Morgunblaðið - 14.10.1994, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 14.10.1994, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 1994 33 MINNINGAR Nú er Laufey amma mín dáin, skrýtið hvað hlutirnir geta gerst hratt. Fyrir sex vikum fékk ég að vita að hún væri með krabbamein og fimm vikum síðar er hún dáin. Eg vildi ekki trúa þessu í fyrstu, mér fannst þetta svo óraunveru- legt. Af hveiju amma mín? En svona er lífið. Þegar ég var lítil var það fastur liður hjá foreldrum minum að fara í bíltúr á sunnudögum, og fara síð- an í heimsókn til ömmu og afa á Vitastígnum. Okkur Laufeyju syst- ur þótti svo gaman að koma þang- að. Amma átti altaf nóg af kökum og góðgæti, sem hún gaf okkur. Ég á aldrei eftir að gleyma hvar hún amma geymdi kökurnar, mig langaði svo oft að hjálpa henni að ná í þær uppi á háaloftið, en það fengum við næstum því aldrei að gera því stiginn var svo hættulegur að hennar sögn. Mér þótti alltaf gott að tala við ömmu mína, hún var svo hlý og góð. Eftir að ég eignaðist dóttur mína, Sunnevu Ósk, fannst mér gott að hlusta á hana þegar hún var að gefa mér góð ráð, því mér fannst hún vita svo miklu meira en Ömmu og afa þótti svo gaman þegar ég kom í heimsókn með Sunnevu Ósk og móttökurnar voru einstakar. Afi fór með Sunnevu Ósk út að labba en á meðan sátum við amma saman og spjölluðum. Elsku amma, ég kveð þig með þessum erindum: Láttu ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu sess og sæti, signaði Jesús mæti. (Höf. ók.) Vertu yfír og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfír minni. (Sigurður Jónsson.) Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, i þina hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér.. (H.P.) Hildur Betty. Ég vil nú að lokum senda henni Siggu þinni elskulegri og sonum ykkar, föður og öðrum ástvinum innilegar samúðarkveðjur frá mér og minni fjölskyldu. Megi algóður Guð vera með ykkur nú á erfiðum stundum í lífi ykkar. Megi minningin um þig, góði vinur, lifa og megi dugnaður þinn og æðruleysi vera öðrum hvatning þegar á bjátar. Vertu svo Guði falinn og megi hans eilífa ljós lýsa þér þar sem þú ert nú. Mig langar svo að lokum að fá að kveðja þig með litlu AA- bæninni okkar, sem þér þótti svo vænt um: Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það, sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því, sem ég get breytt, og vit til að greina þar á milli. Blessuð veri minning Snorra Jó- hannssonar. Guðmundur Þ. Guðmundsson. LEGSTEINAR I Flutningskostnaður innifalinn. Stuttur afgreiðslufrestur. Fáið mynaalistann okkar. 720 Borgarfir&i eystra, simi 97-29977 RUDOLF THORARENSEN + Rudolf Thorarensen fædd- ist í Berlín 4. desember 1937. Hann lést 5. október síð- astliðinn og fór útför hans fram frá Keflavíkurkirkju 14. októ- ber. MIG langar í fáum orðum að minnast Rúda frænda eins og ég kallaði hann, en hann var giftur móðursystur minni. Minningar frá ýmsum tímum streyma fram í hugann og allar bera þær ljóma af þeirri glettni, góða vilja og húmor sem Rúdi var gæddur. í þau ótalmörgu skipti sem við hittumst, állt frá því ég fyrst man eftir mér, minnist ég þess hvað hann átti auðvelt með að nálgast okkur systkinin með glaðværð sinni. Alltaf hafði hann tíma til að spjalla við okkur og sýndi því sem við vor- um að fást við ósvikinn áhuga. Ef umræðurnar ætluðu að verða allt of alvarlegar átti hann það oft til að brjóta þær upp með brandara eða góðlátlegu gríni svo að allir gátu hlegið. Síðast er við hittumst, sem var nú í sumar er ég kom í heimsókn til þeirra hjónanna ásamt dóttur minni og foreldrum, sannað- ist það enn einu sinni hve mikil- vægt það var fyrir Rúda að allir væru í góðu skapi í kringum hann. _ Við vorum ekki fyrr komin inn úr dyrunum er Rúdi var byijaður að kæta litlu dóttur mína og áður en heimsóknin var á enda var sú litla orðin dáleidd af þessum einstaka manni sem svo auðveldlega gat sett sig í spor hennar og skildi svo vel hvað hún var að hugsa. Það að geta glatt samferðafólkið, bæði stórt sem smátt, var alltaf svo ofar- lega í huga hans og fórst honum svo vel úr hendi. Þegar Rúdi var kallaður héðan úr þessari veröld fækkaði um eitt þeim ljósum sem lýsa upp tilveruna fyrir okkur hin. Elsku Edda, Stella, Skúli og afa- börnin, megi Drottinn veita ykkur huggun í sörg ykkar og kraft til þess að takast á við lífið framund- an. Ingibjörg Hreiðarsdóttir. Scandic parket er vönduð gæðaframleiðsla. Á Scandic er rakaþolið og umhverfisvænt. A Scandic parketið er auðveldara að leggja en annað parket. Scandic hefur meira höggþol en sambærilegt parket. Scandic parket er slitsterkt og þohr mikinn umgang. Scandic parket má shpa oftar en einu sinni. Scandie parket fæst sérpantað í mörgum htum. HÚSASMIÐJAN Súðarvogi 3-5, Reykjavík Skútuvogi 16, Reykjavík Helluhrauni 16, Hafnarfirði og helstu byggingavöruverslanir á landsbyggðinni SCANDIC
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.