Morgunblaðið - 06.01.1995, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1995 15
Alþjóðleg ráðstefna haldin í Reykjavík um viðreisn þorskstofnsins
UR VERINU
„Nýting þorskstofnsins
skilar óviðunandi arðiu
Sjávarútvegsráðuneytið gengst fyrir
ráðstefnu um langtímanýtingu fiski-
stofna á Hótel Sögu, föstudaginn
13. janúar 1995, kl. 12.00. Megin-
viðfangsefni ráðstefnunnar verður
að ræða leiðir til að ná hámarksaf-
rakstri fiskistofna til lengri tíma lit-
ið. Tilgangurinn er að efla skoðana-
skipti stjórnmálamanna, vísinda-
manna og hagsmunaaðila í sjávarút-
vegi og stuðla þannig að gagnkvæm-
um skilningi þessara aðila. Er þess
vænst að af umræðum á ráðstefn-
unni skapist grundvöllur fyrir
stefnumótun um skynsamlega nýt-
ingarstefnu sem hefur langtíma-
hagsmuni að leiðarljósi.
Sjávarútvegsráðherra Kanada,
Brian Tobin, mun flytja erindi á ráð-
stefnunni sem nefnist: „Hrun og
uppbygging þorskstofnsins við
Kíinuda". „Án efa verður fróðlegt
að heyra af reynslu Kanadamanna
á þessu sviði en þar var talið nauð-
synlegt að setja algert veiðibann á
þorsk í því skyni að byggja stofninn
upp að nýju,“ segir meðal annars í
frétt ráðuneytisins um ráðstefnuna.
Vinnuhópur á vegum Hafrann-
sóknastofnunarinnar og Þjóðhags-
stofnunar skilaði síðastliðið vor áliti
sínu um hvernig nýta bæri einstaka
fiskistofna þannig að hámarksaf-
rakstri íslandsmiða verði náð til
lengri tíma. Gerð var tillaga um að
fylgt yrði fyrirfram ákveðnum regl-
um um nýtingu fiskistofna, afla-
reglum, í því skyni að halda þeim
í þeirri stærð að þeir gefi há-
marksafrakstur. Skýrsla vinnu-
hópsins mun liggja frammi á ráð-
stefnunni.
Dr. Gunnar Stefánsson, tölfræð-
ingur, formaður veiðiráðgjafar-
nefndar Hafrannsóknastofnunarinn-
ar, flytur erindi um Hagkvæma nýt-
ingu fískistofna þar sem fjallað verð-
ur um fiskifræðilegan grunn undir
hagkvæmri nýtingu fiskistofna.
Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóð-
hagsstofnunar, fjallar um hagfræði-
legan þátt aflareglu. Gunnar og
Þórður áttu báðir sæti í framan-
greindum vinnuhóp.
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
fengið Dr. Doug Butterworth pró-
fessor við Háskólann í Cape Town,
Suður-Afríku, til að halda erindi og
svara spurningunni: „Eru aflareglur
árangursríkasta leiðin til að tryggja
langtímaafrakstur fiskistofna?"
(„Mánagement Procedures - the
Best Approach for Securing Long
Term Benefits from Fish Resourc-
es?“)
Pallborðsumræður
Ráðstefnunni lýkur með pall-
borðsumræðum um megin viðfangs-
efni ráðstefnunnar. Brynjólfur
Bjarnason, ráðstefnustjóri, mun
stýra pallborðsumræðunum en þátt-
takendur verða: Einar Svansson,
framkvæmdastjóri Fiskiðjunnar -
Skagfirðings hf., Eiríkur Tómasson,
framkvæmdastjóri Þorbjarnarins
hf., Guðrún Marteinsdóttir, sjávar-
líffræðingur á Hafrannsóknar-
stofnuninni, Magnús Gústafsson,
forstjóri Coldwater Corp., Sigurður
B. Stefánsson, framkvæmdastjóri
Verðbréfamarkaðar íslandsbanka
hf., Þorvaldur Garðarsson, skip-
stjóri, Þorlákshöfn, og Þorsteinn
Vilhelmsson, skipstjóri, Samherja
hf.
Vakin er athygli á því að erindi
erlendra fyrirlesara verða túlkuð
samtímis af ensku á íslensku.
Ráðstefnugjald er 3.500 krónur.
Innifalið í verðinu er hádegisverður,
kaffi og fundargögn. Þátttöku þarf
að tilkynna fyrir 10. janúar til KOM
hf. í síma 622411 eða með símbréfi
623411.
Steinavík
kaupir Jón
Finnsson RE
STEINAVÍK hf. nýtt útgerðarfé-
lag sömu aðila og eru við stjómvöl-
in hjá Ljósavík hf. í Þorlákshöfn
hefur fest kaup á nótaskipinu Jóni
Finnssyni RE. Að sögn Unnþórs
Halldórssonar hjá Steinavík verður
skipið áfram gert út frá Reylgavík
en það var í eigu Gísla Jóhannes-
sonar útgerðarmanns. Jón Finns-
son er þegar farinn út eftir eig-
andaskiptin með fimmtán menn í
áhöfn.
Gísli Jóhannesson hefur gert
Jón Finnsson RE út frá árinu 1987
en fjölskylda hans hefur um ára-
tuga skeið tekið þátt í útgerð skipa
með sama nafni. Hann segir að
það sé skrýtin tilfinning að horfa
á eftir skipinu en ekki hafi verið
um annað að ræða í stöðunni en
að selja; það sé einungis fyrir
„hina stóru“ að gera út í dag.
Gísli gerir ráð fyrir að leggja árar
í bát sem útgerðarmaður en Jón
Finnsson var eina skipið sem hann
hafði á sínum snæmm. Hann mun
þó gefa sér góðan tíma til að hugsa
málið.
Gísli segir að skipið sé i góðum
höndum. „Það eru ungir og dug-
legir menn sem taka við og ég
vona að þetta lukkist fyrir báða
aðila.“ Hann reiknar með að sama
áhöfn verði áfram á Jóni Finns-
syni. „Þetta er að vísu allt breyt-
ingum undirorpið, bæði til sjós og
lands en ég vona að þeir verði
allir áfram; það er valinn maður
í hverju rúmi um borð og mikil
eftirsjá í áhöfninni."
Kaupverð skipsins hefur ekki
fengizt uppgefið, en það er smíðað
árið 1987 í Póllandi og 714 tonn
að stærð. Jón Finsson hefur stund-
að veiðar á rækju og loðnu. Á þessu
kvótaári hefur hann rúmlega þús-
und þonna þorskígildsikvóta og er
uppistaðan loðna og rækja.
Shjottu stoðum nnilir hiörgynarslarlið!
(J(ed því aö kaupa flugelda af Hjálparsveit skáta í Reykjavík
styrkirðu björgunarstarf sem getur skipt sköpum á neyöarstund.
Opið viö Skátabúðina til kl. 20
Hjálparsveit skáta í Reykjavík
Þ ö k k u m s t u ð n i n g i n n ! .
EGLA bréfabindi
SÖLUAÐILAR
Reykjavík
Bókabúð Máls & Menningar
Laugavegi 18
Bókahornið
L augavegi 100
Penninn
Kringlunni 8-12
Bóksala kennaranema
S takkahlíð
Bókabúð Máls & Menningar
Síðumúla 7-9
Griffill hf.
Síðumúla 35
Penninn
Hallarmúla
Hugborg Grímsbær
Bústaðaveg
Aníta hf..
Nethyl 2
Bókabúð Árbæjar
Hraunbæ 102
Prentsm. Oddi Söludeild
Höfðabakka
Tækniskólinn bóksala
Höfðabakka 9
Kópavogur
Bókabúð Snælands Furugrund 3
Veda bóka- og ritfangaverslun
Hamraborg 5
Keflavík
Bókabúð Keflavíkur-
Sólvallagötu 2
Nesbók bóka- og ritfangaverslun
Hafnargötu 36
Grindavík
Bókabúð Grindavíkur, Víkurbraut 62
Akranes
Bókaskemman Stekkjarholt 8
Bókaverslunin Andrés Nielsson
Kirkjubraut 54
Grundarfjörður
Hrannarbúðin Hrannarstlg 5
Hellissandur
Verslunin Gimli
Búðardalur
Verslun Einars Stefánssonar
ísafjörður
Bókabúð JónasarTómasonar
Hafnarstræti 2
Þingeyri
Kaupfélag Dýrfirðinga
Hólmavík
Kaupfélag Steingrímsfjarðar
Hvammstangi
KaupfélagV-Húnvetninga
Sauðárkrókur
Bókabúð Brynjars Skagfirðingabraut
Kaupfélag Skagfirðinga
Akureyri
Bókabúð Jónasar Jóhanns
Hafnarstræti 108
Bókabúðin Edda Hafnarstræti 100
Kaupfélag Eyfirðinga
Húsavík
Prentstofan Örk Héðinsbraut 13
Raufarhöfn
Bókabúðin Urð Tjarnarholt 9
Egilsstaðir
Kaupfélag Héraðsbúa Kaupvangi 7
Bókabúð Hlöðum Fellabæ
Eskifjörður
Júllabúð
Pöntunarfélag Eskfirðinga
Neskaupstaður
Kaupfélagið Fram
Fáskrúðsfjörður
Kaupfélag Fáskrúðsfjarðar
Höfn Hornafirði
Kaupfélag A-Skaftfellinga
Hvolsvöllur
Kaupfélag Rangæinga
Múlalundur
Vinnustofa SÍBS
Símar: 628450 688420 688459
Fax 28819