Morgunblaðið - 14.10.1994, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 14.10.1994, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 1994 43 FRÉTTIR ÆVAR S. Hjartarson, framkvæmdastjóri GMÞ bílaverkstæðið hf. og Birgir Garðarsson, framkvæmdasljóri á Ólafsfirði með BB dekk á milli sín. Sólaðir hjólbarðar frá Ólafsfirði GMÞ bílaverkstæðið hf., Fosshálsi 27, Reykjavík, hefur gerst söluaðili og dreifiaðili BB dekkja frá Ólafs- firði. Einnig hefur verið opnað nýtt hjólbarðaverkstæði í Njarðvík undir heitinu Púst- og gúmmíþjónusta Valda. Það hefur á boðstólum BB dekk. BB dekk er íslensk framleiðsla á sóluðum dekkjum. Framleidd eru dekk í mörgum stærðum, allt frá dekkjum undir tjaldvagna til 16 tommu dekkja á fólksbíla. í fréttatilkynningur frá GMÞ seg- ir: „GMÞ bílaverkstæðinu hf. felst verulegur akkur í að geta boðið við- skiptavinum þjónustu á einum stað. Hægt er að koma með bíia t.d. í ■ NÆSTA skákæfing barna og unglinga hjá Taflfélagi Reykja- víkur fer fram laugardaginn 15. október kl. 14 í félagsheimilinu í Faxafeni 12. Teflt verður 7 um- ferða æfingamót og veitt eru verð- laun fyrir þrjú efstu sætin. Þar sem unglingaflokkur Haustmóts Taflfé- lags Reykjavíkur fer fram á sama tíma má búast við að lítið verði um sterkari skákmenn á æfingunni. Á síðasta æfingamóti sigraði Davíð Kjartansson með 4,5 vinninga af 5. Skákæfingarnar eru ókeypis og eru opnar öllum börnum og ungling- um (bæði drengjum og stúlkum) 14 ára og yngri. ■ KEPPNI í unglingaflokki 14 vetrarþjónustu og fá um leið umfelg- un og jafnvægisstillingu á sama stað. Slík hagræðing er mikil fyrir viðskiptavininn og bílgreinina. Með BB dekkjum er haldið áfram á þeirri braut að auka framboð á íslenskum vörum þar sem hæstu gæðastuðlar eru hafðir að leiðarljósi. Á boðstólum verða ný dekk undir allar fólksbifreiðir (merki Kléber). GMÞ bílaverkstæðið hf. veitir eig- endum General Motors bifreiða sér- sakan afslátt. Eigendur Blazer og Isuzu jeppabifreiða geta fengið, auk BB dekkja, BF Goodrich dekk. Opn- unartimi GMÞ bílaverkstæðisins fyr- ir hjólbarðaþjónustu um helgar verð- ur sérstaklega auglýstur." ára og yngri á haustmóti Reykjavík- ur 1994 hefst laugardaginn 15. október kl. 14, 1.-4. umferð, og lýkur laugardaginn 22. október, 5.-7. umferð. Tefldar verða sjö umferðir eftir Monrad-kerfi og er umhugsunartími 30 mínútur á skák fyrir hvern keppanda. Verðlauna- gripir og bókaverðlaun verða fyrir að minnsta kosti 5 efstu sætin. Keppnin fer fram í félagsheimili Taflfélags Reykjavík í Faxafeni 12. Sérstök athygli er vakin á því að öllum unglingum (bæði drengjum og telpum) 14 ára og yngri er heim- il þátttaka. Þátttökugjald er 400 kr. fyrir félagsmenn TR en 600 kr. fyrir aðra. Hundaræktarfélag Islands 25 ára Ráðstefna um íslenska fjárhundinn í ÁR eru liðin 25 ár frá stofnun Hundaræktarfélags íslands og 15 ár frá stofnun ræktunardeildar fyr- ir íslenska fjárhundinn. Hunda- ræktarfélag íslands var stofnað af áhugafólki um varðveislu íslenska fjárhundsins 4. september 1969. Áðalmarkmið félagsins var þá og er enn að forða þessum þjóðararfi okkar íslendinga frá útrýmingu, hreinrækta stofninn og varðveita hin sérstöku einkenni hundsins. íslenski íjárhundurinn er eina hundakynið sem við íslendingar eigum og berum ábyrgð á. Það er skylda okkar að varðveita þessa arfleifð þjóðarinnar, segir í fréttatil- kynningu fráfélaginu. Islenski fjár- hundurinn telst til elstu hundakynja og fullyrða má að ef ekki hefði verið gripið inní og stofnað félag til varðveislu hans og ræktunar, væri hann ekki til í dag. Hundaræktarfélag Islands og deild íslenska fjárhundsins eru þakklát fyrir þann árangur sem náðst hefur og við eru stolt af þjóð- arhundi okkar. 50 ÁR eru liðin sunnudaginn 16. október frá dauða séra Jóns Sveins- sonar, Nonna, höfundar Nonna bók- anna sem selst hafa í milljónum eintaka um allan heim. Nonna verð- ur sérstaklega minnst við hámessu í Kristskirkju á sunnudag kl. 10.30. Nonni var einungis 12 ára gam- all er hann yfirgaf föðurland sitt og að námi loknu gerðist hann jesú- ítaprestur og starfaði m.a. í Dan- mörku. Fyrir utan að skrifa bækur síðar ferðaðist hann umhverfis hnöttinn í fyrirlestraferð þar sem hann ijallaði aðallega um Island. Til að heiðra minningu Nonna kemur hingað til lands séra Gunth- er Schuly jesúítaprestur sem starfar sem prófessor í félagsvísindum við Gregoriana-háskólann í Róm. Mun í tilefni þessara tímamóta gengst félagið fyrir ráðstefnu sem tileinkuð er íslenska fjárhundinum. Ráðstefn- an verður haldin á Holiday Inn, Hvammi, sunnudaginn 16. október nk. og hefst kl. 13. Á ráðstefnunni flytja m.a. ávörp Guðrún R. Guð- johnsen, formaður félagsins, Páll A. Pálsson, fyrrverandi yfirdýra- læknir, fjallar um uppruna og for- tíð íslenska fjárhundsins, Sigríður Pétursdóttir, Olafsvöllum, ræðir um ræktunarmarkmið og formaðúr fé- lagsins ræðir stöðu og stefnu í ræktun hundsins. Þá ræðir Per Erik Sundgren, erfðafræðingur, vandamál í ræktun lítilla hunda- stofna. Sýnt verður myndband um íslenska fjárhundinn. séra Schuly halda fyrirlestur um Nonna í Safnaðarheimili Krists- kirkju, Hávallagötu, mánudaginn 17. október kl. 20.30 og eru allir velkomnir. Fyrirlesturinn verður á ensku. -------»■■■♦■-♦------ ■ Hjálparsveit skáta heldur þriggja kvölda námskeið í ferða- mennsku fyrir almenning 17., 18. og 20. október. Leiðbeint verður um fatnað, mataræði, ferðatækni, útbúnað, ofkælingu, kortalestur, áttavita og önnur staðsetningar- tæki. Þá verða lögð rötunarverkefni fýrir þátttakendur. Þátttökugjald er 5 þúsund kr. og eru kennslugögn innifalin. Skráning fer fram í Skátabúðinni, Snorrabraut 60. Þing Neytenda- samtakanna Tillögur að nýjum lögum ÞING Neytendasamtakanna verður haldið 14.-15. október í Rúgbrauðs- gerðinni Borgartúni 6, og hefst þing- haidið kl. 9.30 báða dagana. Á þinginu verða auk venjulegra þingstarfa ávörp Sighvats Björgvins- sonar viðskiptaráðherra og Ingibjarg- ar Sólrúnar Gísladóttur borgarstjóra, Birna Hreiðarsdóttir, fulltrúi Neyt- endasamtakanna í stjórn Staðlaráðs íslands fjallar um gildi staðla fyrir neytendur, og Þórólfur Matthíasson lektor í hagfræði fjallar um ávinning neytenda ef landdbúnaðarafurðir verða seldar á ESB verði. Þá verða bomar fram tillögur að nýjum lögum Neytendasamtakanna og fjallað um markmið og leiðir í starfsemi samtak- anna næstu tvö árin. -----» ♦ ♦---- Hvataverð- laun Visa veitt VISA ísland hefur um nokkurt skeið starfrækt þjónustukerfi sem nefnt er Alefli. Um er að ræða styrktar- kerfi fyrir félög og samtök sem auð- veldar þeim fjáröflun frá velunnur- um sínum og föstum styrktaraðilum. Um 200 félagasamtök notfæra sér nú Alefli og er áætlað að kerfíð flytji til þeirra liðlega 100 milljónir á þessu ári frá tæplega 10 þúsund korthöf- um, samkvæmt frétt frá Visa ísland. „Þeim sem styðja félög sín þannig með reglubundnum hætti veitist sitt hvað í staðinn í hvatningar- og þakk- lætisskyni frá Visa. Með úrdrætti úr lukkupotti eru veitt tvenns konar hvataverðlaun, annars vegar fyrir stuðning við íþróttir og hins vegar fyrir stuðning við menningu, mann- úð og listir,“ segir ennfremur í frétt- inni. Á dögunum voru veitt 19 hvata- verðlaun fyrir stuðning við íþróttir, tvær utanlandsfe.rðir til London ásamt aðgöngumiða að knattspyrnu- leik og 17 bókaverðlaun. Fyrir stuðn- ing við menningu, mannúð og listir voru veitt 16 hvataverðlaun, sex aðgöngumiðar á Galakvöld í Perl- unni á vegum tónlistarsamtaka og 10 geisladiskar. Hátíðarhald í minningu séra Jóns Sveinssonar Y]S / VJOISVDNRATOO V flNtJJH
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.