Morgunblaðið - 14.10.1994, Side 25

Morgunblaðið - 14.10.1994, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 1994 25 til að hún yrði varanleg aðgerð heldur en jafngild hækkun tiltek- inna bótaliða eða afnám skerðinga. í skýrslu Ríkisendurskoðunar er í kafla 11 farið yfir það hvernig skatthlutfallið í staðgreiðslu hefur hækkað undanfarin ár. Hvernig persónuafsláttur hefur lækkað og skattleysismörkin þar með lækkað stórlega, eða úr 851.000 kr. að núvirði 1988 þegar staðgreiðslu- kerfið var tekið upp, niður í 690.000 kr. á árinu 1993, sem er lækkun upp á 19%. Ekki er listinn fallegri þegar kemur að því hvern- ig barnabætur, vaxtabætur o.fl. hafa verið skertar. Lægra skattþrep á matvæli, góð sem sú aðgerð er, breytir auðvitað engu um nauðsyn þess að til við- bótar sé álagning skatta með manneskjulegum hætti og þannig úr garði gerð að hún dreifi byrðun- um eðlilega. Því fer víðs fjarri í dag. Ýmist með skerðingu eða vaxandi tekjutengingu þótaliða bótaliða hjá fólki með miðlungs- laun er búin til gífurleg skattbyrði á ákveðnu launabili og jaðarskatt- prósenta sem er alltof há. Þannig er t.d. ljóst að hjónafólk með tekj- ur á bilinu 115-200 þús. kr. með tvö til þijú börn eða fleiri á fram- færi og talsverðar vaxtabætur, svo ekki sé nú talað um ef við bætast tekjutengdar afborganir af náms- lánum, er að borga langt yfir 60% samtals í gjöld og skatta beint og óbeint. Þessu þarf að breyta og auðvitað er það fáránlegt og út úr öllu korti, að einmitt við þessar aðstæður skuli koma fram tillaga um að falla frá því á nýjan leik að leggja á hátekjuskatt. Höfundur er varaformaður Alþýðubandalagsins ogsiturí efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis. verið að tala um auðlind sem þjóðin byggir afkomu sína á, auðlind sem þarf að nýta með sérstakri að- gæslu, er ekki ásættanlegt að að jafn illa sé á málum haldið og að framan greinir. Þar sem greinarhöfundur gagn- rýnir stjórnvöld fyrir aðgerðaleysi telur hann skyldu sína að leggja fram tillögur um úrbætur. Þær eru í stórum dráttum svohljóðandi: 1. Ekki skal beita skip veiðileyfis- sviptingu eða áhöfn og útgerð þess annarri hegningu þótt það landi afla án þess að eiga kvóta fyrir öllum þeim fisktegundum sem hann er samsettur úr. 2. Sá hluti afla sem samsettur er úr fisktegundum sem veiðiskipið á ekki kvóta fyrir skal gerður upp- tækur en greiða skal sjómönnum lítillega umbun fyrir að koma með hann að landi. 3. Ef áhöfn fiskiskips er staðin að því að henda nytjafiski fyrir borð skal svipta viðkomandi skip veiðiheimildum samstundis í að minnsta kosti eitt ár og dæma skal skipstjórann til greiðslu á háum flársektum. 4. Halda skal uppi virku eftirliti með hvort veiðiskip henda óæski- legum afla fyrir borð. HAGKAUP fV HAGKAUP ss któnut múltíðin* Á sláturmarkaði SS í Hagkaup gerir þú hagkvæmustu matarinnkaup ársins. Úr fimm slátrum, sem kosta aðeins 2.445 krónur er hægt að tilreiða 46 máltíðir. Hver máltíð kostar því aðeins 59 krónur. Sala á ófrosnu slátri stendur yfir frá kl. 14.00 til lokunar þriðjudaga til föstudaga og frá kl. 10.00 til lokunnar laugardaga. Frosið slátur fæst alla daga í frystiborðinu. Nú er tækifærið til þess að gera hagkvæmustu matar- innkaup ársins. Komdu á sláturmarkað SS í Hagkaup Skeifunni eða í Hagkaup Kringlunni og gerðu góð kaup. ‘Miðað er við 350 gr. af sláturmat f hverja máltíð. Meðlæti ekki meðtalið. HAGKAUP Skeifunni - Kringlunni Höfundur er sjávarútvegsverkfræðingur. Launartíanur 15. októher onið risHusýning Café Kolbert skemmtír Matreiðslumeistarinn Rasmus I PERLUNNI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.