Morgunblaðið - 14.10.1994, Side 14

Morgunblaðið - 14.10.1994, Side 14
14 FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 1994 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ BJARNI Þór Þórhallsson, opnar bráðum veitingastað á Grensásvegi, Boston kjúkling. Nýr kjúkl- ingastaður á Grensásvegi NÝR veitingastaður, Boston kjúklingur, verður opnaður í næsta mánuði á Grensásvegi 5. Staðurinn er um 200 fm og rúm- ar 55 manns í sæti. Mikil áhersla verður lögð á hollusturétti og hafa sérstakar krydduppskriftir verið keyptar frá Bandaríkjun- um. Bjarni Þór Þórhallsson, eig- andi Boston kjúklings, sem áður var rekstrarstjóri Dominos Pizza, segir að boðið verði upp á fjölbreytt úrval kjúklingarétta, t.d. grillaða kjúklinga, kjúklinga- salöt og djúpsteikta kjúklinga. Bjarni segir að lögð verði áhersla á hagstætt verð enda verði rekstrarkostnaði haldið í lágmarki. * Islensku olíufélögin bregðast við samkeppni frá erlendum birgðaskipum Kemur til greina að senda olíuskip á úthafsveiðisvæðin ÍSLENSKU olíufélögin hafa verið að athuga hvernig þau geti brugð- ist við aukinni samkeppni erlendra birgðaskipa sem selja olíu til fiskiskipa, einkum á úthafsveiðisvæðunum. Meðal annars getur komið til greina að senda olíuskip á þessi mið, að sögn Kristins Björnssonar, forstjóra Skeljungs. Geir Magnússon, forstjóri Olíufé- lagsins hf., segir að ef til vill sé kominn tími til að mæta þessari samkeppni. Hægt sé að fá leigt skip með stuttum fyrirvara og segir hann helst koma til greina að gera tilraun með að senda olíuskip á Reykjanes- hrygg þegar úthafskarfaveiðin þar standi sem hæst. Ekki er vitað um mörg dæmi þess að íslensk skip séu að kaupa olíu af birgðaskipum innan fiskveiðilögsögunnar, viðskiptin eru mest við úthafsveiðiflotann. Birgðaskip sem selja olíu og vistir koma reglulega í Smuguna í Bar- entshafi. íslensk og erlend skip sem þar esu í langan tíma kaupa af þeim olíu og vistir. Birgðaskipin hafa einnig fylgt úthafsveiðiflotanum á Reykjaneshrygg og við Grænland og íslensk skip sem farið hafa til veiða á Flæmska hattinum hafa átt viðskipti úti á miðunum. Mikið af olíunni er selt fyrirfram og fyrir milligöngu íslensku olíufélaganna. Danska fyrirtækið Malik Supply hefur t.d. verið með tvö skip á ferð- inni og kemur fulltrúi fyrirtækisins reglulega hingað til lands til þess að halda tengslum við útgerðarmenn og samtök þeirra. Samkeppnisfær í verði Forstjórar olíufélaganna segja að þessi viðskipti hafi aukist mikið og veiti þeim verulega samkeppni, ís- lensk jafnt sem erlend skip kaupi minni olíu af þeim. Félögin beittu sér sameiginlega fyrir verðlækkun olíu frá birgðaskipum í Smugunni og hafa síðan verið í sambandi um þessi mál. Geir Magnússon segist telja að ef farið yrði út í að leigja olíuskip og senda á úthafsveiðisvæð- in yrðu félögin að gera það í samein- ingu, hvert skip væri í viðskiptum við ákveðið olíufélag én ekki væri grundvöllur til þess að senda þijú skip til viðbótar. Ekki er greitt flutningsjöfnunar- gjald eða aðflutningsgjöld af olíu sem seid er úr birgðaskipi á miðun- um, hvort sem skipið er á vegum erlendra aðila eða íslenskra ef hún kemur aldrei inn í landið. íslensku olíufélögin teija sig þó oftast vera samkeppnisfær í verði en það dugi ekki ef fiskiskipin þurfi að sigla í land eftir olíunni. Kristinn og Geir segja að söluverð olíunnar hjá þess- um skipum sé mismunandi, það færi eftir aðstæðum kaupanda og selj- Tilkynning um skráningu skuldabréfa á Verðbréfaþingi Islands ííeimsbréf, jR.eiðubréf • • og Ondvegisbréf Heimsbréf, Reiðubréf og Öndvegisbréf hafa verið skráð á Verðbréfaþingi íslands. Heimsbréf er verðbréfasjóður sem ávaxtaður er í erlendum verðbréfum 'm Reiðubréf er skammtímaverðbréfasjóður Öndvegisbréf er eignaskattsfrjáls verðbréfasjóður Skráningarlýsing vegna skráningar ofangreindra verðbréfadeilda á Verðbréfaþingi íslands liggurframmi hjá Landsbréfum hf. Umsjón með skráningu: Landsbréf hf. If LANDSBRÉF HF. LANDSBANKINNSTENDUR MEÐ OKKUR Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík, sími 889200, bréfasími 888598. LÖGGILT VERÐBRÉFAFYRIRTÆKI, AÐILIAÐ VERÐBRÉFAÞINGIÍSLANDS. anda. Verðið var til dæmis hátt í Smugunni vegna þess að fiskiskipin fengu ekki afgreiðslu í Noregi. Báð- ir nefna dæmi um að verðið hafí síð- an oft verið snarlækkað þegar skipin vildu tæma sig og komast í burtu. Tollalögsagan 12 mílur Kristinn nefnir það sem dæmi um ágengni erlendu birgðaskipanna að eitt þeirra hafi sést afgreiða olíu til erlends skips hér inni á firði. Þó telur hann að ekki sé mikið um að þau séu að selja íslenskum skipum olíu í fiskveiðilögsögunni. Sveinn Hjörtur Hjartarson, hagfræðingur Landsambands íslenskra útvegs- manna,_ segist ekki vita nein dæmi þessa. íslenska tollalögsagan er 12 sjómílur. Sé olía afgreidd á íslenskt skip innan hennar telst hún innflutn- ingur til Iandsins. Ekki yrðu inn- heimt aðflutningsgjöld þó erlent skip tæki olíu í tollalögsögunni því sam- kvæmt upplýsingum Ríkistollstjóra- embættisins þyrfti að endurgreiða skipunum gjöldin þegar þau færu útfyrir aftur. Nortran USA semur við nýja aðila um fraktflug til Bandaríkjanna Emery Airlines flýgur vikulega frá Islandi EMERY Worldwide Airlines fór í sitt fyrsta fraktieiguflug frá Keflavík til Bandaríkjanna sl. miðvikudag. Flugið var á vegum Nortran USA Inc. í Bandaríkjunum, en fyrirtækið sem er í eigu Einars Ólafssonar, fyrrum for- stjóra Cargolux sem starfar nú að flugmálum í Bandaríkjunum, hefur frá janúar á þessu ári boðið upp á nær vikulegt fraktflug á milli íslands og Bandaríkjanna. Nortran USA hefur nú samið við Emery Worldwide Airli- nes um fraktflugið og er stefnt að því að DC 8 vél flugfélagsins fari frá Keflavík á þriðjudögum í vetur. Nortran USA er samstarfsfyrir- tæki Nortran hf. sem er í eigu Þór- arins Kjartanssonar, umboðsaðila Cargolux á íslandi. Að sögn Einars Ólafssonar, eiganda Nortran USA, eiga fyrirtækin tvö í samvinnu á ýmsum sviðum, s.s í markaðsmálum, markaðssetningu og ráðgjöf, en fraktflug Cargolux á milli Lúx- emborgar og Bandaríkjanna með viðkomu í Kefiavík er alfarið á veg- um Nortran hf. „Ég stofnaði Nortran USA snemma á þessu ári, en fyrsta frakt- flugið á mínum vegum var 6. janúar sl.,“ sagði Einar í samtali við Morg- unblaðið. „Flugin eru orðin um 30 á árinu og er magnið vel yfir 500 tonm Samtals eru þetta um 30 aðil- ar á íslandi sem hafa skipt við mig.“ DC 8 flugvél Emery Worldwide Airlines tekur 50 tonn af frakt, eti frá ársbyijun hefur Nortran USA flutt um 500 tonn af frakt frá ís- landi til Bandaríkjanna. Ekki haft okkur í frammi Aðspurður hvernig standi á því að svo hljótt hafi farið um þetta leiguflug með frakt sem raun ber vitni þrátt fyrir að það hafi staðið yfir frá byijun árs sagðist Einar ekki hafa verið í neinum felum með þessa þjónustu, en ekki heldur verið að hafa sig í frammi. „Það eru marg- ir sem vita af þessu, en við höfum ekkert verið að hampa því. Við höf- um ekki viljað stíga á tærnar á nein- um.“ Það sem af er árinu hefur Einar skipt við nokkur flugfélög í frakt- fluginu. Emery Worldwide Airlines er það sjötta í röðinni en samningar hafa nú náðst á milli þess og Nor- tran USA um vikulegt fráktflug í vetur. Flogið er til Hartford í Connecticut. „Ég valdi þennan flug- völl því aðkoma að honum er þægi- leg og hann er miðja vegu á milli New York og Boston,“ sagði Einar. Aðspurður um verð sagði Einar að um væri að ræða sömu gjaldskrá og Cargolux byði nú sitt flug á. Fyrir stærri sendingar væru greiddir 1,10 dollarar og 1,30 dollarar fyrir þær minni. Fyrirtæki Snýr Virgin sér að sölu maríúana ? London. Reuter. SÍAUKIN fjölbreytni er í umsvifum brezka auðjöfursins Richards Bran- sons og hann hefur gefið í skyn að Virgin-vörumerki hans verði notað til þess að selja fjármálaþjónustu - og jafnvel maríúana. „Við erum að íhuga fjármálaþjón- ustu almennt, en allar áætlanir verða að bíða í að minnsta kosti ár,“ sagði talsmaður Bransons á dögunum. Virgin hefur þegar haslað sér völl á tölvusviðinu og í framleiðslu og sölu vodka og nú síðast cola- drykkja. Samningar hafa tekizt við stórverzlananetið Tesco um sölu á Virgin Cola í Bretlandi. Branson útilokar ekki markaðs- setningu á Virgin-maríúana, ef það verður leyft. „Ef maríúana verður lögleitt og brezka læknasambandinu verður sýnt fram á að það sé mein- laust mun hann vissulega hugleiða slíkt,“ sagði talsmaðurinn. Efahyggjumenn velta því nú fyr- ir sér hvort Branson sé á leiðinni yfír strikið. „Fyrst var það Virgin- vodka, nú er það Virgin- cola. Virg7 in-hnetur hljóta að vera næsta skref- ið. Það virðist freistandi að nota Virgin-vörumerkið á allt sem er nógu afkáralegt," sagði blaðið Financial Times á dögunum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.