Þátt- tökugjöld eru kr. 1.500 fyrirfélags- menn TR, en kr. 2.000 fyrir aðra. Fyrir 15 ára og yngri em gjöldin kr. 800 og kr. 1.000. Stjórn TR býður alla velkomna til leiks. Margeir Pétursson VIKTOR Kortsnoj gerði upp gamlan reikning. Gjwvi kæliskápar án frystis <*«*/»•# kæliskápar með frysti <r#*A/*#innbyggingarskápar <í#*-v*#frystiskápar <í#*A/*#frystikistur Við bjóðum 9 gerðir Qíram kæliskápa án frystis, t.d. þessa 6 sem hér eru sýndir. Kæliskápur án frystis, gerð: Nýtanlegt rými, lítrar: Mál: breidd/dýpt/hæð, mm: Orkunotkun, kWst/sólarhring: Verð: Keypt með afborgunum: Staðgreitt (mínus 7%): Við bjóðum 10 gerðir kæliskápa með frysti, t.d. þessa 6 sem hér eru sýndir. K-201 197 550/601/1065 0,57 49.980,- 46.480,- K-245 242 550/601/1265 0,60 54.830,- 50.990,- KS180E 168 595/601/942 0,62 53.750,- 49.990,- KS300E 271 595/601/1342 0,67 57.980,- 53.920,- Kæliskápur með frysti, gerð: KF-185 Nýtanlegt rými, kælir+frystir Itr.: 139+33 Mál: breidd/dýpt/hæð, mm: 550/601/1065 Orkunotkun, kWst/sólarhring: 0,97 Verð: Keypt með afborgunum: 51.580,- Staðgreitt (mínus 7%): 47.970,- KF-232 186+33 550/601/1265 1,07 55.900,- 51.990,- KF-263 197+55 550/601/1465 1,25 59.980,- 55.780,- Dönsku <í#M/*#kæliskáparnir eru rómaðirfyrir hagkvæmni, styrk, sparneytni og endingu. Nýja <!#*/*/*# kæliskápalínan, sem við kynnum nú, er stórglæsileg vara á afar hagstæðu verði. KF245E 169+62 595/601/1342 1,05 64.500,- 59.990,- fyrsta flokks frá iin#- KS350E 323 595/601/1542 0,70 75.260,- 69.990,- KF355E 272+62 595/601/1742 1,45 78.470,- KS400E 375 595/601/1742 0,72 84.800,- 78.860,- KF335E 190+133 595/601/1 742 1,80 84.920,- 72.980,- 78.980,- /FOnix HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI (91)24420

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.