Morgunblaðið - 14.10.1994, Síða 20
20 FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
STEINGRÍMUR St.Th. Sigurðsson með nokkur málverka sinna á
sýningunni, meðal annars af tískukóngi fyrir norðan og stóra
Þingvallamynd.
Steingrímur St.Th. Sigurðsson
sýnir 1 Hafnarfirði
Hamingj usamari
en nokkru sinni
ÁSTFANGINN og hamingjusam-
ari en nokkru sinni, þannig lýsir
Steingrímur St.Th. Sigurðsson
sjálfum sér þegar hann opnar 77.
einkasýningu sína. Það verður í
Hafnarfirði í dag klukkan sex síð-
degis, í húsakynnum Sunnubrauðs
í Véltakshúsinu við Hvaleyrarbraut
3. Steingrímur ætlar að lesa upp
úr bók sem hann hefur í smíðum
og leikin verður Dixielandmúsík
meðan gestir á opnuninni skoða
fjörutíu málverk Steingríms frá
ýmsum árum.
Bókin sem Steingrímur-ies úr
hefur fengið heitið Lausnarsteinn
og er að hans sögn bæði ævisaga
og fantasía. Hún á að koma út
innan árs, en áður verður gefin út
á ísafirði málverkabók Steingríms
í tilefni af sjötugsafmæli hans
næsta vor. Þriðja bókin er svo að
bijótast í Steingrími og ferðalög
líka, til Ameríku þar sem hann
hugleiðir að setjast að. „Ég er orð-
inn leiður á ástandinu hérna,
snobbinu og klíkunum," segir
hann, „þess vegna hlakka ég til
ferðar til Flórída og _ New York
seinna í mánuðinum. í New York
fæ ég loft í Soho og ætla að mála
í nokkra daga og svo fer ég á
næsta ári að sýna í Boston. Hver
veit nema ég flytji alveg út.“
Á sýningunni í Hafnarfirði verða
hestamyndir, sjávarmyndir og
nektarmyndir, kyrralíf og fantas-
íur, bæði abstrakt og fígúratívar.
„Meira að segja tunglskotsmynd,"
segir Steingrímur og á við hið eina
og sanna skot árið 1969. Sýning-
unni lýkur föstudaginn 21. okt.
SÝNING á vefjarlist dönsku lista-
konunnar Ruth Malinowski verður
opnuð í Norræna húsinu á morg-
un, laugardag, klukkan 14. Á sýn-
ingunni eru veggteppi sem lista-
konan hefur unnið að á þessu og
síðasta ári.
Ruth Malinowski er fædd í
Vínarborg 1928. Hún flúði þaðan
tíu ára gömul, ásamt móður sinni,
undan ofsóknum nasista. Síðan
hefur hún búið í Danmörku og
einnig haft vinnustofu í Smálönd-
um í Svíþjóð um árabil.
Malinowski stundaði nám við
Listiðnaðarskólann í Kaupmanna-
höfn. Hún hefur haldið fjölda
einkasýninga á Norðurlöndum og
í Hollandi og Skotlandi. Hún átti
verk á sýningu Norræna textíl-tri-
ennalsins 1976 og á sýningu
Scandinavian Modern Design
1880-1980, sem haldin var í
Bandaríkjunum 1982. Einnig tók
hún þátt í sýningunni Scandinavian
Design: A Way of Life, ‘sem var í
Japan 1987-88.
Meðal viðurkenninga og styrkja
sem Malinowski hefur fengið eru
þriggja ára starfslaun frá Lista-
sjóði danska ríkisins 1981, Árs-
verðlaun Listiðnaðarráðsins 1989
og Thorvald Binnesbol-verðlaunin
1991, en þau eru veitt af Konung-
legu dönsku Listaakademíunni.
Þá eru verk hennar í eigu
margra stofnana og safna. Þess
má geta að veggteppi, sem hefur
hlotið nafnið Lífsins tré, skreytir
vesturgafl kirkjuskips Staðastaða-
kirkju.
Séra Rögnvaldur Finnbogason
ritar grein um Ruth Malinowski í
sýningarskrá.
Ruth Malinowski var gift
danska skáldinu Ivan Malinowski,
sem lést árið 1989.
Ivan Malinowski var fulltrúi
Danmerkur á Ljóðlistahátíðinni
1985, sem Norræna húsið stóð að
ásamt fleirum.
Sýningin í Norræna húsinu verð-
ur opin daglega kl. 14-19 og henni
lýkur sunnudaginn 6. nóvember.
RUTH Malinowski við eitt verka sinna á sýningunm í Nor-
ræna húsinu.
HAPPDRÆTTI
HJARTAVERNDAR
Ao veromæti um
KR. 4.000.000-
1. VINIUINGUR
Pajero Super Wagon jeppi, sjálfskiptur, V.6. árg. 1995
A
MITSUBISHI
MOTORS
HJARTAVERND URVALUTSYN
EITT verka Gunnars
Arnar í Gallerí Borg.
• •
Gunnar Orn
sýnir í Gall-
eríi Borg
GUNNAR ÖRN opnar sýningu
í Galleríi Borg við Austurvöll
laugardaginn 15. október.
Gunnar Örn er fæddur í Reykja-
vík 1946. Hann er sjáifmennt-
aður listamaður, hélt sína
fyrstu sýningu 1970 og hefur
síðan haldið um þijátíu einka-
sýningar hér á landi. Þá hefur
hann haldið tvær sýningar í
Kaupmannahöfn, tvær hjá Ac-
him Moeller Fine Art í New
York og eina í Haag í Hollandi
í fyrra.
Gunnar Öm hefur tekið þátt
í fjölda samsýninga, meðal ann-
ars á Norðurlöndum, London,
París, New York, Chicago, Sao
Paulo_ og Tókýó. Hann var fuil-
trúi íslands í Tvíæringnum í
Feneyjum 1988.
Verk Gunnars Arnar eru á
söfnum á íslandi, New York,
Saubu Museum í Tókýó og í
Moderna Museet í Stokkhólmi.
Að þessu sinni sýnir Gunnar
Örn olíumálverk, höggmyndir
og verk unnin á pappír, verkin
eru unnin á síðustu tveimur
árum og eru öll til sölu.
Sýningin er opin virka daga
frá kl. 12-18 og frá kl. 14-18
um helgar, en henni lýkur
sunnudaginn 30. október.
Gréta Mjöll
sýnir í
Galleríi 11
LAUGARDAGINN 15. októ-
ber opnar Gréta Mjöll Bjarna-
dóttir grafíksýningu í Gaileríi
11, Skólavörðustíg 4a. Verkin
á sýningunni
eru koparæt-
ingar sem
þrykktar eru
á pappír. Við-
fangsefnin
eru tákn-
myndir. Við
gerð mynd-
verkanna var
Ieitað til ein-
staklinga sem eiga þátt í end-
anlegri niðurstöðu. Gréta Mjöll
lauk námi frá myndlistarkenn-
aradeild MHÍ 1984 og grafík-
deild 1987. Þetta er önnur
einkasýning hennar en hún
hefur tekið þátt í samsýning-
um hérlendis og erlendis. Sýn-
ing Grétu Mjallar Bjarnadóttur
í Gallerí 11 stendur til 27.
október.
Kvikmynda-
sýning- í Nor-
ræna húsinu
SUNNUDAGINN 16. október
kl. 14 verður danska brúðu-
myndin Fyrtojet sýnd fyrir
börn í Norræna húsinu.
Þessi brúðumynd er byggð
á hinu þekkta danska ævintýri
eftir H.C. Andersen um eld-
færin.
Kvikmyndin er 35 mín. að
lengd með dönsku tali.
Allir eru velkomnir og er
aðgangur ókeypis.
LISTIR
Vefjarlist
Ruth Malinowski sýnir
í Norræna húsinu