Morgunblaðið - 14.10.1994, Síða 13

Morgunblaðið - 14.10.1994, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ LAIMDIÐ FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 1994 13 Sjötíu ár frá stofnun Verkalýðsfélags Akraness í dag Morgunblaðið/Jónas Erlendsson SIGFÚS Sigurjónsson mælir þykkt bakvöðva og fitu með sónar- tæki. Ólafur Gunnarsson á Giljum heldur í hrútinn. Nota sónartæki til að skoða kynbótahrúta Fagradal, Mýrdal - Jón Vilmundarson, ráðunaut- ur Búnaðarsambands Suðurlands, hefur nú í haust farið um allt Suður- land til að skoða kynbóta- hrúta. A þessum hrúta- sýningum hafa allir eins- vetra hrútar og álitlegir lambhrútar verið skoðað- ir og mældir, síðan er notað sónartæki til að mæla fitu og þykkt bak- vöðva. Þetta sónartæki er svipað þeim sónartækjum sem notuð eru á fæðing- ardeild Landspítalans. Á hrútasýningu, sem haldin var að Stóru-Heiði í Mýrdal, voru saman- komnir margir lamb- og einsvetra hrútar. Sigfús Sigurjónsson frá Borgarfelii sat við sónarinn og mældi fitu og þykkt bakvöðva hrútanna, en Jón Vilmundarson þuklaði og gaf þeim stig. 26 einsvetra gamlir hrútar voru sýndir og fengu 24 l. verðlaun A en 2 1. verðlaun B. Sá besti, Bútur, fékk 86,5 stig TÓMAS Pálsson á Litlu-Heiði heldur í verðlaunahrútinn Bút. Jón Vilmund- arson ráðunautur mælir hrútinn. og hann átti Tómas Pálsson á Litlu-Heiði en hrútur með mestan bakvöðva var frá Jóni Hjaltasyni, Götum, en hann mældist með 4 mm fitu og 37 mm bakvöðva. Bestu lambhrútarnir og besti vet- urgamli hrúturinn eru ættaðir frá Hermanni Árnasyni, Stóru-Heiði. Tímamóta- na minnst með ýms- um hætti Akranesi - Verkalýðsfélag Akra- ness er sjötíu ára í dag og verður þessara merku tímamóta í sögu fé- lagsins minnst með ýmsum hætti á næstu dögum. Félagið hefur alla tíð verið öflugur málsvari fyrir verkafólk og verkalýðsbaráttu og látið til sín taka í ýmsum framfaramálum á Akranesi. Stofndagur félagsins er 14. októ- ber 1924. Undirbúningsstofnfundur var haldinn 9. október sama ár í Báruhúsinu, sem svo var nefnt. Ekki kemur fram hve margir sóttu þessa fundi, en frummælandi var Oddur Sveinsson á Akri, sá hinn sami og síðar meir varð landsþekktur sem fréttaritari Morgunblaðsins á Akra- nesi. í fyrstu stjórn voru kosnir Sæ- mundur Friðriksson formaður, Oddur Sveinsson ritari, Eiríkur Guðmunds- son féhirðir og Jörgen Hansson og Ágúst Ásbjörnsson meðstjórnendur. Varaformaður var kjörinn Sveinbjörn Oddsson sem síðar varð formaður félagsins til margra ára. Kaflaskipti urðu í starfsemi fé- lagsins 1931 þegar því var skipt upp í deildir og við það breyttust nokkuð störf þess og stjórn. Deildirnar fóru með sín sérmál og á sama tíma og fundum fjölgaði innan deildanna dróst saman fjöldi félagsfunda. Ein veigamesta breyting þessu samfara var að deildirnar sem stofnaðar voru í upphafi, kvennadeild, verkamanna- deild og sjómannadeild, svo og aðrar deildir sem síðar komu, fengu sjálf- kjörinn fulltrúa í stjórn félagsins sem allar götur síðan hefur verið formað- ur viðkomandi deildar. Næstu kaflaskil í sögu félagsins í verða þegar Vélstjórafélagið Víking- ur, sem stofnað hafði verið 1935, ákveður að ganga inn í félagið sem sérstök deild 1936. Þetta var sú deildaskipan sem lengst var við lýði utan þess að stofnaðar voru bílstjóra- deild og matsveinadeild sem lögðust síðan af innan skamms tíma. Frek- ari breytingar á þessu skipulagi urðu ekki fyrr en þijár deildir voru stofn- aðar með stuttu millibili á síðari árum jviurgunuiuuiu/ muigriinur ÞAÐ VAR fríður og föngulegur hópur sem sýndi á konukvöldinu á Grundarfirði. Líflamba- sala vegna fjárskipta Borg, Eyja- og Miklaholts- hreppi - Fjárkaupabændur úr Húnavatns-, S-Þingeyjar- og Árnessýslum voru hér á ferð í fjárkaupum. Nú eru þeir að fá sér nýjan fjárstofn eftir niður- skurð vegna riðu. Seld voru hér af Snæfellsnesi vestan varnargirðingar 670 lömb. Keypt voru lömb í þremur hreppum, Miklaholtshreppi, Fróðárhreppi og Eyrarsveit. Grundarfirði - Á konukvöldi, _sem haldið var í veitingahúsinu Ása- kaffi í Grundarfirði um síðustu helgi, var karlmönnum stranglega bannaður aðgangur. Að skemmt- uninni stóðu verslunin Fell, versl- unin María og hárgreiðslustofa Kristínar Ýr. Tískusýning Á skemmtuninni var tískusýn- ing, þar sem sýndur var fatnað- ur, hárgreiðsla, skartgripir og slæður frá verslunum og hár- Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson STARFSFÓLK Verkalýðsfélags Akraness í dag ásamt Herdísi Ólafsdóttur, sem um áraraðir var starfsmaður félagsins og forystu- maður þess. Talið frá vinstri: Herdís Ólafsdóttir, Hervar Gunnars- son, Guðmundur M. Jónsson og Elín Hanna Kjai-tansdóttir. eða iðjudeild 1983 og fiskvinnslu- deild og sjúkrahúsdeild 1988. í ár var síðan gerð sú breyting á deilda- skipan félagsins að kvennadeild og iðjudeild voru sameinaðar í deild iðn- og verkafólks og síðan hefur Tré- smiðafélag Akraness runnið saman Við félagið í sérstaka iðnsveinadeild. Átta formenn frá upphafi Alls hafa átta formenn starfað í Verkalýðsfélagi Akraness frá stofn- un þess og margir þeirra sem valist hafa í stjórn hafa langan starfsaldur að baki. Núverandi formaður, Hervar Gunnarsson, segir að þó alltaf sé á brattann að sækja í verkalýðsbarátt- unni hafi mikið áunnist í starfi Verkalýðsfélags Akraness. Hervar segir baráttumálin ætíð þau sömu. „Er ekki enn í dag verið að reyna að stía verkafólki í sundur, reyna að gera samtakamátt þess veikari og er ekki enn verið að hafa áhrif á verkafólk á þann hátt að það sjálft rífi niður sín eigin samtök? Ég spyr mig oft að því,“ segir Hervar, „hveijum gagnast slíkt? Þetta var líka reynt á árum áður, jafnvel strax við stofnun félagsins, en það fólk sem í hita og þunga dagsins hefur haldið merki verkalýðsfélaga á lofti öll þessi ár á mikið lof og heiður skilinn.“ í núverandi stjórn félagsins eru, auk Hervars, Lárus Ingibergsson varaformaður, Elín Hanna Kjartans- dóttir ritari, Ásmundur Uni Guð- mundsson vararitari, Jóhann Örn Matthíasson meðstjórnandi og Þór- unn Árnadóttir varameðstjórnandi. Formenn deilda, sem eins og áður kemur fram eru einnig stjórnarmenn í félaginu, eru Björn Guðmundsson formaður iðnsveinadeildar, Elínbjörg Magnúsdóttir formaður fiskvinnslu- deildar, Guðmundína Samúelsdóttir formaður deildar iðn- og verkafólks, Gunnar Guðjónsson formaður sjó- mannadeildar, Hulda Sigurðardóttir formaður sjúkrahúsdeildar, Jón Jóns- son formaður verkamannadeildar og Karl Siguijónsson formaður vél- stjóradeildar. Tímamótanna minnst Verkalýðsfélag Akraness mun minnast þessara tímamóta með ýmsu móti. Samsæti var haldið fyrir eldri borgara á Akranesi um síðustu helgi. Þá mun félagið efna til sögusýningar á gömlum gögnum úr starfsemi fé- lagsins í sjötíu ár í húsakynnum fé- lagsins við Kirkjubraut. Afmælishóf verður síðan haldið á afmælisdaginn 14. október og síðan verður félagið með opið hús í húsakynnum sínum laugardaginn 15. október frá kl. 15 til 18. Konukvöld í Grundarfirði Karlmenn, nei takk! greiðslustofu staðarins. Sýning- arstúlkurnar voru úr röðum heimakvenna. Þó karlkyns væri var fréttaritara hleypt inn á æf- ingu daginn fyrir skemmtunina og fékk hann að sjá hluta af tísku- sýningunni og taka nokkrar myndir. Horfðu sumir karlmenn nokkrum öfundaraugum á frétta- ritara þar sem honum var hleypt inn í salinn og höfðu orð á að réttast væri að setja lögbann á skemmtunina þar sem hún bryti í bága við jafnréttislög. Bílamarkaöurinn Smiðjuvegi 46E v/Reykjanesbraun_ Kopavogi, simi S71800 Daihatsu Charade TX '91, blár, 5 g., ek. aðeins 26 þ. km. V. 680 þús. Izusu Trooper 4x4 '83, 5 g., ek. 40 þ. km. á vél, nýskoðaður. Gott eintak. V. 390 þús. Toyota Hl Lux '88, svartur, 5 g., ek. 153 þ. km., sóllúga, rafm. í rúöum, 5:71 hlut- föll, 35" dekk, aircond. o.fl. V. 1.100 þús. Subaru Legacy GL 16V 4x4 '91, hvítur, 5 g., ek. 82 þ. km. V. 1.390 þús. MMC Galant 2000 GTI 5 g., ek. 92 þ. km., vól og gírkassi ný yfirfarið, sóllúga, rafm. í rúður, álfelgur, spoiler o.fl. V. 1.090 þús. Mazda 626 GLX station '89, sjálfsk., ek. 106 þ. km. V. 850 þús. Range Rover 4ra dyra '85, sjálfsk., ek. 129 þ. km. V. 1.090 þús. Cherokee Limited '92, 4.0 L, sjálfsk., ek. aðeins 31 þ. km., leðurklæddur m/öllu. V. 2,9 millj. Nissan Sunny GTi 2000 '93, 5 g., ek. 38 þ. km., m/öllu. V. 1.350 þús. Toyota Landcruiser Turbo diesel m/lnt- erc. '89, 5 g., ek. 112 þ. km., 36“ dekk, kastarar o.fl. V. 1.890 þús. M. Benz 200 '86, grásans., sjálfsk., ek. 162 þ. km., uppt. vól, sóllúga. V. 1.490 þús. Chevrolet Suburban 6.2 diesel '88, sjálfsk., góð vél o.fl. Tilboðsv. 1.150 þús. Hyundai S Coupó Turbo '93, 5 g., ek. 27 þ. km., rafm. í rúðum, álfelgur o.fl. V. 1.190 þús. Toyota Corolla Lirtback GTi '93, 5 g., ek. 17 þ. km., m/öllu. V. 1.390 þús. Toyota Corolla Touring XL 4 x 4 '89, 5 g., ek. 85 þ. km. V. 890 þús. Toyota Landcruiser langur (bensín) '82, óvenju gott eintak. V. 1.050 þús. Subaru Justy '88, 4ra dyra, rauöur, 5 g., ek. 63 þ. km. V. 380 þús. Nissan Sunny SR 16001 '94, sjálfsk., ek. 10 þ. km., álfelgur, spoiler o.fl. V. 1.280 þús. Sk. á ód. sportbíl. Plymouth Voyager V-6 7 manna '90, sjálfsk., ek. 108 þ. km. V. 1.390 þús. Nissan Sunny SLX Sedan '93, Ijósgrár, 5 g., ek. 34 þ. km., 5 dyra, rafm. í rúðum o.fl. V. 1.100 þús. Suzuki Vitara 5 dyra JLXI '92, hvítur, 5 g., ek. 39 þ. km., rafm. í rúðum, hiti í sætum o.f. V. 1.790 þús. ..... uaf • Plymouth Voyager V-6, 7 manna ’90, sjálfsk., ek. 108 þ. km. V. 1.350 þús. T -- Honda Civic LSI '92, rauður, sjálfsk., ek. 18 þ. km., rafm. í rúðum o.fl. Toppeintak. Tilboðsverð 1.090 Honda Civic GLi 16V '90, 5 g., ek. 80 þ. km., rauður, sóllúga, spoiler o.fl. V. 790 þús. Sk. ód. Grand Cherokee Laredo '93, sjálfsk., m/öllu, ek. 26 þ. mílur. Sem nýr. V. 3.7 millj. Daihatsu Charade Sedan SG '91, rauður, sjálfsk., ek. 55 þ. km. V. 790 þús. Fjöldi bila á tilboðsverði. Greiðslukjör við allra hæfi. Opið sunnudaga kl. 13-16.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.