Morgunblaðið - 06.01.1995, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 06.01.1995, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1995 35 fyrnst að fullu. Rússar hertóku þann hluta landsins þar sem fjölskylda Georgs bjó, þeir svívirtu móður hans og sjálfur var hann um tíma í fanga- búðum þeirra. Það er okkar skoðun að hann hafí borið ör á sálunni eftir þetta alla tíð. Fyrst eftir komu sína til íslands starfaði Georg sem landbúnaðar- verkamaður. Hann hóf nám í múraraiðn og lauk sveinsprófí 1958. Meistararéttindi í faginu öðlaðist harni 1926. Eins og alkunna er eru störf múrara með þeim erfíðari og varð atvinnusjúkdómur þegs valdandi að hann varð að láta af þeiín störfum mun fyrr en reiknað hafði verið með. Við hjónin vissum fyrir víst að hann var verkmaður góður og sjálf sáum við verk eftir hann sem lofuðu meistarann. Það er öruggt að það er ekki tek- ið út með sitjandi sældinni að vera kippt úr leik svo snemma á vinnuæ- vinni og leið hann fyrir það alla tíð. Það sem bjargaði Georg þó var ró- semi hans og lagðist hann því ekki í vol og víl. Georg hafði alla tíð mik- inn áhuga á ferðalögum, hvort held- ur var innanlands eða utan og síðast- liðið sumar fór hann í heimsókn til ættingja sinna í Þýskalandi og Pól- landi. Fyrir honum var þessi ferð, og aðrar sambærilegar, sem píla- grímsferðir. Við minnumst þess sér- staklega hversu mikla ánægju hann hafði af því að sýna okkur hjónum og öðrum kunningjum, myndir frá æskuslóðum. Við minnumst einnig með mikilli ánægju ferðar sem við fórum með Georg og Steinu til Mallorca fyrir nokkrum árum. Einnig skýtur upp í hugann svipmyndum úr mörgum ferðum með þeim heiðurshjónum, Steinu og Georg, til Knarrarness á Mýrum svo og til ýmissa annarra staða hér innanlands. Síðasta ferðin var í tjaldútilegu í Þjórsárdal í sumar sem leið. Það var mikill munur á honum og innfæddum íslendingum. Honum var í blóð borin virðing fyrir verðmætum Páll elstur, sendum við okkar samúð- arkveðjur og biðjum þeim Guðs bless- unar, styrk og huggunar í sorginni yfir þeirra mikla missi. Garðar. Sem bliknar faprt blóm á engi svo bliknar allt, sem jarðneskt er ei standa duftsins dagar lengi þótt dýran fjársjóð geymi í sér. Það eitt, er kemur ofan að, um eilífð skín og blómgast það. (NFS Grundtvig - Vald. Briem) Eftir stutta og erfiða sjúkrahús- legu er elsku Diddi farinn frá okkur. Okkar hugur hefur verið mikið hjá honum í þessum veikindum og þó sérstaklega yfir hátíðarnar, þar sem við umgengumst mjög mikið þá. Diddi var alla tíð sem afi fyrir okk- ur, en þó sérstaklega fyrir Önnu Siggu, sem var það ung þegar Ingv- ar afi dó. Að koma heim til Huldu og Didda var eins og að koma heim til ömmu og afa. Diddi var mikill náttúruunnjindi. Ekki voru þær fáar ferðirnar sem við fórum með Huldu og Didda um fáfarnar slóðir upp á hálendið. Við eigum eftir að sakna Didda mikið. Takk, elsku Diddi, fyrir allar góðu stundirnar, við munum alltaf minnast þín. Elsku Hulda, Kiddý, Frímann, Hrefna Lína, Biggi Palli og fjölskyld- ur, við og fjölskyldur okkar í Svíþjóð sendum ykkur okkar innilegustu samúðarkveðjur, okkur þykir leitt að geta ekki komið heim til að fylgja honum til grafar. Guð veri með ykk- ur á þessari erfiðu stundu. Karen og Sigríður Anna Garðarsdætur, Svíþjóð. Tilvera okkar er undarlegt ferðalag. Við erum gestir og hótel okkar er jörðin. Einir fara og aðrir koma í dag, því alltaf bætast nýir hópar í skörðin. (Tómas Guðmundsson.) Já, kynslóðir koma og kynslóðir fara. Þessar hugsanir koma upp í huga okkar systkinanna er við kveðj- um hann Didda frænda, eins og við kölluðum hann. Á gamlársdag frétt- og alla tíð var honum ljóst að ekkert fæst átakalaust og að fyrir öllu verð- ur að hafa og því fór hann einstak- lega vel með öll fjárverðmæti. Hann sóaði aldrei, en nýtti skynsamlega. Af honum mátti margt læra, en eins og flestum er kunnugt er ekki saman að jafna fyrirhyggjusemi og ráðdeild Þjóðverja annars vegar og Islendinga hins vegar. Með þessu er þó ekki sagt að hann hafí verið gallalaus en hver er það ef grannt er skoðað. Það duldist engum sem til þekkir að makaval Georgs var gott. Steina kona hans var honum alla tíð stoð og stytta í lífinu og heimili þeirra einkar aðlaðandi. Steina má nú horfa á eftir eiginmanni sínum langt fyrir tímann en hún var sjö árum yngri en hann. Hún á sem betur fer góða að sem standa með henni og styðja hana. Við hjónin, Soffía, mágkona Georgs heitins og Ólafur, svili hans, sendum Steinu einlægar samúðar- kveðjur svo og öllum þeirra nánustu. Fyrstu kynni mín af mági mínum voru þegar Steina systir kom með Georg á heimili okkar á Flókagöt- unni. Ég var þá á fermingaraldri og var vissulega forvitin að sjá kærasta stóru systur minnar. Það fór vel á með okkur þá og alla tíð síðan sýndi Georg mér og minni fjölskyldu ávallt vinsemd, þó við hefðum oft ólíkar skoöanir á hlutunum. Eflaust var það mjög þungbært fyrir ungan mann að þurfa að hverfa burt frá sínum nánustu og byija nýtt líf, bæði að læra framandi tungumál og kynnast ólíkri þjóð. Það kom stundum fram hjá honum að hann ætti erfitt upp- dráttar hér á íslandi. Ég held að ættjarðarböndin hafi verið mjög sterk hjá honum og fann maður til með honum hversu fjarri hann var frá ættingjum sínum. Við megum alltaf búast við því að missa þá sem okkur eru kærir en það hefur enginn vald né burði til að taka frá okkur endurminning- arnar. Soffía og Ólafur. um við að stuttri en erfiðri baráttu hans við krabbameinið hafði lokið með sigri þess síðarnefnda. Diddi, sem var yngstur bræðranna frá Gunnólfsvík, var einnig síðstur þeirra að flytja til hinna nýju heim- kynna, er bíða okkar allra. Að vísu eru flestir velkomnir þangað inn, og viðbúnaður, er gestirnir koma í bæinn, og margir í allsnægtum una þar fyrst um sinn. En áhyggjan vex, er menn nálgast burtferð- ardaginn. (Tómas Guðmundsson.) Á þessum tíma hrannast upp minningarnar um manninn, sem þótti svo annt um okkur öll. Manninn, sem vildi fylgjast svo vel með öllum af- komendum bræðra sinna og reyndist þeim, sem væru þau hans eigin. Manninn, sem mátti ekkert aumt sjá, þá var hann rokinn til hjálpar. Já, manninn, sem hver móðir myndi óska að væri ímynd sona hennar. Síðustu þrjátíu árin rak Diddi með félögum sínum smurstöðina í Öskju- hlíðinni. Þjónustulundin var ávallt í fyrirrúmi enda hélt hann sömu við- skiptavinum, svo áratugum skipti. í frítíma sínum naut hann þess að ferð- ast um landið á jeppanum og ávallt var veiðistöngin með í farteskinu. Að renna fyrir silung var hans líf og yndi og ósjaldan hefur hann stað- ið á tröppunum hjá einhveiju okkar með afrakstur slíkra ferða tilbúna í pottinn. Hann naut þess að gefa það sem flestir aðrir hefðu haldið fyrir sig. Hann var skemmtilega bráðlátur og vildi hespa hlutunum af í hvelli. Orðið leti var ekki til í hans orðabók. Dyr heimilis þeirra Huldu stóðu ávallt opnar og þar var gestrisni og höfðingsskapur hafður í fyrirrúmi. Það var sama hvenær komið var, elshúdborðið var alltaf tertum hlaðið. Minningin um góðan dreng mun varðveitast í hugum okkar allra um ókomna tíma. Elsku Hulda, Kiddý, Frímann, Hrefna Lína, Biggi Palli, tengdabörn og bamabörn, megi allar góðar vætt- ir styrkja ykkur á þessum erfiðu tím- um. Systkinin frá Gunnólfsvík og fjölskyldur þeirra. MINNINGAR + Karl Jakobsson, húsasmíða- meistari, fæddist í Haga í Aðaldal í Suður-Þingeyjar- sýslu 3. maí 1911. Hann varð bráð- kvaddur á heimili sínu 27. desember síðastliðinn. For- eldrar hans voru Jakob Þorgrímsson bóndi í Haga og Rannveig Jón- asdóttir. Hann átti níu systkini, þar af fimm hálfsystkini. Á lífi er einn bróðir, Forni, en látin eru Þorgeir, Jóna, Andr- és, Ragnar, Jón Helgi, Jónas, Adam og Hólmfríður. Hinn 24. október 1936 kvæntist hann Auði Eiríksdóttur, ljósmóður, f. 20. september 1902 á Borgum í Þistilfirði, d. 8. júlí 1979 í Reykjavík. Þau eignuðust tvo syni. 1) Þráinn, verkfræðingur í Reykjavík, f. 9. júní 1938, kvæntur Birnu Magnúsdóttur, handavinnukennara, f. 16. des- ember 1935. Þau eiga fjögur börn, Magnús, sonur hans er Þráinn Arnar, Karl, kvæntur Helgu Melkorku Óttarsdóttur, dóttir þeirra er María, Björgu Jakobinu, sambýlismaður henn- ar er Guðmundur Torfason og eiga þau nýfædda dóttur, og Auði, unnusti hennar er Marco Dellernia. 2) Örlygur, aðstoðar- skólameistari á Selfossi, f. 2. maí 1945, kvæntur Steingerði Jónsdóttur, skólaritara, f. 10. apríl 1945, og eru börn þeirra þrjú, Kári, Jón og Auður. Sambýliskona Karls frá 1980 var Aðalbjörg Björns- dóttir frá Ytritungu á Tjörnesi, f. 19. desember 1912, d. 7. mars 1992. Karl fluttist til Vest- mannaeyja 1933 og- lærði þar húsasmíði en fluttist til Reykjavíkur 1946 og hóf þá strax störf hjá Bygginga- félaginu Brú og vann hjá því fyrir- tæki á meðan það starfaði. Fyrsta byggingin sem hann vann við var Gagnfræða- skóli Austurbæjar. Árið 1953 hóf hann vinnu við Borgarspít- alann en grunnur hafði verið tekinn að þvi húsi árið áður. Karl varð fljótlega meistari við Borgarspítalann og vann siðan einnig á eigin vegum við inn- réttingu spítalans. Hann vann einnig við margar aðrar stór- byggingar í Reykjavik, m.a. Skúlatún 2, Laugalækjarskóla, Vogaskóla og Kaffibrennslu O. Johnson & Kaaber svo nokkrar séu taldar. Hann sat í stjórn Meistarafélags húsasmiða um nokkurra ára skeið. Eftir að byggingu Borgarspítalans lauk, þ.e. A- og E-álmu, tók Karl að sér að stjórna smíðaverkstæði Borgarspítalans og sá um við- hald við spítalann. Þegar hann Iét af störfum vegna aldurs árið 1981 hafði hann starfað við spít- alann óslitið í 28 ár. Útför Karlg fer fram frá Bústaðakirkju í dag. KARL JAKOBSSON í DAG, þegar við kveðjum Karl Jak- obsson, tengdaföður minn, langar mig að minnast hans í fáeinum orð- um. Á annan dag jóla hittist öll fjöl- skyldan í í jólaboði hjá Þráni og Birnu eins og svo mörg undanfarin ár, öll nema Karl Þráinsson og fjöl- skylda hans, sem býr erlendis og Kári, sonur okkar, sem var að vinna. Karl var hinn hressasti og var kom- ið fram yfir miðnætti er við ókum honum heim um leið og við fórum austur. Þegar við kvöddum hann þá grunaði okkur ekki að það væri í síðasta sinn. Daginn eftir var hann allur. Það er gott að minnast þessa síðasta kvölds sem við áttum saman, Karl talaði um veiðar í Þingvalla- vatni næsta sumar, hann var mynd- aður með nýfæddri dóttur Bínu og Guðmundar og fór vel á með honum og þessum yngsta afkomanda hans. Þegar ég kynntist Karli var liðið á starfsævi hans. Hann sá þá um viðhald á Borgarspítalanum, en hafði áður stjórnað byggingu hans og duldist engum að hann var stolt- ur af þeirri byggingu og þótti vænt um vinnustað sinn. Hann og Auður kona hans voru nýflutt í Hjallaland- ið, í raðhús sem Karl byggði og bjó Þráinn sonur hans í næsta húsi - og býr enn. Karl var ættaður úr Suður-Þing- eyjarsýslu, fæddist og ólst upp í Haga í Aðaldal í stórum hópi systk- ina. Sem unglingur vann hann á bæjunum í kring í kaupavinnu. Hann var í Laugaskóla í tvo og hálfan vetur en fór í ársbyrjun 1933 á vertíð í Vestmannaeyjum eins og svo margir ungir menn gerðu á þessum tíma. I Eyjum hóf hann fljótlega vinnu við smíðar, m.a. bátasmíði hjá Helga Benediktssyni sem var umsvifamikill athafnamað- ur í Eyjum. í Vestmannaeyjum lærði hann einnig húsasmíði og þar kynntist Karl konuefni sínu, Auði Eiríksdóttur, ljósmóður, ættaðri úr Þistilfirði og gengu þau í hjónaband fyrsta vetrardag 1936. í Eyjum fæddust synir þeirra báðir, Þráinn og Örlygur, en 1946 fluttist fjöl- skyldan til Reykjavíkur og settist fljótlega að í Drápuhlíð 28, þar sem þau bjuggu lengi, í húsi sem Karl byggði ásamt sveitungum sínum að norðan Þegar litið er til baka er margs að minnast og bera minningarnar um Karl allar vitni um mikinn öðl- ingsmann og traustan og tryggan vin. Á fyrstu búskaparárum okkar Örlygs í Reykjavík, þegar kom að því að finna dagvistunarpláss fyrir yngri son okkar, komu þau í heim- sókn einu sinni sem oftar, Auður og Karl, og var erindið að bjóða Jóni að vera hjá ömmu sinni á daginn. Hún hafði reyndar litla trú á leikskól- um og slíkum stofnunum og þótti víst nóg um að sá eldri þyrfti að dvelja þar daglangt. Var þetta góða boð þegið með þökkum og var sá stutti í vistinni á þriðja ár. Ekki veit ég hvort var sælla, amman eða drengurinn en besta stund dagsins var þegar afínn kom heim úr vinn- unni með kaffibrúsann sinn og þeir karlmennirnir fengu sér „brúsakaffi". Auður og Karl voru mjög gestris- in og dvöldu ættingjar og vinir að norðan og úr Eyjum oft á heimili þeirra, þegar sinna þurfti ýmsum erindum í höfuðborginni. Á afmælum sínum, í maí og september, héldu þau veglegar veislur og buðu frændum og vinum. Þessi boð eru okkur minn- isstæð og minnast ekki síst bama- börnin þeirra með gleði. Auður átti oft við heilsuleysi að stríða og annað- ist Karl hana af einstakri umhyggju og víst er um það, að vel kunni hann til húsverka, hvort heldur það voru þrif, þvottar eða matseld, löngu áður en þær sjálfsögðu kröfur voru gerðar til karlmanna að þeir tækju virkan þátt í heimilisstörfum. Auður lést í júlí 1979 en um haust- ið 1980 hóf Karl sambúð með Aðal- björgu Björnsdóttur sem þá var ekkja og búsett á Húsavík. Var það báðum heillaspor og áttu þau nokkur góð ár saman þar sem þau tóku þátt af lífi og sál í því margvíslega starfi sem öldruðum er boðið uppá - spiluðu félagsvist, fóru í sólar- landaferð og dönsuðu, en Karl hafði gaman af að dansa og á sínum yngri árum dansaði hann alltaf við allar stúlkurnar á böllunum í sveitinni, þar var engin skilin útundan. Á ve- turna dvöldu þau Aðalbjörg í Reykja- vík, en á sumrin á heimili hennar á Húsavík. Ósjaldan fengum við send vel þegin ber að norðan, aðalbláber, en Karl og Aðalbjörg fóru gjarnan á beijamó og tíndu þá jafnan mikið af beijum. Karl hafði yndi af því að renna fyrir silung og lax og var slyngur veiðimaður. Hygg ég að hann hafí átt sínar bestu stundir við Þingvalla- vatn, en þar áttu tengdaforeldrar Þráins sumarbústað og fóru þau Auður oft austur um helgar á sumr- in. Nú, síðustu sumrin, eftir lát Aðal- bjargar, fór Karl með Þráni og fjöl- skyldu flestar helgar austur og sigldi Þráinn með þá Karl og Magnús, tengdaföður sinn, út á vatn og komu þeir oft með dijúgan afla að landi. Nú eru hásetarnir hans Þráins báðir komnir í annað skipsrúm, en Magn- ús lést fyrir rúmu ári. Síðustu æviár Aðalbjargar voru þeim báðum erfið vegna alvarlegra veikinda hennar og þurfti hún oft að dvelja langdvöl- um á sjúkrahúsum. Þá komu mann- kostir Karls enn í ljós en hann sýndi henni einstaka umhyggju og var hjá henni öllum stundum á sjúkrahúsinu þar til yfír lauk. Börn Áðalbjargar, fjögur, sem öll eru búsett á Húsa- vík, studdu Karl vel á þessum tíma og héldu tryggð við hann eftir að hann fluttist aftur suður. Á seinni árum fór heilsa Karls nokkuð að gefa sig og þurfti hann nokkrum sinnum að leggjast inn á sjúkrahús, en hann náði góðum bata og allt síðastliðið ár gat hann verið heima í notalegu íbúðinni sinni í Hæðargarði, sem hann kunni vel við sig í og hugsaði þar að mestu um sig sjálfur. Þráinn, sonur hans, hitti hann á hveijum degi og var sam- band þeirra feðga allra einkar gott. Karl var ákaflega vel gerður mað- ur, hægur en traustur, mikill verk- maður og vandvirkur. Þegar við flutt- um í húsið okkar á Selfossi komu þau austur Karl og Aðálbjörg, hann setti upp skápa og eldhúsinnréttingu en hún málaði með okkur húsið. Ein besta afmælisgjöf sem ég hef fengið var sú sem' Karl færði mér þegar ég varð fertug, en þá kom hann austur með hillur sem hann hafði smíðað og setti upp í búrinu hjá okkur. Hann þóttist fara nærri um það hvað hús- móðurinni kæmi best. Ég kveð Karl tengdaföður minn með kærri þökk fyrir samfylgdina. Hann var börnum okkar góður afí og minnast þau hans með hlýhug og þökk. Öll samskipti við hann voru góð og byggð á traustum grunni eins og byggingarnar sem hann reisti. Blessuð sé minning Karls Jak- obssonar. Steingerður Jónsdóttir. Það var fyrir nær þrj átíu árum að fundum okkar nafna bar saman í fyrsta sinn. Ég var ráðinn við Borg- arspítalann nýja sem þá var í bygg- ingu, byggingameistarinn, Karl Jak- obsson, sem þá var byggingameist- ari hjá Byggingafélaginu Brú. Með okkur urðu strax góð kynni sem síð- ar meir áttu eftir að verða nánari, er við urðum nágrannar í raðhúsa- lengju við Hjallaland í Fossvogi sem við byggðum okkur. Þar vorum við góðir grannar í fimmtán ár. Við hjónin gleymum aldrei hvað nafni minn og hans ágæta kona Auður hvöttu okkur áfram að byggja þrátt .fyrir lítil auraráð. Þau sáu alltaf ein- hveija leið til að við gætum haldið sama striki og hinir. Það var laugar- dag fyrir páska 1967 sem byijað var að grafa með stórvirkum vélum og inn var flutt 1. nóvember 1970. Án þeirra hvatningar hefðum við ekki getað byggt það hús. Ég ætlaði svo sannarlega ekki að gera honum nafna mínum það að skrifa um hann einhveija lofrullu, það hefði ekki verið að hans skapi. Ég hringdi í hann rétt fyrir hátíðina, sem ég gerði samt svo sannarlega of sjald- an, þá var hann kátur sem fyrr, og var ekki að heyra að hann hefði nokkru gleymt húmornum. Nú hefur hann kvatt um leið og árið kveður okkur. Við hjónin erum ævilangt þakklát þeim nafna og Auði fyrir trygga vináttu. Guð blessi minningu þeirra, og veri með sonum, tengdadætrum, barnabörnum og öðrum ættingjum um ókomna tíð. Karl Ormsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.