Morgunblaðið - 15.01.1995, Qupperneq 38
'38 SUNNUDAGUR 15, JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Stórutsala!
40 - 70% afsláttur
NÝTT KORTATÍMABIL
^ Blái fuglinn, Borgarkringlunni, sími 5887488, Póstsendum. j
• Sjálfstyrking •
Námskeið þar sem á 30 stundum er unnið markvisst
með nemendum að eftirtöldum markmiðum:
• Kynnast betur eigin styrk og kostum
• Koma sjálfum sér og eigin hugmyndum á framfæri
• Læra að þola mótiæti og taka gagnrýni
• Standa á rétti sínum og bregðast við yfirgangi
• Laða það besta fram í sjálfum sér og öðrum
• Læra að gefa af sér og gera eðlilegar kröfur
• Móta eigin lífsstfl og persónuleika
Leiðbeinandi er:
Sœmundur Hafsteinsson
sálfrœðingur
Stiúrntækniskóli Islands
sími 67 14 66 • opið til ki. 22
Utsalf*
Útsala
Útsala á vörum úr haust/vetrar listarujm.
Komdu og gerðu góð kaup!
hjá H&M Rowells
Nýi Hennes & Mauritz vor/sumar póstlistinn er kominn -
300 blaðsíður af fallegum fatnaði fyrir alla í fjölskyldunni
á góðu verði.
Hringdu í síma
5 88 44 22
og við sendum þér póst-
listann um hæl gegn
350 kr. greiðslu.
Náðu þér í nýja vor/sumar
listann og þú færð
forskot á sumarið.
RCWELLS
Húsi verslunarinnar
ÍDAG
BRIDS
IJmsjón Guómundur SV.
Ilcrmannsson
VÖRNIN lagði gildru fyrir
sagnhafa í þessu spili með
góðum árangri.
Norður
♦ 10985
f 32
♦ 42
♦ ÁK065
Vestur Austur
♦ Á6 * 32
T 109854 IIIIH V K76
♦ KD 111111 ♦ Á109853
♦ G973 ♦ D8
Suður
♦ KDG74
V ÁDG
♦ G76
♦ 42
Suður opnaði á 1 spaða,
norður hækkaði í 3 spaða
og suður sagði 4 spaða.
Vestur spilaði út tígulkóng
og tíguldrottningu. Austur
drap með ás og skipti í
hjartasjöið.
Sagnhafa fannst vörnin
nokkuð grunsamleg en
stakk samt upp hjartaás
og reyndi að henda hjarta
niður í tígulgosann. En
vestur trompaði með sex-
unni og sagnhafi varð að
gefa tvo slagi í viðbót á
hjartakóng og spaðaás.
Þetta var lunkin vörn
hjá austri þótt hún væri
ekki alveg hættuiaus; ef
suður átti til dæmis ÁDG
í spaða og hjartaás gat
hann farið upp með hjarta-
ás, reynt að henda hjarta
í tígulgosa og fellt síðan
spaðakónginn hjá vestri.
En suður átti ekki að
falla í gildruna. Hefði
vestur átt t.d. KDx í tígli
hefði hann spilað litlum
tígli í öðrum slag, ekki
drottningunni. Það er að
minnsta kosti algild regla
meðal reyndari keppnis-
spilara. Ef suður hefði
treyst því átti hann að
svína hjartadrottningunni.
VELVAKANDI
Svarar í síma 691100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Ekknaskattur
FYRIR nokkur las ég
grein í dagblaði, þar sem
fjallað var um svonefndan
ekknaskatt. Þar kom fram
að hann getur numið allt
að því helmingi tekna, eða
fleiri hundruð þúsundum.
Þetta getur gert menn að
öreigum, því að hann
kemur eftir á, öllum að
óvörum. Enginn getur va-
rast þennan óréttláta
ekknaskatt, sem rænir
menn öllu í skjóli laga og
réttar. Þennan rangláta
skatt verður að afnema
án tafar því að landi skal
með ólögum eyða.
Eggert E. Laxdal,
Hveragerði.
Hver borgar
bílaskattinn?
TORFI Ólafsson, Ný-
lendugötu 7, spyr hvort
Jón Baldvin, Davíð Odds-
son og fleiri ráðherrar sem
státa af þungum og stór-
um jeppum borgi sjálfir
bifreiðaskattinn af bílun-
um. Getur að verið að
borgaramir greiði þennan
skatt fyrir þá?
Þakka ber það
sem vel er gert
UNDIRRITAÐUR vill
koma á framfæri þakklæti
fyrir frábæra þjónustu á
smurstöð Olíufélagsins
Esso við Geirsgötu hér í
borg. Sl. 25 ár hef ég
reglulega notið þjónustu
þessa fyrirtækis sem áður
var til húsa í Hafnar-
stræti 23.
Séstakar þakkir vil ég
færa Þórði Sveinssyni for-
stöðumanni og starfs-
manni hans Magnúsi Guð-
laugssyni.
Vona ég að starfskraft-
ar þessa ágætu manna
nýtist okkur viðskiptavin-
um Smurstöðvarinnar við
Geirsgötu sem allra
lengst.
Reynir Ármannsson
Tapað/fundið
Úr tapaðist
KVENGULLÚR með
stórri skífu og svartri ól
tapaðist, mögulega á ieið-
inni frá Þverholti og niður
á Hlemm sl. miðvikudag.
Finnandi vinsamlega
hringi í síma 41830 eða
vinnusíma 601119, Elín.
Gæludýr
Köttur í
heimilisleit
GULLFALLEGUR og vel
vaninn fressköttur óskar
eftir góðu heimili. Upplýs-
ingar í síma 675782.
Pennavinir
TVÍTUG slóvensk stúlka,
sálfræðistúdent, sem safnar
póstkortum og hefur áhuga
á badminton, hjólreiðum,
teikningu o.fl.:
Jozica Lopatic,
Dol. Pirosica 13,
68263 Cerkije Ob Krki,
Slovenia.
TUTTUGU og tveggja ára
Ghanapiltur með áhuga á
fótbolta, tónlist, hjólreiðum,
safnar póstkortum:
Malcolm Abdul-
Mubarak,
P.O. Box 471,
Agona Swedru,
Ghana.
FRÁ japönsku ólympíuborg-
inni Nagano, þar sem vetr-
arleikamir fara fram 1998,
skrifar 15 ára ára piltur með
áhuga á íþróttum og tónlist:
Tae Takamisawa,
272 Sakumachi,
Minamisaku-gun,
Nagano,
384-06 Japan.
Farsi
,,/Hér þactti- rnjog áfiétgjuteyt oJj Jctm, í fer&ct -
tactStorfcmanfla-, en ‘eof ercuit ofrik i'ttcib
(dtoo þotðmig rtokhru sklpta.."
Víkveiji skrifar...
GLAMURYRÐI af ýmsum toga
setja á stundum svip á þjóð-
málaumræðuna. Víkverji heldur því
ekki fram að orðin félagshyggja og
velferðarríki heyri undir þann orð-
flokk. Þau er hins vegar notuð sem
slík oftar en ekki.
Orðabók Menningarsjóðs (1983)
segir að orðið félagshyggja merki
,jákvæð viðhorf til samstarfs við
aðra“. Samkvæmt þqirri skilgrein-
ingu geta félagshyggjumenn haft
hinar margbreytilegustu stjórn-
málaskoðanir - spannað allt hið
pólitíska litróf frá hægri til vinstri.
Orðabók Menningarsjóðs skil-
greinir orðið velferðarríki svo: „(iðn-
þróað) ríki sem á að sjá hag þegna
sinna borgið og vernda þá gegn
áföllum, t.d. með ýmis konar trygg-
ingum“. Flest vestræn ríki falla
undir þessa skilgreiningu.
Tilraunir vinstri flokka til að ein-
oka þessi orð, félagshyggju og vel-
ferðarríki, eru því út í hött.
XXX
VELFERÐARRÍKI táknar í
hugum flestra þjóðfélag þar
sem fólk býr við afkomuöryggi,
einnig þeir sem af heilsufarslegum
ástæðum hrekjast af vinnumarkaði:
aðgang að menntun, heilbrigðis-
þjónustu og almannatryggingum.
Atvinna skiptir og meginmáli - en
veruleikinn setur samasemmerki á
milli atvinnuöryggis fólks og
rekstraröryggis fyrirtækja.
Þegar grannt er gáð eiga allir
þættir velferðarríkisins, félagslega
þjónustan, tryggingarnar, heil-
brigðisgeirinn og skólakerfið, eitt
sameiginlegt. Það verður að tryggja
kostnaðarlega undirstöðu þeirra,
ella koðna þeir niður. Þessi kostnað-
arlega undirstaða er í atvinnulífinu
þar sem verðmætin verða til. Þau
markaðs- og samkeppnisríki, sem
lengst hafa náð í verðmætasköpun,
eru bezt i stakk búin til að rísa
undir heitinu velferðarríki. Hag-
kerfi marxismans, sem víða var
reynt, endaði á hinn bóginn hvar-
vetna í gjaldþroti.
I þessu ljósi eru hægrimenn og
frjálslyndir betri verðir velferðarrík-
isins en sósíalistar, raunar miklu
betri!
XXX
KULDAAUKNING heimila hér
á landi hefur verið með ólíkind-
um á níunda og tíunda áratuginum.
Víkverji vitnar í grein í Fjármálatíð-
indum eftir Tómas Hansson:
„Þar sést að skuldir heimila hafa
farið úr um 30% af ráðstöfunartekj-
um árið 1980 í um 110% 1993.
Tekið skal fram að hér er litið á
heimilageirann allan, og því er rétt
að álykta að sum heimili (t.d. yngri
kynslóðar) séu með mun verri
stöðu.“
í ljósi skuldastöðu heimilanna,
einkum heimila yngra fólks, má Ijóst
vera, að lánakjör (vextir) eru mikil-
vægt kjaraatriði, vega þyngra en
flest annað í afkomu fólks. „Kjara-
kröfur“, sem fela í sér umtalsverða
sjálfvirka hækkun lánskjaravísitölu,
eru ekki hyggileg leið til að létta
undir með skuldugum heimilum í
landinu. Kjarabatann þarf að sækja
eftir öðrum leiðum, eins og í lægra
vöruverði, lægri sköttum o.sv.fv.
Fyrirhyggjan leiðir ætíð til betri nið-
urstöðu en kapp án forsjár.
xxx
HUNDURINN, sem fylgt hefur
búandmönnum hérlendis frá
landnámi, kemur víða við í orðtök-
um tungunnar. „Hundalógík í
Reykjavík" er og yfirskrift leiðara
í Alþýðublaðinu á dögunum. Þar
segir að titekinn R-lista borgarfull-
trúi fari mikinn gegn hundahaldi.
„Það er vonandi að meirihlutinn í
Reykjavík finni sér verðugri verk-
efni,“ segir blaðið, „en heilagt stríð
gegn hundum."
Víkverja fannst Alþýðublaðið af-
greiða málið á hundavaði. Borgar-
stjórn hefur reglugerð um málið -
eins og hvert annað hundsbit. Það
er og óþarfi að vera eins og snúið
roð í hundskjaft út í krossfarann.
Hann fer vart í hundana á þessu
máli einu saman. Og ef vel er gáð
eru fleiri hundar svartir en hundur-
inn prestsins.