Morgunblaðið - 02.11.1994, Qupperneq 48
MORG UNBLADIÐ, KRINGLAN 1 103 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, fÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 86
MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 1994
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Ný smáskífa með Björk í febrúar
Altman
vill lag af
Gling gló í
kvikmynd
FYRSTA smáskifa af væntan-
legri plötu Bjarkar Guð-
mundsdóttur kemur út í febr-
úar, en Björk er að leggja
síðustu hönd á hana með upp-
tökustjóra sínum, Nellee
Hooper.
Einnig má geta þess að
bandaríski kvikmyndaleik-
stjórinn Robert Altman, sem
leikstýrði kvikmyndinni The
Player, vill fá lag af plötu
Bjarkar Guðmundsdóttur
með Tríói Guðmundar Ing-
ólfssonar, Gling gló, í kvik-
mynd sem hann er að ljúka
við og fjallar um tískuheim
Parísarborgar.
Þá hefur Smekkleysa s/m
hf. gert samning við útgáfuna
One Little Indian um útgáfu
á Gling gló en One Little Indi-
an gaf út plötu Bjarkar, Deb-
ut, í Bretlandi. Björk hefur
sett það skilyrði að platan
verði aðeins gefin út í 10
þúsund eintökum.
Björk vinnur nú að næstu
breiðskífu sinni, sem koma á
út á næsta ári og kemur fram
í svonefndum „Unplugged“-
þætti MTV-sjónvarpsstöðvar-
innar 7. nóvember.
Einnig mun hún koma
fram við afhendingu evr-
ópsku MTF-tónlistarverð-
launanna í Berlín um miðjan
mánuð en hún er tilnefnd
sem besta söngkonan og lag-
ið Big Time Sensuality af
Debut hefur verið tilnefnt
sem besta lagið.
Mjólkurframleiðsla
er allt of lítil í haust
MJÓLKURFRAMLEIÐSLA á land-
inu hefur minnkað meira í haust
en búist var við, sérstaklega á
Suðurlandi, og eiga afurðastöðvar
í vissum erfiðleikum vegna þessa.
Óskar Gunnarsson, formaður Sam-
taka afurðastöðva í mjólkuriðnaði,
segir að horfur séu á að hálfgert
vandræðaástand skapist. Hann
segir að á næstu dögum verði
bændum tilkynnt um hvað mikið
verði greitt fyrir umframmjólk á
þessu verðlagsári og segist vona
að það verði til að hvetja bændur
til að auka framleiðslu í vetur.
Rætt um leiðir til að
auka framleiðsluna
„Framleiðslan mætti vera meiri.
Það hefur dregið mikið úr mjólkur-
framleiðslunni í haust og það má
lítið út af bera þegar framleiðslan
er nánast jöfn innanlandsneyslu.
Heyin eru sennilega ekki eins góð
nú og árið áður. Þetta kemur þann-
ig út að við þyrftum meiri mjólk
yfir vetrarmánuðina frá nóvember
til marsmánaðar," sagði Óskar og
Formaður afurða-
stöðva talar um
vandræðaástand
bætti við að búast mætti við að
hálfgert vandræðaástand yrði í
þessum mánuðum.
I fyrravetur minnkaði mjólkur-
framleiðsla einnig mikið, fyrst og
fremst á Norðurlandi, en hey voru
þar almennt slæm. í Haust virðist
það sama ætla að verða upp á ten-
ingnum, en samdrátturinn er mest-
ur á framleiðslusvæði Mjólkurbús
Flóamanna.
Óskar sagði að til umræðu Væru
ýmsar leiðir til að örva framleiðslu
yfir vetrarmánuðina. Hann sagði
að á næstu vikum yrði bændum
tilkynnt hversu mikið yrði greitt
fyrir umframmjólk á þessu verð-
lagsári. A síðasta verðlagsári voru
greiddar 20 krónur fyrir hvem
mjólkurlítra. Ákvörðun um þessar
greiðslur var hins vegar ekki til-
kynnt fyrr en undir lok verðlagsárs-
ins og var það gagnrýnt af mörgum
bændum.
Of mikil fita, en of
lítið prótein
Það sem veldur erfíðleikum við
að stýra mjólkurframleiðslu er að
sala á mjólkurafurðum unnum úr
mjólkurfitu hefur minnkað, en eft-
irspurn eftir mjólkurpróteini hefur
aukist. Staðan er þannig í dag að
skortur er á próteini en offram-
leiðsla á fitu. Þetta birtist m.a. í
því að við uppgjör á mjólkurfram-
leiðslu síðasta framleiðsluárs var
ákveðið að draga tvo aura af verði
hvers mjólkurlítra, reiknað á svo-
kölluðum fítugrunni. Samtals nem-
ur þessi verðskerðing tæplega
tveimur milljónum króna. Pening-
amir verða notaðir til að kosta
útflutning á smjöri, en bændur
verða sjálfir að kosta þennan út-
flutning eftir að ríkið hætti þvi.
Þetta er í fyrsta skipti sem þessi
afturvirka verðskerðing á fitu er
framkvæmd.
*
Aritanir
þarf ekki
vegna
styttri ferða
VEGABRÉFSÁRITANIR íslend-
inga vegna dvalar í Bandaríkjunum
í skemmri tíma en 90 daga verða
óþarfar næstu tvö árin. Að sögn
Craig White, ræíismanns í banda-
ríska sendiráðinu, hafa fulltrúadeild
bandaríska þingsins og öldungadeild
samþykkt lög þessa efnis, en forseti
Bandaríkjanna á hins vegar eftir að
undirrita þau.
Sambærilegar reglur hafa gilt
undanfarin þijú ár fyrir ísléndinga
og íbúa 20 annarra þjóða, en lög
þar að lútandi giltu til 30. septem-
ber síðastliðins. Þar sem bandaríska
þingið hafði þá ekki samþykkt ný
lög um afnám áritunarskyldu voru
reglumar framlengdar út október.
Craig White sagði að þar sem báðar
deildir þingsins hefðu nú samþykkt
lögin væri litið á undirritun Banda-
ríkjaforseta sem formsatriði.
** Reglur þessar gilda fyrir þá sem
hafa gilt vegabréf, farseðla báðar
leiðir og dveljast skemur en 90 daga
í Bandaríkjunum.
Skíðalyftur opnaðar
Morgunblaðið/RAX
Skoðanakönnun
Jóhanna
fengi 19,7%
BOÐAÐ framboð Jóhönnu Sig-
urðardóttur í kosningum til Alþingis
fengi 19,7% atkvæða ef kosið væri
nú. Þetta er meðal niðurstaðna
skoðanakönnunar, sem Félagsvís-
indastofnun Háskóla íslands hefur
gert fyrir Morgunblaðið. Jóhanna
nýtur meira fylgis en Framsóknar-
flokkurinn.
Sjálfstæðisflokkurinn fær mest
fylgi svarenda í könnuninni, 33,8%.
Álþýðubandalagið stendur nánast í
stað frá seinustu könnun með 13,7%
fylgi og Alþýðuflokkur sömuleiðis
með 5,8% fylgi. Framsóknarflokkur-
inn og Kvennalistinn tapa báðir fylgi
frá síðustu könnun. Framsóknar-
flokkurinn fær nú 17,1% stuðning
og Kvennalistinn 9,2%.
50,1% þeirra, sem afstöðu taka,
eru andvígir ríkisstjórninni.
■ Skín stjarna/4
SKIÐALYFTURNAR í Breiðholti
voru opnaðar í gær. Æskufólkið
lét ekki á sér standa að nota að-
stöðuna og nýfallinn fyrsta si\jó
vetrarins i höfuðborginni, enda
glaðværð og kátína í þessum hóp.
Ytri-Langamýri í Austur-Húnavatnssýslu
Fé skorið vegna riðu
RIÐA fannst fyrir skömmu í kind frá
■Ytri-Löngumýri í A-Húnavatnssýslu
og verður öllu fé á bænum lógað. í
september fannst riða í fé frá Þverá
í Svarfaðardal og var allt fé frá
bænum skorið, en í Svarfaðardal
fannst einnig riða á bænum Ingvör-
um sl. vor. Bæimir verða fjárlausir
í tvö ár og þarf að sótthreinsa hús
og vélar áður en nýr fjárstofn er
fenginn. í þessum tilfellum er um
gömul riðusvæði að ræða.
Sigurður Sigurðarson, dýralæknir
á Tilraunastöð Háskólans á Keldum,
sagði sótthreinsun á þeim bæjum
þar sem riðu verður vart kosta mikla
vinnu og nákvæmni. Þar sem riða
hefði verið lengi væri mikið smit-
magn í umhverfinu, og þótt hægt
sé að sótthreinsa hús sé það spurn-
ing hvernig hægt sé að sótthreinsa
umhverfið. „Það er reiknað með því
að hættan sé mest umhverfís húsin
þar sem ekki er samfelldur gras-
vöxtur heldur arfi sem bendir til
þess að tað sé ekki langt undir yfir-
borðinu. Það getur vaðist upp, og
þess vegna þarf að malbera slík
svæði,“ sagði hann.
Sigurður sagði að síðustu árin
hefði borið á riðu í nautgripum á
Bretlandi, og því teldi hann mjög
mikilvægt að nýr fjárstofn væri ekki
hafður í húsi með nautgripum sem
verið hefðu á staðnum frá því riða
hefði fundist.
Þorskblokk hækkar
í Bandaríkjunum
VERÐ á þorskblokk hefur heldur
þokazt upp á við og er nú komið
í 1,85 dollara á hvert pund. Nokkr-
ar birgðir eru af þorskflökum, en
sala þeirra hjá Coldwater, dóttur-
fyrirtæki SH í Bandaríkjunum,
hefur aukizt á árinu, bæði í magni
og verðmæti.
Magnús Gústafsson, forstjóri
Coldwater, segir heildarsölu fyrir-
tækisins svipaða og á sama tíma
í fyrra. „Það er enn þá hart barizt
í sölu á þorski. Við verðum ekkert
varir við að skortur sé á þorskflök-
um, nema síður sé, enda erum við
undirboðnir í öllum pakkningum.
Við erum sæmilega settir með
birgðir; af þorskpakkningum, en
þó vildum víð hafa meira magn-
af afurðum úr stærri flökum. Okk-
ur skorti ýsu í upphafi árs, en úr
því hefur rætzt. Salan gengur vel
og þar erum við með langhæsta
verðið. Sala á karfa hefur einnig
aukizt verulega,“ segir hann.
Hann segir einnig að akkurinn
við verðhækkun þorskblokkar sé
takmarkaður, því nú sé mun minna
notað af henni. „Notkunin hefur
færzt yfir í aðrar og ódýrari teg-
undir. Varasamt er þó að hækka
afurðir unnar úr þorskblokk, því
það myndi enn minnka varanlega
notkun á henni,“ segir hann.
■ Verð á þorskblokk/B2