Morgunblaðið - 14.10.1994, Page 38

Morgunblaðið - 14.10.1994, Page 38
38 FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 1994 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ■+■ Margrét Ág- ' ústsdóttir fædd- ist á Þingeyri yið Dýrafjörð 30. mars 1928. Hún lést á Landakotsspítala 8. október síðastlið- inn. Forejdrar hennar voru Ágúst Aðalsteinn Jónsson, sjómaður á Þing- eyri, og Guðmunda Ágústa Jónsdóttir, kona hans. Systkini Margrétar eru Ragnar Jón, skip- sljóri, Óiafía Guð- rún, húsmóðir, Ólafur, starfs- maður Álverksmiðjunnar í Straumsvík, og Ágústa Aðal- heiður, söngkona í Holti í Ön- undarfirði. Margrét gekk á Húsmæðraskóla Reykjavíkur og starfaði ung í Apóteki Akra- ness. Hinn 12. júlí 1953 giftist hún Ársæli Jónssyni skipasmið. Þau eignuðust fjögur börn, er upp komust: Guðmund Ágúst, húsasmið í Halmstad í Svíþjóð, Guðrúnu Jónu, iðjuþjálfa í Hed- ensted á Jótlandi, Eddu Haf- dísi, læknaritara á Þingeyri, og Gunnar Hólmstein, háskóla- nema í Reykjavík. Margrét söng í Kirkjukór Akraness frá þvi á miðjum sjötta aratugnum og til síðasta dags. Utför henn- ar verður gerð frá Akranes- kirkju i dag. EKKI kom mér í hug, að Magga systir .ætti skammt ólifað, þegar hún heimsótti okkur í sumar, glöð í bragði eins og hún átti vanda til. En að lokinni skurðaðgerð á Landa- kotsspítala í fyrra mánuði varð fljótlega ljóst, að bati var ekki á næsta leiti. Laugardaginn 8. októ- ber barst okkur sú sorgarfregn, að hún væri látin. Með henni er geng- in göfug og góð kona, sem var okkur betri en enginn. Við stöndum eftir hnípin með söknuð okkar og trega. Margrét Ágústsdóttir fæddist á Þirígeyri við Dýrafjörð 30. mars 1928. Foreldrar hennar voru hjónin Ágúst Aðalsteinn Jónsson, sjómað- ur þar, og Guðmunda Ágústa Jóns- dóttir. Ágúst var sonur hjónanna Jóns Hólmsteins Guðmundssonar, skipstjóra á Þingeyri, og Ólínu Bjarnadóttur. Hann var valmenni, fríður sýnum, músíkalskur, trú- hneigður og kirkjurækinn. En hans naut við stutt, því hann dó úr berkl- um á Vífilsstöðum 30. október 1937. Fimm vikum áður skrifaði hann Margréti, dóttur sinni, á póst- kort eftirfarandi: „Eg vona, elsku vina mín, að þú hafír verið góð við hana mömmu þína í sumar og verð- ir alla tíð. Það gleður hann pabba þinn.“ Óhætt er að segja, að Mar- grét hafí orðið vel við þessari ósk, því að á milli þeirra mæðgnanna var mjög kært meðan báðar lifðu. Guðmunda var dóttir Jóns Jó- hannssonar, sjómanns á Þingeyri, og Guðrúnar Steinþórsdóttur frá Brekku í Dýrafirði. Eftir að Ágústs missti við, hóf hún að vinna við flök- un í frystihúsinu, en það er karl- mannsverk. Enginn var fljótari og velvirkari en hún, enda voru yfír- menn ekki lengi að koma auga á dugnaðinn og guldu henni karl- mannskaup umyrðalaust. Hún hætti að vinna komin fast að átt- ræðu og andaðist á Akranesi 30. júní 1990; hafði þá lengi verið til heimilis hjá Margréti og manni hennar. Hún átti sér hjá þeim trygg- an og öruggan stað, sem helst mátti Iíkja við dvöl á hóteli handa betur stæðum, að viðbættri þeirri hlýju hjartans, sem hvergi er að fínna, nema í samskiptum náinna ástvina, sem koma sér saman. Margrét var næstelst af fimm börnum Ágústs og Guðmundu. Hin fjögur eru þessi í aldursröð: Ragnar Jón, skipstjóri í Reykjavík, kvæntur Guðnýju Pétursdóttur, Ólafía Guð- rún, húsmóðir í Reykjavík, gift Hreini Árnasyni, Ólafur, starfsmað- ur álverksmiðjunnar í Straumsvík, býr í Reykjavík, kvæntur Helgu Guðmundsdótt- ur, og Ágústa Aðal- heiður, söngkona, Holti í Önundarfirði, gift Gunnari Bjöms- syni. Að Margréti stóðu styrkir stofnar. Föður- ættir eru Vigurætt, rakin til Þórðar stúd- ents í Vigur, sem margir kunnir íslend- ingar eru komnir af, og Reykjalínaætt frá séra Jóni Reykjalín á Ríp. Ófáir niðja hans hafa verið þekktir söng- menn og tónlistarfólk. Má nefna séra Jón yngra Reykjalín á Þöngla- bakka í Fjörðum, er fegurst þótti syngja allra íslenskra presta í ára- tuga afskekktri verunni við nyrsta haf. Móðurættir eru Samsonarætt, kennd við Samson hirðstjóra og skáld Samsonarson í Hólahólum, sem fjöldi ágætra listamanna rekur til ætt sína, og ætt fræðimannanna á Núpi, en sá stofn hefur um aldir getið af sér athafna- og stjórnmála- menn, sem hafa sett svip á samtíð sína. Margrét var níu ára, þegar faðir hennar féll frá. Eftir það ólst hún upp hjá móður sinni á Þingeyri, með bræðrum sínum, Ragnari og Ólafi, því að Ólafía fór skömmu síðar til frænku föður þeirra, Maríu Hjartar á Þingeyri og manns henn- ar Jóns Bjarnasonar, en Ágústa ólst upp hjá móðurömmu sinni á Brekku, Guðrúnu Steinþórsdóttur, og manni hennar, Árna Guðmunds- syni frá Ánanaustum. Eldri bróðir- inn, Ragnar, byijaði til sjós 16 ára að aldri og studdi þaðan í frá móð- ur sína og heimili hennar með ráð- um og dáð af miklum drengskap og karlmennsku. Unga ekkjan vann utan heimilisins og því kom í hlut Margrétar að gæta systkina sinna og létta undir við heimilisstörfin, bæði innan stokks og utan. í þann tíð var algengt, að Þing- eyringar héldu vinnukonur. Stúlkur réðust í vistir fljótlega eftir ferm- ingu. Það varð úr, að Margrét fór til sæmdarhjónanna Ingunnar Ang- antýsdóttur og Magnúsar Amlín og minntist hún þess oft síðar á ævi, hve vel sér h^fði fallið dvölin hjá þeim. Og ekki þarf að spyrja að því, að þau hafa haldið upp á hana. Haustið 1949 fóru þær systur Margrét og Ólafía á Húsmæðra- skólann í Reykjavík. Fengu þær báðar verðlaun fyrir afburða náms- árangur í matargerð og hannyrðum. Þær skiptu raunar með sér fyrstu verðlaununum, því að ekki reyndist unnt að gera upp á milli þeirra. Ég hefi séð hluta af handavinnu þeirra frá skólavistinni. Upphleypti flatsaumurinn er sem steyptur í gips. Sumarið eftir fóru þær á síld norður í Siglufjörð, með tveimur móðursystrum sínum, þeim Ás- laugu og Gyðu Árnadætrum. Sú siðamefnda var stofnandi og eig- andi verslunarinnar Parísartískunn- ar í Reykjavík, en tók sér nú orlof frá saumi tískufatnaðar til þess að rifla upp gamla daga á Siglufirði. Um þetta leyti hvarf raunar norður- landsstofninn af íslandsmiðum, svo að afraksturinn af þessu síldar- sumri varð helst sá, að hinar flínku hannyrðakonur frá Brekku komu heim með forkunnarfallega dúka, sem þær höfðu saumað á síldinni. í gamla daga var haft á orði, að Þingeyri væri með siðmenningar- legri bæjum á landinu. Einhverjir töldu meira að segja, að hefði Vikt- oría Englandsdrottning komið hing- að til lands, þá hefði helst mátt reyna að bjóða henni gistingu á Þingeyri. Svo mikið er víst, að þær Dýrafjarðardrósir, sem ekki fóru til starfa á Bessastöðum, gátu gert sig kostbærar og valið úr betri vistum í höfuðstaðnum. Nú gerðist það, að Fríða Proppé, apótekari á Akra- nesi, sótti fast eftir því að ráða Möggu og Ollý til sín, og varð það úr að Ollý varð stúlka í húsinu en Magga afgreiddi í lyfjabúðinni. Hún var stórglæsileg í hvíta sloppnum og tók nú að bera mjög á aukinni umferð ungra Akurnesinga kring- um apótekið, og þótti engum mikið. Hinn 12. júlí 1953 gekk Margrét að eiga Ársæl Jónsson, skipasmið frá Sandvík á Akranesi, ættaðan í báðar ættir af Snæfellsnesi. Þau byijuðu að búa í Sandvík, en reistu síðar húsið nr. 63 við Heiðarbraut á Akranesi, þar sem þau bjuggu síðan. Ársæll lést um aldur fram hinn 18. mars 1988. Þeim varð fjögurra barna auðið, er upp komust, en auk þess fædd- ust þeim andvana tvíburar, full- burða, næst yngstu böm þeirra. Börnin eru þessi: Guðmundur Ágúst, húsasmiður, býr í Halmstad í Svíþjóð, kvæntur Hrafnhildi Ingólfsdóttur, sjúkraliða frá ísafírði, og eiga þau tvö börn, Daníel Ársæl og Margréti Lindu, en Guðmundur gekk syni Hrafn- hildar, Ingólfí, í föðurstað. Guðrún Jóna, iðjuþjálfi, býr í Hedensted á Jótlandi, gift Peter Elbæk, dýralækni. Þau eiga einn son, Christian. Edda Hafdís, læknaritari á Þing- eyri, gift Angantý Val Jónassyni, sparisjóðsstjóra. Þau eiga fjögur böm: Óttar, Ágúst, Elínu Eddu og Ingunni Ýr. Gunnar Hólmsteinn, les stjórn- málafræði við Háskóla Islands, býr í Reykjavík. Sambýliskona hans er María Gunnbjörnsdóttir, læknir. Margrét söng í Kirkjukór Akra- ness frá því á miðjum sjötta ára- tugnum og fram til síðasta dags. Slíkt starf krefst sem kunnugt er mikillar einbeitni og tíðum tals- verðra fórna, ef vel á að vera. Hún lét sig aldrei vanta, hvorki við æf- ingar né athafnir. Á engan er hall- að, þótt sagt sé, að Kirkjukór Akra- ness hafi verið sá virkasti á landinu undir stjórn Hauks Guðlaugssonar. Tónleikar vom haldnir í kirkjum landsins, farið í söngferð til ísrael jólin og áramótin 1977-8 og til Austur-Þýskalands vorið 1980. Fáum dögum áður en Gunnar fermdist, tók Margrét þátt í upp- töku á páskamessu í sjónvarpssal, þótt ærin væm verkefnin vegna fjölskylduhátíðarinnar, sem í vænd- um var. Oft vom æfíngar á hveiju kvöldi fyrir jólin. Eftir þær vom stundum kaffíboð hjá kórfélögum, sem gátu teygst fram eftir nóttu. Þá var Margrét hrókur alls fagnað- ar og gladdi viðstadda með hnyttni sinni, orðheppni og fyndni. í kjölfar ferðarinnar til Þýskalands gaf kór- inn út tvær hljómplötur undir nafn- inu „Heyrirðu ei?“, og þar syngur Margrét fallegri röddu neðri Iínuna í tvísöng með Guðrúnu Ellertsdóttur í lagi Mendelsohns „Ieh wollt’ meine Lieb“, við kvæði Heinrichs Heine. Hér fyrr meir, þegar aðkomu- stúlka kom til Þingeyrar, þá var vant að spyija: „Er hún falleg, get- ur hún sungið, er hún þrifin?“ Ríf- lega uppfyllti Margrét þessi skilyrði öll. Þó er ekki nógu djúpt tekið í árinni að segja, að hún hafí verið lagleg kona, því að hún var gullfal- leg. Við sáum hana síðast heima hjá Gunnari, syni hennar, 28. sept- ember síðastliðinn og ég dáðist í þúsundasta skipti að þessu drottn- ingarlega útliti. Svipurinn þagði ekki yfir neinni af þeim fjölmörgu dyggðum, sem henni voru með- fæddar. Drengskapur, heiðarleiki, hjálpsemi, góðhugur og gestrisni, auk skarprar greindar; allt var þetta auðfundið í návist þessarar mann- kostakonu. Meðfædd háttvísi herín- ar, en ekki tillærð, að viðbættum einhveijum óskilgreinanlegum eig- inleika, laðaði fram það besta í þeim, sem hún átti samskipti við. Hún var líka ákaflega vel látin af öllum þeim, sem þekktu hana. Nú mundi ef til vill flögra að ein- hveijum, að kona með þvílíka eðlis- kosti ætti það til að hreykja sér. En ekkert var fjær Margréti. Það var heldur, að hún væri of hógvær. Framúrskarandi viðurgjörningur var borinn fram með afsökunar- beiðni af hálfu þessarar stórmynd- arlegu húsfreyju. Og hún var vand- lega á verði yfír því, að ekkert „aukabragð“ væri að matnum. Svo var hún nákvæm, að jafnvel ekki við morgunverð í skyndingu mátti setja mjólkurfemuna á eldhúsborð- ið, heldur þurfti einlægt að hella mjólkinni í ijómakönnu. Á ferðum okkar Ágústu til Reykjavíkur og vestur aftur, kom- um við jafnan við hjá henni og gist- um oftast. Það var eins og að koma heim til sín. Skarðið, sem hún lætur eftir sig, verður ekki fyllt. Gunnar Björnsson. Þegar ég ung stúlka kom fyrst á heimili tengdamóður minnar til- vonandi, sýndi hún mér stolt mynd- ir á kommóðunni í stofunni, af börn- unum sínum, sem þá voru öll flutt burt nema Ólafur sonur hennar og maðurinn minn. Ég komst ekki hjá því að heyra hve hreykin hún var af þeim öllum, en þegar hún benti á mynd af dóttur sinni Margréti kom sérstakur svipur á andlitið og röddin breyttist þegar hún sagði: Finnst þér hún ekki falleg? - Jú, mér fannst þetta falleg stúlka - en hún hélt áfram, að eftir því væri hún góð og elskuleg. Mér ungri stúlkunni fannst að þetta hlyti nú að vera orðum aukið — enginn gæti verið svona frábær. En annað átti eftir að koma í ljós - hún var bæði miklu fallegri en myndin og mannkostirnir meiri eftir því sem maður kynntist henni betur. Þetta var hún Magga, elskulega mágkona mín, ættuð frá Þingeyri í Dýrafirði - sem við kveðjum í dag. Við eigum erfítt með að sætta okkur við þetta og skiljum ekki tilganginn. Hún lagðist inn á spítala 14. september þannig að í dag eru rétt fjórar vik- ur síðan - og nú er hún öll. Margrét þurfti snemma að axla ábyrgð, þar sem pabbi hennar dó þegar hún var níu ára gömul, næst- elst fímm systkina. Þá urðu miklar breytingar hjá fjölskyldunni, mamman þurfti að fara að vinna úti til þss að sjá heimilinu farborða. Ekki var þó lagst í sorg og sút því mamman var glaðvær og dugleg og kölluðu þau bemskuheimilið „Glaumbæ" því þar var oft glatt á hjalla. Og þótt þröngt væri í búi voru bernskuárin hamingjurík. Systkinin tvístruðust, Ágústa ólst upp hjá afa sínum og ömmu og ' Ólafía fór til mætra hjóna á Þing- eyri, en alltaf héldu þau hópinn. Ragnar, elsti bróðirinn, fór í burtu til sjós kornungur, til þess að létta undir með rekstri heimilisins og sýndi fádæma kjark. Það urðu því Magga og Ólafur, sem lengst voru með mömmu sinni. Hún fór snemma í móðurhlutverkið og reyndi að ala þennan bróður sinn upp og oft þurfti hún að dröslast með hann með sér. Það var stutt í stríðnina þeirra á milli. Hún sagðist hafa átt í erfíð- leikum með þennan óþekka strák, sem mamman dekraði kannski óþarflega mikið við, og hann stríddi henni á fullkomnunaráráttu. Á bak við stríðnina lá mikil væntumþykja. En það má segja að upp frá þessum tíma hafí Magga verið samnefnari fyrir fjölskylduna og höfuð ættar- innar síðari ár. Já, hún var glæsileg kona, sem eftir var tekið hvar sem hún fór og bar sig eins og sannkölluð hefð- arkona. En ekki síður var hún vel gefín og hugsandi. Hún var sérstak- lega skemmtileg og kímnigáfan á sínum stað. Þær brölluðu margt saman systurnar, sem allar bjuggu á Akranesi í mörg ár, enda voru þær alveg einstaklega samiýndar og má segja daglegur samgangur á þeim árum milli heimilanna. Syst- urnar voru allar mjög söngelskar, sem var arfur frá tónelskum for- eldrum, og höfðu allar fallegar söngraddir. Magga söng í Kirkjukór Akraness alla tíð, en var nýlega hætt. Það gaf henni mikla gleði og félagsskap að starfa þar. Ung stúlka fluttist hún til Akra- ness í atvinnuleit og þar kynntist hún manninum sínum Ársæli Jóns- MARGRÉT ÁGÚSTSDÓTTIR syni, miklum ágætismanni, sem var ættaður frá Akranesi. Þau bjuggu öll sín búskaparár á Akranesi, fyrst á Vesturgötu og síðan byggðu þau sé hús á Heiðarbraut 63 þar sem þau bjuggu alla tíð síðan. Ársæll lést 1988, langt um aldur fram. Þau eignuðust fjögur börn, sem öll eru mannvænleg og gott fólk, og tví- bura fæddi hún andvana 1962 og varð það henni mikil sorg. Hún tók móður sína til sín þegar hún var orðin slitin og þreytt og bjó hún hjá þeim Ársæli og síðan henni til dauðadags í júní 1990. Það var því ekki skrýtið að móðirin dýrkaði þessa dóttur sína, sem hugsaði um hana af einstakri alúð og umhyggju og sem var sú sem sat við dánar- beð hennar þegar hún féll frá. Hún var lengst af heimavinnandi hús- móðir, sem átti fallegt og notalegt heimili og sem bar myndarskap hennar vitni. Þar voru allir vel- komnir og öllum tekið eins og þeir væru sérstaklega velkomnir og veitt var af rausnarskap. Hún var líka vinamörg og fólk sóttist eftir fé- lagsskap hennar, og aldrei hallaði hún á neinn heldur reyndi að bera blak af viðkomandi ef aðrir voru með áfellisdóma. Mér og minni fjöl- skyldu sýndi hún einstaka elsku- semi og urðum við góðar vinkonur, og vináttan dýpri eftir því sem við fullorðnuðumst og þroskuðumst. Ef við hjónin þurftum að fara eitt- hvað burt og koma þurfti bömunum fyrir áður fyrr þá var það ákveðið inál að helst vildu þau vera hjá Möggu „frænku". Seinni árin fór hún að vinna við kaffiveitingar og fleira í Lands- bankanum á Akranesi. Hún var vel kynnt þar sem annarstaðar. Sést það m.a. á því að þegar starfsfólkið frétti lát hennar, fékk það lánaða mynd af henni og stilltu henni upp í kaffistofunni ásamt blómum og kertaljósi til þess að votta henni virðingu. Já, það syrgja margir í dag, börn- in hennar sem elskuðu hana og virtu og hver sorgin er sárust, tengda- börnin, systkinin, mágar og mág- konur, systkinabörn, frændur og allir vinirnir, en sárast er að litlu barnabömin, sem hún elskaði og naut þess að vera með og sem rétt vom farin að skilja hvað þau voru heppin að eiga svona góða ömmu, fái ekki að njóta hennar lengur. Þau spyija mikið og erfitt er um svör, en ábyggilega passa foreldrarnir upp á að þau skilji seinna meir hve einstök amma var og vonandi bera þau mannkosti hennar áfram í sér. Elsku Guðrún, Gummi, Edda, Gunnar og fjölskyldur, okkur skort- ir orð, en megi góður guð gefa ykkur styrk til þess að sigrast á sorginni. En eitt vitum við að þið eigið dýrmætan sjóð minninga, sem enginn tetur tekið frá ykkur um yndislega mömmu. Ég og fjölskylda mín kveðjum ástkæra systur, mág- konu og frænku með virðingu og þökk. Sofnar drótt, nálgast nótt, sveipar kvöldroða himinn og sær. Allt er hljótt, hvfldu rótt, guð er nær. (Ók. höf.) Helga Guðmundsdóttir. Ein af fyrstu og sterkustu bernskuminningum okkar bræðra er þegar við ásamt Möggu frænku förum með sjóflugvél til Dýrafjarð- ar. Magga tók það erfiða hlutverk að sér að passa hugmyndaríka drengi sumarlangt hjá ömmu Guð- mundu á Þingeyri. Þar tókst henni við erfiðar aðstæður, þar sem stutt var í fjöruna, að afla sér óviðjafnan- legrar virðingar og væntumþykju. Nú þegar leiðir okkar skiljast veltum við því fyrir okkur hvers vegna hún var okkur svona kær. Hún hafði einfaldlega til að bera öll þau helstu persónueinkenni sem við leggjum til grundvallar því að geta talist góð manneskja. Sam- neyti okkar við Möggu hafði ávallt mannbætandi áhrif á okkur. Það eru ekki nema þijár vikur síðan hún hitti litlu drengina okkar á förnum vegi og gantaðist með

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.