Morgunblaðið - 14.10.1994, Page 21

Morgunblaðið - 14.10.1994, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 1994 21 LISTIR Samstilltur og og smekk- legur söngnr í Deiglunni - næstsíð- asta sýningarhelgi TONLIST Norræna húsiö KÓRSÖNGUR Danski sönghópurinn Pro arte, stjórnandi Ole Isaksen. Dönsk kórlög eftir Hartmann, Nielsen, Homboe, Langgaard og Svend S. Schultz. Mið- vikudagur 13. október 1994. DANSKUR sönghópur er kallar sig PRO ARTE, hélt tónleika í Nor- ræna húsinu sl. miðvikudagskvöld og flutti eingöngu danska kórtónl- ist. Sönghópurinn samanstendur af 10 söngvurum, með þremur í jaðar- röddunum en tveimur í alt- og tenór- röddunum. Þetta er allgóður söng- hópur og flutti hann öll viðfangsefn- in af þokka en átti þó ekki yfir að ráða þeim raddþrótti, er t.d. klæddi messuþætti, „Dominus regit me“ og „Benedictus" eftir Carl Nielsen og „Laudate Dominum" eftir Vagn Homboe, en þessi verk, sem hefðu þurft stærri og þéttari kórhljóm, voru þau einu sem einhver veigur var í og áhugaverð til hlustunar. Tónleikamir hófust á fimm lögum eftir Hartmann (1805-1900), en tón- list hans og samtímamanna hans hafði nærri því full kennt íslending- um að gleyma uppruna sínum, á svipaðan máta og engilsaxneskri popptónlist er að takast nú á tímum. Carl Nielsen leiddi þessa þýsk- dönsku tónmennt á nýjar brautir, sem gat að heyra í fallegum smálög- um hans „I aften“, „Skal blomsterne da visne“ og sérlega fallegu lagi sem kórinn söng mjög vel, „Senk kun dit hoved, du blomst“. Þijú lög, „Vel má jeg kysse dig“, „Bag muren" og „Træt“, eftir Langgaard eru sniðuglega upp- byggð, einkum Bag muren, þar sem einfalt tónmálið og á stundum svip- lítið, er marg endurtekið með svipuð- um hætti og tíðkast hjá „minimalist- um“. Skrúðstíllinn hjá Svend S. Schultz (1913) veldur því að öll lög- in hljóma eins, nema helst síðasta lagið „Aftenbon" sem var og best sungna lagið á tónleikunum. PRO ARTE sönghópurinn er ágætur, vel samstilltur og syngur af smekkvísi en er fremur þróttlítill. Líklega eru viðfangsefnin of einlit og sum falla ekki sem best að þeim granntóna söng, sem PRO ARTE leggur áherslu á og það vantaði einn- ig lífleg viðfangsefni og verk eftir yngri tónskáldin. Jón Ásgeirsson. -------» 4------ Síðasta sýn- ingarhelgi Á sunnudaginn lýkur málverka- sýningu Ásgeirs Smára Einarsson- ar, Dönskum dögum, í Galleríi Fold, Laugavegi 118. Á sama tíma lýkur kynningu á myndum Kristínar Arn- grímsdóttur á sama stað. Á laugardaginn er síðasti sýning- ardagur ljósmyndasýningarinnar World Press Photo í Kringlunni. Byggðasafn Hafnarfjarðar stendur fyrir finnskri bændamenn- ingarsýningu í Smiðjunni, Strand- götu 50. Henni lýkur 19. október. Sýningunni Stefnumót trúar og listar sem haldin er í Portinu, Strandgötu 50 í Hafnarfirði lýkur á laugardaginn. NÚ ERU síðustu forvöð að sjá sýninguna í Deiglunni, 1930-1944. Með henni er reynt að varpa ljósi á menningarlíf áranna frá Alþing- ishátíð til lýðveldisstofnunar. Tímabilsins, þegar viðhorf alda- mótakynslóðar létu undan síga fyrir þéttbýlismenningu og með- fylgjandi menningarstefnu sem kenndar eru við módernisma. I fréttatilkynningu segir: Á sýning- unni hefur verið kappkostað að endurskapa anda þessa merka tímabils með þvi að tefla saman myndverkum, ljósmyndum og dæmum um íslenskan listiðnað, hönnun og byggingarlist. Gefið hefur verið út rit í tengslum við sýninguna sem veitir yfirgripsm- ikla sýn yfir líf og listir þjóðarinn- ar á þessu tímabili. Á haustdögum hafa um 2.000 manns notið leið- sagnar um sýninguna. Henni lýkur sunnudaginn 23. október. Tekið er á móti skólahópum frá kl. 8-16. Almennur opnunartimi er frá kl. 12-16 nema mánudaga. Kaffistof- an er opin á sama tíma. Óbilandi traust! MAZDA 323. I rallakstri skiptir lág bilanatíðni og góð ending miklu máli. Það á einnig við um venjulegan akstur. í þýskum bilanaprófum hafa MAZDA bifreiðar skipað efstu sætin. Það staðfestir kosti MAZDAsem eru góðir aksturseiginleikar, þægindi og lágur i rekstrarkostnaður. Hagstætt kaupverð MAZDA kemur sér vel nú. Lág bilanatíðni og lítill rekstrar- kostnaður nýtist þér til frambúðar. '.,5 óbilandi traust RÆSIR HF Skúlagötu 59, sími 91-619550 Islandsmeistarar i (gengi N) á Mazdi SÖLUAÐILAR: Akranes: Bílás sf., Þjóöbraut 1, sími 93-12622. (safjör&ur: Bílatangi hf., Suðurgötu 9, sími 94-3800. Akureyri: BSAhf. Laufásgötu 9, simi 96-26300. Egilssta&ir: Bílasalan Fell, Lagarbraut 4c, sími 97-11479. Selfoss: Betri Bílasalan, Hrísmýri 2a, sími 98-23100. Keflavík: BilasalaKeflavíkur, Hafnargötu 90, sími 92-14444. Notaöirbllar: Bílahöllin hf., Bíldshöfða5, sími91-674949.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.