Morgunblaðið - 14.10.1994, Side 6

Morgunblaðið - 14.10.1994, Side 6
6 FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ ___________________________________FRÉTTIR____________________________________ Dagskrárstjóri Rásar 2 sagði Illuga Jökulssyni og Hannesi H. Gissurarsyni upp störfum J Vilja draga úr pólitík í pistlum Illugi Sigurður G. Hannes H. Jökulsson Tómasson Gissurarson Sigurður G. Tómasson, dagskrárstjóri dægnrmála- útvarps Rásar tvö, hefur sagt Illuga Jökulssyni og Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni, pistlahöfund- um á Rás tvö, upp störfum. Fundur á vegum starfsmannasamtaka Ríkisútvarpsins mótmælti uppsögn Illuga harðlega og sagði hana aðför að skoðanafrelsi í landinu. í viðtali við Egil Ólafsson segir Sigurður það misskilning. „VIÐ ALITUM það aðför að skoð- anafrelsi í landinu að segja upp pistlahöfundi vegna pólitísks mál- flutnings. Siíkt brýtur í bága við það meginhlutverk Ríkisútvarpsins að endurspegia á hveijum tíma sem flestar þær hugsanir og hugmyndir er bærast með þjóðinni. Við krefj- umst þess að uppsögn pistlahöfund- arins verði þegar í stað dregin til baka,“ segir í ályktun vinnustaða- fundar Ríkisútvarpsins. Ályktunin var gerð áður en upplýst var um uppsögn Hannesar Hólmsteins. Vilja draga úr pólitík í pistlunum „Það var ákvörðun yfirmanna Ríkisútvarpsins að það væri rétt að draga úr pólitíkinni í pistlum í dæg- urmálaútvarpi Rásar tvö. Það er mikil umfjöllun um pólitík í dægur- málaútvarpinu og stendur ekki til að breyta því neitt,“ sagði Sigurður G. Tómasson um ástæður uppsagn- arinnar. Sigurður var spurður hvort hann hefði tekið þessa ákvörðun einn eða í samráði við yfirmenn Ríkisútvarps- ins. „Hún er tekin í samráði við yfir- menn útvarpsins, framkvæmda- stjóra útvarpsins og væntanlega út- varpsstjóra." Sigurður neitaði að svara spurn- ingu um hvort hann væri persónu- lega fylgjandi uppsögn Illuga. Ekki náðist í Elfu Björk Gunnars- dóttur, framkvæmdastjóra Ríkisút- varpsins, en í útvarps- og sjónvarps- fréttum í gærkvöldi sagði hún að Illugi hefði margoft gerst brotlegur við starfsreglur Ríkisútvarpsins. Hún sagði að uppsögnin væri ekki tilkomin vegna pólitísks þrýstings, enginn hefði reynt að beita hana þrýstingi. Hún sagðist hafa rætt þetta mál við útvarpsstjóra. Hann stæði ekki að ákvörðuninni, en væri henni samþykkur. Ekki flokkspólitískir Illugi Jökuisson sagði að þó pistl- ar sínir hefðu verið pólitískir hefðu þeir ekki verið flokkspólitískir. „Þetta hefur verið mín eigin pólitík og í hæsta lagi pólitík þeirra sem eiga sér ekki aðra málsvara, svo ég noti hátíðlegt orðalag. Ef sú pólitík á ekki heima í Ríkisútvarpinu þá þykir mér afar illa komið.“ „Ég hef í þessum pistlum mínum aldrei sagt neitt sem mætti flokkast undir stuðning við einn eða annan stjórnmálaflokk nema í þessum pistli rétt fyrir borgarstjórnarkosningarn- ar. Hann var þess eðlis að þá voru kostimir bara tveir, þannig að ef ég gagnrýndi annan framboðslistann hlaut það að skiljast sem stuðningur við hinn. Ég hef gagnrýnt flokka, en engan stutt. Ég hef náttúrlega gagnrýnt flokka sem eru við stjórn- völinn vegna þess að það eru stjórn- völd í landinu á hveijum tíma sem þarf að gagnrýna." Síðdegis tilkynnti Sigurður G. Tómasson Hannesi H. Gissurarasyni um uppsögn. Sigurður sagði að ákvarðanir um að segja Hannesi og Illuga hefðu verið teknar samhliða, en sér hefði gengið illa að ná síma- sambandi við Hannes og því hefðu fréttir af uppsögnunum ekki borist samtímis. „Ég hef að vísu ekki fengið skrif- lega og rökstudda uppsögn eins og Ríkisútvarpinu er skylt að senda til mín samkvæmt stjórnsýslulögunum. Ég lýsi furðu minni á því ef verið er að reka mig á einhvern sambæri- legan hátt og Illuga Jökulsson vegna þess að framkvæmdastjóri hljóð- varpsins hefur lýst því yfir að hann hafi margoft gerst brotlegur við venjulegar starfsreglur útvarpsins, en það hefur aldrei komið fram nein slík athugasemd við mína pistla,“ sagði Hannes H. Gissurarson. Hannes sagðist ætla að íhuga hvort Ríkisútvarpið væri skaðabóta- skylt vegna uppsagnarinnar. Ekki pólitískur þrýstingur Illugi sagði í lok pistils síns á Rás tvö í gærmorgun að forstöðumaður dægurmálaútvarps Rásar tvö hefði sagt sér upp störfum vegna þess að hann nennti ekki að hlusta lengur á kvartanir valdhafandi manna út af þeim. „Mér finnst það satt að segja ansi mikil leti í einum embættis- manni ef hann nennir ekki að sinna skyldum sínum betur en þetta; hann vilji frekar segja mönnum upp en að þurfa að hlusta öðru hvoru á kvartariir í einhveijum." Sigurður sagði að hlustendur hefðu alloft haft samband við sig og gagn- rýnt pistla Illuga. Hann sagði að margir virtust standa í þeirri trú að þeir lýstu skoðunum Ríkisútvarpsins, en það væri að sjálfsögðu alrangt. „Ég hef ekki fengið neinar ábending- ar eða kröfur frá stjórnmálamönnum um að reka Illuga. Ég veit ekkert um hvað aðra snertir." Illugi hefur flutt pistla á Rás tvö í yfir fjögur ár. Hann fullyrti að Sigurður G. Tómasson hefði aldrei gert eina einustu athugasemd við pistlana, hvorki um form né inni- hald. Hann sagði að eina athuga- semdin sem hann hefði fengið hefði verið frá staðgengli Sigurðar vegna pistils sem fluttur var skömmu fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Athugasemdin hefði verið við tíma- setningu pistilsins, ekki form hans. Sigurður sagði þetta ekki rétt. Hann sagðist nokkrum sinnum hafa gert athugasemdir við pistla Illuga, * bæði um efni og efnismeðferð. ) Sigurður var spurður hvort þessi ákvörðun væri afleiðing þess uppn- áms sem varð eftir pistil llluga fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. „Það má segja að þessi ákvörðun sé tekin í ljósi reynslunnar." Sigurður sagði að pistlahöfundar væru ekki ráðnir til starfa hjá Ríkis- útvarpinu heldur væru þeir verktak- | ar. Þeir ynnu tímabundið, hættu og kæmu aftur til starfa. Sigurður sagði " alls ekki útilokað að hlustendur ættu ) eftir að heyra Illuga og Hannes flytja pistla á Rás tvö aftur. Illugi kveðst aftur á móti líta svo á að um endan- lega uppsögn sé að ræða. Rætt á Alþingi Svavar Gestsson kvaddi sér hljóðs um störf Alþingis í gærmorgun þeg- ar uppsögn Illuga lá fyrir og sagðist ) myndu beita sér fyrir umræðu um stöðu Ríkisútvarpsins á Alþingi í ljósi * þess að stofnunin byggi við óþolandi ) pólitískt einelti af hálfu Sjálfstæðis- flokksins. Svavar sagði í samtali við Morg- unblaðið í gærkvöldi að hann væri þeirrar skoðunar að uppsögn Illuga væri ekki sambærileg við uppsögn Hannesar Hólmsteins. Svavar hefur óskað eftir umræðu á Alþingi utan dagskrár og verður hún nk. þriðju- | dag. Hjálmar Jónsson varaþingmaður t Sjálfstæðisflokks, sem einnig situr í | útvarpsráði, sagði í umræðunum á Alþingi gær að í útvarpsráði hefði ekki komið fram neitt vantraust á Illuga, eð_a aðra pistlahöfunda út- varpsins. Á Ríkisútvarpinu væri fyrir hendi hlutlægni sem tryggði að allar skoðanir fengju að njóta sín þar. „Svavari er fijálst að túlka at- burði eins og honum sýnist. Hann k er sjálfsagt að höfða til nokkurra undangenginna ára og þá getur hver i dæmt fyrir sig,“ sagði Sigurður G. } Tómasson um ummæli Svavars. Búist er við að mál Illuga verði rætt á fundi útvarpsráðs í dag. HELGI Ingólfsson sagnfræðingur hlaut í gær bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir skáldsöguna Letrað í leikandi vindinn. Verðlaunin voru nú veitt í fyrsta sinn til að heiðra minningu borgarskáldsins. Dómnefnd valdi sögulega skáldsögu Helga úr fjörutíu handritum; að 21 Ijóðabók, 17 skáldsögum og tveim leikritum. Hulda Valtýsdóttir blaða- maður, Kolbrún Bergþórsdóttir gagnrýnandi og Dagný Kristjánsdóttir dósent skipuðu nefndina. Þær höfðu til hliðsjónar borgina, bókmenntahefðina og valdið á íslenskri tungu. Allt þetta einkenndi verk Tómasar, sem lést fyrir ellefu árum. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir afhenti Helga verðlaunin í Höfða. Bókin er enn ókomin út, en ef dæma má af viðmóti útgefenda sem viðstaddir voru í Höfða í gær er ekki langt þar til hún verður fáanleg á prenti. Þetta er pólitísk örlagasaga og djörf lýsing á lífi í hinni fornu Rómaborg. Hún gerist árið 63 fyrir Krist, segir frá íjórum ungum mönnum og einkum skáldinu Catúll- usi. Dagný Kristjánsdóttir orðaði það svo í ávarpi sínu, að á þessum tíma hefði róm- verska heimsveldið staðið á tímamótum, vald öldungaráðsins verið vefengt, spilling gegn- sýrt stjómkerfíð og allt gegnið kaupum og sölum. „Sagan er ákaflega vel skrifuð,“ sagði Dagný, „stíllinn er þéttur og myndríkur; lykt, hávaði, hiti og þrengsli á götum Rómaborgar verða áleitin í textanum. . . í þessari skáld- sögu er mikil þekking á hugmyndaheimi, heimspeki og trú tímabilsins samankomin og vekur furðu hve mikla skírskotun Letrað í leikandi vindinn hefur til nútíma okkar - en það er aðal góðra sögulegra skáldsagna." Hljóp yfir æskusögurnar en valdi fornöldina Með þessum verðlaunum stekkur fram á sjónarsviðið nýr og áður óþekktur höfundur. Helgi er 37 ára kennari í fornaldarsögu við Menntaskólann í Reykjavík. Hann kveðst hafa skrifað í tuttugu ár, bæði fyrir sjálfan Pólitísk örlög og ástir í Rómaveldi Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar voru í gær veitt í fyrsta sinn. Helgi Ingólfsson hlaut þau fyrir heimildaskáldsög- una Letrað í leikandi vindinn. Þórunn Þórsdóttir fylgdist með verðlaunaveitingunni og ræddi við Helga um bókina. Morgunblaðið/Árni Sæberg HELGI Ingólfsson tekur við bókmenntaverðlaunum Tómasar Guðmundssonar úr hendi Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur borgarsljóra. sig og í vinnunni, en ekkert hafí komið út af skáldskap nema ein smásaga í Tímariti Máls og menningar. Svo hafi það verið fyrir þrem, fjórum árum að nemendur hans hafi . fengið það verkefni að flytja erindi um ljóð- skáldið Catúllus. „Þótt þau væru nú misjöfn I varð mér ljóst hve góður efniviður væri þarna. | Því get ég þakkað nemendunum innblástur- inn og vinum mínum nokkrum sem ég hitti á þessum tíma og ræddi við um bókmenntir dagsins. Okkur fannst vanta epískar skáld- sögur og einfaldlega skemmtilegar bækur.“ Síðari hluti sögunnar í smíðum Helgi segist þannig hafa ákveðið að setjast niður og semja bók um pólitíska refskák, ást- | ir og örlög Rómveija skömmu fyrir valdatöku Sesars. „Eg skrifaði fyrst svona 400 síður og lá svo yfír heimildum, slípaði og stytti um nær | helming. Á þessum rúmu þrem árum lærði ég að hugmyndin er tíundi hluti góðrar skáld- sögu og handavinnan yfírgnæfandi. Nú stend ég uppi með fímmta handrit sögunnar og hef það endanlegt. Ég er meira að segja kominn með um fjórðung af síðari hluta hennar, sjálf- stæðu framhaldi þessarar bókar.“ Letrað í leikandi vindinn gerist að sögn Helga á tveim sviðum; stjórnmálum og skáld- | skap. Umhverfið er framandi en þó kveðst Helgi vísa til nútímans með ýmsum hætti. j „Hver metur söguna fyrir sig þegar þar að kemur," segir han véfréttalegur þegar nánar er innt eftir þessu. Stíll hennar er meitlaður og yfirleitt frekar hlutlægur að Helga sögn. Hann nefnir Anthony Burgess sem áhrifa- vald á skrif sín og segist geta talið upp fjöl- marga fleiri. Þótt hann hafi hér verið sagður nýr höfundur, á hann fullar hirslur af sögum. „Ég er löngu búinn að losa mig við minn- ingabækurnar,“ segir hann, „þær fengu hæli í skúffu. Mér fannst þær einfaldlega ekki vera til útgáfu og er líklega ólíkur mörgum . öðrum höfundum á mínum aldri að því leyti I að ég kem seinna fram. Vel annan tíma.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.