Morgunblaðið - 14.10.1994, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 1994
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Samningsstj órnun tekin upp í samskiptum ráðuneyta og tveggja stofnana
Á að efla sjálfstæði og sam-
keppnisvitund ríkisstofnana
Ráðuneyti hafa gert
þjónustusamninga við
tvær stofnanir ríkisins.
í þessu felst að stofnan-
irnar selja ríkinu þjón-
ustu fyrir ákveðið verð.
Til greina kemur, geti
þær ekki boðið ein-
hveija þjónustu á sam-
keppnishæfu verði, að
ríkið leiti til annarra.
FRIÐRIK Sophusson fjármálaráð-
herra og Sighvatur Björgvinsson,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra og
heilbrigðis- og tryggingaráðherra,
undirrituðu í gær samninga, sem
ráðuneyti Sighvats gera við Rann-
sóknastofnun byggingariðnaðar-
ins og Geislavarnir ríkisins. Þetta
eru fyrstu þjónustusamningarnir,
sem gerðir eru við ríkisstofnanir,
en með þeim er reynt að líkja eft-
ir markaðskerfinu með því að rík-
ið kaupi þjónustu stofnahanna fyr-
ir ákveðið verð.
Samningsstjórnun af þessu tagi
miðast að því að gera ríkisrekstur-
inn hagkvæmari og þjónustu við
almenning betri, að sögn Friðriks
Sophussonar fjármálaráðhen-a.
Friðrik sagði þessa tiiraun með
samningsstjórnun vera hluta af
átaki ríkisstjórnarinnar til nýsköp-
unar í ríkisrekstri.
„Nýjungin er einkum fólgin í
tvennu. Annars vegar er sjálfræði
stofnunarinnar aukið. Hins vegar
er gerður formlegur þjónustu-
samningur, þar sem skráð er niður
hvaða árangri stofnunin á að ná
og hvaða endurgjald kemur fyrir
frá viðkomandi ráðuneyti,“ sagði
Friðrik.
Hann sagði að fordæmi væru
fyrir þessu fyrirkomulagi meðal
annars í Bandaríkjunum, þar sem
markaðslausnir hefðu löngum ver-
ið í fyrirrúmi, og einnig á Norður-
löndunum í vaxandi mæli.
Kemur til greina að kaupa
þjónustu annars staðar
í máli Friðriks kom fram að
með þessum breyttu vinnubrögð-
um skerptust öll samskipti stofn-
RAÐHERRARNIR Sighvatur Björgvinsson og Friðrik Sophusson
voru kampakátir við undirritun fyrstu þjónustusamninganna.
Margvíslegar kröfur
gerðar um árangur í
þjónustusaimiingiun
MEÐ þjónustusamningum við
Rannsóknastofnun byggingar-
iðnaðarins og Geislavarnir ríkis-
ins er ábyrgð stofnananna á eig-
in rekstri aukin og jafnframt
sjálfstæði þeirra. Jafnframt eru
gerðar sértækar kröfur um
árangur og tímamörk sett í
mörgum tilfellum.
Meðal atriða í samningnum
við Geislavarnir má nefna að
ráðstöfun eigin tekna sé á eigin
ábyrgð stofnunarinnar og sé
henni heimilt að ráðstafa tekjum
milli viðfangsefna og rekstrarl-
iða, svo femi að fjárhagslegum
markmiðum sé náð og sam-
keppnisstarfsemi ekki niður-
greidd, í samræmi við sam-
keppnislög. í samningum beggja
stofnana eru ákvæði um að íjár-
málaráðuneytið feli þeim fram-
kvæmd kjarasamninga fyrir sína
hönd. Stofnanirnar annast því
alfarið ráðningar- og launamál,
í samræmi við Jög, reglur og
kjarasamninga. í tilviki Geisla-
varna skal starfsmannafjöldi
stofnunarinnar ráðast af verk-
efnum hennar og fjárhag.
Meðal krafna til árangurs í
samningnum við RB má nefna
að 75% rannsóknarverkefna skili
þeim árangri, sem stefnt sé að,
að 95% unninna verkefna teljist
fullgóð, þ.e. að ekki berist kvart-
anir vegna þeirra, og kostnaðar-
þátttaka þriðju aðila í ýmsum
verkefnum verði fastákveðið
hlutfall. Jafnframt eru gerðar
kröfur um árangur í rannsókn-
um og verkefnum sett ákveðin
tímamörk. Nefna má verkefni
um þróun léttsteypu, gæðaflokk-
un og nýtingarmöguleika ís-
lenzkra steinefna til mannvirkja-
gerðar, um stærð viðhaldsmark-
aðarins, og greiningu á orsökum
tæringar og annarra bilana í
lagnakerfum.
Gæðastjórnun
í samningnum við Geisla-
varnir eru meðal annars gerðar
kröfur um gæðastjórnun í
rekstri, tillögur um aðlögun ís-
lenzkrar geislavarnalöggjafar
að kröfum Evrpópusambands-
ins, mat á geislaálagi þjóðarinn-
ar vegna röntgengreiningar og
úttekt á notkun sneiðmynda-
tækja.
ana og ráðuneyta. „Kaupandi"
þjónustunnar, ríkið, vissi betur en
áður hvað hann væri að kaupa og
„seljandinn“, þ.e. viðkomandi rík-
isstofnun, gæti sett fram skýrari
markmið og áætlanir til að ná
þeim markmiðum. Þannig yrðu
stjórnvöld betur upplýst um starf
stofnana, og auðveldara væri að
fylgjast með því hvernig ríkis-
stofnunum vegnaði.
Onnur fyrirtæki fá tækifæri
Fjármálaráðherra sagði til í
dæminu að ef ríkisstofnun næði
ekki þeim markmiðum, sem fram
kæmu í þjónustusamningi, eða ef
í ljós kæmi að hægt væri að kaupa
þjónustuna ódýrari annars staðar,
kæmi til greina að beina viðskipt-
um ríkisins á því sviði til einkaað-
ila. „Vandinn hjá ríkinu er sá, að
ef aðeins ein stofnun sinnir til-
teknu verkefni, getur hún í tímans
rás farið að gera annað en það,
sem til er ætlazt af henni. Með
þessu er tryggt að við fáum þann
árangur, sem við erum að leita
eftir, og sú „hótun“ býr að baki
að ef stofnanirnar standa sig ekki,
getur ríkið alltaf leitað til annarra,
sem eru með sams konar þjónustu
á markaðnum. Þetta gefur öðrum
fyrirtækjum því tækifæri til að
bjóða ríkinu upp á tiltekna þjón-
ustu og keppa við ríkisstofnanir í
verði. Þannig getur þetta orðið í
framtíðinni,“ sagði Friðrik.
Krafa um árangur
Friðrik sagði miklu máli skipta
að vel væri skilgreint í samningun-
um hvað ríkið fengi fyrir pening-
ana. í dag stjórnaði ríkið útgjalda-
málum sínum með því að tak-
marka peningana, sem stofnanir
og fyrirtæki þess fá, og viðbrögð
stofnana væru þá oft að draga úr
þjónustu sinni. Erfitt væri fyrir
ríkið að fylgjast með slíku. í þjón-
ustusamningum væri hins vegar
gerð krafa um hvaða árangur
starfsemin ætti að bera.
Undir þjónustusamningana rit-
uðu einnig forstjórar og stjórnar-
formenn Rannsóknastofnunar
byggingariðnaðarins og Geisla-
varna ríkisins og lýstu þeir allir
ánægju með hið nýja stjórnunar-
og samskiptaform. Fram kom í
máli ráðherranna að meðal ríkis-
stofnana, sem verið væri að und-
irbúa þjónustusamninga við, væru
Kvennaskólinn í Reykjavík,
Bændaskólinn á Hólum og Vita-
og hafnamálastofnun.
Málflutningur í Félagsdómi í máli Atlanta gegn FÍ A fór fram í gær
Niðurstöðu
að vænta áður en
verkfall hefst
MÁLFLUTNINGUR í máli flugfé-
lagsins Atlanta gagnvart Félagi
íslenskra atvinnuflugmanna fór
fram í félagsdómi í gær. Niður-
stöðu er að vænta um helgina eða
fyrir boðað verkfall FÍA gagnvart
flugfélaginu á hádegi á mánudag.
Ekki tókust sættir í deilunni á
fundi með sáttasemjara á miðviku-
dag.
Lokatilraun til sátta
Sigurvin Einarsson, gjaldkeri
FÍA, sagði að sáttasemjari hefði
gert lokatilraun til að sætta aðila
með fundi á miðvikudagskvöld.
Lögfræðingur Atlanta, sem einn
hefði mætt fyrir hönd fyrirtækis-
ins, hefði hins vegar hafnað öllum
viðræðum á sömu forsendum og
áður.
Miðstjórn Alþýðusambandsins
lýsir í ályktun áhyggjum sínum
yfir þeirri staðreynd að stofnað
hafi verið nýtt stéttarfélag, sem
gengið hafi verið til samninga við
á meðan á samningaviðræðum
flugfélagsins Atlanta hf. og FIA
stóð. Alþýðusambandið telur að-
ferðina til þess fallna að veikja
stöðu og starfsemi stéttarfélaga
almennt og bijóta niður samstöðu
launafólks í baráttu fyrir bættum
lífskjörum. Það lýsir yfir fullum
stuðningi við það sjónarmið FÍA
að stofnun Fijálsa flugmannafé-
lagsins undir áðurnefndum kring-
umstæðum sé aðför að starfsemi
stéttarfélaga í landinu almennt.
Getur gengið af verka-
lýðshreyfingunni dauðri
Stjórn Verkalýðs- og sjómanna-
félags Keflavíkur og nágrennis
lýsir yfir fullum stuðningi við FÍA
í ályktun. Stjórn félagsins tekur
undir að stofnun nýs stéttarfélags
sem losi atvinnurekendur undan
lögboðinni samningsskyldu sé al-
varleg atlaga að grundvallarrétt-
indum stéttarfélaga og lögboðnum
samningsrétti þeirra fyrir félaga
sína.
Sjómannafélag Reykjavíkur
skorar á ASÍ að veita FÍA allan
þann stuðning sem hægt sé að
veita í kjarabaráttu félagsins við
Flugfélagið Atlanta, „vegna þess
að allt þetta mál getur gengið af
verkalýðshreyfingunni dauðri“.
Prófkjör á
Vestfjörðum
Tveir berj-
astum
efsta sætið
NÍU bjóða sig fram í próf-
kjöri Sjálfstæðisflokksins á
Vestfjörðum sem fram fer á
morgun, laugardag. Prófkjör-
ið er opið flokksbundnu sjálf-
stæðisfólki 16 ára og eldra
og öðrum þeim sem undirrita
stuðningsyfirlýsingu við
flokkinn
Eftirtaldir bjóða sig fram:
Ásgeir Þór Jónsson verslunar-
maður í Bolungarvík, Einar
Kristinn Guðfinnsson al-
þingismaður, Einar Oddur
Kristjánsson framkvæmda-
stjóri á Flateyri, Gísli Ólafs-
son verktaki í Vesturbyggð,
Guðjón Arnar Kristjánsson
skipstjóri, Hildigunnur Lóa
Högnadóttir framkvæmda-
stjóri á ísafirði, Kolbrún Hall-
dórsdóttir fiskvinnslukona á
ísafirði, Ólafur Hannibalsson
blaðamaður og Sigríður
Hrönn Elíasdóttir sveitarstjóri
í Súðavík.
Kosið er um Ijögur efstu
sæti framboðslistans. Einar
Kristinn og Einar Oddur
sækjast eftir stuðningi í efsta
sætið. Matthías Bjarnason,
sem skipað hefur það sæti í
mörg ár, gefur ekki kost á
sér til endurkjörs. Guðjón
Arnar stefnir á annað sætið
og Ásgeir Þór segir að mark-
mið sitt sé að ná kosningu í
4. sæti listans. Hinir fram-
bjóðendurnir fimm, Gísli,
Hildigunnur Lóa, Kolbrún,
Ólafur og Sigríður Hrönn,
sækjast allir eftir stuðningi í
þriðja sætið.
Kjörstaðir verða opnir á
öllum helstu þéttbýlisstöðum
kjördæmisins en á misjöfnun
tímum. Lengst er opið á
ísafirði og í Bolungarvík frá
klukkan 10 til 22, en víða er
lokað klukkan 18 eða 19.
Utankjörstaðaratkvæða-
greiðsla fer fram í dag og á
morgun á skrifstofu Sjálf-
stæðisflokksins í Valhöll og
einnig í dag í Kaupvangi við
Mýrarveg á Akureyri.
Saab-bifreiðir
Auðvelt að
koma í veg
fyrir stuld
SAAB-bifreið var í fyrrinótt
stolið frá Grenimel í Reykja-
vík og er talið þar hafi verið
að verki sami maður eða sömu
menn og brutust inn í bakarí
við Hagamel sömu nótt. Þar
var sprengd upp hurð og stol-
ið 8.000 krónum í skiptimynt.
Að gefnu tilefni vill lögregl-
an í Reykjavík benda Saab-
eigendum á að láta hreinsa
kveikjulása í bifreíðum sínum.
Þeir eru á milli sætanna í
Saab-bílum og snúa þannig
að skítur kemst auðveldlega
ofan í þá. Þegar hann safnast
fyrir í einhvern tíma endar
með því að hægt er að ræsa
bílinn með ýmsu öðru en rétt-
um lykli. Þess vegna þarf að
þrífa kveikjulásana reglulega
með hreinsiolíu og koma
þannig á auðveldan hátt í veg
fyrir að Saab-bifreiðum sé
stolið.