Morgunblaðið - 14.10.1994, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 1994 19
LISTIR
Möguleikhúsið
Tvær barnasýn-
ingar um helgina
TVÆR LEIKSYNINGAR fyrir
böm verða í Möguleikhúsinu við
Hlemm um helgina. Laugardaginn
15. október klukkan 15.00 sýnir
Furðuleikhúsið íslenska ævintýrið
Hlina kóngsson og á sunnudaginn
16. október klukkan 15.00 sýnir
Möguleikhúsið Umferðarálfinn
Mókoll.
Furðuleikhúsið var stofnað í
sumar af leikurum sem voru með
leiksýningar og uppákomur í Fjöl-
skyldugarðinum. I sýningunni um
Hlina kóngsson kynnast börnin
galdri leikhússins og möguleikum
á að skapa leikhús úr hlutum sem
þau þekkja úr hversdagslífinu, seg-
ir í fréttatilkynningu. Leikstjóri er
Gunnar Gunnsteinsson en leikarar
era Margrét Kr. Pétursdóttir, Ólöf
Sverrisdóttir og Eggert Kaaber.
Sýningin á Mókolli er unnin í
LÖGREGLAN (Bjarni Ingvarsson) ræður Mókolli (Gunnari
Helgasyni) heilt i umferðinni.
samvinnu við Umferðarráð og var hefur verið sýnd víðsvegar un land-
frumsýnd fyrr á þessu ári. Hún ið og er sýningin á sunnudag sú
121. í röðinni. í leikritinu er
börnunum kennt að varast þær
hættur sem helst kunna að verða
á vegi þeirra í umferðinni. Þar
segir frá álfinum Mókolli sem býr
í litlum álfhól. Dag einn vaknar
hann við vondan draum þegar
umferðargata er lögð þvert í gegn-
um hólinn. Þá þarf Mókollur að
læra að komast leiðar sinnar í
umferðinni án þess að fara sér að
voða. Handritið er eftir Pétur Egg-
erz, söngvar eftir Bjarna Ingvars-
son, leikmynd gerði Hlín Gunnars-
dóttir og leikstjóri er Stefán Sturla
Sigurjónsson. Leikarar eru Gunnar
Helgason, Bjarni Ingvarsson og
Pétur Eggerz.
Vakin skal athygli á því að hvor
sýning verður aðeins sýnd í þetta
eina sinn.
Fjórar sýn-
ingar opn-
aðar í Ný-
listasafninu
LAUGARDAGINN 15. októ-
ber kl. 16 verða opnaðar fjór-
ar sýningar í Nýlistasafninu,
Vatnsstíg 3b, Reykjavík. Sýn-
endur eru: Gerður Leifsdóttir,
Hreinn Friðfinnsson, Ingileif
Thorlacius, Níels Hafstein og
Haraldur Níelsson.
Gerður Leifsdóttir sýnir í
Setustofu ljósmyndir og verk
úr krossvið.
Hreinn Friðfinnsson sýnir
eitt verk, glerhillur með álímd-
um formum úr silfurpappír
sem varpa frá sér ljósi og
skuggum.
Ingileif Thorlacius sýnir
fimm skúlptúra úr fatnaði og
ýmsum búsáhöldum.
Níels Hafstein og Haraldur
Níelsson sýna verk sem unnin
eru undir áhrifum stríðsleikja,
tíu metra langan útsaumaðan
trefil og samhangandi teikn-
ingar.
Sýningarnar eru opnar dag-
lega frá kl. 14-18, þeim lýkur
sunnudaginn 30. október.
Ensemble
Norá á
ísafirði
Danski kammerhópurinn En-
semble Nord heldur tónleika
á ísafirði á sunnudaginn, 16.
október. Þeir verða í sal
grunnskólans og hefjast
klukkan 20.30.
Hópurinn, sem skipaður er
sex ungum tónlistarmönnum,
var stofnaður fyrir fimm
árum. Hann hefur hlotið fjölda
viðurkenninga, frumflutt á
fimmta tug kammerverka og
gefíð mörg þeirra út á þremur
geisladiskum. Efnisskrá tón-
leikanna á Isafirði verður fjöl-
breytt blanda nýrri og eldri
verka. Þetta eru fyrstu
áskriftartónleikar nýs starfs-
árs Tónlistarfélagsins. En-
semble Nord er hérlendis í til-
efni Danskra haustdaga.
Grafík Hjá
þeim
í DAG opnar Kristín Pálma-
dóttir sýningu í Galleríinu Hjá
þeim á Skólavorðustíg 6b.
Hún sýnir þar hluta af loka-
verkefni sínu við grafíkdeild
Myndlista- og handíðaskólans.
Þaðan útskrifaðist Kristín
síðastliðið vor. Galleríið Hjá
þeim er opið frá 12-18 virka
daga og laugardaga frá
10-14.
BikarafhendingMjólkursamsölunnar,
i . ^ laugardag og sunnudag 15.-16. okt.
Mjolkurbikararnir
þátttakan í Mjólkurbikarleiknum
síðastliðið sumar svo gífurleg
að við urðum uppiskroppa
með verðlaunabikara.
Og nú er aukasendingin
komin með pað sem
upp á vantaði!
Hér fást bikararnir a
ri d uy iiiuu
mánudeginum 17. okt.
veröa mjólkurbikarar
afhentir
í Mjólkursamsölunni,
Bitruhálsi, á milli
kl. 13 og 18 virka daga
til 15. nóvember.
REYK3AVÍK:
Mjólkursamsalan Bitruhálsi: Laugardag og sunnudag 15. og 16. okt. kl. 10 til 16.
Mjólkurbíll v/Laugardalsvöll: Laugardag og sunnudag 15. og 16. okt. kl. 10 til 16
verður mjólkurbíll við miðasölu aðalleikvangs.
HAFNARFJÖRÐUfR:
Mjólkurbíll á bflastæðunum við Fjarðarkaup, laugardag og sunnudag
15. og 16. okt. kl. lOtil 16.
YTRI-NJARÐVÍK:
Við Hagkaup, laugardag og sunnudag 15. og 16. okt. kl. 10 til 16.
NJARÐVÍK:
Við Samkaup, laugardag og sunnudag 15. og 16. okt. kl. 10 til 16.
VESTMANNAEYJAR:
Geisli, Flötum 29, laugardag og sunnudag 15. og 16. okt. kl. 13 til 16.
Um leið og við þökkum ungum sem öldnum frábæra frammistöðu og
ómælda þolinmæði, hvetjum við þá til aö láta sjá sig á laugardag eða sunnudag!
"W
MJÓLKURSAMSALAN