Morgunblaðið - 06.01.1995, Blaðsíða 22
22 FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FLYTJENDUR á nýárstónleikunum í Listasafni íslands á sunnudaginn.
Mögnleikhúsið
Aukasýn-
ingá
Trítiltoppi
AUKASÝNINGAR verða á barna-
leikritinu „Trítiltoppi" í Möguleik-
húsinu um helgina. Leikritið var
frumsýnt í byijun desember og sýnt
þijátíu og sex sinnum fyrir jól, oft-
ast fyrir fullu húsi. Til stóð að ljúka
sýningum fyrir áramót, en vegna
mikillar aðsóknar hefur verið ákveð-
ið að bæta við tveimur aukasýning-
um. Þær verða laugardaginn 7. og
sunnudaginn 8. janúar og hefjast
kl. 14 í Möguleikhúsinu við Hlemm.
I kynningu segir: „Trítiltoppur"
er íslenskt ævintýraleikrit sem segir
frá tröliastráknum Trítiltoppi sem
leggur af stað í leiðangur til að leita
að jólunum. Leitin reynist honum
þó erfiðari en hann gerir ráð fyrir.
Hann lendir í ýmsum ævintýrum,
hittir góðhjartaða álfakónginn Arf-
ítus, þarf að beijast við illskeytta
dverginn Garra, þiggur gistingu í
helli Grýlu og Leppalúða o.fl.“
Höfundur og leikstjóri er Pétur
Eggerz, Helga Rún Pálsdóttir hann-
ar leikmynd og búninga og Alfreð
Sturla Böðvarsson sér um lýsingu.
Leikarar eru Alda Arnardóttir,
Bjarni Ingvarsson og Stefán Sturla
Siguijónsson.
STEFÁN Sturla og Alda í
hlutverkum Arfítusar álfa-
kóngs og Trítiltopps.
LISTASAFN íslands heldur ný-
árstónleika sunnudaginn 8. jan-
úar kl. 20.30 í safninu að viðstödd-
um forseta Islands, frú Vigdísi
Finnbogadóttur. Þetta eru aðrir
nýárstónleikar Listasafnsins.
Flytjendur eru allir í fremstu
röð íslenskra tónlistarmanna og
má þar nefna Blásarakvintett
Reykjavíkur, Þóru Einarsdóttur
sópran, Sigrúnu Eðvaldsdóttur
fiðluleikara og marga fleiri.
Á tónleikunum verður meðal
annars Ieikin tónlist eftir Bach,
Mozart, Schubert og Keisaravals-
inn eftir Jóhann Strauss yngri.
Efnisskrá
Tónleikarnir hefjast á verki
eftir Johann Christian Bach:
Kvintett i D-dúr op. 11 nr. 6 fyrir
flautu, óbó, fiðlu, víólu og selló.
Næst verða flutt þrjú sönglög
fyrir sópran og píanó eftir Jón
Þórarinsson: Þjóðvísan Fuglinn í
fjörunni, Islenskt vögguljóð á
hörpu við ljóð Halldórs Laxness
Nýárs-
tónleikar
Lista-
safnsins
og Jeg elsker dig við texta Magda-
lene Thoresen.
Þá verður flutt Fantasía um
La Traviata eftir Verdi fyrir
klarínett og píanó eftir Donato
Lovreglio og Opus number Zoo
fyrir blásarakvintett eftir Luc-
iano Berio. Ljóðið í síðartalda
verkinu er eftir Rhoda Levine og
Hslenskri þýðingu Kristjáns
Árnasonar.
Eftir hlé verður Wolfgang
Amadeus Mozart á dagskrá. Flutt-
ur verður Kvartett í D-dúr K 285
fyrir flautu, fiðlu, víólu og selló.
Der Hirt auf dem Felsen op.
129 fyrir sópran, klarínett og
píanó er eftir Franz Scubert, ljóð-
ið eftir Miiller og von Chézy.
Að lokum hljómar Keisaravals-
inn op. 437 eftir Jóhann Strauss
yngri.
Flytjendur eru sem fyrr segir
kunnir og vel metnir tónlistar-
menn sem starfa hér á landi og
erlendis. Þeir eru Þóra Einars-
dóttir, sópran, Sigrún Eðvalds-
dóttir, fiðla, Helga Þórarinsdótt-
ir, víóla, Richard Talkowsky,
selló, Richard Xorn, kontrabassi,
Kristinn Örn Kristinsson, píanó,
Steef van Oosterhout, slagverk,
Blásarakvintett Reykjavíkur,
Bernharður Wilkinson, flauta,
Daði Kolbeinsson, óbó, Einar Jó-
hannesson, klarínett, Jósef Ogni-
bene, horn og Hafsteinn Guð-
mundsson, fagott.
Gallerí Sólon
*
Islandus
Ljósmynd-
ir eftir
Davíð Þor-
steinsson
DAVÍÐ Þorsteinsson opnar
sýningu á Jjósmyndum í Gall-
eríi Sólon íslandus við Banka-
stræti á
morgun,
laugardag, kl.
15. Um er að
ræða hátt á
þriðja tug
mannamynda
sem flestar
eru teknar á
götum
Reykjavíkur á
árunum 1993-1994.
Davíð er áhugaljósmyndari
sem áður hefur haldið fjórar
einkasýningar, allar á Mok-
kakaffi í Reykjavík. Sýningin á
Sóloni stendur til 24. janúar
og eru allir velkomnir jafnt á
opnunina sem aðra daga.
Daníel Þor-
kell í Galleríi
Sævars Karis
FYRSTA sýningin í Galleríi
Sævars Karls á árinu 1995 er
sýning Daníels Þorkels Magn-
ússonar, en hún verður opnuð
í dag, föstudag.
Daníel stundaði nám í_Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands
og hefur tekið þátt í §ölda sam-
sýninga og haldið einkasýning-
ar víða. Þetta er hans önnur
einkasýning í Galleríi Sævars
Karls.
Listaklúbbur Leikhúskjallarans
Lög úr söngleikjum
á mánudagskvöldið
LISTAKLÚBBURINN hefur starf
sitt á nýju ári á léttum nótum mánu-
dagskvöldið 9. janúar en þá munu
þijár ungar söngkonur flytja gestum
lög úr söngleikjum við píanóundirleik
Kristins Arnar Kristinssonar. Ámi
E. Blandon fjallar um sögulegan bak-
grunn laganna með aðaláherslu á
Leonard Bemstein, höfund tónlistar
söngleiksins West Side Story sem
fmmsýndur verður í Þjóðleikhúsinu
í febrúar. Valgerður Guðnadóttir og
Garðar Thór Cortes annað parið af
tveimur sem leika Maríu og Tony í
sýningu Þjóðleikhússins syngja við
píanóundirleik Jóhanns G. Jóhanns-
sonar hljómsveitarstjóra.
Söngkonumar em Ágústa S. Ág-
ústsdóttir, Harpa Harðardóttir og
Ingveldur Ýr Jónsdóttir. Ágústa og
Harpa hafa báðar stundað nám við
Söngskólann í Reykjavík og luku
þaðan söngkennaraprófi síðastliðið
vor. Þær hafa tekið þátt í fjölda sýn-
inga hjá íslensku ópemnni og í nóv-
ember sl. héldu þær saman tónleika
í Listasafni Kópavogs, Gerðarsafni.
Ingveldur Ýr Jónsdóttir stundaði nám
við söngskólann í Reykjavík, Tónlist-
arskólann í Vínarborg og Manhattan
School of Music í New York. Hún
hefur síðan tekið þátt í ópemupp-
færslum í Mið-Evrópu og hér á landi
og haldið tónleika erlendis og á ís-
landi. Nú síðast fór Ingveldur Ýr með
hlutverk Fjóthildar og Valþrúðar í
Niflungahringnum eftir Wagner og
með hlutverk Preziosilla í Valdi örlag-
anna eftir Verdi.
Listaklúbburinn heldur nú upp á
eins árs afmæli um þessar mundir,
en hann var stofnaður 3. janúar 1994.
Dagskráin á mánudagskvöldið hefst
um kl. 20.30 og er aðgangseyrir kr.
500 en kr. 300 fýrir félaga Lista-
klúbbsins. Þá mun liggja frammi
dagskrá klúbbsins fyrir janúar og
febrúar.
Boðiö að stjórna
Sinfóníunni
STJÓRN Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands hefur ákveðið að bjóða Guðna
A. Emilssyni, hljómsveitarstjóra í
Þýskalandi, að koma hingað á starfs-
árinu 1995-96. Hann myndi þá
stjórna Sinfóníunni á einum áskrift-
artónleikum næsta vetur. Enn er
hvorki Ijóst hvenær þetta gæti orðið
nákvæmlega né hver efnisskráin yrði.
Guðni hlaut nýlega verðlaun og
styrk Herbert von Karajan-stofnun-
arinnar í Berlín fyrir tónleikahald og
framúrskarandi árangur í keppni.
Hann er nú stjómandi Sinfóníuhljóm-
sveitar æskunnar í Túbingen skammt
frá Stuttgart og hefur á undanförn-
um árum komið víða fram sem gesta-
stjórnandi. 'í viðtali við Morgunblaðið
á þriðjudag kvaðst Guðni eiga sér
þann draum að koma heim og stjórna
Sinfóníuhljómsveitinni hér. Og nú
virðist ljóst að draumurinn rætist.
Grafík-
sýning
Þórdísar í
Stöðlakoti
ÞÓRDÍS Elín Jóelsdóttir opnar
grafíksýningn í Stöðlakoti við
Bókhlöðustíg á morgun,
laugardaginn 7. janúar, kl. 14.
Þórdís stundaði myndlist-
amám á listasviði Fjölbrauta-
skólans í Breiðholti og útskrif-
aðist úr grafíkdeild Myndlista-
og handíðaskóla íslands 1988.
Hún er meðlimur myndlistar-
hópsins Áfram veginn sem rek-
ur grafíkverkstæði í Þingholts-
stræti 5. Hópurinn hefur hald-
ið nokkrar samsýningar, síðast
í Ásmundarsal 1990. Þetta er
önnur einkasýning Þórdísar.
Myndirnar eru handlitaðar
ætingar unnar í kopar. Sýning-
in er opin daglega frá kl. 14-18,
en henni lýkur sunnudaginn
22. janúar.
Fyrstu leirlistarverk-
in og myndir Kjarvals
A KJARVALSSTOÐUM __ hefjast
tvær sýningar á morgun. Önnur er
yfirlitssýning um íslenska leirlist og
hin með myndum af mörgu tagi úr
Kjarvalssafni. Hún markar upphaf
þess að verk eftir Jóhannes Sveins-
son Kjarval verði jafnan til sýnis í
safninu. Kristín G. Guðnadóttir valdi
myndirnar eftir Kjarval i austursal
hússins, en Eiríkur Þorláksson hafði
umsjón með leirlistinni í vestursal
og miðsal. Þar gefur að líta sýnis-
horn fyrstu leirlistaverkanna frá því
um 1930 og síðan er reynt að rekja
þróunina. Verk 21 myndlistarmanns
eru á sýningunni.
Forráðamenn Kjarvalsstaða hafa
gegnum tíðina fengið óskir um að
ganga megi að verkum Jóhannesar
S. Kjarvals vísum í húsinu. Og nú
hefur menningarmálanefnd ákveðið
að taka einn sal undir þær. Þannig
verða verk Kjarvals sýnd næstu vikur
og einnig á sumarsýningu safnsins.'
Það á mikið af myndum eftir lista-
manninn og uppistaðan er gjöf hans
til Reykjavíkurborgar frá 1968 á
5.000 verkum, mest skissum og
teikningum. Síðan hafa fjölmargir
einstaklingar aukið við hana.
Á sýningunni, sem opnuð verður
á morgun, er áhersla lögð á fjölbreyti-
leika og frumleika í verkefnavali og
myndmáli Kjai-vals. Myndir af þekkt-
um Islendingum eru á sýningunni,
landslagsteikningar, olíumálverk,
uppstillingar og teikningar af furðu-
verum í myndheimi málarans.