Morgunblaðið - 06.01.1995, Qupperneq 18
MORGUNBLAÐIÐ
18 FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1995
PLl
IY
BORGARKRINGLUNNI
Hjörþyngdarnámskeiö
FULLORÐINNA
Erum að fara af stað með þetta vinsæla námskeið fimmta árið í röð.
Námskeiðið stendur í þrjá mánuði og er undir stjórn næringarfræðings.
Innifalið í námskeiði:
C# Vikuleg mætingtil næringarfræðings.
^ Aöhald frá íþróttakennara sem sér um
leikfimi fyrir þátttakendur í kjör-
þyngdarhóp.
CC Mælingar: þol, húðfita, blóðþrýstingur
- í upphafi og enda námskeiðs.
í||| Frjáls mæting í stöð, hvort heldur í
leikfimi eða tæki.
Verið velkomin!
Kjörþyngdarnámskeiö
UNGUNBA
Aldur 10 -16 ára. Námskeiðið stendur í 12 vikur.
Fyrirkomulag:
Unglingurinn:
431- mætir ásamt fot;eldri/foreldrum til
næringarfræðings sem kennir
viðkomandi á „Stigakerfi Máttar".
mætir vikulega til næringarfræðings
sem fer yfir matardagbók og viktar.
H| mætir reglubundið í leikfimi undir
stjórn íþróttafræðings.
|§| mætir í þolmælingar og
húöfitumælingar í upphafi og í enda
námskeiðs.
FAXAFENI 14 REYKJAVIK SIMI 689915
FAXAFENI 14 REYKJAVIK SIMI 689915
FRÉTTIR: EVRÓPA
Portúgal tekur við formennsku í VES
Vilja samræmingu
njósna og sam-
eiginlega stjórnstöð
Lissabon. Reuter.
PORTÚGÖLSK stjómvöld, sem tóku
við formennsku í Vestur-Evrópusam-
bandinu (VES) um áramótin, vilja
koma á fót samræmingu njósnastarf-
semi aðildarríkjanna, setja upp sam-
eiginlega stjórnstöð hemaðarað-
gerða og gera ýmislegt fleira til að
gera bandalagið skilvirkara. VES á
með tíð og tíma að verða varnarmála-
armur Evrópusambandsins.
VES hefur lengi staðið í skugga
Atlantshafsbandalagsins (NATO).
Munurinn á bandalögunum tveimur
er meðal annars sá að NATO hefur
haft samhæfða stjórnstöð og hefur
yfir fjölmennum hersveitum að ráða,
en VES hefur ekki haft neitt hernað-
arskipulag og fáar hersveitir teljast
„VES-herlið“. Úr þessu vilja portúg-
ölsk stjómvöld nú bæta.
VES keppi ekki við NATO
Portúgalar vilja hins vegar ekki
að VES keppi við NATO. Jose Manu-
el Durao Barroso, utanríkisráðherra
Portúgals, sagði á blaðamannafundi
að starfsemi VES mætti aldrei verða
til að spilla hernaðarsamstarfi
NATO-ríkja í Evrópu og Ameríku.
Fernando Nogueira, varnarmála-
ráðherra, sagði að mikilvægt væri
að skipulag VES og NATO félli vel
saman. „Við teljum að allur hefð-
bundinn herafli, sem aðildarríki VES
fá NATO til umráða, eigi jafnframt
að teljast hersveitir VES,“ sagði
hann.
Nogueira sagði að ekki væri ætl-
unin að VES kæmi sér upp eigin
leyniþjónustu, heldur ætti að setja
upp miðstöð, sem myndi samhæfa
njósnir og greina upplýsingar, sem
aðildarríkin og NATO öfluðu.
Portúgalir vilja leggja fram herlið
til Miðjarðarhafsflotadeildar, sem
verið er að setja á laggimar undir
merkjum VES, og til flotadeildar,
sem Bretar og Hollendingar hyggjast
setja á fót.
Ekki fleiri ríki í bili
Durao Barroso lét svo um mælt
að VES ætti ekki að taka inn fleiri
aðildarríki um stundarsakir, heldur
væri það forgangsverkefni að styrkja
innra starf samtakanna. Hin nýju
aðildarríki Evrópusambandsins, Sví-
þjóð, Finnland og Austurríki, munu
fá áheyrnaraðild að samtökunum á
næstunni. ísland er aukaaðili að VES
ásamt Noregi og Tyrklandi.
Reuter
Kohl og Balladur funda
HELMUT Kohl, kanslari Þýskalands, og Edouard Balladur, forsæt-
isráðherra Frakklands, áttu í gær fund í bænum Chamonix í Frakk-
landi en þar á Balladur hús. Frakkar og Þjóðverjar eru ekki eins
samstíga í Evrópumálum og þeir hafa verið á undanförnum árum
og er það talið geta haft áhrif á niðurstöðu ríkjaráðstefnu ESB.
Nýtt viðmiðunarverð
sjávarafurða
• NÝTT viðmiðunarverð á sjávaraf-
urðum tók að vanda gildi í Evrópu-
sambandinu um áramót. Að sögn
Kristjáns Skarphéðinssonar, sjávar-
útvegsfulltrúa við sendiráð íslands í
Bmssel hefur viðmiðunarverð ýmissa
sjávarafurða lækkað lítið eitt frá
fýrra ári. Verðið er reiknað út frá
méðalverði í nokkmm innflutnings-
höfnum ESB síðastliðin þijú ár og
er nú tekið tillit til ára, sem verðið
hefur verið lægra. Evrópusambandið
getur lagt tolla á sjávarafurðir frá
Islandi, séu þær seldar á Evrópu-
markaði undir viðmiðunarverði. A
það reyndi t.d. á síðasta ári við inn-
flutning sjófrysts fisks til Bretlands.
• BRESKA blaðið The Times segir
í gær að aukinn stirðleiki í samskipt-
um Frakka og Þjóðveija muni líklega
hafa mikil áhrif á dagskrá ríkjaráð-
stefnunnar á næsta ári. Mikil óvissa
ríki um stuðning Frakka við sam-
bandsríkjahugmyndir, fyrr en að
loknum forsetakosningum, og hug-
myndir Þjóðveija um að dýpka Evr-
ópusamstarfið hafa hlotið litinn
hljómgrann í Frakklandi.
• NIALL Ferguson, sem kennir
nútímasögu við Oxford-háskóla, seg-
ir í grein í Daily Telegraph í gær
að ESB styrki jaðarsvæði aðildarríkj-
anna með byggðastefnu sinni og þró-
unarstyrkjum. Það hafí leitt til þess
að mikill stuðningur sé við ESB inn-
an Skoska þjóðarflokksins og öðmm
svæðisbundnum stjórnmálaflokkum
í Evrópu.
• BRESK fyrirtæki em mjög óör-
ugg í samskiptum sínum við fram-
kvæmdastjórnina, segir í skýrslu sem
gerð var fyrir lögmannafyrirtækið
Clifford Chance og greint er frá í
Financial Times í gær. Er það niður-
staða skýrslunnar að mörg fyrirtæki
telji sig verða undir í samkeppni, þar
sem þau hafi ekki nægilegan skilning
á uppbyggingu ESB.
• STUÐNINGUR við aðild að ESB
verður sífellt meiri í Finnlandi sam-
kvæmt skoðanakönnunum. Sam-
kvæmt nýrri könnun telja 67% Finna
að aðild sé þjóðinni í hag en 20%
ekki. Alls töldu 78% að ESB sem
slíkt væri góð stofnun eða vom hlut-
lausir en einungis 17% töldu sam-
bandið slæmt. 54% eru hins vegar
andvíg sameiginlegum gjaldmiðli. í
þjóðaratkvæðagreiðslunni á síðasta
ári samþykktu Finnar aðild með 56%
atkvæða.
4
c
I
c
c
€
I
I
4
4
4
C
í
i
c
i
{
(
<
i
I