Morgunblaðið - 16.11.1994, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1994
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Lögreglumenn svara kæru Lindu Pétursdóttur
„Sé mér ekki
annað fært en
að kæra hana“
Lögreglan tekur niður
veggspjöld
TVEIR lögreglumenn í Reykjavík
hafa kært Lindu Pétursdóttur feg-
urðardrottningu til RLR fyrir að
ráðast á opinbera starfsmenn með
ofbeldi og bera þá röngum sökum.
Um er að ræða lögreglumennina tvo
sem Linda kærði til RLR í fyrradag
fyrir að hafa beitt sig harðræði á
lögreglustöðinni eftir tilefnislausa
handtöku, eins og greint var frá í
Morgunblaðinu í gær.
í kæru annars lögreglumann-
anna er rakinn aðdragandi þess að
lögreglumennimir ræddu við sam-
býlismann Lindu fyrir utan veit-
ingastað við Rauðarárstíg um
klukkan 4.40 á mánudagsmorgun
eftir að þeim hafði um fjarskipta-
kerfi lögreglunnar verið tilkynnt að
hann kynni að hafa ekið á bifreið
manns sem hann hafði lent í útistöð-
um við fyrr um kvöldið og stungið
af. Sambýlismaðurinn hafí verið
hinn kurteisasti og sest inn í lög-
reglubflinn. Síðan segin „Um þetta
leyti kom kærða, sem við þekktum
sem sambýliskonu [mannsins], út
af veitingastaðnum, ruddist inn í
lögregiubifreiðina í óþökk okkar og
krafðist þess að fara með sambýlis-
manni sínum á lögreglustöðina.
Þegar hér var komið sögu höfðu
borist boð frá lögreglubifreið [...]
um að Linda og [sambýlismaður
hennar] yrðu flutt aðskilin á lög-
reglustöðina. Linda neitaði að færa
sig úr bifreið okkar og brást raunar
ókvæða við og byijaði að slá til
okkar. Það varð siðan úr að [sam-
býlismaðurinn], sem allan þennan
tíma var hinn rólegasti, fór yfír í
[hina lögreglubifreiðina]."
Lét ófriðlega
„Kærða lét mjög ófriðlega í lög-
reglubifreiðinni á leiðinni að lög-
reglustöð og tók m.a. einkennishúfu
mína og stappaði á henni í gólfi
lögreglubifreiðarinnar. Þegar kom-
ið var í port lögreglustöðvarinnar'
við Hverfísgötu neitaði kærða sem
fyrr að fara út úr bifreiðinni og er
ég hélt í vinstri handlegg hennar
með það fyrir augum að fá hana
út úr bifreiðinni, sló hún mig snöggt
með flötum lófa hægri handar og
þar sem sýnt var að hún kæmi
ekki sjálfviljug út úr bifreiðinni var
hún tekin lögreglutökum og þannig
færð úr bifreiðinni. Strax og hún
kom út úr bifreiðinni fór hún að
sparka til okkar og í mig og hélt
að öðru [leyti] uppteknum hætti...
Færðum við kærðu, sem enn var í
lögreglutökum, fyrir [varðstjóra]
sem reyndi að ræða við hana en
hún svaraði með tómum skætingi
og sparkaði þéttingsfast í sköflung
minn, hrækti framan í mig er henni
var boðið til sætis og tökum sleppt.
Urðum við því að taka hana tökum
á ný og lögðum hana fram á borð
varðstjórans."
„Hreinn uppspuni“
„Framhald þessa máls er að ég
sá í fréttum Stöðvar 2 viðtal við
kærðu þar sem hún ber mig og
starfsfélaga mína alvarlegum sök-
um og hefur nú kært mig til Rann-
sóknarlögreglu ríkisins vegna
meints harðræðis. Lýsing hennar
þess efnis að við höfum lagt hana
fram á borð, lamið andliti hennar
í sffellu í borðið, fært hönd hennar
upp á bak vitandi um meiðsl í vinstri
öxl hennar til þess eins að valda
henni óþarfa sársauka, haldið fyrir
munn hennar og sparkað í rassinn
á henni á sér enga stoð og er hreinn
uppspuni. Þótt við lögreglumenn
séum mörgu vanir í starfi okkar
þá keyrir svo úr hófi varðandi fram-
komu kærðu Lindu að ég sé mér
ekki annað fært en að kæra hana
fyrir brot á 106. og 148. grein al-
mennra hegningarlaga ...“ segir í
kæru lögreglumannsins.
ATHAFNASAMT fólk reynir
gjarnan að vekja athygli á hinum
ýmsu uppákomum með því að
hengja auglýsingar upp á veggi
hingað og þangað um borgina.
Það er þó ekki heimilt nema að
fengnu leyfi húseiganda eða
umráðamanns viðkomandi bygg-
ingar samkvæmt lögreglusam-
þykkt Rey kjavíkur enda getur
fylgt þessu nokkur sóðaskapur.
Að sögn Ómars Smára Ármanns-
sonar aðstoðaryfirlögregluþjóns
hafa nokkur brögð verið að því
undanfarið að veggspjöld hafi
verið hengd upp í óleyfi en sá
sem verður uppvís að því skal
sæta sektum. Lögreglan fylgist
með því að þetta sé virt og hér
sést Ingólfur Bruun lögreglu-
maður taka niður veggspjald við
Laugaveginn í gær.
Kísiliðjan lækkar hlutafé og gefur út jöfnunarhlutabréf
50 milljónir greidd-
ar út til hluthafa
Formaður Verka-
mannasambandsms
Launa-
skriðið hjá
ríkinu upp
á borðið
VERKAMANNASAMBAND íslands
fer fram á beinar kauptaxtahækkan-
ir í komandi kjarasamningum, að
sögn Bjöms Grétars Sveinssonar,
formanns Verkamannasambandsins.
Hann segir að fylgst verði rrvjög vel
með því hvað ný launastefna sem
fjármálaráðuneytið hafí tekið upp
hafí skilað öðrum hópum í launa-
hækkunum á seinustu misserum.
„Við þurfum að fá mjög vel upp
á borðið hvaða launaskrið hefur raun-
verulega orðið vegna hinnar nýju
stefnu sem tekin var upp hjá ríkinu,"
sagði hann.
I gær var haldinn fundur í níu
manna framkvæmdastjóm Verka-
mannasambandsins þar sem farið var
yfír stöðuna vegna komandi kjara-
samninga.
Að sögn Bjöms Grétars em einstök
aðildarfélög út um land farin að ræða
við atvinnurekendur um um sérmál
sín en hann kvaðst ekki gera ráð
fyrir að viðræður um gerð aðalkjara-
samnings, þ.á.m. um launaliðinn,
hæfust fyrr en í byijun næsta mánað-
ar.
FYRIR hluthafafundi Kísiliðjunnar
hf., sem haldinn verður í dag, ligg-
ur tillaga frá stjórn um að lækka
hlutafé í fyrirtækinu um 50 milljón-
ir króna, gefa út jöfnunarhlutabréf
til að hækka hlutafé að nýju og
FORYSTA Verkamannafélagsins
Hlífar í Hafnarfírði átti í gær fund
með trúnaðarmönnum félagsins í ál-
verinu í Straumsvík til undirbúnings
kröfugerðar gagnvart íslenska álfé-
laginu í komandi kjarasamningum.
Starfsmenn álversins eru í níu
stéttarfélögum og sagði Sigurður T.
Sigurðsson, formaður Hlífar, að
hvert félag ynni fyrst sínar kröfur
en síðan kvaðst hann gera ráð fyrir
að þau næðu saman um kröfugerð.
Sigurður sagði líklegt að farið
yrði fram á sömu kauphækkanir í
álverinu og krafíst yrði á almenna
greiða umrædda fjárhæð til hlut-
hafa. Þar sem óráðstafað eigið fé
félagsins var neikvætt um seinustu
áramót, er því ekki heimilt að
greiða arð samkvæmt hlutafjárlög-
um á seinasta aðalfundi og „því var
vinnumarkaðnum en því til viðbótar
yrði örugglega sett fram krafa um
að starfsmenn fengju hlutdeild í þeim
hagnaði sem hagræðingaraðgerðir
að undanfömu hefðu skilað fyrirtæk-
inu. Sagði hann að stjórnendur ál-
versins hefðu sagt upp starfsmönn-
um þvert ofan í gefín loforð til að
auka hagræðingu og vinnuálag í
verksmiðjunni hefði stóraukist.
„Ég tel að þarna hljótum við að
krefjast verulegs bónuss vegna þess
ábata sem fyrirtækið hefur fengið
með fækkun starfsfólks og á kostnað
aukins vinnuálags," sagði hann.
þessi leið farin,“ segir Friðrik Sig-
urðsson, framkvæmdastjóri.
Friðrik segir að bandarískur
eignaraðili félagsins, sem á 48,56%
á móti 51% eign ríkisins og 0,44%
eign tæplega 20 sveitarfélaga á
Norðausturlandi, geri mjög háa
ávöxtunarkröfu til þess og krefjist
mikils hagnaðar. „Til þess að svo
mætti verða, þurfti að grípa til að-
haldsaðgerða og endurskipulagn-
ingar á rekstri, og þetta er eina
lagalega aðgerðin til greiða út fjár-
muni til hluthafa," segir Friðrik.
Fyrir liggur bréf frá iðnaðarráðu-
neyti sem fer með hlut rikisins þar
sem tillaga stjómar er samþykkt. í
fyrra nam tap á rekstri fyrirtækisins
um 32 milljónum króna, en að sögn
Friðriks nemur hagnaður fyrstu níu
mánuði ársins um 40 milljónum
króna. „Kísiliðjan er líklega það
hlutafélag á landinu sem hefur
traustustu eiginfjárstöðu, en hún er
yfír 95%. Það hvíla engar langtíma-
skuldir á félaginu, skammtíma-
skuldir um síðustu áramót voru
rúmar 30 milljónir króna og veltu-
fjármunir félagsins eru á milli 250
og 300 milljónir króna,“ segir Frið-
rik.
Formaður Hlífar um kröfugerð gagnvart ÍSAL
Vilja launauppbót
vegna hagræðingar
Hitaveita
Reykjavíkur
Vanskil
um 250
milljónir
VANSKIL á útistandandi kröf-
um Hitaveitu Reykjavíkur hafa
undanfarið verið um 250 millj-
ónir króna, sem er um 9% af
kröfum. Að sögn Eysteins
Jónssonar, fjármálastjóra Hita-
veitunnar, hefur þurft að af-
skrifa um 0,6% af kröfunum
árlega, eða um 16 milljónir
króna, og segir hann innheimt-
ur undanfarið hafa gengið
þunglegar en oft áður.
Notendur Hitaveitunnar eru
um 25 þúsund talsins og nemur
heildarinnheimtan um 2,8 millj-
örðum króna á ári. Eysteinn
segir að heildarkostnaður
vegna innheimtunnar væri um
65 milljónir króna. Um fjögur
þúsund notendur lenda í van-
skilum með greiðslur og segir
Eysteinn fjárhagsstöðuna upp
á síðkastið greinilega vera erf-
iðari bæði hjá einstaklingum
og fyrirtækjum.
Rækjuskip
skipta um
heimahöfn
TVÖ rækjuskip frá ísafirði til
viðbótar hafa verið skráð sunn-
ar á landinu til að komast fram-
hjá banni við rækjuveiðum
norðlenskra og vestfirskra
skipa fyrir sunnan Bjargtanga.
Eins og greint var frá í Morg-
unblaðinu fyrir skömmu reið
Norðurtangi hf. á ísafirði á
vaðið og lét skrá Guðbjart, 407
tonna rækjuskip, í Búðardal
Samkvæmt upplýsingum
Steindórs Ámasonar hjá Sigl-
ingamálastofnun hefur Sæfell
ÍS 820 nú verið skráð með
heimahöfn í Garði og ber það
nú einkennisstafina GK 820.
Þá hefur Orri IS 20 verið skráð-
ur í Vestmannaneyjum og ber
skipið nú einkennisstafína VE
20. Bæði skipin munu áfram
leggja afla sinn upp á ísafirði.
Loðna
Engin veiði
ENGIN loðnuveiði var í gær,
en bræla er á miðunum. Vík-
ingur hefur verið á miðunum
um 50 sjómílur riorður af
Langanesi frá því á sunnudag
án þess að getað kastað. A.m.k.
þijú loðnuskip eru á leið á mið-
in, Bjami Ólafsson, Börkur og
Háberg. Hólmaborgin er hins
vegar farin í land.
Skipveijar á Víkingi em ekki
tiltakanlega bjartsýnir á að
eitthvað veiðist. Þeir segja þó
að loðna sé á svæðinu, en
spumingin snúist um hvort að
hún sé í veiðanlegum torfum.
Lést af völd-
um áverka
ÖKUMAÐUR flutningabflsins
sem fór út af veginum við Máva-
dalsá í innanverðum Gilsfírði í
fyrrakvöld lést á Borgarspítal-
anum í fyrrinótt af völdum
áverka sem hann hlaut í slysinu.
Maðurinn sem var starfsmaður
Taks hf. í Búðardal hét Ólafur
Skagfjörð Ólafsson til heimilis
að Þurranesi 2 í Saurbæjar-
hreppi. Hann var 23 ára gam-
all, fæddur 10. september 1971.